Þjóðviljinn - 01.08.1974, Síða 4

Þjóðviljinn - 01.08.1974, Síða 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 1. ágúst 1974. MOBVIUINN MÁLGAGN SÓSíALISMA VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Útgcfandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Hitstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson (áb) Fréttastjóri: Eysteinn Þorvaldsson Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólavöröust. 19. Simi 17500 (5 linur) Prentun: Blaðaprent h.f. YONIR LAUNÞEGA BUNDNAR YINSTRI STJÓRN Launþegar i landinu hafa ástæðu til nokkurs kviða um þessar mundir. Ástæð- an er sú óvissa sem nú rikir um myndun nýrrar rikisstjórnar. Að baki eru 3 vinstri stjórnarár með miklum kjarabótum öllum launþegum til handa. Undanfarin misseri hefur kaup- máttur launa verið hærri en nokkru sinni fyrr i sögu lýðveldisins, og blasa sannan- irnar alls staðar við. Þessar kjarabætur hefur vinstri stjórnin tryggt með hinni vinsamlegu stefnu sinni i garð verkalýðs- hreyfingarinnar og með uppbyggingar- starfi sinu sem leggur grundvöllinn að fullri atvinnu. Alkunna er að nokkrir erfiðleikar steðja nú að i efnahagsmálum, erfiðleikar sem eru i sjálfu sér vel viðráðanlegir ef tekið er á málum af raunsæi og án ofsatrúar á þau hagfræðingameðöl sem brugguð eru i tilraunaglösum erlendra auðvera. Svo litur út sem deila þurfi einhverjum efnahagslegum byrðum á landsmenn, a.m.k. um stundarsakir. Launafólk hlýtur þá að krefjast þess að beitt sé vinstri úr- ræðum sem byggjast á reglunni um niður- jöfnun eftir efnum og ástæðum, Undir engum kringumstæðum kemur til greina að láglaunafólki verði iþyngt. Þetta er höfuðsjónarmið Alþýðubandalagsins gagnvart aðsteðjandi vanda. Láglaunafólk ber vissulega meira úr býtum nú en áður, en vinstri stjórninni auðnaðist þó ekki að flytja nægilega mikið af tekjum þjóðfélagsins til þeirra hópa sem minnst höfðu fyrir. Takmarkið er þvi enn frekari tekjujöfnun, og það væri verð- ugt verkefni nýrrar vinstri stjórnar að hefja aðgerðir i þá átt. Nú sem jafnan áður vinna sterk öfl i landinu gegn láglaunafólki og hagsmun- um þess. Augljóslega fólst stjórnarmynd- unartilraun Geirs Hallgrimssonar i þvi að leitað var hófanna hjá slikum öflum i öðr- um flokkum, ekki sist Framsóknarflokkn- um. Helsta áhugamál ihaldsaflanna nú er að koma vinstri stjórnarhugmyndinni fyr- ir kattarnef og gera siðan efnahagsráð- stafanir á kostnað láglaunafólksins. Vinstri sinnar þurfa þvi að vera vel á verði um hagsmuni sina og standa einbeittir gegn öllum áformum um skerðingu á raungildi láglauna. Besta varðstaðan er sú að taka saman höndum um trausta vinstri samvinnu sem byggi á raunverulegum vinstri úrræðum, jafnt i efnahagsmálum sem öðrum mál- um. Ef það tekst þarf láglaunajólk engu að kviða, en árangur er kominn undir þeim þrýstingi y sem settur er af hálfu vinstri manna á alla þá áhrifamenn,sem nú standa hikandi eða jafnvel neikvæðir gagnvart heilshugar vinstra samstarfi hvar sem slika áhrifamenn væri að finna i þeim flokkum sem nú ræðast við um möguleika á stjórnarmyndun til vinstri. REISN ÆRUNNAR OG REISN MÁLSTAÐARINS Fyrir nokkru kvað 12 manna kviðdómur rithöfunda upp þann úrskurð að i máls- höfðun Vl-manna á hendur Einari Braga rithöfundi fælist tilræði við tjáningarfrels- ið. Vl-menn hafa reynt að klóra i bakkann með skrifum i Morgunblaðinu, en i gær svarar Sigurður A. Magnússon formaður Rithöfundasambands íslands þvi i grein sem hann fékk birta i þvi blaði. Hann segir m.a. að meiðyrðalöggjöfin islenska ,,er þannig úr garði gerð, að vonlaust má telja að fá mann sýknaðan fyrir ærumeiðandi ummæli, jafnvel þó dagsönn séu”. Hefði löggjöfinni ,,verið beitt einsog forgöngu- menn „Varins lands” ætla sér að gera, hefðu rithöfundar á borð við Halldór Lax- ness og Þórberg Þórðarson setið i tukthús- um hálfa ævina. Það er vafalaust þetta sem liggur til grundvallar þeirri yfirlýs- ingu stjórnar Blaðamannafélags íslands, að timabært sé orðið að láta fara fram endurskoðun á meiðyrðalöggjöfinni og færa hana til nútimalegra horfs”. Sigurður bendir á ofsóknir sem rithöf- undar verða fyrir erlendis, t.d. Soltsénit- sin, og segir að við hljótum að fordæma þær, svo og þau lög sem þar er beitt. Að lokum segir Sigurður: „Þegar mönnum er annarra um persónu sina og æru en málstaðinn, sem þeir vilja berjast fyrir, ættu þeir að hugsa sig um tvisvar áður en þeir hætta sér útá hálan is þjóð- málabaráttunnar. Tólfmenningarnir kunna að vinna öll sin meiðyrðamál og fá „sakamönnunum” stungið i tukthúsið um lengri eða skemmri tima, en þeir bæta ekki spönn við æru sina eða reisn með þeim málalokum”. MIKIÐ VILL MEIRA Samkvœmt skattskrá voru árstekjur sérfrœðinga við Landspitalann 2,2 miljónir kr. í fyrra Flestir sérfræðingar við rikis- spitalana og Borgarspitalann hafa nú sagt upp störfum. Lækna- félagið hefur hvatt meðlimi sfna til að sækja ekki um stöður þeirra, sem nú hafa veriö aug- lýstar lausar til umsóknar. Með þessu eru sjúkrahúsalæknar að undirstrika óánægju sina með þaö kaup, sem þeim er greitt sam- kvæmt úrskuröi kjaradóms. t fyrra voru meðalárstekjur sérfræðinga við Landsspitalann hátt á þriðju miljón króna. I vetur fengu þeir verulegá kauphækkun i krónum taliö, og auðvitað hafa þeir fengið visitöluhækkanir á kaup sitt eins og aðrir. Varlega á- ætlaö má þvi telja, að samkvæmt núverandi töxtum fari árstekjur sérfræðinganna upp i þrjár mil- jónir. URUIjSKAKIGCIPIH kcrnflíus JONSSON SKÖLAVOROUSI lli 8 BANKASIR4U6 IHSH8 10600 BLAÐBERAR óskast víðsvegar um borgina. DJOÐVIIJINN Kjaradómur 1 vetur, þegar samið var um kaup opinberra starfsmanna, náöist ekki samkomulag um laun lækna á sjúkrahúsum. Fór þvi máliö fyrir kjaradóm. 1 Þjóðvilj- anum var fyrir nokkru skýrt frá þvi, að fastakaup lækna væri samkvæmt þeim dómi i kringum 100 þúsund krónur á mánuði. Þess var þá einnig getið, að tekjur lækna væru ugglaust meiri, því að ofan á föst laun kæmi vaktaálag og ýmislegt ann- að, sem hækkaði launin, eins og vera ber hjá þeim, sem ekki hafa fastan vinnutima. Það er og vitað mál, að mjög margir sjúkrahúsalæknar hafa drjúgar tekjur af eigin lækninga- stofum, sem þeir starfrækja sam- hliða vinnu sinni á sjúkrahúsun- um. Verkfall En læknar hafa ekki viljað una þessum launum og hafa nú mjög margir þeirra sagt upp. Á skrif- stofu rikisspitalanna fengum við þær upplýsingar að flestir sér- fræðingar á Landsspitalanum hefðu nú sagt upp störfum. Stöðurnar hafa verið auglýstar, en ólikiegt er að nokkur sæki um þær. Læknafélagið hefur látið þau bob út ganga til félaga sinna, að þeir skuli ekki sækja um. Er þar vitnað til codex ethicus eða siða- bókar félagsins. Uppsagnir þessar jafngilda þvi verkfalli. Opinberir starfsmenn hafa ekki verkfallsrétt, en ýmsir hópar þeirra hafa oft ráðgert að taka sér þann rétt með f jöldaupp- sögnum. Þjóðviljinn getur engan veginn lastað það, að launþegasamtök, sem ekki hafa jafn sjálfsögð rétt- indi og verkfallsrétt, skuli með samtakamætti knýja fram kjara- bætur. En þó fer ekki hjá þvi, að það er kominn dálitið falskur hljómur i launastriðið hjá lækn- unum. Læknar fengu ekki hlutfallslega minni kjarabætur en aðrir opin- berir starfsmenn i vetur. En þessi fámenni starfshópur getur, vegna þess að hann er ómissandi og hef- ur hlotið sérmenntun, sem aðrir hafa ekki, knúið fram launahækk- anir, sem eru mörgum sinnum meiri en þær, sem láglaunafólk fékk i vetur. Raunverulegar tekjur Skattskráin getur oft verið gagnleg til að gefa visbendingu um árstekjur manna, að minnsta kosti þær tekjur, sem taldar eru fram. Okkur datt þvi i hug, að fletta upp i skattskránni og sjá, hverjar tekjur sérfræðinga við Landsspitalann hefðu verið á sið- asta ári, en þeir hafa nær allir sagt upp störfum. Af sérfræðingum á handlækn- inga- og lyflækningadeild Lands- spltalans eru 9 á skattskrá i Reykjavik. Til þess að fylla tug- inn litum við á gjöld eins sérfræð- ings á Barnaspitala Hringsins. Samkvæmt skattskránni greiða þessir sérfræðingar, sem flestir hafa sagt upp störfum vegna of lágra launa, opinber gjöld að meðaltali sem hér segir: Tekjuskattur: 493.514 kr. Eignaskattur: 8.680 kr. Útsvar: 213.130 kr. Af þessum tölum er ljóst, að hver sérfræðingur hefur að með- altali haft a.m.k. 2.2 miljónir i tekjur á siðasta ári. Að visu fer töluverður hluti af þvi fé i skatta, eða rúmlega 700 þúsund krónur. Þrátt fyrir það hafa læknarnir haft um eina og hálfa miljón i sig og sína, þegar riki og bær voru búin að hirða sitt, og liklega þó heldur meira, þvi að skattar hafa ugglaust verið lægri hjá þeim i fyrra. Codex ethicus Eins og áður segir, minnir Læknafélagið á siðalögmál lækna, þegar það hvetur þá til að sækja ekki um stöður og rjúfa þannig þá félagslegu einingu, sem ein virðist geta dugað til að forða læknum frá að fá þrjár mil- jónir og þar yfir i tekjur á þessu ári. Satt að segja kemur þessi sið- fræði mörgum manninum spánskt fyrir sjónir, að minnsta kosti þeim, sem ekki hafa nema 30 þúsund i föst mánaðarlaun. Það er ef til vill misskilningur, að siðfræði lækna hafi oftast nær verið byggð á kenningum Hippó- kratesar. En ekki minnumst við þess, að Hippókrates hafi haldið þvi fram, að læknar ættu að fá fimmfalt kaup þeirra, sem verða af einhverjum orsökum að leita til þeirra. Enginn lætur sér lengur detta i huga, að læknar sinni störfum sinum af hugsjón og leiöi aldrei hugann að efnalegri velferð sinni. Það þykir ekki nema sjálfsagt, að þeir fái sæmileg laun fyrir vinnu sina. En fyrr má nú rota en dauð- rota. Við minnum á, að samfélagið hefur varið mörgum miljónum til að veita þessum mönnum þá menntun, er hugur þeirra stóð til. Ef þeir hafa valið sér læknisstarf- ið til að komast i álnir, verður að endurskoða öll þessi mál frá grunni. Lokaorð Barátta ómissandi starfshóps við að koma árstekjum sinum i margar miljónir fær ekki hljóm- grunn hjá alþýðu manna. Ekki sist þegar sú barátta er byggð á hótun um að hætta að lækna sjúklinga, en öðru visi er ekki unntað túlka fjöldauppsagnirnar. Aftur á móti hefði verið gaman að þvi, að læknar hefðu heimtað, aö annað starfsfólk á sjúkrahús- um fengi sæmileg laun. Að t.d. gangastúlkur, sem flestar hverj- ar vinna heldur óskemmtileg og óþrifaleg störf, fengju svo sem eins og helming af lækniskaupi. Þó hefði verið enn skemmti- legra, ef læknar heföu sagt upp störfum til að mótmæla þvi, að öll læknisþjónusta, þar með talin þjónusta sérfræðinga, er ekki ó- keypis fyrir sjúklinga. Eða þá að ótækt væri, að lyfsalar rökuðu saman fé á þvi að selja þau lyf, sem læknarnir ráðleggja sjúkl- ingum sinum að eta. En að menn, sem á siðasta ári höfðu hátt á þriðju miljón i tekjur skuli nú segja upp störfum i von um enn meira fé, það tekur út yfir allan þjófabálk. óp

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.