Þjóðviljinn - 29.08.1974, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 29.08.1974, Qupperneq 5
Fimmtudagur 29. ágúst 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Frá lagningu sæsimastrengs yfir Patreksfjörð ÞORSKKLAK MISTOKST VIÐ LANDIÐ í VETUR Hinum árlegu seiöarann- sóknum á hafsvæðinu við ís- land og Grænland er nú iokiö. Þetta er 5. árið I röð, sem rannsóknir af þessu tagi eru gerðar, en þær miða að þvi að ákvarða hversu til hafi tekist með hrygningu heistu tegunda nytjafiska á þessum hafsvæð- um. Að þessum rannsóknum var unnið á rannsóknaskipunum Arna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni, og eins og und- anfarin ár tók eitt sovéskt rannsóknaskip, Akademik Knipovich, þátt i rannsóknun- um. Niðurstöður voru ræddar á sameiginlegum fundi á Akur- eyri dagana 18.-20. ágúst. Þá var enn ólokið athugunum fyr- ir NA-, A- og SA-landi. Helstu niðurstöður voru þessar: 1) öfugt viö Þorskklakið i fyrra, sem tókst mjög vel, hef- ur klakið i ár mistekist og er mjög litið i samanburði við það sem þá var. 2) Eins og hjá þorskinum hef- ur ýsuklakið gengið illa, en þó illskár. 3) Að venju fannst mikið af karfaseiðum i hafinu milli ís- lands og Grænlands. Miðað viö fyrri ár virðist þó heildar- Framhald á 11. siðu. GRUTNNSKÓLINN OG RAFORKAN — helstu mál fjórðungsþings Vestfjarða Framkvæmd grunnskólalag- anna, raforkumál og húsnæðis- mál voru þrir helstu málaflokk- arnir, sem fjallað var um á fjórð- ungsþingi Vestfjarða i ár. Þingið stóð á föstudaginn og laugardaginn i siðustu viku, og var haldið i Bolungarvik. Bol- ungarvik varð fyrir valinu sem þingstaður, vegna þess að staður- inn var nýlega gerður að kaup- stað. Forseti bæjarstjórnar i Bolungarvik var kosinn forseti fjórðungsþingsins. Framkvæmd grunnskólalag- anna var reifuð I framsöguerindi Torfa Asgeirssonar, deildarstjóra I menntamálaráðuneytinu. Jakob Gislason, fyrrverandi orkumála- stjóri, ræddi um raforkumál á Vestfjörðum, og Sigurður E. Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Húsnæðismálastjórnar ræddi um húsnæðismál á Vest- fjörðum. Ýmsar ályktanir voru gerðar á þinginu varðandi þessi mál, og mun skýrt frá þeim siðar. Skipuð var milliþinganefnd, og mun hún fjalla um raforkumál. Mun nefndin reyna að ná verð- jöfnun á rafmagn, vinna aö þvi að tryggja næga raforku fyrir Vest- firði, vinna að þvi að sérmenntað- ir starfskraftar á sviði raforku- mála setjist að i héraðinu, og að raforkusala verði á hendi eins að- ilá: Sameignarfélags sveitarfé- laga og rikisins. Kosið var sjö manna fræðsluráð fyrir Vestfirði og ákveðið að fræðsluskrifstofa fyrir Vestfirði verði á Isafirði. 28 sveitarfélög á Vestfjörðum eru innan sambandsins, og hafa 36 fulltrúar rétt til þingsetu á fjórðungsþinginu. Auk kjörinna fulltrúa sveitarfé- laganna, sátu þing þetta bæjar- og sveitarstjórar fjórðungsins, sýslumaðurinn á Isafirði og al- þingismenn kjördæmisins, þ.e.a.s. þeir sem ekki eru nú i Reykjavik að vinna að myndun ihaldsstjórnar á Islandi. —GG VERK EFTIR SCHU- BERT OG COPLAND Flutt i fyrsta sinn hér á landi á tónleikum Tónlistarfélagsins á laugardag Hanno Blaschke Námskeið fyrir ein- söngvara Þann 1. september næstkom- andi er væntanlegur hingað til lands prófessor Hanno Blaschke, en hann er söngkennari við tón- listarháskólann i Munchen og Berlin. Mun hann halda hér 3ja vikna námskeið fyrir ein- söngvara á vegum Félags is- lenskra tónlistarkennara og Félags islenskra einsöngvara. Prófessor Blaschke kemur hingað frá Austurriki, þar sem hann kenndi einsöng á sumar- námskeiði við hið fræga Mozarte- um i Slazburg. Hann er mörgum islenskum einsöngvurum að góðu kunnur, en þeirhafa stundð nám hjá honum i Munchen. Félag islenskra tón- listarkennara hefur oftsinnis gengist fyrir námskeiðum þar sem ágætir tónlistarkennarar hafa annast kennsluna, en þetta er i fyrsta sinn sem slikt nám- skeið er haldið fyrir einsöngvaífa hér á landi. Um 30 manns hafa þegar látið skrá sig á námskeiðið og ef fleiri hefðu hug á þátttöku er þeim vin samlegast bent á að 'hringja i Elisabetu Erlingsdóttur i sima 35857. Fyrstu tónleikar Tónlistar- félagsins á starfsárinu 1974-5 verða haldnir á laugardaginn i Austurbæjarbiói og hefjast klukk- an 14.30. Þar kemur fram tón- listarfólkið sem leikið hefur viða um land að undanförnu undir nafninu ISAMER ásamt þeim Hafliða Hallgrimssyni og Hlif Sigurjónsdóttur. ISAMER skipa þau Guðný Guð- mundsdóttir fiðluleikari, Halldór Haraldsson pianóleikari og með þeim eru bandarikjamaðurinn William Grubb sem leikur á selló og puertorikaninn Guillermo Figueroa jr. sem leikur á fiðlu og viólu. Þau hafa siðustu vikurnar leikið viða um landið á vegum Menntamálaráðs og Listar um landið. Hafa þau komið fram á Mývatni, Húsavik, Akureyri, Akranesi og i Vestmannaeyjum. Eftir tónleikana á laugardaginn munu þau koma fram hjá Menningarstofnun Bandarikj- anna.og Kammermúsikklúbbsins en siðan halda þau til Vestfjarða og leika á ísafirði og i Bolungar- vik. A efnisskránni á laugardaginn eru þrjú verk. Fyrst er pianótrló i a-moll eftir Maurice Ravel, þá pianókvartett frá 1950 eftir Aaron Copland og loks strokkvintett i c- dúr ópus 163 eftir Franz Schubert. Það telst til tiðinda að tvö siðast- töldu verkin hafa aldrei áður verið flutt á tónleikum hér á landi en bæði eru þau, og þó einkum verk Schuberts, fræg verk og vin- sæl. Af öðru listafólki sem fram kemur á vegum Tónlistarfélags- ins i vetur má nefna Philip Jenkins, pianóleikara, Rudolf Serkin pianóleikara, Jorma Hynninen söngvara ásamt undir leikaranum Ralph Gothóni, Dagmar Simonkóva, Helgu Ingólfsdóttur semballleikara og Erling Blöndal Bengtsson selló- leikara. —ÞH Nýtt flutn- ingaskip r til Islands Nýtt flutningaskip, M/S „SVANUR”, bættist i islenska kaupskipaflotann i þessum mánuði. Eigendur eru nýstofnað hlutafélag Nes h.f. i Grundarfirði. Helstu hluthafar eru Pálmi Páls- son skipstjóri og Jón G. Kristins- son vélstjóri. Skipið er byggt i Noregi 1972, lestar 1300 tonn og er 299 brúttó- lestir. Það var afhent kaupendum i borginni Jidda við Rauðahaf 1. ágúst s.l. og fór skipið sina fyrstu ferð með íslenskri áhöfn til Bom- bay á Indlandi, þar sem tekið var fullfermi af járni til Benghazi i Libýu og siglir skipið suður fyrir Afriku. En það mjög fátitt að islensk skip sigli suður fyrir Góðrarvonarhöfða. Skipið er væntanlegt til Beng- hazi 15. október og tekur siðan salt i Tunis til íslands. Væntan- legt er skipið til heimahafnar, Grundarfjarðar, i byrjun nóvem- ber. Þorvaldur Jónsson skipa- miðlari sér um útgerð skipsins. Lækjarbrekka við Breiöaholtsveg; talandi dæmi um leigu á heilsuspill- andi húsnæði. Refsivert að leigja heilsu- spillandi hús hafi heilbrigðis- eftirlitið lýst það i bann Það eru til átakanleg dæmi um það, aö fólk býr i húsnæði, sem lýst hefur veriö óibúðar- hæft, sagði Bragi Ólafsson, aðstoðarborgarlæknir, er Þjóðviljinn innti hann eftir reglum um búsetu I óhæfu húsnæði. Við sögðum frá þvi á laugar- daginn var, að á þessum vel- sældartimum viðgengst það i Reykjavik, að fólk búi i pestarbælum. Við heimsóttum þá fjögurra manna fjölskyldu seni leigir fyrir 500 krónur á mánuði i kofa einum i Blesugróf. Sá kofi var fyrst lýstur óibúðarhæfur af heilbrigðiseftirliti borgar- innar árið 1965. Bragi Ólafsson sjáöi Þjóð- viljanum, að væri eitt sinn bú- ið að lýsa Ibúð óibúðarhæfa, væri refsivert að selja hana eða leigja. Sé Ibúðin samt leigð eða seld, er hægt að dæma eigandann i dag- sektir frá einhverjum tiltekn- um tima. Það er erfitt að fást við þetta, sagði Bragi einkum þegar skortur er á húsnæði. Þegar heilbrigðiseftirlitið hefur lýst ibúð i bann, fær það fólk sem i henni býr að dvelja þar áfram þar til það hefur fundið sér annan samastað. Það er hins vegar bannað að leyfa öðru fólki að flytjast i húsið eftir brottflutning fyrri ibúa, sé ibúðin enn bannlýst. Samkvæmt þessu er ljóst, að eigandi þess húsnæðis, sem Þjóðviljinn sagði frá laugar- dadinn 24. þ.m. hefur gerst rækilega brotlegur með þvi að reyna að selja hús sitt og siðan að leigja húsiö löngu eftir að það var lyst óibúðarhæft. — GG Barnabóka- húsið i Moskvu Moskva, (APN). Barnabóka- húsið i Moskvu er mjög aðlaðandi staður. Húsið er mjög skemmti- lega innréttað. Þar eru margir kilómetrar af bókahillum, mörg lesherhergi, tónlistarherbergi, leikhús jog margt fleira. Fyrir yngstu börnin hefur verið innréttað ævintýraherbergi, sem skreytt er með yrkisefni, úr rússneskum ævintýrum og auk bóka eru þar einnig leikföng og ýmis konar spil. Fyrstu haustréttir verða 14. sept. Búist við 1700 þúsund fjár af fjalli Sjálfsagt eru margir farnir aö hugsa til réttanna, þessa sér- stæöa og skemmtilega fyrirbæris i islenslu þjóölifi, enda ekki langt i fyrstu réttir aö þvi er Guðmund- ur Jósafatsson hjá búnaöarfélag- inu tjáöi okkur I gær, en þær veröa haldnar þann 14. septem- ber og þær siöustu 24. september. Þann 14. sept. veröur réttaö I Auðkúlurétt. Viöidalstungurétt, og Undirfellsrétt. Síöan veröur réttaö um alltland allt til 24. sept. aö slðast veröur réttaö. Æði misjafnt er það hvaö göng- ur taka langan tima, en það er allt frá einum degi upp i 12 daga, sem eru lengstu leitir á Islandi. Stærsta rétt á tslandi i dag mun vera Þverárrétt i Borgarfirði og þar veröur réttað miðvikudaginn 18. sept. Fjáreign landsmanna, miðað við ásett fé er um 850 þúsund, þannig að liklegt er talið að af fjalli komi i haust nálægt 1700 þúsund fjár. — S.dór

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.