Þjóðviljinn - 07.09.1974, Qupperneq 7
Laugardagur 7. september 1974. ÞJóÐVILJlNN — SIÐA 7
1 skýrslunni segir að allt frá þvi
á árinu 1970 hafi verið i gangi at-
huganir á fjölþættri og samhæfðri
nýtingu jarðvarma til raforku-
framleiðslu, iðnaðar, ræktunar og
fl. Viðfangsefni þetta var siðar
takmarkað við raforkuvinnslu og
nýtingu afgangsvarma til hitunar
gróðurhúsa i stórum stil i ylrækt-
arveri. Með þessu átti að leiða i
ljós þýðingu innlendra orkugjafa
og auðlinda, rekstrargrundvöll og
útflutningshorfu.
Staðsetning ylræktarvers
í skýrslunni segir um forsendur
fyrir staðsetningu ylræktarvers,
að það þurfi að vera á aflamiklu
jarðhitasvæði. Siðan segir orð-
rétt:
„Vegna lélegra birtuskilyrða i
skammdeginu verður að gera ráð
fyrir gervilýsingu og þvi er æski-
legt, að á jarðhitasvæðinu sé fá-
anleg gufa til raforkuframleiðslu.
Valið takmarkast þar með við
háhitasvæði, en flest þeirra eru i
A kortinu má sjá hugsanlega staðsetningu ylræktarvers norðan við Hveragerði.
óbyggðum. Alitleg svæði eru
nærri byggð á Reykjanesskaga, á
Reykjanestá og við Svartsengi
norðan Grindavikur, ennfremur
Krisuvikursvæði og Hengils-
svæði. Sá galli er þó á svæðunum
Reykjanesi og Svartsengi, að
heita vatnið er salt sem sjór og
henta þau betur til annarra nota.
A Norðurlandi kæmu til greina
háhitasvæðin Námafjall, Þeista-
reykir og Krafla.
t 30 ha ylræktarveri mundu
vinna um 250 manns, og þvi er
æskilegt, að starfsemin sé nálægt
þéttbýli. bá verða samgöngur
milli versins og flugvallar til út-
flutnings að vea góðar og örugg-
ar.
Með þessi atriði i huga virðist
ölfusdalur ofan Hveragerðis
bjóða best skilyrði fyrir það yl-
ræktarver, sem hér verður f jallað
um. Þar er nægur varmi og gufa
til raforkuframleiðslu, þéttbyli
nærr og samgöngur ágætar við
Keflavikurflugvöll, sem notaður
yrði til útflutnings. Rafstöð yl-
ræktarversins (14 MW) gæti
tengst háspennulinum Lands-
virkjunar, sem liggja rétt sunnan
við dalinn og orðið mikils virði
sem varaafl á mestu álagstimum
ogi neyðartilfellum. Landrými er
nægilegt i dalnum, en vegna
fjalla, sem umlykja hann, er sól-
argangur þar nokkru styttri en á
opnu svæði. Úr þvi mætti bæta
með aukinni raflýsingu eða með
þvi að byggja verið sunnan
Hveragerðis, en þá þyrfti að leiða
heita vatnið um 3-5 km veg.”
Gervilýsing
A einum stað i skýrslunni segir
svo:
„Náttúruleg ljósskilyrði hér-
lendis eru takmarkandi þáttur
fyrir ylrækt á timabilinu október-
mars og er gert ráð fyrir gervi-
lýsingu á þessum tima til að
tryggja sambærilegar vaxtarað-
stæður og erlendis gerast. Hins
vegar hefur ekki reynst unnt að
afla nægilega haldgóðra upplýs-
inga til að leyfa áætlun um af-
urðaaukningu eða breytingar á
uppskerutima með tilkomu gervi-
lýsingar.”
A öðrum stað i skýrslunni er
gerð grein fyrir þvi hvaöa mánuði
ársins náttúrubirtan er ekki næg,
33,5 hektarar
ræktunarsvæði
Stofnkostnaður
1480 miljónir
króna að
viðbættum 500
miljón króna
stofnkostnaði
vegna jarð-
varmavirkjunar
og 14 Mw
raforkuvers
Rekstrar-
kostnaður 486
miljónir króna
á ári
Rekstrartekjur
650 miljónir
króna
250 manna
starfslið
g hversu langan gervilýsingar-
ima þurfi hvern mánuð. Lýs-
ngataflan litur þannig út:
Jktóber 31x4 T 124 timar
Movember 30xl2t 360timar
Desember 31x121 372timar
lanúar 31x121 372timar
Febrúar 28x5 t I40timar
dars
31x2 1/2 t 80 timar
á timabilinu 1448 tima.
Gert er ráð fyrir að lýsa húsinu
með 10 MW afli.
Afraksturinn
Um kostnað við framkvæmd-
irnar og afrakstur segir i skýrsl-
unni:
„Heildarstofnkostnaður yl-
ræktarversins án tonna er áætl-
aður um 1480 Mkr. og reksturs-
kostnaður 486 Mkr/ár. 1 reksturs-
kostnaði er innifalið árgjald fyrir
varma- og raforku, en stofnkostn-
aður jarðvarmavirkja og 14 MW
raforkuvers (500 Mkr.) er ekki
talinn með i stofnkostnaði yl-
ræktarversins. Uppskerumagn er
miðað við góða meðaluppskeru á
ársgrundvelli erlendis og þá gert
ráð fyrir, að gervilýsing bæti úr
lélegum birtuskilyrðum hér, en
auki ekki uppskeru umfram það.
Verð plantna er reiknað út frá
markaðsverði á meginlandi
Evrópu, en verð grænmetis mið-
að við innlenda heildsölu.
Rekstrartekjur ylræktarversins
að frádregnurri sölu- og dreif-
ingarkostnaði eru áætlaðar um
650 Mkr/ár og rekstrarafgangur
án vaxta fyrir skatta þvi 164
Mkr/ár. Meðalendurheimta yrði
um 11% af upprunalegri fjárfest-
ingu fyrir skatta”.
Asparagus plumosus
A einum stað er skýrt frá þvi
hvað ræktað skyldi:
„Gerð var áætlun um ræktun á
Asparagus plumosus (10 ha),
Anthurium (10 ha), rósum (10
ha), græðlingum (1 ha). Alls var
þvi reiknað með 33,5 ha ylræktar-
veri”.
Ræktun tegundanna virðist
misjafnlega ábatasöm og sýnist
þeim sem skýrsluna gerðu af-
rakstrarniðurstöður þær, sem
birtar eru hér að framan, ekki
einhlitar, en i skýrslunni segir á
einum stað:
„Þessar niöúrstöður eru þó
ekki einhlitar og virðist unnt að fá
mun meiri hagkvæmni (21%
meðalendurheimtu) með þvi að
rækta aðeins Asparagus, Anthur-
ium og græðlinga, en tap virðist
vera á öðrum afurðum. Jafn-
framt hefur ekki verið gerð til-
raun til að finna bestu rekstrar-
skilyrði hverrar afurðar, né tekið
tillit til sérþarfa einstakra teg-
unda. Þessar niðurstöður eru þvi
fyrst og fremst visbending og
gefa grófan samanburð á megin-
kostnaðarþáttum og hlutfallslegri
hagkvæmni tegunda”.
Margt er enn
ókannað
Lokaorð ávarpsins með yl-
ræktarskýrslunni hljóða svo:
„Enda þótt meginniðurstöður
athugana á rekstrargrundvelli yl-
ræktarvers séu jákvæðar, þarf
málið mun Itarlegri undirbúning
og eru gerðar tillögur um verk-
efni, sem vinna þarf áður en hægt
er að taka ákvörðun um fram-
kvæmdir. Lagt er til að:
1. kannaðir séu nánar möguleik-
ar á samrekstri ylræktarvers
og gufuaflsstöðvar miðað við á-
lagskröfur til hvors um sig, og
jafnframt athugað, hvort sam-
starf við hið almenna dreifi-
kerfi raforku (þar með eignar-
aðild) kemur til greina svo
hagkvæmt sé,
2. kannað sé nánar með hvaða
hætti frárennslisvatn frá yl-
ræktinni (80 gr. C) verði nýtt,
t.d. til hitaveitu eða fiskræktar,
eða gert óskaðlegt áður en þvi
er hleypt út I umhverfið,
3. efldar verði sem fyrst islensk-
ar rannsóknir á sviði ylræktar
og er talið, að brýnustu og arð-
bærustu rannsóknarverkefnin
varði notkun gervilýsingar til
að hafa áhrif á vaxtarhraða,
afurðasemi og uppskerutima
einstakra tegunda,
4. gerð verði hið fyrsta könnun á
markaðsaðstæðum ýmissa yl-
ræktarafurða, enda fáist þann-
ig leiðbeinandi upplýsingar
fyrir val á tegundum til rann-
sókna. Jafnframt verði gerð at-
hugun á hagkvæmustu leiðum
til flutninga á afurðum,
5. fengin verði sérfræðileg aðstoð
á vegum UNDP til að skipu-
leggja og verða ráðgefandi um
ylræktar- og markaðsrann-
sóknir og athuganir á flutn-
ingamálum.
6. hannaö verði upphitunar- og
loftrækstingakerfi, sem henta
fyrir islenskar aðstæður,
7. búnaður til gervilýsingar verði
hannaður hérlendis, þannig að
hann henti tii framleiðslu inn-
anlands,
8. fram fari tilraunir meö ræktun
valinna afurða, t.d. Chrysan-
themumgræðlinga, Anthurium
og Asparagus i lengri tlma áður
en ákvörðun um endanlega
framkvæmd verði tekin, til að
kanna hugsanleg lifeðlisfræði-
leg áhrif gjörlýsingar. Verði
tilraunaræktun þessi einnig i
nægilega stórum stil til þess að
senda afurðir á markaði og
kanna viðskiptaleiðir og mark-
aðsviðtökur.
9. sérstaklega verði athugað á
hvern hátt eignaraðild og
rekstrarábyrgð i ylræktarveri
skuli hagað. Mjög vel kemur til
greina að semja við einstaka
garðyrkjubændur um ræktun
einstakra tegunda og þá ákveð-
ins magns, og mundi þá við-
komandi garðyrkjubóndi njóta
sameiginlegrar þjónustu og
ráðgjafar. Slikt fyrirkomulag
gæti og stóreflt ylrækt viðar um
landið, eftir að traust erlend
markaðssambönd væru komin.
Hugsanlegt væri einnig að veita
aðstoð til eignaraðildar ein-
staklinga eða leigja út einstaka
hluta versins til sjálfstæðs
garðyrkjubónda, sem starfa
myndi þá innan heildarskipu-
lags og njóta sameiginlegrar
þjónustu og ráðgjafar. Eðlileg-
ast er, að um þetta verði f jallað
I samráði við samtök garð-
yrkjubænda”.
Þö er mikið starf
unnið
Allsendis er óhugsandi að gera
fullnægjandi grein fyrir starfi
þeirra visindamanna, sem að
skýrslu þessari standa, né heldur
skýrslunni sjálfri, en hún er tæp-
ar 100 vélritaðarsiður. Greinilegt
er þó að mikið starf hefur verið
unnið við gerð þessarar skýrslu,
og augljóslega margir nýtinga-
möguleikar á þeim auðlindum,
sem landið hefur upp á að bjdða
enn ónýttir. En þvi er þessi úr-
dráttur gerður hér, að hann mætti
verða til þess að vekja einhverja
þá til umhugsunar um enn frekari
nýtingu landsins gæða, og jafn-
framt til þess að sýna, að visinda-
menn okkar hafast nokkuð að þó
ekki sé að jafnaði I hávegum haft.
—úþ
|af rannsóknarstarfsemi