Þjóðviljinn - 20.10.1974, Side 4

Þjóðviljinn - 20.10.1974, Side 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur. 20. október. 1974 DIOÐVIUINN MALGAGN SOSÍALISMA VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eibur Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson FJÁRMÁL BORGARINNAR OG BYGGÐAMÁL Eitt af árásarefnum Sjálfstæðisflokks- ins á vinstri stjórnina er það, að hún hafi þrengt mjög kosti sveitarfélaganna i land- inu og nánast verið að kyrkja þau i greip sinni. Vegna siendurtekinna skrifa málgagna Sjálfstæðisflokksins er rétt að rifja upp nokkrar staðreyndir i þessu sambandi. Litum fyrst á Reykjavikurborg. Meðan tekjustofnalög viðreisnarstjórn- arinnar voru i gildi og fjárhagsáætlun borgarinnar samin með hliðsjón af þeim þá var á árunum 1969—1971, sem voru sið- ustu þrjú ár gömlu tekjustofnalaganna, gert ráð fyrir að hægt væri að verja til framkvæmda 15—20% af tekjum borgar- innar. Það var tekjuafgangurinn, þegar búið var að standa straum af föstum lið- um, og ekki varð vart við að borgarstjórn- arihaldið kvartaði ýkja mikið. í fyrstu fjárhagsáætluninni samkvæmt þeim tekjustofnalögum, sem vinstri stjórnin setti, áætlun fyrir árið 1972, hækkaði tekjuafgangur borgarinnar til framkvæmda hins vegar um nær 600 miljónir, sem var 98%, og varð 27,7% af heildartekjum borgarinnar i stað 16,4% árið áður. Þessi tekjuafgangur til fram- kvæmda var svo full 30% á fjárhagsáætlun siðasta árs, og hækkaði enn i 31% á fjár- hagsáætlun þessa árs. í lok vinstri stjórnar timans stóðu mál sem sagt þannig, að Reykjavikurborg hafði að kalla tvöfalt stærri hluta af sinum heildartekjum I tekjuafgang til að standa undir framkvæmdum, heldur en á síðasta ári viðreisnarinnar. Og enda þótt byggingarvísitala hækkaði verulega á árum vinstri stjórnarinnar, þá hækkaði framkvæmdafé borgarinnar af tekjuafgangi meira en nam tvöfaldri þeirri visitöluhækkun á árum vinstri stjórnarinnar. Hitt er svo rétt, að vinstri stjórnin stóð gegn taumlausum hækkunum á þjónustu ýmissa borgarstofnana við almenning, svo sem hitaveitu, rafmagnsveitu og strætisvagna, en greiðslur til þessara stofnana eru að tiltölu hæstur hluti út- gjalda hjá þvi fólki, sem minnst fjárráð hefur. En reyndar var hagur að minnsta kosti sumra þessara stofnana mun betri, en for- ráðamenn borgarinnar vildu vera láta, og nú i þvi sambandi minna á upplýsingar varðandi hitaveituna, sem dregnar voru fram i dagsljósið hér i Þjóðviljanum i fyrravetur. Það er þvi ekki við vinstri stjórnina að sakast, þótt fjármál Reykjavíkurborgar séu nú komin i algera óreiðu með yfir- dráttarskuldir i bönkum, sem námu um siðustu mánaðamót 800 miljónum króna, enþaðsamsvarar, hvorki meira né minna en 50 þúsund krónum á hverja fimm manna fjölskyldu i borginni og vextirnir yfir árið hátt i 200 miljónir af þessari ó- reiðuskuld. Hér er að sjálfsögðu fyrst og fremst um að kenna almennri óstjórn hjá Reykjavik- urborg og dýrum kosningaleiktjöldum á fyrri hluta þessa árs. En sveitarfélögin i landinu eru reyndar fleiri en Reykjavikurborg ein. Og stað- reyndin er sú, að Reykjavikurborg hefur löngum náð að innheimta miklu hærri tekjum á hvern ibúa en önnur sveitarfélög landsins, og ætti þvi ekki að þurfa að kvarta. Sé litið t.d. á eitt viðreisnaráranna, árið 1968, þá innheimti Reykjavikurborg hvorki meira né minna en 43% hærri tekj- ur á hvern ibúa en aðrir kaupstaðir lands- ins til jafnaðar. Þetta gaf borginni að sjálfsögðu margvislega möguleika til að veita ibúum sinum fidlkomnari þjónustu en önnur byggðarlög landsins, ef sóma- samlega væri á haldið. Það mun hins vegar óumdeilt, að með tekjustofnalögum þeim sem sett voru fyrir forgöngu vinstri stjórnarinnar, þá var dregið mjög verulega úr þeim að- stöðumun, sem áður var milli sveitarfé- laga i þessum efnum, og forréttindi Reykjavikurborgar skert að nokkru. Nýju tekjustofnalögin urðu þvi veruleg lyfti- stöng fyrir mörg þeirra þorpa og kaup- staða, sem áður voru verst sett. Að sama marki stefndi einnig margvis- leg löggjöf vinstri stjórnarinnar I þá átt að auka íúut rikisins i framkvæmdum en létta á sveitarfélögunum og má þar t.d. nefna löggjöf um byggingu sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva og löggjöf um hafna- mál, en kostnaður við hafnirnar hefur I mörgum tilvikum verið að sliga sveitarfé- lögin. Þetta var að sjálfsögðu liður i alhliða byggðastefnu vinstri stjórnarinnar, sem með myndarlegri atvinnuuppbyggingu skilaði mörgum þorpum og bæjum á Is- landi drjúgum fram á við, þar á meðal byggðarlögum, sem viðreisnin skildi við i algerri niðurnislu. Vegna einbeittrar stefnu vinstri stjórn- arinnar gerðist það á siðasta ári, að fólki fjölgaði loks i kjördæmum norðanlands og vestan, þar sem fólksf jölgun hafði ekki átt sér stað áratugum saman, heldur stöðug fækkun. En vistmenn glerhallarinnar við Aðal- stræti i Reykjavik, þar sem Morgunblaðið er til húsa, þykjast hvorki sjá né heyra. Og með rétti hins blinda og daufdumba full- yrðir Morgunblaðið i stjórnmálagrein fyrir stuttu, að vinstri stjórnin hafi hunsað alla viðleitni til að koma I veg fyrir byggðaröskun „með áþreifanlegum af- leiðingum i búferlaflutningi”, eins og Staksteinahöfundur kemst að orði. Eða máske heitir það byggðaröskun á máli Sjálfstæðisflokksins, ef fólk flytur á ný frá Stór-Reykjavikursvæðinu út um byggðir landsins. Orðrómur um erjur í menntamálaráðuneytinu reyndist sannur Birgir baöst afsökunar Bragi Jósefssoit. Dr. Arnór Hannibalsson hefur gert sérfræðilega skýrslu á vegum mennta- málaráðuneytisins um málefni af brigðilegra barna og annarra barna sem eiga við erfiðleika að etja í námi. Dr. Bragi Jósefsson deildarstjóri rit- aði formála fyrir henni og gekk frá henni til dreifing- ar í skóla. Menntamála- ráðherra hefur sent við- takendum skýrslunnar bréf þar sem greinir að ráðuneytið beri ekki á- byrgð á skýrslunni sem hafi verið send í heim- ildarleysi frá fræðslu- máladeild. Auk þess eru einstakir starfsmenn ráðu- neytisins beðnir afsökunar á gagnrýni sem komi fram á þá í skýrslunni. Þjóðviljinn greinir fyrir nokkr- um dögum frá erfiðleikum við að fá upplýstan orðróm um meintar kærur Braga Jósefssonar deildarstjóra í fræðslumáladeild menntamálaráðuneytis á hendur öðrum embættismönnum þar og/eða yfirmönnum sinum. Kom þó fram að Arnór Hannibalsson hefði gert einhverja skýrslu fyrir fræöslumálanefnd, en hvorki Bragi né ráöuneytisstjórinn, Birgir Thorlacius, vildu greina frá efni hennar, Birgir raunar hvorki játa né neita tilvist henn- ar. Nú hefur nokkuð greiðst úr þessu máli þvi að Þjóðviljinn heyrði frekari ávæning um skýrslu frá fræðslumáladeild sem borist hefði út I skóla. Féllst þá dr. Bragi á að upplýsa lesendur aðeins gerr um þaö, hvað um er að ræða. Að tillögu deildarstjórans i fræöslumáladeild féllst fyrrver- andi menntamálaráðherra á það sl. vetur, að Arnór Hannibalsson Birgir Thorlacius Arnór Hannibalsson fyrir Braga yrði fenginn til að gera rannsókn á málefnum afbrigðilegra barna og annarra barna sem eiga við erfiðleika að etja i námi. Höfðu að sögn Braga komið fram fjöl- margar óskir frá skólastjórum og námsstjorum um það að slik könnum væri æskileg. Var fræðslumáladeildinni falið að skipuleggja rannsóknina. Nú vann Arnór verkiö og þótti þeim Braga eðlilegt að niðurstöð- ur hans yrðu látnar ganga aftur út til skólanna. Sagðist Bragi hafa lesið skýrsluna yfir og ritað að henni formála, en að öðru leyti væri hún verk Arnórs- hann sem rannsóknarmaður bæri ábyrgð á þeim niðurstöðum sem skýrslan greinir. — Hverjir fengu skýrsluna? — Skólastjórar i öllum barna- og gagnfræðaskólum i landinu, námsstjórar og fræðslustjórar, þar á meðal nokkrir fyrrverandi náms- og fræðslustjórar, deildar- stjórar i ráðuneytinu og ráðu- neytisstjóri. Næst gerist það að ráðherra kallar i mig og óskar þess að skýrslan verði ekki send út þar eð I henni væri gagnrýni á einstaka starfsmenn ráðuneytisins. En sú beiðni kom of seint þvi að skýrsl- an var þá þegar á leiðinni til við- takenda úti um allt land. Þá sendu ráðherra og ráðuneytis- Framhald á 22. siðu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.