Þjóðviljinn - 20.10.1974, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur. 20. október. 1974
SVAVAR GESTSSON
FJÓRÐA HVER KRÓNA
Það er áreiðanlega rétt, sem
Gylfi Þ. Gislason sagði i útvarps-
viðtali i fyrrakvöld, að það er
tákn nýs tima, að hann skuli láta
af formennsku Alþýðuflokksins.
Hins vegar er óþarfi af Alþýðu-
blaðinu að gera grin að Gylfa þó
að hann sé hættur við að gefa kost
á sér til flokksformennsku, sem
stafaði af þvi að hann var orðinn
svo óvinsæll i þvi sem eftir er af
flokknum, að komið hefði til
átaka á flokksþinginu, ef hann
hefði ekki ákveðið að draga sig I
hlé. Þetta viðurkenndi Gylfi
sjálfur i viðtali við einhvern fjöl-
miðil á dögunum: að ástæðan til
þess að hann tilkynnti svo
snemma að hann myndi ekki taka
við formannskjöri var sú að hann
vildi koma i veg fyrir deilur i
flokknum.
Grín
En samt er það semsé óþarfi að
vera að gera grin að Gylfa eins og
gert er i forustugrein Alþýðu-
blaðsins á fimmtudag:
„Gylfi Þ. Gislason, sem er
óumdeilanlega einhver mikil-
hæfasti og merkasti stjórnmála-
maður Islendinga er ekki með
þessari ákvörðun að draga i við
sig i störfum i þágu Alþýðuflokks-
ins, jafnaðarstefnunnar og
þjóðarinnar allrar. Þó að hann
hafi tilkynnt, að hann muni ekki
gefa kost á sér við formannskjör
á næsta flokksþingi, mun flokkur-
inn áfram njóta hans miklu
mannkosta og hæfileika. Gylfi Þ.
Gislason mun áfram taka fullan
þátt i baráttu Alþýðuflokksins
fyrir hugsjónum jafnaðarstefn-
unnar, betra og réttlátara þjóð-
félagi á íslandi.”
Hermengun
Islendingar hafa á umliðnum
árum fengið að kynnast ákaflega
vel réttlátara þjóðfélagi Gylfa Þ.
Gislasonar. Þessu kynntust
landsmenn á viðreisnarárunum
forðum tið. Sú grundvailarhugs-
un, sem lá viðreisnarstjórninni að
baki, var einmitt sérstaklega vel
orðuð i þeirri frægu þjóð-
minjasafnsræðu formanns Al-
þýðuflokksins. Ber vissulega að
viðurkenna þá aðdáunarverðu
hreinskilni sem þar kom fram, en
höfuðpaurarnir i Sjálfstæðis-
flokknum höfðu yfirleitt vit á þvi
að láta satt kyrrt liggja. Við-
reisnarstjórnin vann rækilega
samkvæmt þeirri grundvallar-
stefnu að besta leiðin til varð-
veislu sjálfstæðis væri að fórna
þvi. Liður i þessari stefnu birtist i
álsamningnum og hermenguninni
á sama tima og atvinnutæki
landsmanna sjálfra voru látin
drabbast niður. Nægir að minna á
togaraflotann i þvi sambandi.
Óneitanlega hefur her-
mengunarstefna hernáms-
flokkanna haft veruleg áhrif á is-
lenskt þjóðlif: hernámið sjálft
hefur markað djúp spor i sálarlif
fjölda islendinga, sem sennilega
munu vart biða sliks bætur.
Þjóðviljinn sendi tvo blaða-
menn sina á vettvang á dögunum
til þess að kanna hver áhrif her-
námið hefði haft á nánasta um-
hverfi. Blaðamennirnir skrifuðu
margar greinar um þessi mál,
sem birtust i sex blöðum Þjóðvilj-
ans. Meðal greinanna voru viðtöl
við fólk, sem hefur orðið fyrir
barðinu á hermenguninni. Til-
gangur blaðsins með því að birta
slik viðtöl var að sjálfsögðu sá að
skjalfesta hermengunina: að
sýna niðurlæginguna svart á
hvitu.
Við pælum í
peningum
Nokkur dæmi úr greinaflokki
blaðamannanna skulu tilfærð
hér:
1000 bandarikjamenn búa utan
vallarins. Hundruð islendinga
hafa húsnæðisþörf hermannanna
að féþúfu. Islendingar fá dollara
fyrir húsnæðið, braska með
dollarana á svörtum markaði
o.s.frv. Smygl er geigvænlegt á
vellinum. Gróðafikn þessara
landsmanna er orðin þvilik, að
bandarikjamennirnir óttast hana
og eru teknir að draga sig i hlé.
Brennivin, kalkúnar og bildekk
eru þó enn tittnotaður gjaldmiðill
millihersins og „innfæddra” (orð
sem yfirmenn Islenskra aðal-
verktaka nota um islendinga.)
Nokkrar tilvitnanir i viðtölin:
„Okkar framlag til NATO er
þessi hrjóstrugi skiki lands, sem
kallast Keflavikurflugvöliur.”
(Gizur Helgason, kennari, Ytri-
Njarðvik.)
„Stundum förum við strákarnir
með konurnar okkar og fáum
okkur góða steik. Það er munur
að borða fyrir 3000 krónur eitt-
hvað sem kostaði 15000 krónur i
bænum — við pælum bara I pen-
ingum.”(Magnús Kjartansson
hljómlistarmaður, Njarðvikum)
„Nú er auðvelt að fá dollara.
Dollarar eru i háu verði, og þá
vilja þeir selja sem hafa safnað
þeim lengi.” (Sami)
„Auðvitað reyna allir aö selja á
svörtum markaði, heldur en setja
dollarana i banka, þar fæst miklu
minna fyrir þá. Þetta held ég allir
myndu gera ef þeir gætu.”
(Sami)
„Ég hcld það sé grundvallar-
lifsskoðun fiestra Isiendinga, að
reyna að komast yfir nokkra þús
undkalia fyrir litið.. ..það eru
margir i stórkostiegu braski
gegnum herinn.” (Sami)
„Hér hlusta menn ekki á is-
lenska útvarpið.” (Sami)
„Ég vildi ekki bæta þvi á
skattareikninginn minn, sem
kæmi til minna kasta að borga, I
þeim aukna kostnaði fyrir is-
lenska þjóðfélagið, ef þessi starf-
VELKOMIN
VARNARLIÐ ISLANDS
Togarar
og
hermengun
Yfirlit yfir þá skut-
togara, sem þegar
hafa verið gerðir
samningar um, eftir
landshlutum:
Reykjavik 8
Keflavík 3
Grindavik 1
Hafnarfjörður 2
Hafnir 1
Akranes 2
Grundarfjörður 1
Þingeyri 1
ísafjörður 3
Hnifsdalur 1
Suðureyri 1
Bolungarvik 1
Flateyri 1
Súðavik 1
Sauðárkrókur 2
Siglufjörður 3
Hofsós 1
Skagaströnd 1
Ólafsfjörður 2
Dalvik 2
Akureyri 5
Raufarhöfn 1
Neskaupstaður 2
Vopnafjörður 1
Seyðisfjörður 2
Eskifjörður 2
Fáskrúðsfjörður 1
Stöðvarfjörður 1
semi, sem hérerrekin af varnar-
liðinu i dag, yröi eingöngu rekin
af okkur Islendingum.” (Sveinn
Einarsson, slökkviliðsstjóri).
Látum þetta nægja. Þessi dæmi
sýna að hermengunin hefur
breytt hugarfari þeirra is-
lendinga sem búa næst vallar-
svæðinu. Þjóðviljinn vill ekki
atyrða þessa samlanda, en
óneitanlega eru þeir fórnardýr
þess undirlægjuháttar sem
boðaður var I orði sem i verki á
viðreisnarárunum.
Ný
byggðastefna
Framsóknar
f viðtölum blaðamanna Þjóð-
viljans við fólk i grennd við her-
stöðina kemur mjög skýrt fram
hversu skarpar eru andstæðurnar
milli islensks atvinnurekstrar
annars vegar og hersins hins
vegar.
Slökkviliðsmenn á vellinum fá
allt að 160 þúsundum á mánuði að
eigin sögn, mörg hundruð eru á
biðlistum eftir að komast i störf
hjá hernum — en útgerðin og fisk-
vinnslan fá ekki starfsfólk. Fyrir
nokkrum árum var það alsiða að
fólk utan af landi flykktist suður
með sjó á vertiðina. Nú hefur
þetta breyst. Það er óhemjuvinna
um allt land og þess vegna verða
Suðurnesin meira en áður að
treysta á eigin mannafla. En þar
rekast atvinnurekendur á herinn.
Hann tekur til sin starfsfólkið.
Og samkvæmt hinni nýju
byggðastefnu Framsóknarflokks-
ins á nú að hef ja framkvæmdir á
vellinum fyrir 7 miljarða króna
eða svo. Þessar framkvæmdir
munu draga til sin enn meira
vinnuafl en herinn gerir i dag og
um leið valda enn meiri erfiðleik-
um atvinnufyrirtækjanna á '
Suðurnesjum. Siðan er reiknaður
út hallinn á frystihúsunum,
togurunum og bátunum um allt
land og sagt að allt sé þetta á
heljarþröminni, best að leggja
bátunum, loka frystihúsunum og
heimta „fyrirgreiðslu” úr rikis-
sjóði.
Hermengunarstefnan hefur
víða sett blett á þjóðarsálina. Hún
hefur dregið kjarkinn og kraftinn
úr mörgum Islendingijhún hefur
dregið úr trú hans á sjálfstætt
þjóðfélag á Islandi.
Togarar
Andspænis þessari stefnu
niðurlægingarinnar hafa Islenskir
sósialistar teflt fram upp-
byggingu Islenskra atvinnuvega.
Þeir hafa fengið tækifæri til þess
þrisvar sinnum að sanna að
þjóðin getur lifað sjálfstæð þrátt
fyrir fámenni og að mörgu leyti
erfiö skilyrði. Stórfelld aukning
togaraflotans i tið fráfarandi
rikisstjórnar hafði þann tilgang
að treysta grundvöll islensks at-
vinnullfs og þar með sjálfstæði
þjóðarinnar.
Nú eru komnir til landsins 49
skuttogarar, — fyrir fáein-
um árum var enginn til. Ókomnir
eru sex togarar, sem þegar hefur
verið samið um. Fjórir þeirra
koma á siðari hluta ársins. Tveir
eftir áramót. Hvaða áhrif hafa
þessi skip haft á afkomu þjóðar-
búsins? Ég mun leiíast við að
svara þessari spurningu:
I
Fjórða hver
króna
Gert er ráð fyrir að togararnir
veiði fyrir 2,3-2,5 miljarða króna
á þessu ári. Talið er að út-
flutningsverðmæti þessa afla
verði 5,5-6 miljarðar króna.
Áætlað hefur verið að fob-verð-
mæti útfluttra sjávarafurða verði
24,5 miljarðar á þessu ári. Með
öðrum orðum: Nærri fjórða hver
króna útfluttra sjávarafurða á
þessu ári er fengin með afla
skuttogaranna!
En eru ekki togararnir á hausn-
um? Vissulega eru nokkrir erfið-
leikar við rekstur þessara skipa I
fyrstu. Gert er ráð fyrir að
afskriftirnar einar nemi um 750
milj.kr. á næsta ári af öllum
togaraflotanum, en I ár er talið að
hallinn á rekstri togaranna verði
um 800 milj. kr.,þar af eru
áætlaðar um 600 milj.kr. i
afskriftir. Afskriftareglurnar eru
sannanlega umdeilanlegar. Ar-
lega eru afskrifuð 7,5% af minni
togurunum, en 6,0 % af stærri
togurunum. Afskriftirnar eru
teknar af tryggingarupphæðinni,
sem hækkar eftir föstum reglum
miðað við aukinn efniskostnað og
hærri viðgerðarkostnað.
Afskriftarupphæðin verður þvl
hærri eftir þvi sem togarinn eldist
uns hann er að fullu afskrifaður.
En hvað segir þessi 200 milj.kr.
halli fyrir utan afskriftir miðað
við 5-6 miljarða útflutningsverð-
mæti og 2,2 miljarða i laun og hlut
tilmannanna á togurunum? Hvað
segja kveinstafirnir I útgerðar-
mönnunum okkar þegar á sama
tlma berast húrrahróp frá
byggðum landsins?
Andspænis hermengun og
niöurlægingu hafa sósialistar teflt
fram uppbyggingu islenskra at-
vinnuvega. Andspænis
undirlægjuhætti gagnvart út-
lendingum er teflt fram
sjálfsvirðingu og þjóðlegri reisn.
Ein aðalhættan við núverandi
rikisstjórn er að henni takist að
grafa undan þvi trausti sem
þjóðin hefur öðlast á sjálfri sér
með atvinnuuppbyggingu
vinstristjórnarinnar) — sú hætta
að æ fleiri taki að lita þannig á að
besta leiðin til þess að varðveita
sjálfstæði þjóðar sé að fórna þvi.