Þjóðviljinn - 20.10.1974, Page 11

Þjóðviljinn - 20.10.1974, Page 11
Sunnudagur. 20. október. 1974 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 SMÁÞJÓÐIR OG STÓRÞJÓÐIR ,,Á Hjaltlandi er heima- fyrir iftill hópur ungra skálda. Það lítið sem ég kynntist þeim þótti mér allt að því átakanlegt. Mál þeirra var enska, þeir hefðu átt að geta ort fyrir heiminn. En til hvers var þeim að vera að yrkja á enskri ensku? — það hef ur þegar verið gert af tugum þúsunda víðsvegar um alla veröldina í mörg hundruð ár, líklega er búið að yrkja á ensku fyrir löngu allt sem nokkurnveginn venju- legum manni getur dottið í hug. Það hafði þá orðið fangaráð þessara ungu hjaltlendinga að reyna að leita uppi fátíð og hálf- gleymd orð sem enn voru til á vörum hjaltneskra sveitamanna og búa sér til einskonar nýtt mál, hjalt- neska ensku, með tilstyrk þessháttar orða. Á þennan hátt gátu þeir látið dálítið til sin taka án þess að vera nákvæmlega eins og allir aðrir, án þess að yrkja upp með allt að því sömu orð- um það sem aðrir höfðu ort á undan. Þá rann það upp fyrir mér, að þannig getur verið ástatt fyrir mönnum. að sjálft heimsmálið verði eins og hlekkur um fót þeim, svo að þeir telji sér þann kost vænstan að reyna að losa sig úr viðjum þess". Jón Helgason prófessor. Tíbetinn rauöhærði fór meö írskan uppreisnarsöng SAMBÝLI TVEGGJA eða fleiri þjóða innan eins rikis fylgja alltaf sambúðarvandamál. Okkur undrar ekki þótt til meiriháttar á- rekstra komi þegar um er aö ræða t.d. Afrikuriki, sem dregin voru á landabréfið eftir hentug- leikum nýlenduveldanna, sem að sjálfsögðu kærðu sig kollótt um það, hvaða þjóðir væru skyldar og hverjar ekki. Það var heldur ekki erfitt að gera sér grein fyrir for- sendum þeirrar hreyfingar, sem klauf Bangladesh frá Pakistan. En hitt er miklu undarlegra, aö I hundgömlum Evrópurlkjum þar sem ein þjóð er I yfirgnæfandi meirihluta, þar skuli verða til sjálfstjórnar- og aðskilnaðar- hreyfingar smáþjóða, sem svo lengi hafa veriö I sambýli við miklu sterkari þjóð, að þær hafa að mestu týnt máli sínu. NÆRTÆK DÆMI ERU keltnesk- ar þjóðir Frakklands og Bret- landseyja: bretónar, írar* og nú eru einmitt I sviðsljósi þjóðernis- sinnaflokkar walesmanna og skota. Siðarnefndir fengu um 30% atkvæða I bresku þingkosningun- um á dögunum og eru oröið næst- stærsta pólitiska aflið I landinu. betta er merkileg þróun — fyrir fáum árum mun hafa verið litið á þennan flokk sem einhverskonar sérvitringahóp. Rudyard Kipling, skáld hins breska heimsveldis, kveðst hafa heyrt tibeta einn uppi i Himalaja- fjöllum fara með söng sem hann þóttist kannast við. Hann heim- sótti tlbetann, sem reyndist hafa átt irskan fööur sem tekinn hafði verið til soldáts snemma á 19. öld og verið sendur til Indlands. Þessi iri hafði strokið til fjalla og gengið að eiga tibetska konu. Og i minn- ingu hans stilltu tibetinn, kona hans og börn sér upp i röð á degi hverjum og fóru með söng hins irska föður og afa. Textinn haföi afbakast I meðförum, en Kipling mátti samt greina að farið var með irskan uppreisnarsöng frá 18. öld, The Wearing of the Green: Meiri harmur er kveðinn að Ir- landi en nokkru öðru landi. Menn eru hengdir og konur einnig fyrir að bera hiö græna merki... KIPLING BIRTI þessa frásögn með „gamansögum”. í reynd var þetta partur af mikilli harmsögu. Það væri synd að segja að keltar hefðu haft lánið með sér i þeim kynduga bálki sem kallaður er mannkynssaga. Á siðustu öldum fyrir Krist áttu þeir lönd og bú- festu um mikinn hluta Vestur- Evrópu. En með hverri öld sem leið upp frá þvi voru þeir á undan- haldi undan germönskum og rómönskum þjóðum um leið og þeir lögðu sigurvegurunum til ör- nefni, rauðbirkið hár og skáld- gáfu. Bretónar komust endanlega undir frönsku krúnuna árið 1491, walesbúar undir þá ensku árið 1536, og árið 1707 var reitum skota og enskra endanlega ruglað sam- an og skoska þingið lagt niður. Saga fárra þjóða var jafn hörmuleg og ira. Um 1840 voru þeir átta miljónir, en hungurs- neyðin mikla (sem margir kalla hiklaust þjóðarmorð vegna þess hvernig ensk nýlendustefna hélt á þvi máli) og upp úr henni örviln- an og landflótti, léku þá svo grátt, að þegar Irska lýðveldið var stofnað 1926 voru ekki nema 4.2 miljónir manna eftir á Eynni grænu. Það er enn i dag eina riki kelta (Ibúar um 2,5 miljónir, 1,5 eru á Norður-trlandi). Þar af geta um 600 þúsund talað irsku, en nota hana ekki nærri allir. Wales- búar standa betur að vigi að þvi er tunguna varðar, um þriðjung- ur þriggja miljóna ibúa Wales mælir enn á keltneska tungu. Skotar eru að þessu leyti miklu verst staddir, aðeins um 120 þús- undir manna af sex miljónum geta talað gelisku, þar af nota að- eins um 7000 þá tungu einungis. Bretónar i Frakklandi eru taldir um 2,5 miljónir og þar af kunna um miljón bretónsku. Það mál var til furöulega skamms tima bannað i skólum og á opinberum vettvangi. Og til þessa hefur gengið illa að fá það viðurkennt. Siðan 1951 hefur verið leyft að kenna bretónsku einn tima i viku i skólum, utan stundaskrár. Þótt bretónskumælandi menn séu fimm sinnum fleiri en islendingar fá þeir ekki nema um 50 minutur af sjónvarpsefni —-eða svo var til mjög skamms tima. Það þætti sjálfsagt þunnur þrettándi ef austar væri i álfunni. ÞAÐ ER NOKKUÐ misjafnt hvað haft hefur verið á oddinum i þjóð- ernisbaráttu á keltneskum lönd- um. 1 Bretagne og Wales er það hin viðkvæma staða tungunnar, á Norður-lrlandi blandast aöild að kaþólsku kirkjunni mjög inn i spurningar um irska þjóöernis- hyggju. En öll keltnesk lönd eiga það sameiginlegt, að þau hafa orðið fyrir pólitisku og efnahags- legu misrétti, sem hafa gert þau að vanræktum útkjálkahéruðum stærri heildar. Miðsækin, kapitalisk þróun hef- ur dregið saman fé og ákvörð- unarvald til stórborga meiri- hlutaþjóðarinnar. Þar eru á- kvarðanir teknar um framtið fyrirtækja og þar með byggða; þegar aðalmiðstöövar einhverrar samsteypu i Paris eða London á- kveða að leggja niður „óhag- kvæmt” útibú á Bretagne eða Skotlandi, þá er eins liklegt að verið sé að „hagræða burt úr til- verunni” heilum bæ eöa sveit. At- vinnuleysi verður miklu meira i minnihlutahéruðunum en i land- inu i heild, tekjur manna lægri, unga fólkið flýr að heiman til enskra og franskra höfuðborga til að passa hunda, þvo upp diska og gæta þeirra véla sem leiðinleg- astar eru og hávaöamestar. Það var þesskonar hagræðing sem norðmenn neituðu þegar þeir felldu aðild að Efnahagsbanda- laginu, þeim þótti nóg að glima við andstæður norölenskra fiski- bæja og Oslóar, þó að Brííssel settist ekki ofan á þeirra eigin höfuðborg með miöstjórnarvald ofar þjóðrikjum. Og það er þessi þróun sem skoskir þjóðernissinn- ar hafa snúist gegn meö þeim ár- angri sem kosningaúrslit gefa að nokkru leyti til kynna. FYRIR FIMM ARUM gerði ég yfirlit yfir hina „keltnesku vakn- ingu” sem þá var svo kölluö, eins og hún kom fram á mismunandi svæðum. Þá sprungu sprengjur á Bretagne og skammt var i strið IRA I Belfast en skoskir og velsk- ir þjóðernissinnar voru að búa sig i stakk til að ráðast á hið torsótta kosningakerfi Bretlands. 1 fljótu bragði séð virðist sem sprengju- kast skæruliða úr Gwenn ha du (Hvitt og svart) á Bretagne eða liðsmanna IRA á Noröur-trlandi, hafi litlu breytt. Heföbundnar aö- ferðir stjórnmálaflokka þjóð- ernissinna i Wales og Skotlandi sýnast hafa gefið betri raun. Að minnsta kosti hafa aðrir flokkar neyðst til að viðurkenna vanda- mál Skotlands og bera fram til- lögur sem ganga i mismunandi litlum eða stórum mæli til móts við þær. Af þessu mætti einna helst draga þá ályktun að þjóðernisbarátta minnihlutahópa eigi einna mesta möguleika þegar hún tvinnast sem rækilegast sam- an við efnahagslegan vanda svæöanna sem þeir byggja. Þetta gerðist I Skotlandi — og að sumu leyti fyrir þá tilviljun, að oliu- fundir i Norðursjó ýta undir áræði þeirra sem færa rök fyrir þvi að skotum vegni best er þeir standa á eigin fótum. ATVIK EINS og oliuævintýri geta reynst tvibent þeim sem i þeim lenda, og verður ekki fariö út i þá sálma nánar hér. Við skulum heldur reyna að slá þvi föstu, að þjóðernisstefna, sem vit er i, er kjarabarátta, er bandamaður lýðræðislegs hugsunarháttar. Vegna þess að hún stuðlar að auk- inni dreifingu valds, færir ákvarðanatekt nær sjálfu þvl fólki sem ákvarðanir bitna á. Vinnur að jafnrétti gegn þróun, sem i nafni framfara, hagræðing- ar, samheldni stórra heilda i raun mismunar fólki eftir búsetu — og þar með i reynd eftir þjóðerni,' uppruna. Vissulega hefur þjóð- ernishyggja neikvæðar hliðar — i hennar nafni hafa verið framdir margir glæpir. Eins og það hafa verið framdir hrikalegir glæpir I nafni guðs, frelsis, sósialisma, lýðræðis og hvers sem vera skal. Þessar neikvæðu hliðar koma ekki i veg fyrir, að smáþjóðir leiti sér stuönings i þjóðernishyggju til varnar gegn þeirri alþjóða- hyggju, sem sterkar þjóðir hafa i frammi i nafni framfara og hag- vaxtar. Vegna þess að alþjóöa- hyggja stórvelda reynist oftast nær þjóðernishyggja stórþjóða, sem hefur logið sig saman við eitthvert samþjóðlegt hugmynda- kerfi. En auk þess sem þjóðernisbar- átta eins og sú, sem nú var lýst, er kjarabarátta, er hún einnig part- ur af viðleitni manna til að varð- veita „þau verömæti sem gera Hfiö auöugra og fjölbreytilegra” eins og skoskt skáld, þjóðernis- sinni og kommúnisti, Hugh Mac- Diarmaid, kemst að orði. Verð- mæti sem menn virðast skilja betur en áður, þvi betur sem þeir kynnast meir hinum þunga vált- ara iðnvædds mengunarsamfé- lags sem á hámarksneysluna eina aö guöi. Arni Bergmann. PiiHIi

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.