Þjóðviljinn - 20.10.1974, Side 16

Þjóðviljinn - 20.10.1974, Side 16
16 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur. 2«. október. 1974 Síöbúnar þjóöhátíöar- hugmyndir Me6 nýju sunnudagsblaði ýtum við á flot nýju Stangli og vonum að þátturinn eignist af sjálfsdáðum glaðbeitta frétta- ritara i sem flestum lands- hlutum og heimsálfum. Að þessu sinni ýtum við Stangli úr vðr með hálfgerðum vand- ræðagrip sem datt ofan i si- fullar ruslakorfur sumarsins og fjallar um þjóðhátiðir. Það efni er vist ekki enn dottið úr tisku, þvi eins og menn vita er verulegur hluti af útvarpsdag- skránni fram til þessa dags byggöur upp af hugljúfu þjóð- hátiðarefni, og sjónvarpið er enn ekki af stað farið að ráði i þvi að gera þeim hlutum skil. Hér við bætist að allir sem haldið gátu á kvikmyndavél og riflega það voru i sumar önnum kafnir við að búa til privatkvikmyndir fyrir bæjar- félög, sýslur og hreppa um ytra útlit þessara staða á þjóð- hátið — að ógleymdum bæjar- stjóranum, konu kaupfélags- stjórans og hundinum prests- ins og öðru þvi sem helst er sýnilegt og áþreifanlegt af lif- andi mannlifi. Pistill hófst i upphaflegri gerð á einhverju fimbulfambi um mikilfengleg hátiða- þyngsli sem islendingar taka á sig á stórhátiðum. Eins og menn vita er þetta gert i yfir- bótarskyni fyrir það sukk og glæfralegan gleðskap sem er á landsmönnum utan hátiða. Aðeins ein þjóð Satt að segja getum við is- lendingar að þvi er varðar stórhrikalega alvöru i hátiða- haldi ekki jafnað okkur við neina þjóð nema ef vera kynni Norður-Kóreumenn, sem eru óumdeilanlegir heimsmeist- arar i þessari grein. Og úr þvi svo er komið, þá eigum við að keppa við þá sem mest og taka opinskátt mið af þeim eins og kostur er. Þá hefðum við lika bara átt að hafa einn ræðu- mann á aðalhátið á Þingvöll- um, en hann hefði lika mátt tala helmingi lengur en nokk- ur gerði þar og þá i helmingi fleiri hátalara. Ef að við hefð- um tekið þessa stefnu upp, þá hefðum við fækkað sungnum lögum um helming en marg- faldað kórinn með þvi að skylda alla þá sem verið hafa i karlakórum til að syngja með, en þeir eru um það bil 13% af þjóðinni eða nokkru fleiri en þeir sem kjósa Alþýðuflokkinn um þessar mundir. Mislitir hlutar Og þá hefðu þeir Matthias og Indriði tekið ráð i tima og sett Höskuld Goða Karlsson sögusýningarstjóra til Pjong- jang fyrir fimm árum. Þar hefði hann stúderað þá list, að láta hundrað þúsund skóla- stúlkur á engum tima mynda með hreyfingum og mislitum klútum ýmist andlitið á Kim II Sung oddvita eða kornöx bylgjandi eða traktor brun- andi I morgunsárinu. Haldið þið ekki það hefði verið mun- ur, að sjá á Þingvöllum með eldingarhraða skiptast á landsföðurbros Ólafs Jóhannessonar (það var nú þá), skuttogara með vörpuna úti og fisk i vörpunni og svo Skarphéðinn að stökkva yfir Markarfljót með öxina Rimmugýgi á lofti? Og hefðu að slikri skrautsýningu staðið öll skólabörn á suðvestur- landi. Og ef við hefðum undir- búið okkur þannig, þá hefðum við ekki staðið svo herfilega á gati I skjaldarmerkjafræði, að ruglast á hnigandi sól Sjang Kæ-sjeks á Formósu og hækk- andi gulri stjörnu Maós for- manns, en þetta leyfðu þeir sér nú prótókollséffarnir. Hollt er heima hvat En hinu er heldur ekki að neita, að á þjóðhátið má eins vel hunsa erlendar fyrirmynd- ir og byggja þeim mun ræki- legar á þjóðlegri hefð, á þvi að hollt es heima hvat eins og bóndinn sagði, sem réði við- haldið til sin i kaupavinnu. Þá hefði vissulega annað orðið uppi á teningnum. I stað raunalega litlausrar þjóðarsögu hefði mátt efna til dýrtlðarreiptogs i þrihyrning milli Vinnuveitendasam- bandsins, ASI og rikisstjórn- arinnar. Glimunni hefði mátt fylgja mannjöfnuður milli úr- valdsliða skagfirðinga og þingeyinga og titlatog milli einstakra starfshópa innan vébanda Bandalags starfs- manna rikis og bæja. Það hefði mátt hafa hártoganir milli ritstjóra dagblaðanna. Ráðuneytisstjórar hefðu getað skorið hrúta og rithöfundar heföu barið lóminn sem fast- ast. Formenn þingflokkanna hefðu getað brugðið sér i hornaskinnsleik og Geir Hall- grimsson hefði auðvitað verið inni. Færustu leikmenn hefðu getað leikið af fingrum og munni fram mótif úr æsileg- asta og óendanlegasta reyfara tslandssögunnar, en hann heitir eins og kunnugt er Leit- in að höfundi Njálu. Miðilsfundurinn mikli Þjóðhátið hefði síðan mátt ljúka á mesta miðilsfundi ver- aldarsögunnar. Þriðjungur is- lensku þjóðarinnar hefði setið og haldist i hendur umhverfis þann miðil sem best væri stilltur inn á bylgjulengd Þingvalla og spurt i gegnum hann Ara fróða, Jón Arason og Jón Sigurðsson að þvi sem mestu skiptir fyrir þjóðar- heildina og þjóðareininguna, en það er: verð á bensini næstu tvö árin, breytingar á útlánsvöxtum næstu tvo mán- uöina og veðurfar á Mallorca næstu tvær vikurnar. Að lokn- um miðilsfundi hefðu svo ver- iö hýddir opinberlega þeir friðarspillar og leiðindamenn á ýmsum aldri, sem fyrr og siðar hafa spillt þjóðarsam- hug og eindrægni með þvi að röfla um mál sem koma heild- arþjóðartekjunum ekkert við. —Skaði. d-hlj ómur E ^-hljómur. cb © t C 0 M C-hljómur. c C V C G^-hljómur Katrín Guöjónsdóttir velur gítargrip við vinsælustu lögin TÖKUM LAGIÐ! Margir höfðu gaman af að reyna við gitarinn i siðustu viku, en þá kom Katrin með hljómana við eitt lagið á splunkunýrri plötu Þokkabótar, Litia kassa. Nú hefur hún valið eldra lag, sem er þó enn mjög vinsælt og mikið sungið og spilað. Þetta er eitt af lögum Bitlanna, sem nú eru löngu hættir að leika saman, Yesterday. Þið kunnið lagið áreiðanlega, en við prentum hér textann á ensku og Katrin hefur skrifað hljómana inná fyrsta erindiö og viðlagið og dregiö skýringar- teikningar með. Athugið að moll-hljómar eru skrifaðir með litum staf, dúrinn með stórum. YESTERDAY a Yesterday E7 a All my troubles seemed so far away d a Now it looks as though they are here to stay d a a Oh, I believe in yesterday. Suddenly I’m not half the man I used to be There’s a shadow hangin’ over me Oh, yesterday came suddenly. a ' t E7 a d Why she had to go G7 c E7 I don’t know, she wouldn’t say a E7 a d I said something wrong G7 C Now I long for yesterday Yesterday Love was such an easy game to play Now I need a place to hide away Oh, I believe in yesterday. Why she had to go I don’t know, she wouldn’t say I said something wrong Now I^ong for yesterday. Yesterday Love was such an easy game to play Now I need a place to hide away Oh, I believe in yesterday. Græn- lenskur vinstriflokkur Til þessa hafa grænlenskir stjórnmálamenn ekki skipulagt sig I flokka til hægri og vinstri eins og tiðkast annars staðar, þó aö augljóslega hafi að visu mátt greina tilhneigingar I grænlensk- um stjórnmálum sem bera svipuð einkenni og annars staðar. Nú virðist hins vegar vera að verða nokkur breyting á yfirbragði stjórnmálaátaka I Færeyjum. Þegar kosningar fara næst fram á Grænlandi verður það I fyrsta sinn, sem kosningabarátta stendur milli hægri- og vinstri- manna, segir Grænlandspóstur- inn. Þjóðþingsmaður Grænlend- inga, Nikolaj Rosting, Knud Hartling, fyrrverandi þjóðþings- maöur og Otto Steenholt, lands- stjórnarmaður munu skipa sér hægra megin I kosningabarátt- unni og bera fram sömu megin- stefnumálin. Hins vegar verða þeir Moses Olsen, fyrrverandi fulltrúi Grænlendinga á þjóðþing- inu i Danmörku, og Lars Emil Johansen, þjóðþingsmaður, vinstrameginn. Hyggjast þeir stofna grænlenskan vinstriflokk. Ljómandi sjónauki þetta. Ég sé grcinilega, að hérna neðar við götuna er verslun sem selur þessa sjónauka 200 krónum ódýrar en þú.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.