Þjóðviljinn - 20.10.1974, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 20.10.1974, Blaðsíða 17
Sunnudagur. 20. október. 1974 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 17 AÐALSAFN, Þingholtsstræti 29 A, simi 12308 Opið mánudaga til föstudaga kl. 9—22. Laugardaga kl. 9—18. Sunnudaga kl. 14—18 Bústaöaútibú, Bústaöakirkju, simi 36270. Opið mánudaga til föstudaga kl. 14—21 Hofsvailaútibú, Hofsvallagötu 16. Opið mánudaga til föstudaga kl. 16—19. Sólheimaútibú, Sólheimum 27, simi 36814. Opið mánudaga til föstudaga kl. 14—21. Laugardaga kl. 14—17 Bólin heim simi 36814 kl. 9—12 mánudaga til föstudaga. Bókasafn Laugarnesskóla. Skólabókasafn. Opið til almennra útlána fyrir börn mánudaga og fimmtudaga kl. 13—17. Bókabfllinn ARBÆJARHVERFI Hraunbær 162 — mánud. kl. 3.30- 5.00 Versl. Hraunbæ 102 — þriðjud. kl. 7.00-9.00 Versl. Rofabæ 7—9 — Mánud. kl. 1.30— 3.00, þriðjud. kl. 4.00-6.00. BREIÐHOLT Breiðholtsskóli — mánud. kl. 7.15- 9.00, fimmtud. kl. 4.00-6.00 föstud. kl. 1.30-3.00 Hólahverfi — fimmtud. kl. 1.30- 3.30 Versl. Straumnes fimmtud. kl. 7.00—9.00 Verslanir við Völvufell — þriðjud. kl. 1.30-3.15, föstud. kl. 3.30-5.00 HAALEITISHVERFI Alftamýrarskóli — fimmtud. kl. 1.30— 3.00 Austurver, Háaleitisbraut — mánud. kl. 3.00—4.00 Miðbær, Háaleitisbraut — mánud. kl. 4.30—6.15, miövikud. kl. 1.30—3.30 HOLT — HLÍÐAR Háteigsvegur 2 — þriðjud. kl. 1.30— 3.00 Stakkahliö 17 — mánud. kl. 1.30— 2.30, miövikud. kl. 7.00—9.00 Æfingaskóli Kennaraskólans — miðvikud. kl. 4.15—6.00 LAUGARAS Versl. Norðurbrún — þriðjud. kl. 5.00—6.30, föstud. kl. 1.30—2.30 LAUGARNESHVERFI Dalbraut/Kleppsvegur — þriðjud. kl. 7.15—9.00 Laugalækur/Hrisateigur — föstud. kl. 3.00—5.00 SUND Kleppsv. 152 við Holtaveg — föstud. kl. 5.30—7.00 TCN Hátún 10 — þriðjud. kl. 3.30—4.30 VESTURBÆR KR-heimilið — mánud. kl. 5.30— 6.30, fimmtud. kl. 7.15—9.00 Skerjafjörður — Einarsnes — fimmtud. kl. 3.45—4.30 Versl. Hjarðarhaga 47 — mánud. kl. 7.15—9.00, fimmtud. kl. 5.00—6.30 Úr sögu verkalýðshreyfingar og sósíalískra samtaka cTWyndir Eins og fram kom i siöasta sunnudagsblaði Þjóðviljans er ætlunin að birta i þessum þætti ýmsar myndir úr sögu verk- lýðshreyfingarinnar og styðjast þar fyrst og fremst við mynda- safn Dagsbrúnar. En jafnframt væri mjög vel þegið að fá lánað- ar hjá lesendum myndir til birt- ingar ef til eru og Dagsbrúnar- safnið fengi siðan eftirtökur af þeim. Alltof litið hefur verið gert af þvi að halda saman myndum af þessu tagi, þótt vit- að sé, að ýmsir muni eiga sitt- hvað i fórum sinum. Með tlmanum verða mynd- irnar ómetanleg heimild um baráttu islensks verkalýðs, en með timanum vilja lika glatast skýringar á myndunum, séu þær ekki skráðar, og þvi skorum við á þá, sem geta gefið nánaj-i upplýsingar um myndirnar sem hér birtast, að skrifa okkur eða hafa samband i sima 17500 við annaðhvort Eyjólf Arnason, bókavörð Dagsbrúnar eða Vil- borgu Harðardóttur blaða- mann. Þrisvar sinnum 1. maí Siðast (13. okt.) birtum við myndir frá aðförinni að Ólafi Friðrikssyni 1921 og væri þökk á betri skýringum á þeim. Okkur hefur þegar verið bent á, að á annarri myndinni, þar sem haldið var að sæjust Dags- brúnarverkamenn og aðrir fylgismenn ólafs, séu þeir i miklum minnihluta; heldur sé meirihlutinn hvitliðar að leiða verkamennina burt frá Suður- götu til flutnings i fangahúsið. Gaman væri að heyra frá fleir- um um þetta, svoog hvort ein- hverjir þekkjast á myndinni. 1 dag birtum við myndir frá þrem kröfugöngum 1. maí. Um þá efstu vitum við, að hún er tekin I fyrstu kröfugöngunni 1923, en kann nokkur að nafn- greina einhverja, sem á henni sjást? Næsta mynd er yngri. Þar þykjumst við þekkja Hauk Björnsson hægra megin við fánaberann, og Hendrik Ottósson á milli fánaberans og þess sem er vinstra megin við hann. En þekkjast einhverjir fleiri? Og siðan hvenær er þessi mynd? Hvort sem það prentast eða ekki getum við á myndinni sjálfri greint hvað stendur á tveim spjaldanna: ,,Lifi kommúnisminn” og „Stétt gegn Stétt”. Þarna er fullt af smá- strákum kringum gönguna. Kannski þekkir einhver sjálfan sig þar? Myndin er tekin á Lækjartorgi. Neðsta myndin er yngst og tekin á Frakkastig. Þar þekkist amk. Guðrún Stephensen leikari framarlega i flokki, svo ekki getur myndin nú verið mjög gömul. En samt hefur gleymst siðan hvenær hún er. Getur ein- hver hjálpaö uppá sakirnar. Og hverja fleiri þekkið þið i göng- unni? Sjálf ykkur kannski? Látið okkur vita. — vh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.