Þjóðviljinn - 20.10.1974, Side 23
Sunnudagur. 20. október. 1974'ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 23
Gunnar Gunnarsson:
„Hver er næst?
- mér er spurn”
Forysta Alþýðuflokksins
breikkuð, teygð og toguð
„Hvaö er næst? — Mér er
spurn”. Þessi örlagaþrungnu
orö lásu menn I Mogganum i
siöustu viku, en höfundur þeirra
er hinn djarfi, frumlegi og gáf-
aöi kaupmaöur Guölaugur
Bergmann i Barnabæ.
Og viö skulum rýna ögn i
merkingu þessarar merkingar-
bólgnu setningar og taka fram-
haldiö til hliösjónar: „Hvaö er
það næst sem viö megum ekki
sjá, lesa eöa heyra að dómi
menningarpostulanna? Þeir
vita hvaöa menning er okkur
fyrir bestu og eins og þeir segja:
frelsi er gott svo langt sem þaö
nær, en það verður að
takmarka” og þeir ætla aö
ákveða fyrir okkur, hvað sú
takmörkun nær langt.
Þetta Keflavikursjónvarps-
mál er I sjálfu sér ómerkilegt
sem slikt, en látum þaö ekki slá
ryki i augu okkar. Þaö gæti bara
oröiö byrjunin. Við höfum þá
alltaf aöstööu til aö láta i ljós
skoðanir okkar meö undirskrift
og ef ekki er tekið mark á henni,
þá getum við sett X viö einhvern
annan stjórnmálaflokk, sem ef
til vill er ekki til i dag, en gæti
orðið til ef enginn vill taka mark
á hinum þögla meirihluta”.
Það var hinn mikilhæfi og
menntaði fréttaskýrandi og
stjórnmálasérfræðingur,
Breiöur Björn Diggó, sem vakti
athygli undirritaös sérfræöings
á hinum þrungnu oröum Gulla i
búöinni.
Sjáöu til, sagöi BB Diggó og
talaöi meö fullan munninn af
frönskum, þannig að hann likt-
ist helst formanni annars rit-
höfundarfélagsins þar sem hann
sat i sóffa og blés þungt meö
nefinu:
Gulli er ekki fífl
Gulli er ekki fifl, eins og
Sigurlaug freistast til að vona.
Hann spyr hvað komi næst. Um
það er ljóslega hægt að lesa i
bók minni „Voru guðirnir geim-
farar”, en þar er skýrt tekiö
fram, að hinn þögli meirihluti
láti verst i svefni.
BB Diggó er ekki vanur þvi aö
tala ljóslega, a.m.k. ekki I sjón-
varpiö, en nú var hann i heilla-
vænlegu óráði og hann skýrði
viðburði vikunnar eins og aö
drekka vatn með nefi annars
manns.
Þessi stjórnmálaflokkur, sem
ef til vili er ekki til i dag — gæti
Gull i í Barnabæ
— verður
væntanlega einn
af ritstjórum
Þögla fálkans og
fjármálaráðherra
nýja flokksins
oröið til á morgun, fimmtudag.
Þaö er þetta sem Guölaugur
kaupmaður er aö segja.
Unga island
Og sanniö til, hélt Diggó
áfram óráöinu: „I vor, um það
leyti sem þessi rikisstjórn sem
nú situr liöast sundur og Fram-
sókn stendur uppi og vantar fólk
i ráöherrastóla, þá hinn
nýi flokkur þögla meirihlutans
alskapaöur og tilbúinn að taka
völdin. Þaö eru engir aukvisar
sem Guðlaugur kaupmaöur
hefur sér að baki. Þar standa
frelsishetjur vl með Þór
Vilhjálmsson i fararbroddi,
Þorstein stjarna við hliö hans og
svo alla hersinguna: Albert
Guömundsson, Hreggviö Jóns-
son, Birgi Viöar, Georg Viöar,
Matthias og Eykon, Þorvald,
Rich aðmirál og Hrafn Gunn-
laugsson.
Þessir menn munu hefja
merkiö I anda unga Islands og
þegar i stað mun Geir Hall-
grimsson ganga til liös viö hers-
inguna, en meö þvi aö Geir losar
sig undan ofurvaldi
Framsóknar og samfylkingin
sér dagsljósiö, þá losnar um
liklega sem óliklega, og fylking
hins þögla meirihluta heldur inn
i þingsali undir herópi sinu:
Hvaö er næst — mér er spurn.
Albert forseti
BB Diggó, fréttaskýrandi og
stjórnmálasérfræðingur teygöi
úr sér á sófanum og lét nokkrar
igrundaðar setningar ryðjast
gegnum nefiö eins og væri hann
Jónas:
Albert Guömundsson ætlar
sér ekki aö eiga sæti i þeirri
rikisstjórn sem tekur völd hér i
vor. Hans timi er ekki kominn
þá. Hann verður forseti hins
nýja rikis á grundvelli nýrrar
stjórnarskrár. Á Bessastöðum
veröa geröir viöáttumiklir fót-
boltavellir og Hreggskrifur
menntamálaráðherra fær sér-
stakt herbergi þar til aö þjálfa
rithönd sina.
BB Diggó veit hvaö hann
syngur, og þaö er aðeins þess
vegna sem hann fær aö blása
boðskap sinn á þessum dýru sið-
um. Hann stundar nú nám i
Stjórnmálaskóla Sjálfstæöis-
flokksins, en þaö er einmitt þar,
sem hinir mikilhæfustu sér-
fræðingar hafa dvalið og ornað
sér við arineld menntanna.
Allar sjoppur tapa
Taktu lika eftir einu, sagði
Breiður Björn: Sama daginn og
Mogginn birtir hin framtiðar-
bólgnu orö Guölaugs i Barnabæ:
Hvað er næst? — Mér er spurn,
þá birtist frétt i blaöinu um
gifurlegt tap á smásölunni.
Hver einasta sjoppa I þessu
landi hefur tapaö tuttugu mil-
jónum á hverjum mánuöi siöan i
vor. Hver stendur fyrir þessu?
Hver borgar brúsann? Ekki
neytendur, svo mikið er vist.
Gulli ætlar sér ekki aö borga
þetta tap, og það er þess vegna
sem hann geysist nú fram á rit-
völlinn og i pólitikina. Hann er á
flótta undan þjóðnýtingar-
áformum Geirlaugar. Hann vill
ekki greiöa fyrir tapiö og hann
sér ekki framá annað, en eftir-
leiðis veröi að greiöa niður
skyrtur og gallabuxur. Og ef
neytendur greiöa ekki tapiö af
smásölunni, hver gerir þaö þá?
Rikissjóður. Niöurgreidd smá-
sala þýðir i augum Guölaugs
aðeins þjóönýting. Og það ætlar
hann aö stöðva meö flokksstofn-
uninni.
Þögli flokkurinn sefur, en
hvað verður, þegar hann
vaknar? Hvað næst — ungi
maöur?
Og nú sofnaöi Breiður Björn
Diggó á sófanum og var ekki að
Skiptast á
Þau mistök uröu i umbroti
þessarar siöu i siöasta
sunnudagsblaði, aö höfund-
arnafn féll niöur, en var
reyndar kynnt á forsiðu i
staðinn: Jón Hjartarson
leikari.
t dag er þaö Gunnar Gunn-
arsson blaðamaður sem
horfir gegnum skopgleraug-
un á atburði undangenginnar
viku, en hann mun hlaupa i
skarðið fyrir Jón öðru
hverju, þegar alltof mikið er
að gera i leikhúsinu.
sjá, að hann hefði persónulega
áhyggjur af bægslagangi meiri-
hlutans á bak viö tjöldin, enda
höfum við lúmskan grun um aö
stjórnmálasérfræðingur sjón-
varpsins og mesti frétta-
skýrandi sem Island hefur enn
alið, hafi bjargaö bjór sinum og
eigi visa ritstjórastööu á vænt-
anlegu málgangi þögla meiri-
hlutans: Þögla fálkanum.
Ég sting upp á Benedikt!
Þaö þarf aö breikka forystulið
Alþýðuflokksins, mælti Gylfi Þ.
Gislason, formaður
Alþýðuflokksins af
sannfæringarkrafti sem honum
einum er laginn, þegar BB
Diggó, fréttaskýrandi rikisins,
spuröi hann spjörunum úr i út-
varpinu i vikunni.
Þaö þykja þjóöinni reyndar
ekki ný tiöindi, að breikka þurfi
forystuliðið i þessum mikla
baráttuflokki alþýðunnar. En
það nægir bara ekki að breikka
hvern einstakan I forystuliöi
flokksins, það er ekki hægt aö
teygja á mönnum og toga þá út
til hliöanna endalaust. Gylfi
stendur nú frammi fyrir mikl-
um vanda. Undirniðri gerir
hann sér ljósa grein þess, aö
skrokkar Alþýöuflokksins þola
ekki endalausa breikkun, og
ekki er um að ræöa aö fjölga i
flokknum.
Björn teygjanlegur
Hvað er þá til ráða? Björn
Jónsson sem er nýlega genginn i
Alþýðuflokkinn hefur breikkað
meira en góöu hófi gegnir, enda
hefur hann látiö teygja á sér
meira en góðu hófi gegnir. Gylfi
er mát andspænis þessum
teygjukarli, sem tekur á sig
allra kvikinda liki og litur
stundum út eins og fjöldi
manns, þannig aö hann reynir
að fjölga sér eins og Björn.
Hann hefur skipt sér. Ýmsum
mun finnast Gylfi betur til
skiptingar fallinn en Björn, þar
eð hann er breiðari um miöjuna,
en það er misskilningur. Skipt-
ingu Gylfa fylgja ýmsar auka-
verkanir, sem ljóslega sjást af
þvi, aö hann hefur nú loksins
komiö auga á Benna Gröndal.
Hver veröur eftirmaöur þinn i
formannssætinu, Gylfi? spuröi
BB Diggó, fréttaútskýrandi og
stjórnmálasérfræöingur rikis-
ins i fréttaauka I vikunni.
Og Gylfi leit kæruleysislega
um öxl, um þaö bil sem Björn
klauf hann i heröar niöur og
sagði: Ætli þaö verði ekki
Benni.
Skatta-
pólitík
ét mm jr m
I IjOSI
reynslunnar
Danskur teiknari hefur
með þessum hætti túlk-
að stefnu stjórnar sinn-
ar i skattamálum.
Kannski teikninguna
megi að ýmsu heimfæra
upp á fleiri lönd?