Þjóðviljinn - 22.10.1974, Blaðsíða 13
Þriöjudagur. 22. október. 1974. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13
Óreiðufyrirtœki í gjaldþroti:
Lenda 5-6 miljónir kr. á
sjö íbúum Tjarnarbóls 8?
Forráðamenn Tjarnarbóls h.f, stunda byggingar-
starfsemi undir nafni sameignarfélags í Kópavogi,
reka verslanir í Reykjavík og fasteignasölu.
Dómkvaddir matsmenn framkvæmdu matsgjörö á Tjarnarbóli 8 t
gær eftir kröfu lögfræöinga eigenda Ibúöanna. Þeir áttu aö meta
hversu kostnaðarsamt er aö fullgera húsiðmiðað viö fyrirheit kaup-
samninga. Mynd Ara Kárasonar gefur nokkra hugmynd um ástand
stigagangsins. Viö þessar aöstæöur skilja forráöamenn Tjarnarbóls
við húsiö, lýsa sig gjaldþrota, en halda áfram aö byggja I Kópavogi.
Tjarnarból h.f. byggöi sam-
býlishúsiö nr. 2-8 viö Tjarnarból
á Seltjarnarnesi. Nú hefur
hlutafélagiö veriö tekiö til
gjaldþrotameöferöar og veö-
skuld aö upphæö um 5 miijónir
króna lendir á eigehdum Ibúö-
anna aö Tjarnarbóli 8 ef þeir
ekki bera hönd fyrir höfuö sér.
Hér er um aö ræöa gjald-
þrotamál af verstu tegund.
Hlutafélagiö Tjarnarból hf. var
stofnaö 1969 til þess aö byggja
sambýlishúsiö Tjarnarból 2-8.
Allt frá þvi að fyrirtækiö tók að
selja ibúöir i húsinu hefur allt
morað i málaferlum og hafa
forráðamenn hlutafélagsins
fengið á sig skaöabótadóma. En
þrátt fyrir þaö hefur eigendum
félagsins tekist aö velta málun-
um á undan sér frá nr. 2 yfir á
nr. 4 og þannig koll af kolli uns
veöskuldirnar sitja nú á nr. 8.
Þannig hefur hlutafélagið haft 8
milj. kr. bankatryggingar, og
eru nú um 5 milj. kr. af þvi eftir
og er skuldin I tveimur bönkum,
Verslunarbankanum og Iðnað-
arbankanum. Mun vera um að
ræða um 3 milj. kr. til þess fyrr-
nefnda en liklega um 2 milj. kr.
til þess siöarnefnda.
Nú þegar félagiö hefur verið
tekið til skiptameðferðar lenda
skuldbindingar þess, þ.e. veö-
skuldir hússins, á kaupendum
ibúöanna, nema unnt sé aö
draga aðrar eignir seljendanna
inn i gjaldþrotameöferöina. En
þær skuldakröfur sem ella lenda
á kaupendunum eru: 5-6 milj.
kr. til áðurnefndra banka, krafa
frá Seltjarnarneshreppi upp á
um 380 þús. kr. Nauðungarupp-
boð vegna kröfu þessarar hefur
verið auglýst i dag, 22. október,
og siðan mun: múrari hússins
vera með kröfu upp á 2. miljón
króna.
En þar með er ekki öll sagan
sögð: Seljendur standa i um-
svifamiklum framkvæmdum
annars staðar: Þeir stunda
byggingastarfsemi i Kópavogi
á vegum sameignarfélags, þeir
reka verslanir i Reykjavik og
fasteignasölu. Hér er um örfáa
menn að ræða þar sem hver um
sig rekur mörg fyrirtæki við
sama skrifborðið, eins og einn
heimiidarmaður Þjóðviljans
komst að orði i gær.
Húsfélagið að Tjarnarbóli 8
hefur nú þegar ráðið til sin lög-
fræðinga. Þá hafa dómkvaddir
matsmenn kannað hversu mikið
muni kosta að ganga frá þeim
byggingarþáttum sem eftir eru i
húsinu. Er giskað á að frágang-
ur þessi muni ekki kosta minna
en 3 milj. kr. Matsmennirnir
komu á vettvang strax i gær-
dag.
Lögmenn húsfélagsins munu
krefjast þess að aðrar eignir
fyrirsvarsmanna Tjarnarbóls
h.f. verði dregnar inn i skipta-
meðferöina, og um leið munu
þeir véfengja lögmæti hlutafé-
lagsins, sem hefur ekki starfað
samkvæmt eigin lögum, var
enda stofnað sem eins konar
pappirsfélag meðan byggingin
væri I burðarliðnum. Strax og
uppskrift eigna hlutafélagsins
er lokið á málið að ganga til
sakadóms sem sakamál. Þá
verður þess krafist, sem fyrr
segir, að bú þeirra félaga i
Kópavogi og Reykjavik verði
tekið inn i skiptameðferðina svo
og þeir persónulega.
Samkvæmt gildandi lögum
eru hagsmunir kaupendanna að
Tjarnarbóli 8 i hættu, ef ekki
tekst að draga aðrar eignir selj-
endanna inn i gjaldþrotið.
Kaupendurnir eru sjö og eiga
þvi yfir höfði sér fjárkröfur upp
á allt að einni miljón hver og
einn.
1. des. nefnd
Kosið í kvöld
t kvöld ganga stúdentar til
kosninga um tilhögun hátiöar-
halda 1. desember. Klukkan 20
hefst almennur fundur stúdenta i
súlnasal Hótel Sögu. Veröur hús-
inu lokaö um leiö og atkvæöa-
greiösla hefst, klukkan 21.30.
Eins og fram hefur komið
er kosið um tvö framboð. Annars
vegar bjóða Vökumenn fram
undir kjörorðunum Tjáningar-
frelsi og skoðanamyndun með
Hrafn Gunnlaugsson sem aðal-
ræðumann en hins vegar býður
Verðandi fram undir kjörorðun-
um island — þjóðsagan og veru-
leikinn.
Mikið fjör færðist I kosninga-
Tilnokkurra átaka kom á auka-
þingi Alþýöusambands Noröur-
land sem haldiö var um sl. helgi.
Jón Asgeirsson, formaöur sam-
bandsins, kvaöst ánægöur meö
úrslit þingsins. Þar heföi yfir-
gnæfandi meirihluti þingfulltrúa
staöfest ánægju meö þá stefnu
sem stjórnin heföi fylgt.
Undirrót aukaþingsins er ósætti
það sem komið hefur upp innan
verkalýðsfélagsins Einingar, sem
m.a. hefur komiö fram i þvl að
starfsmönnum Alþýðusambands
Norðurlands var gert að vikja úr
húsnæði verkalýðsfélaganna.
Stjórn sambandsins taldi þvi
nauðsylegt að kalla saman auka-
þing til þess að kanna hvort vilji
væri fyrir þvl að hækka skatt-
greiðslur til sambandsins frá
aðildarfélögunum svo unnt væri
baráttuna i gær. Kosningablað
Vöku og dreifirit Verðaandi lágu
eins og hráviði um allar
byggingar háskólans en veggir
þeirra voru skreyttir með lit-
prentuðum veggspjöldum Vöku.
Vinstri menn veltu þvl fyrir sér
hvort Vökumenn hefðu gengið um
raðir sinar og herjað út úr félög-
um sinum hlut af verðbólgnum
námslánum þeirra eða hvort
annað og völdugra fjármagn
stæði undir prentkostnaðinum.
Hölluðust fleiriað siðarnefndu
skýringunni.
Verðandimenn hafa lagt sig
fram um að skýra hvaða tökum
að halda starfsemi sambandsins
áfram. Var þetta skattamál aöal-
hitamál þingsins, en það snerist
ekki um það hvort skatturinn ætti
að vera 200 kr. af hverjum félags-
manni eða 100 kr. á ári, heldur um
hitt hvort sambandið ætti að lifa
áfram eða ekki, sagði Jón Ás-
geirsson I viðtali við blaðamann
Þjóðviljans I gær.
Alyktun þingsins um kjaramál
var samþykkt samhljóða. Þar er
mótmælt fhlutun rikisstjórnar-
innar i kjarasamningana frá sl.
vetri, fyrirætlunum stjórnar
valda um að skerða samningsrétt
einstakra verkalýðsfélaga og
skefjalausum verðhækkunum að
undanförnu.
Þingið samþykkti tillögu
stjórnarinnar um hækkun skatt-
greiðslnanna úr 100 kr. i 200 kr. af
þeir hyggjast taka viðfangsefni
sitt, en Vökumenn hafa forðast
eins og heitan eldinn að taka af-
stöðu til nokkurs máls innan
umræðuefnis sins. Hins vegar
hafa þeir reynt að gera sér
mikinn mat úr kosningafyrir-
komulagi á fundinum sem þeir
telja ólýðræðislegt. Telja vinstri
menn það einungis bera vott um
málefnafátækt Vökumanna og
benda einnig á að kosningafyrir-
komulagið er i fullu samræmi við
reglugerð um kosningar til 1. des.
nefndar sem samin var af for-
verum þeirra, sem nú sitja i
stjórn Vöku, árið 1971.
—ÞH
félagsmanni á ári með 37 atkvæð-
um gegn 10 en 3 sátu hjá.
Loks var samþykkt með þorra
atkvæða gegn 7 tillaga um skipan
samninganefndar Alþýðusam-
bands Norðurlands, en i henni
skulu eiga sæti formaður sam-
bandsins, tveir menn frá Einingu
og einn maður frá hverju hinna
aðildarfélaganna.
Þar sem hér var um aukaþing
aö ræða var ekki kosin ný stórn
fyrir sambandið. Núverandi
stjórn skipa: Jón Asgeirsson, for-
maður, Jón Ingimarsson, vara-
formaður, Kolbeinn Friðbjarnar-
son, ritari og meðstjórnendur
Hallgrimur Jónsson og Tryggvi
Helgason. 1 varastjórn eru Jón
Karlsson, Kristján Asgeirsson og
Ólafur Aðalsteinsson.
Rækja
Framhald af bls. 3.
var eftirfarandi ályktun gerð um
rækjuveiðar i Húnaflóa:
„Hreppsnefnd Hólmavíkur-
hrepps litur það mjög alvarlegum
augum, að sifellt fleiri aðilar
sækja á um rækjuveiöar og
vinnslu úr Húnaflóa. Bendir
hreppsnefndir á að rækjuveiðar
hafa verið undirstaða atvinnulifs
á Hólmavik og Drangsnesi frá ár-
inu 1965.
Hefur öll fjárfesting i sjávarút-
vegi, sem er svotil eini atvinnu-
vegurinn á staðnum, miðast við
veiðar þessar.
Nú liggur það álit fiskifræðinga
fyrir, að sóknin i rækjustofninn i
Húnaflóa er i hámarki. Og telur
þvi hreppsnefndin atvinnulifi
staðanna stefnt I hættu með þvi að
bæta við vinnslustöðvum og
fjölga rækjubátum við flóann.
A Hólmavík og Drangsnesi,
hefur með tilkomu rækjuveiða
undanfarin ár, orðið sú breyting á
að I stað stöðugs fólksflótta frá
stöðum þessum, vegna atvinnu-
leysis, hefur orðið fólksfjölgun.
Undirstrikar þessi þróun betur en
nokkuð annað, hve veiðarnar eru
þýðingarmiklar fyrir staðina.
Skorar þvi hreppsnefnd Hólma-
vikur á ráðamenn þjóðarinnar að
standa þannig að málum, að at-
vinnulífi hólmvikinga og ibúa
Drangsness verði ekki stefnt i
hættu”.
Úrslit
Framhald af bls. 11.
hann breytti liðinu nú strax áður
en hann heldur með þetta svokall-
aða landslið okkar til 4ra landa
keppninnar I Sviss i þessari viku.
Auk þess sannaði þessi leikur, að
án Gunnsteins Skúlasonar getur
landsliðið ekki verið, vörn þess er
hriplek án hans.
Aðeins tveir menn sýndu góð-
an leik með landsliðinu að þessu
sinni, þeir Viðar og Ólafur H.
Jónsson og án þeirra væri hér um
C- eða D-landslið að ræða. Mörk
Pressuliðsins: Brynjólfur 7,
Stefán Halldórsson 4, Stefán
Gunnarsson, Stefán Jónsson,
Hilmar, Hörður, Arni 2 mörk hver
og Agúst Svavarsson 1. mark.
Mörk landsliðsins: Viðar 7, Ólaf-
ur E. 5, Pálmi 6 Ólafur H., Bjarni
og Einar eitt mark hver. —S.dór
Skuttogari
Framhald af bls. 1.
hækkað, svo að segja má, að ekki
hafi mátt seinna vera, að islend-
ingar tryggðu sér myndarlegan
fiskiskipaflota. Sildarvinnslan i
Neskaupstað spurðist fyrir um
það i júnimánuði i Japan, hvað
nýr togari af sömu gerð og Nes-
kaupstaðartogarinn Bjartur kost-
aði. Svarið var 300 miljónir
króna, sem þýðir nú eftir gengis-
lækkun hátt i 400 miljónir.
— Og japanirnir lýstu sig
reyndar reiðubúna til að kaupa
Bjart til baka nú fyrir 260 miljónir
miðað við verð i júnimánuði, sem
þýðir yfir 300 miljónir nú eftir
gengislækkun.
Togarinn Bjartur kom til lands-
ins i mars 1973 eða fyrir hálfu
öðru ári, og þá var kaupverðið 132
miljónir. Af þessum tölum sést
greinilega, hvilikt stökk hefur átt
sér stað varðandi kaupverð á
skuttogurum nú á stuttum tima,
og fer þá heldur ekki milli mála,
hvilikt gæfuspor það var, að ekki
dróst þó lengur, að endurnýja
flotann.
Til samanburðar við japanska
verðið nú, skal þess getið að
norsku skuttogararnir munu nú
einnig kosta nýir á f jórða hundrað
miljónir króna.
Það tókst
Framhald af bls. 10.
taka þeir pláss hver frá öðrum og
minna verður úr en efni standa
til.
Vörn FH I þessum leik var
nokkuð góð, einkum á miðjunni.
Þó var Gils Stefánsson nokkuð
glannafenginn og oft óþarflega
grófur, enda fékk hann einu sinni
að kæla sig utan vallar og var
heppinn að fara ekki útaf oftar.
Annars var 4 FH-ingum visað af
leikvelli, þar af einum, Erlingi
Kristiansen, eftir að hann hafði
verið inná I 30 sekúndur og kom
hann ekkert inná aftur I leiknum.
Einum sænskum leikmanni var
visað af leikvelli.
Ekki er enn vitað hvaða lið
verður mótherji FH12. umferð en
hræddur er ég um að hafnfirðing-
arnir verði að gera mun betur en I
þessum leik ef þeir ætla að kom-
ast áfram i 3. umferð, og það á
FH að geta; liðið getur mun meira
en það sýndi á laugardaginn.
—S.dór
Jón Asgeirsson, formaður ASN:
,ER ÁNÆGÐUR
MEÐ ÚRSLITIN’
Jón Asgeirsson.