Þjóðviljinn - 01.11.1974, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 01.11.1974, Blaðsíða 3
Föstudagur 1. nóvember 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Valsarð Thoroddsen. rafmasnsveitustióri „Neitar að segja frá sveitaraf- væðingu” Þjóöviljinn hefur undan- farna daga gert ítrekaðar tilraunir til þess að fá upp- lýsingar um það hvernig rafvæðingu sveitanna miði. Eins og kunnugt er var í tíð vinstri stjórnar- innar gerð áætlun um raf- væðingu þeirra býla/ sem tengja á við samveitur. Viö höföum samband viö Val- garð Thoroddsen, rafmagns- veitustjóra, og inntum hann eftir þvi hvernig gengi að vinna eftir þessari áætlun. Hann kvað ekki hafa verið staðið viö þann hluta hennar, sem framkvæma átti i sumar. Að öðru leyti gæti hann ekki veitt frekari vitneskju, þar sem hann hefði engar upplýsing- ar handbærar. Tveimur dögum siðar var aftur hringt i rafmagnsveitustjóra og spurt hvort upplýsingarnar lægju fyrir. Svo var ekki og taldi Val- garð Thoroddsen öll tormerki á þvi að nokkur annar aðili innan stofnunarinnar gæti veitt þær. Blaðamaður spurði þá hvenær mætti búast við að upplýsingar um sveitarafvæðinguna yrðu embættinu handbærar. Fyrtist þá rafmagnsveitustjóri við og kvaðst ekkert geta um það sagt. Siðan skellti hann á. Spurningin er hvað veldur þess- ari upplýsingatregðu, og fram- komu embættismannsins i garð Þjóðviljans. Vonandi sér raf- magnsveitustjórinn ástæðu til þess að varpa ljósi á það innan tiðar. —ÞH BRAUÐIÐ HÆKKAR UM 5-7% Verðlagsyfirvöld hafa heimil- að hækkun á brauði vegna hækkunar á hráefni og vegna láglaunahækkunarinnar. Nem- ur hækkunin 5,5—7%. Ilúgbrauð hækka um 4 krón- ur, úr 73 krónum I 77. Hækkunin nemur 5,5%. Franskbrauð hækkar um 4 krónur, úr 56 krónum i 60 krón- ur. Hækkunin er 7%. Vinarbrauð hækka um 1 krónu, úr 14 krónum 115 krónur. Hækkunin er 7,1%. —úþ Fyrirlestur prófessors JÓNS HELGASONAR í hátíðasal Háskólans Hitt og anrtað um Magnús prúða I dag klukkan 5.15 flytur prófess- or Jón Helgason fyrirlestur i há- tiðasal Háskólans. Er fyrirlestur- inn fluttur i boði heimspekideildar Háskólans og nefnist: ,,Hitt og annað um Magnús prúða.” Er öll- um heimill aðgangur. „Þetta verður aðallega um ritverk Magnúsar, þýðingar hans úr þýsku og orðskviðasafn hans,” sagði prófessor Jón, þegar Þjóðviljinn hafði samband við hann i þessu tilefni. „Ég geri ráð fyrir að taka ekki hvað sist til meðferðar rit þau sem Magnús þýddi úr þýsku, Dialectica og Rhetorica, sem enginn maður hefur lesið.” Þótt það sé efalaust rétt hjá prófessor Jóni aö fáir kannist við rit þau um rökfræöi og mælsku- fræði, sem Magnús Jónsson prúði þýddi á Is- lensku úr þýsku, þá þekkja hann llklega öllu fleiri af Pontusarrlmum, sérst'klega þó man- söng þriðju rímu. Þar i eru visurnar: Allra gagn það undir gár. Ósamþykkið veidur þvi. Enginn hirðir, hverninn stár hagurinn þessu landi I. Þegar kemur af sundi sér sjálfur þykist hólpinn sá, hugsar ekki, hverninn fer hans landsmönnum eftir á. Þannig var nú ástandinu á landi hér lýst fyrir fjögur hundruð árum, og getur svo hver spurt sjálfan sig hvort hugarfar þjóöarinnar sé eitt- hvað gæfulegra nú. Magnús prúði, var einn hver mestur höfðingi hérlendis á sextándu öld, á siöa- skiptatimunum, þegar danska konungsvaldiö með lútherskuna aö vopni var endanlega -aö gera út af við sjálfræði Islensku þjóöarinnar. Magnús, sem var bróöir Staðarhóls-Páls, gerði sitt til að andæfa þeirri óheillaþróun, til dæmis með Vopnadómi 1581, þótt það kæmi til lltils. — Er ekki að efa að fróölegt verður að heyra hvað prófessor Jón hefur að segja um þennan merka mann úr Islandssögunni og islenskri bók- menntasögu. dþ. Jón Helgason Forsetakjör á alþingi: Ásgeir Bjarnason, forseti Sameinaðs alþingis Ragnhildur og Þorvaldur Garðar, deildarforsetar Forsetakjör fór fram á alþingi í gær, bæði í sam- einuðu þingi og deildum. Ríkisstjórnin fylgdi for- dæmi vinstri stjórnarinnar og bauð stjórnarandstöð- unni sæti 1. varaforseta og var það þegið. Forseti Sameinaðs alþingis var kjörinn Asgeir Bjarnason, 1. þingmaður Vesturlandskjördæm- is meö 43 atkvæðum, 13 seðlar voru auðir. Gils Guðmundsson var kjörinn 1. varaforseti I sam- einuðu þingi með 43 atkvæðum, 12 seðlar voru auðir. Friðjón Þórð- arson var kjörinn 2. varaforseti með 42 atkvæðum en 13 seðlar voru auðir. Fjórir þingmenn voru fjarverandi við forsetakjör, tveir frá stjórnarflokkunum og tveir frá stjórnarandstöðu. Skrifarar i sameinuðu þingi voru sjálfkjörnir þeir Jón Helgason og Lárus Jóns- ■=nn. A fundi neðri deildar alþingis var Ragnhildur Helgadóttir kjör- in deildarforseti með 28 atkvæð- um, en 8 seðlar voru auðir. Magn- ús Torfi Ólafsson var kjörinn 1. varaforseti meö 30 atkvæðum, en 6seðlar voru auðir. Ingvar Gisla- son var kjörinn 2. varaforseti deildarinnar meö 26 atkvæðum, en 10 seðlar voru auðir. Skrifarar i deildinni voru sjálfkjörnir þeir Guðmundur H. Garöarsson og Páll Pétursson. I efri deild var Þorvaldur Garö- ar Kristjánsson, kjörinn deildar- forseti með 14 atkvæðum, en 4 seðlar voru auðir. EggertG. Þor- steinsson var kjörinn 1. varafor- seti með 18 atkvæðum, en 1 seðill var auður. Steingrimur Her- Asgeir Bjarnason. mannsson var kjörinn 2. varafor- seti með 13 atkvæðum, en 6 seölar voru auðir. Skrifarar I deildinni voru sjálfkjörnir þeir Ingi Tryggvason og Steinþór Gests- son. A fundum alþingis I gær var auk forsetakjörs hlutað um sæti. Þingfundir veröa næst á mánu- dag, og fer þá fram kjör þing- nefnda. Stefnuræða forsætisráð- herra verður flutt á þriöjudag, og fara þá fram útvarpsumræður. ALBERT LIÐSINNIR KAUPMÖNNUM A borgarráðsfundi á þriðjudag var rætt um umferðarmálin á Laugavegi. Voru mættir á fund- inn, auk borgarráðsmanna, for- menn umferðarnefndar og stjórn- ar SVR og yfirverkfræðingur um- ferðardeildar. Þá var lagt fram bréf Kaupmannasamtakanna frá 28. okt. um stöðubann á Lauga- vegi. Á þessum fundi borgarráðs bar það til tiöinda að Albert Guð- mundsson, borgarráðsmaður Sjálfstæöisflokksins, gerði tillög- ur Kaupmannasamtakanna að sinum. Borgarráð óskaði hins vegar eftir þvi, aö umferðarnefnd og stjórn SVR fjölluðu frekar um málið, og verða niðurstöður þeirrar umfjöllunar siðan lagðar fyrir borgarráð. 6 miljarða viðskiptasamningur við Sovét — enginn olíuskortur á Fróni Hinn 25. október s.l. var undirritaður í Moskva samningur milli viðskipta- ráðuneytisins og Sojuznefteexport um kaup á brennsluolium og bensini á árinu 1975. Samið var um 300.000 tonn af gasoliu, 100.000 tonn af fueloliu og 80.000 tonn af bensini. Verðmæti þessa magns er um 50 miljónir dollara. Verð á öllum oliutegundum er miðað vð skráningar á heims- markaðinum án yfirgreiðslu, og fellur þvi niður 1/2% yfirgreiðsla á gasoliu og bensini, sem i gildi var i ár. t samningaviðræðunum tóku þátt af Islands hálfu Þórhallur Asgeirsson, ráðuneytisstjóri, Hannes Jónsson, sendiherra, og fulltrúar oliufélaganna þeir Indriði Pálsson, Vilhjálmur Jóns- son, önundur Asgeirsson og Arni Þorsteinsson.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.