Þjóðviljinn - 01.11.1974, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 01.11.1974, Blaðsíða 9
Föstudagur 1. nóvember 1974. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9 Japanskt Vatnsgáttarmál Mútsú, fyrsta kjarnorkuknúna skip japana. En japanskir fiskimenn, sem muna vel bomburnar sem féllu á Hirósima og Nagasaki, vilja ekk- erteigaá hættu hvaö kjarnorkuna varöar og reyndu aö hindra að skipiö kæmist úr höfn meö þvi aö leggja fyrir þaö aragrúa smábáta, eins og myndinsýnir. Skipiö komst samt út, en þá kom i ljós aö kjarnorkuofn- inn, sem knýr skipið, er lekur. Siöan hafa japanskir fiskimenn staöiö aö þvi sem einn maöur aö sjá til þess aö skipið komist hvergi í höfn i heimalandinu — og tekist þaö. Tanaka hefur nokkrar ástæöur til að vera áhyggjufullur þessa dag- ana, en óliklegt þykir þó aö hann fari eins illa út úr sinu „vatns- gáttarmáli” og Nixon út úr hliö- stæöum vandræöum. Viss hluti bandarisku pressunn- ar, og þá sérstaklega biöö eins og New York Times og Washington Post, hafa slegiö sér grlðarlega upp á uppljóstrunum um þaö, sem fram fer aö tajdlabaki I bandariskum stjórnmálum, en þekktustu kenniorö þeirrar maökaveitu af hneykslum, sem þá komu og eru enn aö koma I ljós eru enn sem komið er Watergate og ITT. Þegar þaö þannig sýndi sig aö blöö gátu komist upp meö aö Ijóstra upp um viðkvæmustu leyndarmál valdaaöila þjóðfé- laga og hlotið af þvi stóra frægö og auövitaö stóraukna sölu, fór ekki hjá þvi að fleiri blöö, utan og innan Bandarikjanna, tækju sér fyrir hendur aö fyigja fordæminu. Eitt þessara biaöa var japanskt mánaöarrit, Búngei Sjúnjú, sem er eitt virtasta blað i Japan og sérstakt máigagn menningarvit- anna i þvi landi árljómans. Timarit þetta valdi sér aö skot- marki enga rýrari bráö en sjálfan forsætisráðherra landsins, Kakúei Tanaka, sem jafnframt er leiðtogi stærsta stjórnmála- flokksins, sem kallast Frjálslyndi lýðræöisflokkurinn (fint skal það vera) og er helsti Ihaldsflokkur landsins. Samkvæmt skýrslu Búngei Sjúnjú á þessi Geir Hall- grlmsson Japans það einnig sam- eiginlegt sinum islenska starfs- bróður aö vera einn umsvifamesti „athafnamaður” sins lands. Skýrsla timaritsins um ævi og at- vinnurekstur forsætisráðherrans þykir eitt athyglisverðasta afrek japanskrar blaðamennsku til þessa og er auðvitað farið að kalla það japanskt Watergate. Eignir f orsætis rá öher ra ns Feril sinn hóf Tanaka að sögn með þvi að kvænast til fjár, snar- aði sér siðan út i pólitikina og laðaði að sé áhrifamenn með höfðinglegum gjöfum að fornum sið og nýjum. Komst hann þannig smátt og smátt til æðstu valda og gat eftir það að mestu einn skammtað sér tekjurnar. Einn mesti greiðamaður hans var Kendji ósanó, einn öflugasti fjár- málahákarl þessa lands, sem státar nú þriðju mestu vergri þjóðarframleiðslu i heiminum (næst Bandarikjunum og Sovét- rikjunum). Meðan Tanaka var fjármálaráðherra, sá hann til þess að ósanó fékk að kaupa drjúgan skika af landi i eigu stjórnarinnar fyrir spottpris, og auðvitað seldi athafnamaðurinn þann blett svo skömmu siðar fyrir margfalt verð.Þennan greiða launaði ósanó Tanaka með þvi aö kaupa af honum fyrirtæki fyrir þrefalt matsverð. Kaup Tanaka fyrir ráðherra- mennskuna, sem þó er lifvænlegt (60.000 dollarar á ári), er að sjálf- sögðu ekki nema tittlingaskitur á við aðrar tekjur hans. Að sögn Bungei Sjúnjú á hann bróðurpart- inn i einum fimm-sex efnaiðnað- ar- og flutningafyrirtækjum og fasteignir i dýrustu hverfum Tókió, metnar á átta miljónir dollara. Þrátt fyrir miklar annir við stjórnmál og fésýslu leyfir forsætisráðherrann sér ýmsa saklausa dægradvöl; þannig á hann ekki nema þrjár skrautvill- ur i Karúisava, eftirsóttasta hressingarstað japönsku yfir- stéttarinnar og i tjörn i garðinum við húsið hans i Tókió hafast við nokkur hundruð vatnakarfar, metnir á þrjú þúsund dollara ein- takið og allir gjafir frá hinum og þessum, sem gjarnan hafa viljað vera innundir hjá leiðtoganum. — Þá er haft fyrir satt að skatta- byrðar hans séu miklu minni en svarar eignunum, sem timaritið kveður hann aö viðteknum sið at- hafnamanna fela i allskonar málamyndafyrirtækjum. Fær Tanaka líka friðarverðlaun? Ofan á allt þetta vænir timarit menningarljósa Arljómalands forsætisráðherrann um að ganga nokkuð svo frjálslega i sjóö flokks sins, en sjóðsins gætir kvenskör- ungur að nafni Aki Sató, lengi einkaritari Tanaka og einskonar framkvæmdastjóri þeirrar kllku Frjálslynda lýðræðisflokksins, sem er sérstaklega handgenginn Tanaka. (Blaðið getur þess i framhjáhlaupi að frú Sató sé tvi- skilin og hafi fyrrmeir staðið fyrir kabarettsýningum, eins og það komi málinu eitthvað við.) Herm- ir almannarómur að ekki gangi hnifurinn milli þeirra forsætis- ráðherrans og að frumskilyrði til þess að vera i náðinni hjá Tanaka sé að koma sér sæmilega við frú Sató. Eins og nærri má geta var for- sætisráðherranum og stuðnings- mönnum hans ekkert um þessa nýmóðins fréttamennsku hjá Búngei Sjúnjú, og meðan ritstjór- ar og fréttamenn blaðsins voru að garfa i málinu var þeim oftar en einu sinni i lágum hljóðum bent á að þeim væri hollast að láta það kyrrt liggja, svo fremi þeim væri verulega annt um eigin timanlega velferð. Ekki hefur þó enn frést að þeir, sem að timaritinu standa, hafi orðið fyrir neinum kárinum, en spurningin er hvort ástæða er til að gefa japönsku skoðanafrelsi margar stjörnur fyrir það. Upp- ljóstranir Búngei Sjúnjú hafa að visu vakið mikla ólgu og reiði i augnabiikinu, en margir spá þvi, að það muni ekki endast lengi. Þótt japanir hafi i heila öld lagt sig fram um að kópíera þjóðfél. sitt eftir Vesturlöndum á ytra borði, þá hafa þeir breyst hægar hið innra, og virðing almennings fyrir handhöfum auðs og valda, sæmilegum eða illum, er miklu djúptækari i landi samúræanna en þekkist að minnsta kosti i Norður-Evrópu og jafnvel Norð- ur-Ameriku. Sagt er til dæmis að sú þrællynda hollusta, sem japan- ir lénsaldar auðsýndu höfðingjum héraða og ættbálka, hafi i jap- anska stóriðjuheimsveldinu geng- ið I arf til þeirra, sem ráða stór- fyrirtækjum og þar með stjórn- málafl. Að bregða trúnaði við slikan lénshöfðingja fyrir það eitt aö hann hefði auögast og eflst með nokkuð frjálslegum aðferð- um væri hneykslanlegur laun- ingjaháttur frá sjónarmiði fjöl- margra japanskra múgamanna. Það er þvi ekkert liklegra en að Tanaka eigi eftir að standa af sér þennan storm, og kannski fær hann i fylling timans hitt og þetta fleira gott eins og til að mynda friðarverölaun Nóbels, likt og Eisakú Sató, fyrirrennari hans sem forsætisráðherra og leiðtogi japanska ,,sjálfstæðis”-flokksins. Uppljóstrun aðmíráls Raunar er þetta, sem hér hefur verið rakið, ekki hið eina sem amar að japönsku stjórninni um þessar mundir. Vegna þess að japanir hafa til þessa einir þjóöa fengið aö kenna á kjarnorkuvopn- um eru þeir flestum eöa öllum öðrum viðkvæmari þegar slik tól eru annarsvegar, og þrátt fyrir náið „varnarsamstarf” við Bandarikin hafa japönsk stjórnar- völd alltaf sagt þjóö sinni að aldrei hefði komið til greina að bandarisk herskip vædd kjarn- orkuvopnum fengju að koma i japanskar hafnir. En nú gusaðist það nýlega upp úr Gene R. La Rocque, bandariskum aðmirál komnum á eftirlaun, þegar hann vitnaði fyrir þingnefnd, að sin reynsla væri sú aö herskip, sem á annað borð væru byggð til þess að hafa kjarnorkuvopn, væru undan- tekningalaust með þau og að yfir- menn herflotans væru ekkert að hafa fyrir þvi að taka slik vopn af skipunum þótt þau sigldu á er- lendar hafnir — „til dæmis i Jap- an.” Þessi uppljóstrun hefur vak- ið gifurlega reiðiöldu i Japan og grunar marga að Tanaka og fleiri ráöamenn hafi frá upphafi vitað um komur atómvopnaðra banda- riskra skipa i japanskar hafnir, og er jafnvel spáð að þetta mál — i uppbót á kreppu og verðbólgu, sem hrjáir Japan ekki siöur en auðvaldsheiminn yfirleitt — geti orðið banabiti stjórnar Tanaka. Þetta siöarnefnda hitamál jap- ana þessa dagana mætti vel verða umhugsunarefni fleiri þjóðum, sem hafa „varnarsamstarf” við Bandarikin. Eða hvaða trygging er fyrir þvi að þetta stórveldi standi við orð sin um að láta ekki flugvélar flytjandi kjarnorku- vopn hafa viðkomu á Keflavikur- flugvelli, og hvaða tryggingu höf- um við fyrir þvi að slik vopn séu ekki geymd þar? Bókaútgáfa — umboðsmenn Stór bókaútgáfa óskar eftir umboðsmönn- um á eftirtöldum stöðum: Patreksfirði ólafsfirði Raufarhöfn Vik i ÍMýrdal Þorlákshöfn Búðardal Starfið er létt og skemmtilegt, kjörið fyrir bókamenn, og gefur nokkra tekjumögu- leika fyrir áhugasaman mann. Tilboð sendist Þjóðviljanum fyrir 10. nóv. merkt ,,Bókaútgáfa”. Auglýsingasíminn er 17500 dþ. Háskóli íslands Háskólafyrirlestur Prófessor Jón Helgason flytur fyrirlestur i boði heimspekideildar Háskóla íslands, i dag, föstudaginn 1. nóvember kl. 5.15 i há- tiðasal Háskólans. Fyrirlesturinn nefnist: Hitt og annað um Magnús prúða. Öllum er heimill aðgangur. A KOPAVOGUR W Hjálp í viðlögum Námskeið i hjálp i viðlögum fer fram dag- ana 4., 5. og 6. nóvember i Þinghólsskóla og hefst kl. 8 öll kvöldin. Tilvalið tækifæri fyrir húsmæðui; starfshópa og félagssam- tök. Kennari á námskeiðinu verður Jón Odd- geir Jónsson. Innritun og upplýsingar i sima 41866 TÓMSTUNDARÁÐ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.