Þjóðviljinn - 01.11.1974, Blaðsíða 12
PJOÐV/UINN
Föstudagur 1. nóvember 1974.
Dýrara að
flytja inn en
byggja hér
A fundi borgarráös i vikunni
var ákveöiö aö yfirtaka rekstur
dagheimilisins viö Völvufell i
Breiöholti. Þaö var Rauöi kross-
inn sem lét flytja húsið inn og
reisti þaö siöan þar efra, meö það
fyrir augum aö tryggja börnum
frá Vestmannaeyjum dag-
heimilispláss. Heimilið er fyrir 50
börn, og hefur verið I notkun i
nokkra mánuöi.
Aætlað kostnaöarverð viö húsiö
er 36 miljónir, og greiðir borgin
húsið á ákveönum tima.
Virðist af kostnaði viö húsiö, aö
dýrara sé aö flytja inn hús til
þessara hluta, en byggja þau hér
heima, auk þess, sem gæði hér-
byggðra húsa eru meiri, jafnvel
þó svo umrætt hús sé hið
ágætasta. —úþ
Vinna við Þjóðviljahúsið
að Síðumúla 6 hófst í gær
Laust fyrir kl. 4 I gær safnaö-
ist saman hópur manna á hús-
grunni viö enda Siðumúlans i
Reykjavik — nánar tiltekiö á
lóöinni númer sex viö þá götu.
Tilefnið var þaö aö I gær hófst
vinna viö hiö nýja Þjóöviljahús
viö Siöumúla — og einmitt I gær
átti Þjóöviljinn 38 ára afmæii.
Formaöur ÍJtgáfufélags Þjóö-
viljans Ólafur Jónsson flutti fá-
ein orö og sagöi m.a.:
Tilefni, þess að við erum hér
saman komin i dag er að hér er
verið að hefja byggingu á húsi
fyrir Þjóðviljann.
Fyrir rúmlega 1 ári sótti Út-
gáfufélag Þjóöviljans um lóð i
nágrenni viö Blaðaprent, en þar
er blaðiö nú prentað. Þaö á aö
veröa til mikils hagræðis fyrir
blaðiö að hafa skrifstofur hér i
nágrenni viö prentsmiöjuna.
Þjóöviljinn á sér langa og við-
burðarrika baráttusögu sem
ekki veröur rakin hér, en i dag
eru liðin 38 ár siöan hann hóf
göngu sina sem dagblað i
Reykjavik og viö höfum valið
afmælisdaginn til þess að hefja
framkvæmdir hér á lóöinni.
Margt er i óvissu um hvernig
framkvæmdum miðar áfram en
ég held að viö ættum að setja
okkur það mark að blaöið haldi
upp á fertugs afmæli sitt i nýju
húsi á þessum staö.
Það mun flestum kunnugt að
Þjóðviljinn á ekki fjármagn til
þess að byggja nýtt hús. Útgáfu-
félagið hefur þó af mikilli bjart-
sýni stofnað til þessara fram-
kvæmda.
Fyrir rúmlega 30 árum stofn-
uðu nokkrir áhugasamir stuðn-
ingsmenn blaðsins hlutafélag
sem þeir nefndu Miðgarð. Þeir
söfnuðu 35 þúsund krónum I
hlutafé og keyptu hús fyrir
Þjóðviljann, Skólavörðustig 19,
sem siðan hefur verið stækkað
og endurbætt. Hlutafélagið
hefur ætið verið starfrækt við
þjónustu fyrir blaðið og verið
einn traustasti hornsteinninn
undir útgáfu þess.
Nú hefur stjórn félagsins á-
kveðið að fá til liðs við sig nýja
liðsmenn m.a. af yngri kynslóð-
inni og tekið sér það verkefni að
byggja nýtt hús fyrir Þjóðvilj-
ann hér á þessari lóð. Allmargir
hafa þegar lagt fram riflegar
fjárhæðir en miklu fleiri þurfa
að leggja hönd á plóginn og er
þar að sjálfsögðu treyst á pólit-
Iska samherja, flokksmenn og
kjósendur Alþýðubandalagsins
um land allt. Þaö þarf heilan
samstilltan stjórnmálaflokk til
þess að leysa svona stórt verk-
efni.
Hús það sem hér á að byggja
er tvær hæðir, 340 ferm. ;hvor
hæð og auk þess fundarsalur i
risinu. Sigurður Harðarson og
Mágnús Skúlason arkitektar
hafa teiknað húsið og ég held að
það verði bæði hagkvæmt og
fallegt.,Verkfræðingar, tækni-
menn og byggingameistarar
hafa verið ráðnir til þess að
stjórna framkvæmdum og er
þar valinn maður i hverju rúmi.
Ég vona að gæfa og gengi
fylgi öllum þeim, sem að þessu
húsi vinna og i þvi starfa.
Hægri sveifla
í Spánarstjóm
hert á ritskoðun á blöðum
MADRID 31/10 — Ábyggilegar heimildir herma að
spænska stjórnin hafi látið útgefendur blaða og
timarita vita að þeim væri sjálfra sin vegna hollast
að hætta að birta fréttir af starfi útlægra pólitiskra
flokka og hópa.
Olíudreifing-
arstofnun
iðnríkja
BRÖSSEL 31/10 — Samkvæmt
heimildum úr belgiska utanrikis-
ráðuneytinu munu að minnsta
kosti ellcfu riki eiga hlut að al-
þjóðlegri stofnun, sem ætlað er að
annast réttlátlega dreifingu á oliu
ef ný kreppa á þeim vettvangi
skyldi skella á.
Deildarstjóri i utanrikisráðu-
neyti Belgiu aö nafni Davignon
hefur stjórnað undirbúningsstarf-
inu að myndun þeirrar stofnunar,
og munu að sögn Bandarikin,
Japan, Kanada, Luxembúrg,
Danmörk, ítalia, Bretland,
Vestur-Þýskaland, Irland, Hol-
land og Belgia gerast stofnaðilar.
Þessi riki ætla átjánda nóvem-
ber n.k. að opna bækistöö i Paris,
og verður samstarfi rikjanna i
orkumálum stjórnað þaðan. Talið
er liklegt að Sviþjóð, Sviss,
Austurriki, Spánn, Astralia og
Nýja-Sjáland muni slást I hópinn
fljótlega, og að Noregur muni
vilja gerast aukaaðili.
Er þetta talið merki um sveiflu
stjórnarinnar til hægri. Undan-
farið hefur stjórnin undir forsæti
Carlosar Ariasar Navarro reynt
að hafa á sér vissan frjálslyndis-
svip, efalitið fyrst og fremst af
hræðslu við að atburðirnir I
Portúgal geti endurtekið sig á
Spáni.
Þetta hefur sýnt sig á blöðun-
um, sem birtu meðal annars frá-
sagnir af þingi spænska
sósialistaflokksins i Paris — i
heimalandinu er hann að sjálf-
sögðu bannaður — og viðræðum
spænska kommúnistaflokksins og
SAIGON 31/10 — Aðminnsta kosti
scxtiu manns mciddust, þar af tiu
alvarlega, er til siagsmála kom i
einu úthverfa Saigon milli lög-
rcglu og mótmælafólks úr hreyf-
ingu nokkurri, sem berst gegn
spillingu á yfirráðasvæði Saigon-
stjórnar. Hreyfing þessi er mest-
an part skipuð kaþólikkum. Til
átaka kom er lögregla umkringdi
kirkju nokkra, þar sem leiðtogar
hreyfingarinnar voru staddir, til
þess að hindra að þeir gætu kom-
ist til stuðningsmanna sinna, en
fimm þúsund þeirra höfðu safnast
saman og ætluðu að ganga fylktu
liöi til byggingar hæstaréttar.
Faðir Tran Huu Thanh, leiðtogi
hreyfingarinnar, var einn þeirra
er meiddust, þó ekki alvarlega.
Þegar honum var meinað aö
komast til stuðningsmanna sinna,
hrópaði hann að Thieu forseti ætti
að segja af sér. Tók mannfjöldinn
undir það með hrópum eins og:
„Niður með Thieu, niður með ein-
ræðið, niður með lögreglurikið”.
Varð stjórnin svo skelkuð að hún
lét girða alla miðborgina af með
gaddavir.
þess sovéska I Moskvu. Þetta
hefur vakið mikla reiði og
hræðslu argasta Ihaldsins i land-
inu og mun Arias hafa gert þvi
það til geðs að reka Pio
Cabanillas Gallas, upplýsinga-
málaráðherra, sem sagður er til-
tölulega frjálslyndur, en fjár-
málaráðherrann sagði þá starfi
sinu lausu I mótmælaskyni. Arias
sjálfur sagði I dag, er tveir nýir
ráðherrar voru teknir inn I stjórn-
ina i stað hinna, aö stefna stjórn-
ar sinnar hefði I engu breyst, en I
bréfi frá hópi svokallaðra kristi-
legra lýðræðissinna I röðum opin-
berra starfsmanna og kaupsýslu-
manna, sem kaþólskt dagblað
birti, segir að nú sé búið með allt
frjálslyndi af hálfu stjórnar
Ariasar. Reuter.
Undanfarna tvo mánuði hefur
ekkert lát verið á mótmælaað-
gerðum gegn Saigon-stjórninni,
en bein ástæða til mótmælanna I
dag var frestun réttarhalda 1
máli kvenrithöfundarins Trung
Doung, útgefanda blaðs sem
gagnrýndi Thieu fyrir spillingu.
Var henni þá stefnt fyrir móðgun
við forsetann og blaðið bannað. A
morgun er þjóðhátiðardagur viet-
namska lýðveldisins, eins og Sai-
gon-stjórnin kallar riki sitt, og er
þá búist við meiri óeirðum.
Reuter.
Peking 30/10 reuter — Kinversk
flugvél hóf sig á loft frá Peking-
flugvelli i dag með stefnu á Kara-
chi i Pakistan og Paris. Þar með
hófst fyrsta áætlunarflug kin-
verja til Vestur-Evrópu.
Flugsamgöngur kinverja til út-
landa hafa mjög aukist á þessu
ári. Fyrr á þessu ári hófst flug frá
Peking til Moskvu og Tókió og i
næsta mánuði hefst áætlunarflug
milli Peking og Albaniu með við-
komu i Teheran og Búkarest.
Santiago Carrillo, leiðtogi
spænska kommúnistaflokksins.
Þótt flokkurinn hafi verið bann-
aður I heimalandinu hátt á fjórða
áratug, er hann talinn vei skipu-
lagður I leyndum og jafnvel gisk-
að á að yfir fimmtungur spænsku
þjóðarinnar sé honum hlynntur.
Fréttir af starfsemi flokksins,
sem undanfarið hafa birst i
spænskum blööum, virðast hafa
vakið mikla skelfingu þeirra
ihaldssömustu meöal spænskra
ráðamanna.
BLAÐ-
BURÐUR
öjóðviljann vantar blað-
bera í eftirtalin hverfi:
Seltjarnarnes
Skjól
Kleppsveg
Fossvog
Vinsamlegast hafið
samband við af-
greiðsluna.
Blaðberar
óskast
Blaðberar óskast í eftir-
talin hverfi í Kópavogi:
HJALLA og
HÓLMAHVERFI
Hringið í síma 42073
Alþýðubandalagið
Alþýðubandalagið á Suðurnesjum
Alþýðubandalagiö á Suðurnesjum heldur fund sunnudaginn 3. nóvem-
ber klukkan 14:00 i Framsóknarhúsinu I Keflavik.
Fundarefni:
Inntaka nýrra félaga
Kosning fulltrúa á landsfund
Stjórnmálaumræður i
Alþingismennirnir Magnús Kjartai^son, Gils Guðmundsson og
Geir Gunnarsson mæta á fundinn.
Stjórnin
HAFNARFJÖRÐUR
Alþýðubandalagsfélag Hafnarfjarðar heldur fund i Góðtemplarahús-
inu (uppi) fimmtudaginn 7. nóv. kl. 8.30'.
Dagskrá fundarins verður:
Inntaka nýrra félaga.
Kosning fulltrúa á landsfund.
Lúðvik Jósepsson alþingismaður ræðir stjórnmálaviðhorfið.
Stjórnin
Námshóparnir I Reykjavikkoma saman vikulega að Grettisgötu 3 kl.
20.30. Hópur I mánudag, leiðbeinandi Loftur Guttormsson. Hópur II
þriðjudag, leiðbeinandi Guðmundur Agústsson. Hópur III og IV mið-
vikudag, leiðbeinendur Einar Karl Haraldsson og Þröstur Ólafsson.
Námshópur í Kópavogi kemur saman á miðvikudögum I Þinghól kl.
20.30. Leiðbeinendur Asgeir Svanbergsson og ólafur R. Einarsson.
Námshópar i Hafnarfirði koma saman i þessari viku I Skálanum kl.
20.30. Hópur I miðvikudag, leiðbeinandi Hjalti Kristgeirsson. Hópur II
fimmtudag, leiðbeinandi Þór Vigfússon.
Fræðslunefnd.
Reykjaneskjördæmi
Fundur verður i kjördæmisráði Alþýðubandalagsins i Reykjaneskjör-
dæmi mánudaginn 5. nóvember kl. 20.301 Þinghól.
Dagskrá: 1. Undirbúningur landsfundar. Kynnt drög að stjórnmála-
ályktun. 2. Onnur mál. Fulltrúar I kjördæmisráöi og væntanlegir
fulltrúar á landsfund hvattir til þess að koma á fundinn. — Stjórnin.
Frá Þjóðviljanum
Tilkynningar, sem birtast eiga í dálki þessum þurfa að berast til blaðs-
ins i siðasta lagi á hádegi daginn fyrir birtingu.
ÓEIRÐIR
í SAIGON
Miðborgin girt af með gaddavír