Þjóðviljinn - 01.11.1974, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 01.11.1974, Blaðsíða 5
Föstudagur 1. nóvember 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Ræningjarnir þrír i ránsferö. Bastian, Tommi litli, rakarinn og Tobias á torgi Kardimommubæjar. KARDIMOMMUBÆRINN AFTUR Á SYIÐ Kardimommubærinn, hið vinsæla fjölskyldu- leikrit norðmannsins Thorbjörns Egners, verð- ur frumsýnt í Þjóðleik- húsinu 6. nóvember. Klemens Jónsson er leik- stjóri, og tjáði hann Þjóðviljan- um, að þegar leikritið var sýnt hjá Þjóðleikhúsinu slöast, þ.e. 1960 og aftur 1962—1964 hafi samtals 57 þúsund manns séð sýninguna. „Sýningin núna er i meginatr- iðum eins og hin fyrri. Leikar- arnir eru reyndar flestir aðrir nú en þá, við erum aðeins þrir i sömu hlutverkum og siðast. Ræningjarnir eru i höndum þeirra Bessa Bjarnasonar, Randvers Þorlákssonar og Þór- halls Sigurðssonar. Bessi er Kasper, Randver Jesper og Þórhallur Jónatan. Árni Tryggvason leikur Basti- an bæjarfógeta, Guðrún Stephensen leikur Soffiu frænku, Herdis Þorvaldsdóttir leikur bæjarfógetafrúna og rak- arann leikur Sigmundur örn Arngrimsson”. Klemens, leikstjórinn, leikur annan kaupmanninn, eins og i fyrri uppfærslunni,og Jón Aöils fer aftur með hlutverk veður- spámannsins visa, Tobiasar. Karl Billich stjórnar hljóm- sveitinni og Nanna ólafsdóttir stjórnar dönsum. Höfundurinn sjálfur geröi leikmyndina, eins og I fyrri upp- færslunni. Aðeins er um að ræða nýtt módel eftir mynd hans. Og Klemens bendir á, að frá hendi höfundarins sé Kardi- mommubærinn ekki kallaður barnaleikrit, heldur fjölskyldu- leikrit fyrir börn og unglinga. „Það er nefnilega þannig með barnaleikrit, að séu þau góð, þá hafa fullorðnir ekki sið- ur garr.an af þeim en börn’?, sagði Klemens að lokum. —GG Sovétlistameim koma í heimsókn Hinn 5. nóvember n.k. er fimm manna sovésk sendinefnd væntanleg hingað til lands á veg- um félagsins MÍR. For- maður sendinefndarinn- ar er Felix J. Strúmilos dósent við blaða- mennskudeild háskólans i Vilinius i Litháen. Þá er með i förinni Anatóli V. Koroljof, aðstoðardeildarstjóri Norðurlandadeildar Vináttusam- bandsins i Moskvu, og þrir lista- menn; pianóleikarinn Tamara Gúséva, einleikari við Fil- harmóniuna i Moskvu, ballett- meistarinn Norik Megrabjan, sólódansari hjá Þjóðdansaflokki Armeniu, og bassasöngvarinn Gennadi Penjashin, einsöngvari við Filharmóniuna i Moskvu. Einn listamannanna, Tamara Gúséva pianóleikari, er islensk- um tónlistarunnendum að góðu kunn frá fyrri heimsóknum til Is- lands. Kom hún fyrst hingað til lands haustið 1954, hélt allmarga tónleika við mikla aðsókn Sovésku sendinefndarmennirn- ir dveljast hér á landi i viku og koma á þeim tima m.a fram á kvöldfagnaði MIR i Leikhúskjall- aranum 7. nóvember. Einnig munu listamennirnir koma fram á tónleikum i Reykjavik og viðar. Dauðaslys um borð í rœkjubáti 1 fyrradag varð banaslys um borð i rækjubátnum Rósu HU frá Hvammstanga þar sem báturinn var að veiðum á Húnaflóa. Har- aldur Magnússon, 62ja ára gam- all vestmannaeyingur, sem búiö hefur á Hvammstanga siðan um gos, lenti i spili skipsins og lést samstundis, að þvi að talið er, en um beina orsök slyssins var ekki vitað I gærdag. Soffia hundskammar ræningjana GISLAR LAUSIR í SCHEVENINGEN HAAG 31/10 — Hópur valdra manna úr hollenska landgöngu- liöinu gerði i morgun skyndiárás inn i fangelsiskapelluna i Sche- veningen og yfirbuguðu fangana fjóra, sem höfðu hafst þar við sið- an á laugardag og héldu fimmtán manns i gislingu. Féll enginn maður eða særðist við þetta tæki- færi. Landgönguliðarnir ruddust inn i kapelluna grenjandi eins og berserkir og skutu yfir höfuð fanganna, og féllust þeim ger- samlega hendur við lætin. Einn fanganna var palestinskur skæruliði, sem meðal annars heimtaði lausan félaga sinn einn, er liggur á hollensku sjúkrahúsi, en málin flæktust þegar i ljós kom að skæruliðinn á sjúkrahúsinu var ófáanlegur til að láta frelsa sig. Varð þetta til þess að yfirvöld fengu ráðrúm til að upphugsa gagnaðgerðir gegn fjórmenning- unum. Þulurnar eru voða sœtar SJÓNVARP Kastljósi sjónvarpsins verður I kvöid brugöiö á ýmsa fróölega þætti hins daglega lifs. Ölafur Ragnarsson stýrir þættinum, og verða tekin fyrir málefni eins og bókaútgáfa og kjör rithöfunda hér á landi. Þá má nefna skuldir islendinga er- lendis, skólamálum verða gerð einhver skil og svo þeim mála- flokki sem blöðin hafa verið uppfull af siðustu dagana: Við- skipti húskaupenda og ibúða- sala. Réttarstaða húskaupenda virðist satt að segja nokkuð á reiki — eða svo er að sjá, ef framkoma húsbyggjenda er könnuð. Islenskir dómstólar munu vart sjá fram úr að skera úr i öllum þeim deilum sem jafnan risa út af viðskiptum húsbyggjenda og þeirra sem selja hús, hinna ýmsu verktaka og prangara af öðru tagi. Tilefn- ið er auðvitað „Tjarnarbóls- málið”. Þeir, sem leggja Kastljósinu lið i kvöld, auk Ólafs Ragnars- sonar, eru Einar Karl Haralds- son, Elias Snæland Jónsson, Baldur Guðlaugsson og Helgi H. Jónsson. En hin fagra Lúsifer kýs frcls- iö... ...eða hvernig i fjandanum endaði siðasti þáttur? sagði maður nokkur sem sat við imbakassa og reyndi af alefli að muna hvernig siðasti þáttur Itölsku framhaldsmyndarinnar um elskendurna og vonda kall- inn endaði. Þessi áhugasami framhaldsmaður hefði getað sparað sér að hugsa svo djúpt, þvi innan stundar var stelpan komin á skjáinn og rifjaði upp fyrir honum hvert smáatriði siðasta þáttar og gaf undir fót- inn með að ýmislegt hrikalegt myndi einnig gerast i þeim þætti sem sýndur yrði siðar um kvöldið. Þær eru annars merkar þess- ar sjónvarpsþulur. Mér finnst þær ættu að fá fálkaorðuna strax og hafa hana stöðugt um hálsinn meðan þær eru á skján- um. Þær brosa svo fóstursystur- lega tilmanns og tilgreina hvert smáatriði siðasta þáttar handa hlustandanum, þannig að hann þarf ekki á neinum heila að halda til að muna hvar hann er staddur i tilverunni, hin fagra Lúsifer kýs frelsið og ákveður að láta fyrirberast i klaustrinu þar til vondi kallinn drepst. Næst á dagskránni er þáttur- inn: „Yfir holt og hæðir”, hinn viöföruli bandariski blaðamað- ur Humpy Dumpy ekur gamla jeppanum sinum á æsihraða gegnum hæðóttan frumskóg Brasiliu þar sem blóðþyrstir villimenn biða á næsta leiti. Þýðandi og þulur Flosi Berg- þórsson. En það má reyndar ekki brósa að þulunum, jafnvel ekki á jól- unum þegar þær fara i nýjan jólakjól við hliðina á jólatrénu og eru enn sætari en áður; ein- hver verður að segja hvernig siðasti þáttur gekk fyrir sig og einhver verður að segja: nú er komið að veðrinu, og einhver verður að brosa: góða nótt — það væri svakalegt ef það væri séra Emil sem gerði það.—GG

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.