Þjóðviljinn - 21.12.1974, Page 11
Laugardagur 21. desember 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
— Það má sjálfsagt segja það.
t bókinni sést ekki að neinn annar
bóndi þar i sveit hafi gert endur-
bætur á jörð sinni milli 1930-1940.
— Hvað er svo að frétta af
stjórnmálaafskiptum þinum eftir
að þú sagðir skilið við Framsókn?
— Þá var ég staðráðinn i að
fara aldrei i flokk framar. Nú
kom kreppan mikla og ekki var
annað sýnna en allur atvinnu-
rekstur væri úr sögunni og land-
búnaður ekki sist. Ég hugsaði
málið mikið og komst að þeirri
niðurstöðu að ekki dygði annað en
skipulagning á framleiðslunni og
styrkur frá rikissjóði. Ég ræddi
þetta á fjölmennum fundi á Egils-
stöðum á Völlum 1933 og fékk
stuðning mikils meirihluta fund-
armanna við tillögur minar. Það
var fyrst og fremst til þess að
kynna þessar tillögur að ég bauð
mig fram til þings i Norður-Múla-
sýslu 1933. Ég fékk 134 atkvæöi,
eða um 20%, en komst ekki að.
Halldór Stefánsson og Páll Her-
mannsson héldu þingsætinu fyrir
Framsókn. Samtimis gaus sundr-
ungareldurinn upp i Framsókn-
arflokknum, er Tryggvi Þórhalls-
son og Halldór Stefánsson yfir-
gáfu flokkinn þegar Jón i Stóradal
og Hannes á Hvammstanga voru
reknir úr honum. Þá var Bænda-
flokkurinn myndaður.
Kjötverðið
hækkaði um helming
— Og þú varst þar með?
— Ég var beðinn að ganga i þann
flokk, bæði af mönnum syðra og
bændum i N.-Múlasýslu. . Það
er kunn saga að BændaflokkHrinn
náði ekki nægjanlegum tökum og
frambjóðendur hans féllu flestir..
Við Halldór Stefánsson vorum i
framboði fyrir flokkinn i Norður-
Múlasýslu, og þar átti sér stað
sannkallaður svartapálsgaldur. A
öllum fundum þar var ekki annað
að sjá en við Halldór hefðum yfir-
gnæfandi fylgi, en svo þegar til
kom reyndumst við ekki nema
liðlega hálfdrættingar á við
Framsókn. Framsóknarmenn
mynduðu þá stjórn með jafnað-
armönnum, sem frægt er, og enn
var nirvana. Þeir settu afurða-
sölulögin, en þau tryggðu ekki
nema brot af þvi sem ég hafði
barist fyrir.
— Nú hefur þú alltaf verið
vinstrisinnaður, samvinnumaður
og sósialisti. En engu að siður
varstu um skeið i liði með ihald-
inu?
— Já, ég fór i framboð fyrir
Sjálfstæðisflokkinn i Norður-
Þingeyjarsýslu. Þá voru forlögin
komin með sjálft peningagosið,
og afurðaverð bænda það lágt að
vonlaust var að þeir gætu keppt á
vinnumarkaðnum. Vinnufólkið
hvarf úr sveitunum. Ég fór til
Eyjólfs Jóhannessonar, sem
Jakob Möller hafði visað mér á
sem aðalmann Sjálfstæðisflokks-
ins i landbúnaðarmálum.Ég lagðí
fyrir hann tillögur minar um að
rétta landbúnaðinn við, og hann
sagði að þær væru eins og talaðar
úr sinu hjarta. Niðurstaðan varð
sú að kjötverðið til bænda hækk-
aði upp i kónur 6.40 á kilóið, sem
var helmingi méira en þeir höfðu
áður fengið. En sú dýrð stóð ekki
lengi. Ég var veikur um hálfs
annars árs skeið og gat þá litið
sinnt opinberum málum. Á með-
an bræddu sjálfstæðismenn og
framsóknarmenn sig saman i
sexmannanefndinni og þakkaði
hver öðrum hástöfum. Með verð-
lagi þvi til bænda, er nefndin
ákvað, var bændum gert að
skyldu að hafa sama kaup og
vinnumenn.
Síðasta verkið
í stjórnmálunum
— Var beinni stjórnmálaþátt-
töku þinni þá lokið?
— Mitt siðasta verk i pólitik
var að eftir flokksráöstefnu Sjálf-
stæðisflokksins i september 1944
skaut ég þvi að Sigurði Kristjáns-
syni, alþingismanni, að ekki
kæmi til greina að mynda stjórn
nema með þátttöku sósialista. Þá
höfðu flokkarnir ekki getað komið
sér saman um stjórnarmyndun
um skeið og utanþingsstjórn var
við völd. Við Sigurður gengum
svo heim til hans og ræddum
þetta vandlega. Hann lagði þetta
svo fyrir Ólaf Thors sem sina til-
lögu. Það sýndi sig að Sósialista-
flokkurinn var reiöubúinn lil
stjórnarmyndunar upp á viðtæka
atvinnuuppbyggingu. Svó var
haldinn fundur með helstu ráða-
mönnum Sjálfstæðisflokksins, og I
Ólafur læsti dyrunum og sagði að
héðan færi enginn út fyrr en end-
anlega ákvörðun hefði verið tek- I
in.
Mergurinn málsins
— A siðari árum hefur þú orðið
þekktur fyrir fræðimennsku og þá
sérstaklega umdeildar skoðanir á
uppruna islensku þjóðarinnar.
Hvað varð til þess að athygli þin
beindist að þessu atriði?
— Ég hafði allt frá bernsku
mikinn áhuga á sögu og ættfræði.
Ég man að þegar ég var ellefu
ára að aldri staddur á Refstað i
Vopnafirði og las i Óðni, blaði
Þorsteins Gislasonar, meðan ég
var að drekka kaffi, en ég var yf-
irleitt vanur að lesa meðan ég sat
að borðum. Ég las þá grein eftir
Guðmund skáld á Sandi, og var
fyrirsögn hennar Mergurinn
málsins. Ég fór svo að lesa Is-
lendingasögur af kappi, og rit-
fræði. Ég veitti þvi fljótt athygli
að fræðin voru götótt, heimildir
litlar um lif fólksins i landinu, en
mergurinn málsins var stál, sem
mikið gat borið. 930 var hér stofn-
að siðmenntað þjóðfélag, og for-
senda þess var að það var kon-
ungslaust, einskonar kommúna.
Það er algerlega útilokað að sá
safnaður óeirðamanna og vik-
inga, sem hraktist hingað úr Nor-
egi fyrir þá sök að þeir gátu ekki
sættsig við vaxandi félagslegt að-
hald þar i landi, hafi sett slikt
þjóðfélag á stofn. Niðurstaða min
er þvi sú að hér hafi verið sið-
menntað samfélag fyrir svokall-
aða landnámsöld. Island hefur
veriðbyggt keltum frá þvi um 200
fyrir Krist, og á fimmtu öld koma
hingað gotar, liklega búrgundar,
sem áður höfðu haft viðkomu i
Skotlandi. Það er eftirtektarvert
að samfélög gotanna voru einmitt
konungslaus, einskonar
kommúnur.
Ummæli
Langelyths
Islenskir sagnfræðingar hafa
verið furðulega blindir á þessi at-
riði, og ég er ekki sá eini sem
komið hefur auga á það. John
Langelyth segir til dæmis um rit.
Jóns Jóhannessonar, Saga Is-
lands á Miðöldum, að höfundur sé
afhinum „islenska skóla” Björns
M. Ólsen, Sigurðar Nordals, Ein-
ars ólafs Sveinssonar, Magnúsar
Más Eárussonar o.fl. Langelyth
bendir á að verk þeirra séu ekki
byggö á sjálfstæðum rannsókn-
um.
— Þú hefur samið margar
bækur, Benedikt?
— Þær hafa komið út átta og
tveir bæklingar, en Saga Jónasar
Kristjánssonar læknis fær ekki að
koma út. A prent hef ég komið í
timaritum, svo sem Göngum og
réttum, Landpóstinum, Lifinu i
landinu, Múlaþingi (230 bls), jóla-
blöðum Timans, Þjóðviljanum,
Austurlandi, sem svarar fjórum
bókum vænum, og efni á ég i ca.
fimm bækur, sem ég kem ekki út
hjá neinu forlagi. Virðist ég hafa
búið til einskonar svarta hönd á
mér með ritdómum um Nordælu
1951 og fleiri grófum pennastrik-
um, enda er ég ekki talinn rithöf -
undur i nýjasta fræðiriti Jóns Jó-
hannessonar bræðra. En þar sem
nafn mitt er nú komið á útlendar
tungur i sambandi við fræðirit,
fara þeir bræður að verða skrýtn+
ir á svipinn.
Sjálfsagður hlutur
— Þú hefur verið sósialisti frá
æskuárum. Hvernig list þér á
framtiðina i ljósi þeirra viðhorfa?
— Já, ég hef alltaf verið sósial ■
isti, og raunar kommúnisti, og lit-
ið á þau viðhorf sem sjálfsagðan
hlut. Ég átti þátt i þvi að koma
Rétti af stað, hafði útsölu á hon-
um og tapaði raunar á þvi fjár••
hagslega. Það blað var frá upp-
hafi frábært fróðleiksrit um hag-
fræði, enda var Þórólfur i Bald-
ursheimi búinn aö gerkynna sér
alla alþýðuhagfræðina. Hann var
vel heima i kenningum Henrys
George, lagði allt upp úr verð-.
fræðinni, sá að hún var undir-
staða allrar hagfræði.
Þegar á heildina er litið, er ég
bjartsýnn. Það hefur alltaf verið
háttur auðvaldsins að hleypa af
stað styrjöldum, þegar mál þess
hafa verið komin i flækju og
kreppan ógnað. En nú þorir auð-.
valdið ekki i strið. Og kreppari
þess kemur með sósialismann.
dþ.
Sæmundur Brynjólfsson og Haraldur Sæmundsson
Fáein minningarorð
um feðga
Léttuð hendi, greiðagóð
gestum lendinguna.
Ykkur sendi ég, sveinn og fljóð,
sið’stu hendinguna.
Með stuttu millibili bar að and-
lát þeirra feðga á Kletti i Gufu-
dalssveit, Sæmundar Brynjólfs-
sonar og Haralds sonar hans.
Annar var hniginn að aldri.
Hinn 45 ára.
Fyrir rúmum 22 árum hitti ég
þá fyrst. Við vorum nokkrir menn
á ferð vestur i Barðastrandar-
sýslu á 14 manna bifreið. Það var
tilraun þess efnis, hvort hægt
myndi að aka slikum farkosti yfir
hreinar vegleysur, sem þá voru
frá Brekku i Gufufirði og vestur
að Þingmannaheiði.
lnnarlega i Kollafirði festum
við vagninn i sandbleytu og
misstum hann jafnhraðan niður
og upp náðist. Gekk svo alllengi.
Var á slagveðursrigning, sem
brátt breyttist i krepju og snjó til
fjalla.
Komu þá tveir menn okkur til
hjálpar handan um fjörðinn.
Þetta voru feðgarnir á Kletti, Sæ-
mundur og Haraldur. Náðum við
með aðstoð þeirra vasklegri biln-
um upp og þá á haldbetri undir-
stöðu, siðan eftir þeirra tilvisan
yfir Kollafjörð. Var þá öllum boð-
ið til bæjar og siðan borinn heitur
kjarnamatur af hinni mestu
rausn. Mun okkur aldrei gleym-
ást hjálpsemi þeirra, gestrisni
heimilisins og sú djúpa velvild og
hlýja, er við nutum hjá Sæmundi,
konu hans og börnum þeirra,
Haraldi og Ólinu. Og er við lögð-
um enn af stað upp undir Klett-
hálsinn til að leggja til atlögu við
verstu torfæruna á allri okkar
leið, fylgdi Haraldur okkur þang-
að, sem komist varð þann daginn.
Hann taldi yfirförina vonlitla,
en vildi ekki draga úr okkur kjark
einum of.
A þeim þrem dögum samtals,
er i það gengu, að komast yfir
þennan fremur illræmda háls,
mættum við þeim Haraldi og
Ólinu með heybandslest vestan
frá Vattarnesi.
Fáum árum seinna, þá er ak-
vegur var kominn um þessar
sveitir, gafst mér færi á að koma
að Kletti og heilsa upp á Harald.
Og i hvert sinn, er ég fór um
þennan veg með ferðafólk, horfði
ég með heitri löngun þangað
heim, löngun eftir að heilsa upp á
hið gestrisna hjálpsama og
trausta velgerðaheimili sem við
aldrei gleymum, er vorum i áður
umgetinni för, 1952.
Ein þeirra visna, sem þá urðu
til, austan i Kletthálsinum, um
þau systkinin Ölinu og Harald er
svona:
Nú eru þeir feðgar báðir horfnir
sjónum okkar. Og ekki er það ætl-
un þessara fáu orða að ýfa upp
sár þeirra, sem þar eiga um við-
kvæmastar undir að binda. Þeim
vil ég einungis flytja innilega
samúð og hluttekningarhug.
Gamlar, djúphlýjar tilfinningar
streyma um huga minn, er ég
minnist þeirra feðga og fjöl-
skyldunnar á Kletti, heimilis,
sem tók okkur, dálitið hröktum
ferðalöngum, svo opnum örmum
og vinsemdarfullum einn svalan
haustdag fyrir röskum 22 árum.
Ég lýk svo þessum fáu línum
með stökunni, sem ort var seinna
kvöldið, sem við dvöldumst i hlið-
inni ofan við Klettabæinn.
Út með sænum öldukvik
undir grænum skrúða,
og í blænum aftanblik
yfir bænum prúða.
Hallgrímur Jónasson.
EINANGRUN
Frysti- og kæliklefar
Tökum að okkur að einangra frysti- og kæliklefa, skiptum
um einangrun i gömlum klefum. Notum eingöngu
sprautaða poiyurethane einangrun. Tökum að okkur aö
einangra hverskonar húsnæði.
EINANGRUNARTÆKNI H/F
P. Box 9154, Reykjavlk
Simi 72163 á kvöldin
fái einnig þægileg húsgögn?
Nú getum við boðið ódýr en sterk húsgögn
i ýmsum litum -
Verð: Stóll kr. 3.200 og borð kr. 4.800 -
LITIR: Rautt, grænt og orange
OP/Ð TIL KL. 10 í KVÖLD
HÚSBÚNAÐARÚRVAL Á 5 HÆÐUM
-..: íi- L-X
Hringbraut 1 2 1
— Simi 1 0-600
Verzlið
þar sem
úrvalið er ,
mest og
kjörin bezt
Er ekki kominn tími til að