Þjóðviljinn - 21.12.1974, Page 13

Þjóðviljinn - 21.12.1974, Page 13
Laugardagur 21. desember 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13 Kröfugerð sjómanna til umsagnar hjá félögum Kröfur um betri kjör til handa sjómönnum hafa nú verið sendar einstökum sjómannafélögum til umsagnar, en nefnd manna hefur unnið að kröfugerðinni siðan sjó- mannaráðstefnunni lauk. Formaður Sjómannasambands tslands, Jón Sigurösson, sagði að reynt yrði aö leggja fram kröf- urnar fyrir áramótin. Miðað er við aö félögin skili kröfunum með umsögnum og breytingatillögum við þær fyrir áramótin, þvi Jón sagði að sjó- menn óskuöu eftir þvi að vertíð yrði ekki byrjuð ef til stöðvunar þyrfti að koma. Verkfall er hægt að boða með viku fyrirvara. —úþ Færð Framhald af bls. 9. veginn milli Patreksfjarðar og Bildudals. Hins vegar er ófært yf- ir Kleifarheiði, en vegagerðar- menn vonuðust til að hægt yröi að opna hana i dag. Ofært er i Dýrafiröi og önund- arfirði, en i dag að reyna að opna vegi þar ef veður leyfir. Fært er frá ísafirði til Bolungavikur og i gær var mokað af veginum til Súðavikur. Blindbylur var á Norðurlandi um miöjan dag i gær en veður gekk þó eitthvaö niður siðdegis. Ekki hafði Holtavöröuheiði verið rudd siðdegis, en beðið færis til þess. í gær var verið að moka vegi frá Reyðarfirði og suður með fjörðum en gefist var upp við það siðdegis. Lónsheiði var ófær i gær, en ef til vill tekst að opna hana i dag. Allir fjallvegir austan lands voru ófærir i gær og Fagri- dalur lika. A héraði var hið versta veður i gær. —úþ Látalæti Framhald af bls. 6. útúrsnúningur og tilbúningur æðstu sannindi. 3 Það viðurstyggilegasta við rógsherferð Morgunblaðsins og samtaka atvinnurekenda á hend- ur námsfólki og menntamönnum er, að hún sýnist vera gerð af yfirlögðu ráði, þar sem hver leik- ur er úthugsaður og skipulagður. Gegn svo sterkum fjölmiðli sem Morgunblaðiö er er erfitt að berj- ast, og aðallega verður að treysta á skynsemi almennings, en vist hrekkur hún skammt gegn þeirri vægðarlausu og glórulausu æs- ingarherferð sem borgarastéttin skipuleggur. Einsog ráöstefna sjómanna benti réttilega á er verkafólk og námsmenn engir andstæðingar. Miklu heldur er þaö samherjar I baráttunni gegn auövaldinu og borgarastéttinni á íslandi. Sam- koma stúdenta á fullveldisdaginn var engin árás á islenska alþýðu, hún var árás á ráöaöfl þjóöfélags- ins, árás á þá hugmyndafræði sem falsar og lýgur, fegrar hið illa, en málar skrattann á vegg- inn þegar eitthvaö það kemur til tals sem bætt getur aðstöðu al- þýðufólks. Sú er von min að heiðarlegir verkamenn og sjómenn, fiskverk- unarfólk og aörir læri þá lexiu af æsingum Moggans og atvinnu- rekenda undanliöna daga, aft málstaður borgarastéttarinnar er ekki þeirra málstaöur. Það væri grátlegt ef verkafólk tæki þátt i galdraofsóknum ihaldsins á hendur námsfólki, beröist fyrir kúgara sina gegn baráttuvinum. Guð vors lands Framhald af bls. 2. Það er ótriræð krafa margra landsmanna að ofanskráð leik- verk veröi alls ekki gerð að sjón- arspili i kirkjum, nú um jólin. Megi Guð vors lands og góftir menn foröa kirkjunni frá slikri smekkleysu. Virðingarfyllst. Bjarni Th. Rögnvaldsson Safamýri 42, Rvik. SÖLU SK ATTUR Viðurlög falla á söluskatt fyrir nóvembermánuð 1974, hafi hann ekki verið greiddur i siðasta lagi 27. þ.m. Viðurlög eru 2% af vangreiddum sölu- skatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 10%, en siðan eru viðurlögin 1 1/2% til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. degi næsta mánaðar eftir eindaga. Fjármálaráðuneytið, 20. desember 1974. Fyrir hönd aðstandenda Bjarna M. Sigurössonar vél- smiös, ólafsvik, flyt ég öllum einstaklingum og félaga- samtökum nær og fjær, innilegustu þakkir fyrir hina mikiu hjáip við leitina að honum i ágúst og september, og alia auðsýnda samúð við fráfall hans. Þetta fórnfúsa starf, vikum saman, mun aldrei gleymast. Guö blessi ykk- ur. Vígd's L. Sigurgeirsdóttir. Tæknifræðingur Að Iðnskóla ísafjarðar vantar okkur tæknifræðing til kennslu. Auk almenns iðnskólanáms starfrækir skólinn einnig nám i undirbúningsdeild og raungreina- deild tækniskóla, stýrimannanám 1. stig, vélstjóranám, 1. og 2. stig og tækniteikn- un. Upplýsingar gefur skólastjóri i sima 94-3680, Isafirði. Þakka hjartanlega auðsýnda samúðog vinarhug þeirra er styrktu okkur við fráfall og minningarathöfn eiginmanns mins. Guðmundar Gislasonar Aðalstræti 15, ísafiröi Sérstakar þakkir færi ég útgeröarfélaginu Hrönn h/f, út- gerðarmanni þess, skipstjóra og skipsfélögum öllum. Fyrir hönd barna okkar, móður hins látna og systkina. Ragna Sólberg. Efst á vinsældalistanum Sem betur fer, eru mörg eða jafnvel flest þeirra tækja, sem við höfum á boðstólum, vinsæl, en þessi tvö slá þó öll met. Bæði eru þau framleidd af SUPERSCOPE verksmiðjunum amerísku, og er skýringin á vinsældum þeirra einfaldlega sú, að hvorttveggja eru þetta góð og ódýr tæki. Kassettu- segulbandstækið heitir C-101, og býður það upp á alla þá notkunarmöguleika, sem gerast í svona tæki, m.a. hefur það innbyggðan, sjálfstillandi hljóð- nema, úttak fyrir aukahátalara og gengur hvort heldur er fyrir rafhlöðum eða 220V húsarafmagni, þar sem i þvi er innbyggður spennubreytir. Sam- byggða útvarps- og segulbandstækið, sem heitir CR-1300, er mikið og veglegt tæki, og er útvarpið með FM-bylgju, langbylgju og miðbylgju. Segul- bandshluti CR-1300 tækisins hefur alla sömu eigin- leika og C-101 tækið. — Verðið á SUPERSCOPE C-101 er kr. 12.900,00 og á CR-1300 kr. 24.700,00. NESCO HF Leiáandi fyrirtæki á sviöi sjónvarps-útvarps- og hljómtækja. Verzlun Laugavegi 10 Reykjavík. Simar: 19150-19192-27788

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.