Þjóðviljinn - 04.01.1975, Síða 10

Þjóðviljinn - 04.01.1975, Síða 10
10 StÐA — ÞJOÐVILJINN Langardagur 4. Janúar 1975 H. K. Rönblom: Að nefna snöru— Nohrström, sagöi hann. Bottmer hefur viljað fá það staðfest að sú nýja ætti heima þar lika, svo að hann gæti fengið skjóta hjálp ef eitthvað yrði að honum um nótt- ina. — Já, hann var hálflaslegur, viðurkenndi Meg. En — Hún þagnaði og lagði höndina á handiegg Jóa. — Sjáðu! sagði hún. Þarna hin- um megin! Ungt par var nýkomið inn i borðsalinn. Pilturinn var átján eða nitján ára. Hann vann á bensfnstöð við þjóðveginn, nokkra kilómetra frá Abroka. Jói hafði heyrt að það væri bráðabirgðastarf, meðan hann biði þess að komast inn i tækniskóla. Hann hét Rune Varmin og var sonur kirkju- garðsforstjórans. Stúlkan var Desi, dóttir Viktorssons járnvörusala. — Ég var búin að heyra að þau væru saman, hvislaði Meg. En ég trúði þvi ekki. Hvað heldurðu að járnvörusalinn segði ef hann frétti það? — Hann veit vist ekkert um það. — Hann fréttir það strax i fyrramálið. Hljómsveitin hafði skipt yfir i jass. Jói og Meg dönsuðu rétt við unga parið sem vakti mikla at- hygli. Þegar þau dönsuðu nær hinum enda salarins, heyrðist baul úr sófa. Þar sat Vármin kirkjugarðsstjóri að sumbli á- samt nokkrum fylgismönnum. Varmin var að rísa á fætur milli flokksbræðra sinna, en þeir tog- uöu i handleggi hans til að fá hann til að setjast aftur. Vinviðar- sveigur hafði fallið niður af veggnum og prýddi stritt hár hans. — Hæ, pahbbi, kallaði VSrmin ungi þegar hann dansaði hjá og Desi brosti eins og madonna. VSrmin lét toga sig niður i sóf- ann aftur og sat með laufsveiginn á höfðinu og tautaði þungur á brúnina. — Hann vissi ekkert heldur, sagði Meg. Það leið að lokum danskvölds- ins. Mennirnir úr búnaðarnefnd- inni voru að búast til brottfarar. Hattasölukonan var þegar farin i fylgd með klæðabransanum. Al- gotsson og félagar'hans höfðu notið vinuppskerunnar i rikum mæli og töluðu nú saman voteygir um óskilgreinanlega hluti. — Það er miklu fleira milli himins og jarðar en nokkur veit, sagði Algotsson. Miklu fleira! — Hefurðu séð hvernig þau sitja? sagði Meg. ,,Þau” voru VSrmin ungi og Desi Viktorsson. Þáu sátu saman án þess að hafa áhyggjur af þvi hvað bæjarbúar segðu. Þau sátu alsæl eins og tveir englar á tveggja manna skýi. Jói tók eftir þvi að hljómsveit- arstjórinn veifaði blaði. — Það á vist að verða fjölda- söngur, sagði hann. — Af hverju heldurðu það? sagöi Meg. 4 Aðalstöðvar lögreglunnar I Ábroka eru i nýja ráöhúsinu, gengið inn um gaflinn. 1 tengslum við lögreglustöðina er fangelsið. Varðstofan, þar sem tekið er á móti almenningi, er björt og snot- ur og stúkuð sundur með af- greiðsluborði. Við afgreiðsluborðið sat Jói. Varðstjóri á lögreglustöð hefur með höndum mörg verkefni, sem varða almenna reglu og öryggi. Taka þarf á móti kærum, afhenda eyðublöð, svara fyrirspurnum. Suma dagana er ekkert lát á sliku. Varðdagur Jóa var i röð hinna viðburðasnauðari, og milli heim- sókna voru löng hlé. Siðari komu- maður var VSrmin ungi, klæddur smuroiiuflekkuðum ,grænum samfestingi. Hann kinkaði kolli til Jóa og spurði um hegningarvott- orð sem hann þurfti að leggja fram til að fá ökuskirteini. Hegn- ingarvottorðið var tilbúið og beiö þess að það yrði sótt. Varmin ungi stakk þvi kæruleysislega I vasann án þess að lesa það. — Þaðersnúðurá honum þess- um, sagði annar lögregluþjónn sem sat við borð aftar i salnum og skrifaðiskýrslu um reiðhjólslukt sem ekki hafði verið kveikt á eftir myrkur. — Hann er með Desi Viktors- son, sagði Jói. — Ha, ha, ég vildi sjá framan i Viktorsson þegar hann kemst að þvi. Hann kann lagið á þvi að fleygja út fólki sem honum likar ekki við. Tækifærið var of gott til að láta það ónotað. — Já, þú átt við Bottmer, sagði Jói Þú varst byrjaður hér, þegar hann var tekinn fyrir fjárdrátt. Gerði hann ekki tiiraun til að fyrirfara sér þá? Lögregluþjónninn ýtti skýrsl- unni frá sér. — Jú, sagði hann, sama daginn og handtakan átti að fara fram. Þaö voru náungar úti við báta- höfnina til að taka upp bát fyrir veturinn og þeir fylgdust með Bottmer sem var eitthvað að dútla þar. Allt I einu heyrðu þeir mikið skvamp, og þá var það Bottmer sem hafði stokkið fram af bryggjunni. Þeir þangað og drógu hann upp að sjálfsögðu, og þeir höfðu bil við höndina, svo að þeir óku honum lika heim og ann- ar hafði fyrir þvi að sækja systur Idu. — Systur Idu? spurði Jói með áhuga. — Já, þeir héldu vist að hann væri orðinn klikkaður og það þyrfti að hafa eftirlit með honum. Nokkrum timum seinna kom lög- reglan og tók hann fastan og þá upplýstist ástæðan fyrir sjálfs- morðstilrauninni. Fyrir mitt leyti, sagði lögregluþjónninn og lækkaði róminn, þá held ég að sjálfsmorðið hafi bara verið upp- gerð. Ef maður ætlar i alvöru að kála sér, þá hoppar maður ekki út i þegar fólk er að horfa á. — Uppgerð? sagði Jói. í hvaða tilgangi þá? — Ég get mér þess til að hann hafi ætlað að reyna aö hafa áhrif á kröfuhafa, svo að þeir kærðu hann ekki. En hann hafði ekkert upp úr þvi. Nýr gestur truflaði þá. Það var frú sem kom til að kæra það að ó- þekktur niðingur hefði kastað grjóti gegnum glugga i kvisther- berginu hjá henni. Hún lýsti þvi á óhugnanlegan hátt, hverjar af- leiðingar það hefði getað haft ef einhver hefði verið staddur i kvistherberginu og orðið fyrir steininum. Reyndar vissi hún hver þessi óþekkti niðingur var, það var enginn annar en sonur útvarp Laugardagur 4. janúar 7.00 Morgunútvarp-. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunleikfimi kl. 7.35 og 9.05. Morgunstund barn- anna kl. 9.15: Finnborg örnólfsdóttir les söguna „Maggi, Mari og Matthias” eftir Hans Petterson (3). Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli liða. óskalög sjúkl- ingakl. 10.25: Kristin Svein- björnsdóttir kynnir. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 íþróttir. Umsjón: Jón Ásgeirsson. 14.15 Að hlusta á tónlist, X. Atli Heimir Sveinsson sér um þáttinn. 15.00 Vikan framundan. Magnús Bjarnfreðsson kynnir dagskrá útvarps og sjónvarps. 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. islenskt mái. Jón Aðalsteinn Jóns- son cand. mag. flytur þátt- inn. 16.40 TIu á toppnum. Örn Petersen sér um dægur- lagaþátt. 17.30 Sögulestur fyrir börn. Sigurður Karlsson les sög- una „Jólasveinninn, sem sprakk” eftir Þuriði J. Arnadóttur. 18.00 Söngvar i léttum dúr. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Alþjóðastarf Rauða krossins. Eggert Asgeirsson framkvæmdastjóri flytur erindi. 20.00 Hljómplöturabb. Þor- steinn Hannesson bregður plötum á fóninn. 20.45 „Dagur I Ilfi fjölbýiis- húss”, smásaga eftir Gunn- ar Gunnarsson blaðamann. Höfundur les. 21.00 Létt tónlist frá hollenska útvarpinu. 21.35 Galdratrú og djöflar; fyrri þáttur. Hrafn Gunn- laugsson tók saman. Lesari með honum: Randver Þorláksson. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Danslög, 23.55 Fréttir I stuttu máli. Dagskrárlok. 0 sjónvarp Laugardagur 4. janúar 1975 16.30 Lína iangsokkur. Framhaldsmynd, byggð á hinni kunnu, samnefndu barnasögu eftir Astrid Lind- gren. 1. þáttur. Þýðandi Kristin MSntyla. Aður á dagskrá árið 1972. 17.00 tþróttir. Enska knatt- spyrnan. 17.50 Aðrar Iþróttir. Umsjónarmaður Ómar Ragnarsson. Hlé. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Dagskrárkynning aug- lýsingar. 20.30 Læknir á lausum kili. Bresk gamanmynd. Þýð- andi Jón Thor Haraldsson. 20.55 Jane Goodall og bavianarnir. Bandarisk fræðslumynd um rannsókn- ir sem breski náttúrufræð- ingurinn Jane Goodall hefur gert á lifnaðarháttum og atferli villtra baviana i Afriku. Þýðandi Maria Hreinsdóttir. Þulir Guðrún Jörundsdóttir og Ellert Sigurbjörnsson. 21.50 Maria Baldursdóttir. Dægurlagaþáttur tekinn upp I sjónvarpssal siöastlið- ið haust. Undirleik með söng Mariu annast þeir Björgvin Halldórsson, Engilbert Jensen, Gunnar Þórðarson og Rúnar Július- son. Stjórn upptöku Egill Eðvarðsson. 22.05 Makieg málagjöld (Armored Car Robbery). Bandarísk biómynd frá ár- inu 1950. Aöalhlutverk Charles McGraw og Willi- am Talman. Þýð. Helga Júliusdóttir. Fjórir ræningj- ar veröa lögregluþjóni aö bana. Vinur hans og sam- starfsmaður gengur að þvi með oddi og egg að hand- sama illvirkjana, en það er erfiðara en hann hyggur. #ÞJÓflLEIKHÚSIÐ KARDEMOMMUBÆRINN i dag kl. 15. Uppselt. sunnudag kl. 15. Uppselt. HVAÐ VARSTU AÐ GERA 1 NÓTT? i kvöld kl. 20. KAUPMAÐUR i FENEYJUM 6. sýning sunnudag kl. 20. Leikhúskjailarinn: HERBERGI 213 sunnudag kl. 20.30. Miðasala 13,15—20. Simi 1-1200. TÓNABÍÓ Fiölarinn á þakinu Ný stórmynd gerð eftir hinum heimsfræga samnefnda sjón- leik. sem fjölmargir kannast við úr Þjóðleikhúsinu. i aðalhlutverkinu er Topol, israelski leikarinn, sem mest stuölaði að heimsfrægð sjón- leiksins með leik sinum. önn- ur hlutverk eru falin völdum leikurum, sem mest hrós hlutu fyrir leikflutning sinn á sviði i New York og viðar: Norma t'rane, Leonard Frey, Molly Picon, Paul Mann. Fiðluleik annast hinn heimsfrægi lista- maður ISAAC STERN. Leikstjórn: Norman Jewison (Jcsus Clirist Superslar). ÍSLENSKUR TEXTI. Sýnd kl. 5, og 9. Sfmi 41985 Gæðakallinn Lupo Bráðskemmtileg ný, israelsk- bandarisk litmynd.Mynd fyrir alla fjölskylduna, Leikstjóri: Menahem Golan. Leikendur: Yuda Barkan, Gabi Amrani, Ester Greenberg, Avirama Golan. ISLENSKUR TEXTI. Sýnd kl. 6, :8 og 10. Sfmi 18936 Hættustörf lögreglunnar ISLENZKUR TEXTI. SCOTT STACY KEACH AROBERT CHARTOFF-' IRW'sj WINKLER PRODUCTION THE NEW CENTURIONS Æsispennandi, raunsæ og vel leikin ný amerisk kvikmynd i litum og Cinema Scope um lif og hættur lögreglumanna i stórborginni Los Angeles. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 Bönnuð innan 14 ára. ÍSLENDINGASPJÖLL i kvöld kl. 20,30. DAUÐADANS sunnudag kl. 20,30. 3. sýning. MORÐIÐ í DÓMKIRKJUNNI eftir T.S. Elioti þýðingu Karls Guðmundssonarleikara. Flutt i Neskirkju, sunnudag kl. 21. Siðasta sinn. ISLENDINGASPJÖLL þriðjudag kl. 20,30. DAUÐADANS miðvikudag kl. 20,30. 4. sýning. Rauð kort gilda. MEÐGÖNGUTIMI fimmtudag kl. 20.30. Siðasta sýning. DAUÐADANS föstudag kl. 20,30. 5. sýning. Blá kort gilda. Aðgöngumiðasalan I Iðnó er opin frá kl. 14. Simi 1-66-20. Sími 16444 Jacqúes Tati í Trafic Sprenghlægileg og fjörug ný frönsk litmynd, skopleg en hnifskörp ádeila á umferöar- menningu nútimans. „I „Trafic” tekst Tati enn á ný á við samskipti manna og véla, og stingur vægðarlaust á kýl- unum. Árangurinn veröur að áhorfendur veltast um af hlátri, ekki aðeins snöggum innantómum hiátri, heldur hlátri sem bærist innan meö þeim i langan tima vegna voldugrar ádeilu i myndinni” — J.B., Visi 16. des. ISLENZKUR TEXTI. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.