Þjóðviljinn - 09.02.1975, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 09.02.1975, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 9. febrúar 1975 Umsjón: Vilborg Harbardóttir Þættirúr skýrslunni sem ráðuneytið birtir ekki: Hvernig fariö er kringum lögin um launajafnrétti Hlutfall kvenna í forystu stéttafélaga í engu samræmi viðfélagatöluna Ráöstefnan um kjör láglauna- kvenna sem nokkur verklýösféiög efndu til ásamt rauösokkum 26. jan. sl. skoraði ma. á félagsmála- ráöuneytiö aö gefa út hiö fyrsta skýrslu þá um jafnrétti þegn- anna, sem þar hefur legiö f fimm mánuöi f handriti, unnin af Guö- rúnu S. Vilhjálmsdóttur nemanda i þjóöfélagsfræöinámsbraut viö Háskóla lslands. Aður hefur ráöuneytiö eöa ráðherra fengið áskorun sama efnis, enda var þaö þáverandi félagsmálaráöherra sem á sfnum tlma fól námsbrautinni aö gera þessa skýrslu, og er erfitt að sjá, hvernig hún á aö koma aö gagni nema almenningur fái aögang aö henni. Þvi þaö var áreiöanlega ekki tilgangurinn meö þeirri ályktun sem samþykkt var á alþingi 1971 og leiddi til þessarar skýrslugeröar, aö niöurstööurnar yrðu eitthvert einkamál einstaks ráöuneytis. Guörún S. Vilhjálinsdóttir vann verk sitt undir umsjón kennara við námsbraut i þjóöfélags- fræðum. Sjálf er hún stödd erlendis um þessar mundir, en Ólafur Ragnar Grlmsson lektor * kynnti á láglaunaráðstefnunni mjög fróðlega þætti i þessari skýrslu, sem snerta umræöuefnið er þar var tekið til meðferöar, þe. lagalega þróun launajafnréttis og fyrirkomulag þess i reynd meðal verka-, iönaðar- og verslunar- fólks, svoog stöðu kvenna i for- ystuhlutverkum hjá hagsmuna- samtökum. Skýrslan sjálf er þó mun viðtækara yfirlit yfir stööu karla og kvenna i islensku þjóð- félagi með tilliti til fjögurra meginþátta: 1) menntunar, 2) at- vinnuilfs, 3) launa og 4) margs- konar forystustarfa i þjóðfélag- inu. Frásögn ólafs Ragnars var eftirfarandi (millifyrirsagnir eru blaðsins): Aödragandi launajöfnuð- arlaganna Lagalegu launajafnrétti kynj- anna var komið fyrst á hjá starfs- mönnum rikisins. 1 launalögum rikisstarfsmanna frá 12. mars 1945 segir, að I skipun i starfs- flokka og flutning milli launa- flokka skuli konur að öðru jöfnu hafa sama rétt og karlar. 1 gild- andi lögum frá 1954 um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna er skýrara ákvæði þessu viðvikj- andi. Þar stendur, að konur og karlar hafi sama rétt til opin- berra starfa og til sömu launa fyrir sömu störf. Þessi lög eiga við rikisstarfsmenn almennt. Þess má geta, að embættismenn fengu þennan rétt með lögum 1911 og barnakennarar árið 1919. í lögum um skipun og laun barna- ORÐ Áhrif á viðkomandi líkamshluta? Guðlaug á Akranesi hringdi og sagðist hafa verið í krabbameins- skoðun — til varnar leg- krabba. — Áöur en sýnið var tekið, sagði hún, þurftum við að svara lönguin spurningalista og þarámeðal var spurt, hvað eiginmaðurinn ynni ! Hins- vegar var ekkert spurt um hvaða starf við hefðum sjálfar, ekki heldur þótt um ógiftar konur væri að ræða. Ekki veit ég, hvort starf eiginmannsins hefur svona mikil áhrif á þennan likams- hluta, jafnvel meiri en starf konunnar sjálfrar, og ég gat ekki annað en hlegið, sagði Guðlaug. En samt... hvers- vegna þarf þetta að vera svona? Konunum sagt upp fyrst. Sigga, sem býr I Keflavik, sagði, að þar væru nú um 60 konur á atvinnuleysisskrá. Ástæðan: Ótti við saindrátt hjá frystihúsunum. Og þá er auðvitað konunum sagt upp fyrst,karlarnir halda áfram. Saina gamla sagan. Vegna plássleysis veröur belgurinn ekki lengri i dag. Haldiö samt áfrain að leggja i hann orð. Við gefum honum meira pláss næst. —vb. MANNRÉTTINDI Nú er frumvarpið um fóstur- eyðingar aftur komið i nefnd, en i þetta skiptið á það ekki að sofna þar, að þvi er flutningsmenn þess segja, enda er búið að sniða burt það sem fór i taugarnar á læknum, kirkju og „almennings- álitinu”. Formaður nefndar þeirrar sem endurskoðaði gamla frumvarpið sagði á dögunum aö komiö hefði verið til móts við óskir þessara hópa, og þar með hefur öllu réttlæti veriö fullnægt. Við konur eigum eftir aö heyra það oft á næstunni, að „almenningsálitið ” telji einhverja lækna eða nefndir mun hæfari en okkur sjálfar til að ákveða hvenær við getum átt börn og hvenær ekki. Samkvæmt þessu „almenningsáliti” eru konur svo kærulausar „að passa sig” að veita verður þeim til- hlýöilegt aðhald. Einnig litur þetta sama „almenningsálit” svo á að konur séu það slæmar á taugum fyrstu vikur meðgöngu- timans að þær skorti andlegt jafnvægi til að taka sjálfstæðar ákvarðanir um framtið sina. Jafnvel getur átt eftir að heyrast sú aldagamla prédikun að Evudætur vilji óðar og uppvægar stofna gjörvöllu mannkyni I glötun, likt og formóðir okkar I Eden forðum. Þetta og margt annað f svipuðum dúr á eftir að dynja á hlustum okkar, þar til við látum undan þunga oröaflaums- ins og samþykkjum meö kven- legri þögn að sjálfsákvörðunar- réttur okkar sé með lagaboði fenginn öðrum i hendur. Það sem gleymist, eða er falið, i öllum þessum orðaflaumi er sú einfalda staðreynd að það eru konur sem ganga með börn. Þetta er svo eðlileg og undantekningar- laus staðreynd aö þrætubókar- meistarar viðurkenna hana ekki, hvað þá hitt að fóstureyðing er alltaf neyðarúrræði fyrir konu. „Almenningsálit” þeirra neitar að trúa öðru en að við látum eyða fóstri annaö hvort af léttúð eða skepnuskap. Að visu tekst stundum að klæða þessar hugsanir i hátiðlegt fræðimál með tilheyrandi linuritum og tölfræði- heimildum, en undirrótin er sú sama: konur eiga ekki að fá að ráða sinum eigin likama. Þegar ég heyri rök þau sem fram eru borin gegn frjálsum fóstureyöingum verður mér tiðhugsaðtildeilunnar sem spratt út af afnámi þrælahalds. Ekki er ég þó að likja saman kjörum nútima kvenna á Islandi og þræla hér áður fyrr, en röksemda- færslan gegn þeim þá og okkur nú er af svipuðum toga spunnin. Fylgjendum þrælahalds varð tiðrætt um að það væri i alla staði öruggara og þægilegra fyrir þrælana að eiga ráðdeildarsama húsbændur en að þurfa að heyja lifsbaráttuna á eigin spýtur. Þeir þörfnuðust verndar og umhyggju, annars misbeittu þeir nýfengnu frelsi. Jafnvel var sagt að þeir öðluðust aldrei andlegt atgervi til að geta ráðið sér sjálfir. Lagasmiðirnir hér bera þessa sömu umhyggju fyrir okkur, og þess vegna forðast þeir eins og heitan eldinn að minnast á það einu orði að frelsi til að ráða sjálfur barneignum sinum eru grundvallar mannréttindi. En „almenningsálit” lagasmiðanna segir aftur á móti að við munum ábyggilega una okkar hlutskipti vel þegar allt er afstaðið. Það telur skyldu þjóðfélagsins að veita barnshafandi konu og móður alla þá aðstoð og fyrir- greiðslu sem i mannlegu valdi stendur. Mannlegt vald og vilji hefur hingað til ekki verið mikill i þessum málum, og það er engin ástæða til að ætla að svo verði I bráð. Úr umhverfi okkar þekkjum við dæmi um konur sem gegn vilja sinum hafa þurft að ala barn, jafnvel þótt þær væru sjálfar barnungar og alls ekki færar um að ala upp annað barn. Þær hafa orðið að fara á mis við þá reynslu og það nám sem gerði þeim kleift að veita barni mann- sæmandi uppvaxtarskilyrði og sjálfum sér lifsfyllingu. Einnig þekkjum við þær konur sem eyði- lagt hafa heilsu sina og stofnað öryggi og hamingju fjölskyldu sinnar i voða með of tiðum barn- eignum. Og ef við viljum, þá þekkjum við einnig ótaldar konur sem orðið hafa að ganga I gegnum óiýsanlegar kvalir og niðurlægingu við ólöglega fóstur- eyðingu, eða þurft að snapa saman peninga og slá vixla til að komast til útlanda til að fá þessa aðgerð gerða löglega og á sóma- samlegan hátt. Siðan er okkur sagt aö þessar konur séu hluti þess „almennings” sem telji konur ekki færar um aö meta það sjálfar, hvenær þær skuli eiga barn og hvenær ekki. Við skulum hafa hugfasta reynslu þessara kvenna, og láta engan telja okkur trú um að við séum siður færar að ákveöa hvenær við eigum ekki börn en hitt aö ganga með þau, fæða og ala upp eins og við höfum gert frá upphafi vega. Elisabet Gunnarsdóttir

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.