Þjóðviljinn - 09.02.1975, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 09.02.1975, Qupperneq 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 9. febrúar 1975 RAUÐIR PENNAR. Á fjórum árum birtu Rauöir pennar 32 ritgerðir eftir íslenska höf unda. Þar af fjölluðu 16 um menningarpólitík og hugmyndafræði, 10 um bókmenntir og listir og sex um stjórnmál almennt. Höfundar greinanna voru sautján. Kristinn E. Andrésson átti flestar eða sjö. Halldór Laxness og Gunnar Benediktsson fjórar, Björn Franzson þrjár, Þórbergur Þórðarson og Skúli Guð- jónsson tvær — aðrir eina hver. Um hvað var fjallað í þessum ritgerðum? nýju stefnu einkum fjórar. Heimstyrjöldina fyrri sem sann- færöi miljónir manna um gjald- þrot hins gamla þjóöfélagsskipu- lags. Heimskreppuna sem sann- færði menn uin nauösyn þess aö breyta þjóðskipulaginu og stofnun og þróun Sovétrikjanna (sem sluppu frá kreppu) sem færði mönnum rök fyrir þvi aö þjóöfélagsbylting væri blátt áfram frainkvæinanleg. Og aö lokum valdataka fasismans I Þýskalandi og víðar, sem varð til þess að draga Ur tortryggni ýmissa rithöfunda og mennta- manna i garö koinmúnista og ýta undir stofnun breiörar vinstri- fylkingar til verndar menningu. Skáld hins nýja dags Þessu næst talar Kristinn af ljóðrænni hrifningu um „skáld Halldór Laxness: kærleikur fólksins Þórbergur Þóröarson: tvær þjóöir og upphaf Hallgrims- kirkjumála þvi aö þroski hinna nýju skálda er ákaflega ör”. Þessi bjartsýni er tengd öörum þætti i málflutningi Rauðra penria sem mjög espaöi andstæðinga þeirra fyrr og sföar. Hvaö eftir annaö er þaö staöhæft, aö úr borgaralegum bókmenntum sé allur safi farinn, þær hafi úrkynjast I þeim mæli aö hnignun þeirra sé vjs i bráb og lengd. Skáld hinnar nýju stefnu, segir Kristinn, „vaxa hinuin borgara- legu skáldum yfir höfuö, þvi aö þau ausa af lind upprunaleikans og magnastkrafti sókndjarfrarog sigrandi stéttar”. Einnig þetta : „utan við þá voldugu bókmennta- hreyfingu, sem hafin er, getur ekkertskáld staöiö, sem ætlar sér nokkra framtið” — og hefur þá visaö til dæma af mörgum höfundum. Síöar munum viö fjalla um það, hvernig fór fyrir spádómum Rauöra penna. En áöur en lengra Gunnar Benediktsson: efi og hnignun er haldið er rétt aö minna á þá gagnrýni sem Halldór Laxness ber fram á borgaralegar bók- menntir og menningarlif i tveim af fjórum greinum sem hann á i fyrsta árgangi Rauðra penna. Firringin Halldór er ekki siður en Kristinn óvæginn I garö borgara- legra bókmennta. í greininni „Borgaralegar nútima- bókmenntir” setur hann nokkra höfunda á kné sér og sem betur fer eru það ekki neinir aumingjar sem hann er að veita ráöningu: Jules Romains, Thoinas Mann, Aldous Huxley og svo Karen Blixen og Johannes V. Jensen sérstaklega. Enda viöurkennir hann þaö fúslega að verk þessa fólks séu „stórvirki 1 hugsun, menntun og gáfu”. En hann telur þeim það til foráttu aö þauséu „raunfirrt”, óralangt frá lifi og áhugamálum fólksins, tæti Siguröur Einarsson: hættan af fasismanum Byltingarákefð þjóðernishyggja samfylking Eins og viö gátum um i fyrsta spjalli um Rauða penna fór i fyrsta árgangi mikið fyrir rit- gerðum eftir aðstandendur ritsins, sem voru vel flestar stefnuboöandi, stefnumarkandi. Og þeim sem vilja kynnast Rauöum pennum eöa rif ja þá upp er þá eðlilegast aö rýna fyrst I langa og vlgreifa og bjartsýna baráttugrein ritstjórans, Kristins E. Andréssonar, sein nefnist Ný bókmenntastefna. Trú á bókmenntir Þessi grein hlýtur að hafa veriö afar áfeng lesning á þvi herrans ári 1935 — hún er þaö aö mörgu leyti enn I dag, hvað sem liður þeirri staðreynd, að margt fór öbruvísi en ungir og rauðir hug- sjónamenn ætluðu fyrir fjörutlu árum. í fyrsta lagi er grein þessi skrifuð af heillandi fögnuöi yfir þvi, trú á þaö að bókmenntir hafi miklu hlutverki aö gegna I heim- inum nú sem fyrr. Og I öðru lagi er þessi grein óralangt frá smá- skitlegum rig og nöidri sem oftar en ekki setur sinn svip á islensk skrif um menningarmál. Kristinn bregöur fyrir sig nýfundnum marxiskuin skilningi á tenglsi bókmennta og þjóöfélags og er fær i flestan sjó — allavega er ræöa hans mikil tiöindi i landi, þar sem menn höfðu lengst af hugann mest við æviatriöi ein- stakra höfunda. Kristinn telur forsendur hinnar hins nýja dags”. Hann lýsir þvi, hvernig þau hafi herst i skóla harðrar reynslu og baráttu og vaxið aö skilningi eða eins og þar segir: ,,Nú titrar ekki einungis hjarta þeirra af samúð meö þeim sem þjást, heldur hefur hugur þeirra einnig séö ráðin til að útrýma þjáningunni... nú hafa þau fundiö sjálf sig og köllun sína, aö starfa með vaxtaröflum lifsins og fylgja áfram þróun þess, frá fortiðinni og yfir tii fram- tiðarinnar”. Hann segir siöan nokkuð frá nafngreindum skáldum: fyrst rekur hann feril nokkurra sovétrithöfunda (Gorki, Sjolokoff ofl.) þá skálda úr verk- lýðsstétt (Nexö, Bredel, Plivier), þá róttækra skálda úr borgara- stétt (Rolland, Malraux, Becher, Brecht, Dreiser), einnig er getiö um „skáld hlynnt verk- lýðshreyfingunni” (Heinrich Mann, Feuchtwanger, Sinclair Lewis, Tagore ofl.) Sósíalrealismi Og svo gerir Kristinn grein fyrir þvi hvað þessi stefna feli I sér. Hann nefnir hana hiklaust sósialistiska raunsæisstefnu — það var orð timans. Þessi stefna „sýnir atburðina i þróun þeirra og samhengi”, segir Kristinn, hún sýnir stórviðburöi samtíöar á gagnrýnan og raunsæjan hátt en felur um leið I sér rómantík bar- áttunnar og fraintlöarvonanna — listin „sættir sig ekki lengur við aö útskýra heiminn, heidur vill hún vinna meö aö þvl að breyta honum” er þar sagt með hliösjón af ummælum Marx um heimspekina. Þessi útlistun er svipuð þeirri túlkun á sósiallskuin realisma sem Gorkl haföi borið fram á þingi sovétrithöfunda áriö áöur. En þar sem Gorki haföi lagt meg ináherslu á það sérstaka hlut- verk sovétbókmennta að gegna jákvæðu, uppbyggilegu hlutverki I sinu sainfélagi, hefur Kristinn hugann meira viö rómantlk baráttunnar viö auðvald og fasisma. Þaö er rétt aö geta þess strax, aö i raun voru alþjóðleg tengsli Rauðra penna meira tengd við fordæmi hinna róttæku þýsku andfasista sem þá höföu dreifst um mörg lönd og höfðu mikil áhrif heldur en hið sovéska fordæmi i menningarmálum. Þetta sést t.d. af hlutföllum I þvi erlenda efni sein Rauöir pennar birtu. Viltu vera með? Kristinn getur þess einnig — m.a. I sambandi viö sovéskar bókinennir, aö hin nýja stefna, sósialrealisminn, hafi enn ekki náð fullri hæð, „að listagildi standa mörg skáldverk hennar að baki þvi fullkomnasta sein borgaralega menningin hefur framleitt.” En hann er bjartsýnn: „þó dregur ört saman, Skúli Guöjónsson: byrjun fjöl- miðlaumræöu. Björn Franzson: túlkun á fréttum úr Sovét ÁRNI BERGMANN TÓKSAMAN sundur mannleg lífsverömæti 1 bölmóö og örvilnan án grund- vallarhugsunar, án nokkurra samtengjandi íneginþráða — svo dregiö sé saman úr umsögnuin. Menn taki eftir þvi, að Halldór var þá ekki að fella áfellisdóma yfir rithöfundum: hann telur þá endurspegla vissar staðreyndir i þjóðfélaginu: „Þetta er þá athvarf borgarans I nútima- bókmenntunuin: Draga sig út úr hinu lifanda lifi og setjast i bölmóði i eitthvert „skemmti- skip” (eða tæringarhæli, eða stássstofu), stara niöur á naflann á sér og fárast yfir haldleysi alls og allra: og biða eftir þvi aö skipið farist. 011 tengsl viö líf fólksins eru slitin og horfinn um leiö allur siöferöilegur lifsgrund- völlur. Eftir er sár lifsleiði sem leiðir til llfshaturs. Og það er nú einu sinni svo, aö sá, sem hefur slitið öll tengsl við fólkið og finnur ekki lengur skyldleika sinn við þaö né kærleika til þess, hann hefur um leið slitið tengsl sin viö mannllfið sjálft, finnur ekki framar skyldleikann viö lífiö, né kærleikann til þess. Hvað mundi þaö gagna eiriu skáldi, þótt hann hefði lagt undir sig öll snilldar- brögö listarinnar, en heföi ekki kærleikann til fólksins — og kærleik fólksins?” Von um nýtt samband Niöurlag þessarar ivitnunar er reyndar einkar athyglisvert. Halldór er gagnrýninn á borgara- stéttina, en hann boöar ekki I staöinn sóslalisk. baráttubók- menntir fyrir verklýösstéttina. Hann talar oftar um „fólk” og þjóöiren stétt. Gagnrýni hans er fyrstog freinst tengd von um nýtt samband lista og bókmennta viö alþýöu manna, nýtt samfélag rit- höfundar og almennings — frekar en viö list og bókinenntir af nýrri gerö Þetta kemur enn betur fram i annarri grein,„,Hinir útvöldu og fólkiö”. Þar ræöst hann á gömul og ný viðhorf i þá veru, aö fólkiö, almenningur hafi ekki vit á list og geti ekki haft, hún sé fyrir þá útvalda, sem hafi menntun og þroska. Hann af- neitar þá hvorki menntun né þroska en setur spurninguna i félagslegt samhengi: alþýða manna hefur ekki haft aðstæður og efni til aö njóta góöra hluta. Slöan rekur hann nokkur afleit dæini af sainbúð „hinna útvöldu”

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.