Þjóðviljinn - 09.02.1975, Síða 20
20 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 9. febrúar 1975
cyVIyndir
úr sögu verkalýðshreyfingar
og sósíalískra samtaka
Svipmyndir
frá sögulegu
ASÍ þingi
I dag birtuin við myndir frá
Alþýðusambandsþinginu sem
haldið var i nóvember 1958, en
þetta þing var óvenju spenn-
andi, þar sem lif þáverandi
vinstri stjórnar var i veði og for-
sætisráðherra, Hermann Jónas-
son, kom til þingsins með til-
lögur i efnahagsmálum, sem
þinginenn áttu að taka afstöðu
til. 1 tillögu forsætisráðherra
var farið fram á, að þingið
féllist á að verðlagsuppbætur á
laun i desember yrðu greiddar
samkvæmt 185 stiga visitölu, en
frestað yrði greiöslu fullrar
visitölu. bessum tilmælum var
svarað með eftirfarandi vilja-
yfirlýsingu:
,,t tilefni af bréfi hæstvirts
forsætisráðherra, vill 26. þing
Albýðusambandsins lýsa yfir
þeim vilja sinum að ráðstafanir
þær i efnahagsmálum, sem
fyrir dyrum stendur að gera,
verði á þann veg, að dýrtiðin
verði stöðvuð miðað, við
kaupgjaldsvisitöluna 185 stig,
cn telur hins vegar óhjákvæmi-
legt, að þar til samkomulag hef-
ur tekist um lausn málsins, fari
um kaupgreiðslur samkvæmt
gildandi lögum og samningum
stéttarfélaga.
Taliöfrá vinstri: Sigurður Stefánsson (Iátinn) Tryggvi Helgason og
Alfreö Guðnason.
Rut Björnsdóttir og Jón Ingimarsson
Hér eru starfsmenn á þinginu, taliö frá vinstri: Kjartan Helgason, örn Erlendsson, Kristinn Jóhanns-
son, Jóna Benónisdóttir (látin), Guömundur Georgsson, (Jlfur Hjörvar, Eggert Ólafsson (látinn), Þor-
geir Þorgeirsson, Bjarni Guðjónsson, ögmundur Stephensen og Matthlas Kjeld.
Við lögöum talsverða vinnu i að grafa upp nöfn þeirra sem eru á myndunum hér á slðunni, og tókst það
sæmilega vel nema hvað hér vantar þrjú nöfn sem viö biðjum lesendur að láta okkur I té. Lengst til
vinstri er Jón Friðbjörnsson, næstur honum Valdimar Sigtryggsson, en hverjir eru hinir þrir?
Talið frá vinstri: Haraldur Bogason, Jóhann Möller og Hannibal Valdimarsson.
Jón Sigurösson og Jón Rafnsson
Jafnframt telur þingið æski-
legt, að gerðar verði
ráðstafanir, ef þurfa þykir, til
þess að þau 17 stig, sem hér um
ræðir, hafi ekki áhrif á verðlag
vöru og þjónustu i
desembcrmánuði.
Um leiöir til lausnar málinu
tekur þingið á þessu stigi enga
afstööu, cn visar til væntanlegra
tillagna sinna i máiinu.”
bessi tillaga var sainþykkt
með 294 atkv. gegn 39,
binginu lauk með þvi að
Hannibal Valdimarsson var
endurkjörinn forseti með 173 at-
kvæðuin en Eggert borsteins-
son varaforseti með 164 at-
kvæðum. Forsiðufyrirsögnin i
bjóöviljanum var á þessa leið:
Verkalýðsfiokkarnir taka hönd-
um saman um Alþýðusam-
bandsstjórn. Og blaðið segir
ennfremur: bessi tiðindi eru
öllum verkalýð og vinstrimönn-
um i landinu mikið gleðiefni og
þeir treysta þvi að samstarf
þessara flokka (þ.e.
Alþýðubandalagsins og Alþýðu-
flokksins) eflist mjög til heilla
fyrir og hamingju fyrir alþýðu
Islands og þjóðina alla.
Og i leiðara blaðsins segir:
,,be ssum úrslituin
Alþýðusainbandsþings mun
fagnað af alþýðufólki um land
allt. Margir voru uggandi
einmitt uin þetta þing, svo litið
varð ráðið fyrirfram um gang
þess. En i gær voru verkamenn
léttir' i skapi og óskuðu hver
öðruin til hamingju þar sem
þeir fundust.... bvi getur farið
svo, að 26. þingsins verði minnst
sem eins merkasta þings verka-
lýðshreyfingarinnar, atburðar,
sem markað hafi þáttaskil i
sögu alþýðusamtakanna á ís-
landi.”
En fljótt skipast veður i lofti.
4. deseinber 1958 er þetta aðal-
fy rirsögn bjóðviljans:
Framsókn neitar að ræða lausn
efnahagsmálanna, hótar
stjórnarslitum.
Og 5. deseinber:
Framsókn rýfur stjórnarsam-
starfið.
Og eftirleikinn þekkja flestir
sem koinnir eru til ára sinna.
(Samantektog ljósmyndir SJ)