Þjóðviljinn - 15.03.1975, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 15.03.1975, Blaðsíða 16
PORTUGAL: DtöÐVHMN Laugardagur 15. niarz 1975. Spínola til Ameríku MADRID 14/3 — Spinóla fyrrum Portúgalsforseti lagði i dag af stað flugleiðis til Suður-Ameriku, en ekki er vitað hvort hann ætlar úr flug- vélinni i Brasiliu eða Argentinu. t Brasiliu hafast sem kunnugt er við þeir Marcelino Caetano, fyrr- verandi forsætisráðherra Portúgals, og Amreico Tomas fyrrum forseti, sem Spinola stóð fyrir að steypa af stóli i april s.l., og verða væntanlega fagnaðarfundir með honum og þeim. Fjölmennur baráttufundur Nokkuð á annað þúsund manns söfnuöust saman á Lækjartorgi sfðdegis I gær tii að mótmæla samningsgerð við Union Carbide. Það var „Samstarfsnefnd gegn Union Carbide” sem til fundarins boðaði. Ræðumenn á fundinum voru Þorsteinn Þorsteinsson, bóndi á Skálpastöðum i Borgarfirði, Jón Viðar Jónmundsson, búfræðikennari, Hvanneyri, Þorsteinn Vilhjálmsson, eðlisfræðingur og Vigfús Geirdal, kennari. Bankar þjóð- nýttir Leiðtogar Kristi- legra í vitorði með gagn byltingar- mönnum LISSABON 14/3 — Portúgalska hernum var i gær fyrirskipað að vera við öllu búinn, og lýsti Fran- cisco da Costa Gomes, forseti, þvi yfir við það tækifæri að þjóðin yrði að vera á vcrði gegn öflum þeim, sem staðiö hefðu að valda- ránstilrauninni. Komst forsetinn svo að orði i sjónvarpsávarpi að þessi öfl „væru vissir kapitaliskir aðilar og sérréttindahópar, sem væru ófærir um að aölagast hin- um nýju stjórnmáia- og þjóðfé- lagsaðstæðum.” Þrengt að Neak Luong 10-15.000 Lon Nol-liðar fallnir síðan um áramót PHNOMPENH 14/3— Yfir þrjátiu eldflaugar frá her- mönnum Þ jóðareiningar- samtaka Kambódíu hæfðu Pochentong-f lugvöllinn við Phnompenh í dag, en kváðu ekki hafa valdið teljandi tjóni og héldu bandaríkjamenn áfram birgðaflutningum til flug- vallarins. Harðir bardagar geisa um borgina Longvek, 54 kílómetra norður af höf- uðborginni, og hefur Lon Nol-liðum að sögn tekist að halda borginni fyrir þjóð- areiningarliðum. Hermt er að flugvél frá ástr- alska flughernum muni koma til Pochentong-vallar á morgun og flytja þaðan þá sex áströlsku sendiráðsmenn, sem enn eru eftir i Phnompenh. Talið er að ein- hverjir breskir, malasiskir og singapúrskir sendiráðsmenn muni nota tækifærið að taka sér far með flugvélinni. Long Boret, forsætisráðherra Lon Nol-stjórn- Tilboð i innréttingar verkamannabústaða: Utlendir langhæstir í gær voru opnuö tilboð i inn- réttingar i 308 íbúðir verkam.- bústaða i Reykjavík. Meöan á út- boðsfresti stóð var talsverður uggur i útbjóðenduin, þar sem aldrei hafði verið sótt eins mikið af útboðsgögnum, og auk þess aldrei verið eins mikið um að er- lendir aðilar tækju þátt i sliku út- boöi. Var óttast, að þetta kynni að þýða það, að hróðurhluti þessara vcrkefna færi til útlendinga. Þegar útboðin voru opnuó t gær kom i Ijós að geysimikill munur var á hæstu og lægstu tilboðum, og að liinir erlcndu aðilar voru alls staðar i liæsta flokki. Þeir koma þvi hvcrgi til greina sem framkvæmdaaðilar. Hér var um að ræða norska sænska og danska aðila. Nánar vcrður sagt frá þessu I Þjóðviljanum eftir helgi. Alþýðubandalagiö Stofnfundur annarar deildar Stofnfundur annarar deildar Alþýðubandalagsins I Reykjavik, Austur- bæjar- og Sjómannaskólahverfi. Fundarstaöur: Hótel Esja. Fundartimi: Nk. mánudag 17. mars kl. 20.30. Dagskrá: 1. Þröstur Ólafsson, form. ABR. kynnir nýja reglu- gerð fyrir félagsdeildir Alþýðu- bandalagsins i Reykjavik. 2. Kosning stjórnar. 3. Ragnar Arnalds ræðir um stjórnmála- ástandið og svarar fyrir- spurnum. Félagar fjölmennið og takið með ykkur nýja félaga. Þröstur Kagnar Alþýðubandalagið i Vestur-Barðastrandasýslu Magnús Helgi Alþýöubandalagið I Vestur-Barðastrandasýslu heldur árshátið I Dunhaga, Tálknafirði, föstudaginn 21. mars nk. Avörp flytja alþingis- mennirnir Magnús Kjartansson og Helgi Seljan. Hljómsveit Þorsteins Guömundssonar frá Selfossi leikur fyrir dansi. Skemmtiatriði auglýst siðar. Alþýðubandalagið i Hafnarfirði Fundur I Góötemplarahúsinu þriöjudaginn 18. mars klukkan 20:30. Einar Olgeirsson, fyrrverandi alþingismaður, kemur á fundinn og ræð- ir við fundarmenn og svarar fyrirspurnum. Félagar eru hvattir til að fjölmenna. — Stjórnin. ar, hefur undanlariö verið að puða við að koma saman nýrri stjórn, sem þjóðareiningarmenn kynnu að fást til að semja við, en ekkert gengið, þvi að meðal stjórnmálamanna og herforingja i Phnompenh kvað nú hver höndin vera upp á móti annarri. Þjóðareiningarmenn hafa nú tekið þvi nær allar útvarðarstöðv- ar Lon Nol-hersins kringum Neak Luong, einu borgina sem Lon Nol- stjórnin heldur enn á bökkum Mekong milli Phnompenh og viet- nömsku landamæranna. tbúar borgarinnar búa við mikla neyð, og fá engar birgðir að nema smá- ræði, sem kastað er niður til þeirra i fallhlifum annað veifið. Sjónarvottar, sem nýkomnir eru frá borginni, segja að hún sé að mestu i rústum og að hundruð mannna hafa látið þar lifið og særst siðustu þrjá dagana, bæði hermenn og óbreyttir borgarar. Talið er að Lon Nol-herinn hafi siðan um áramót misst 10-15000 manns særða og fallna, eða meira en fimmtung alls liðsafla sins. Með þessu er talið að forsetinn hafi meðal annars höfðað til manna úr þremur auðfjöl- skyldum, sem valdamiklar hafa verið i bankakerfinu og iðnaöin- um og voru handteknir i gær. Þar á meðal eru fjórir úr Espirito Santo (Heilagsanda-) fjölskyld- unni, sem hefur eignarhald á banka með sama nafni, tveir menn úr Milo-fjölskyldunni, sem ræður yfir CUF, stærsta iðn- hrings landsins, og Jose Carlos Champalimaud, en hans familia er mjög auðug af hlutabréfum i iðnfyrirtækjum. Af hálfu byltingarráðsins hefur verið tilkynnt aö Jose Sanches Osorio majór, leiðtogi Kristilega demókrataflokksins, hafi átt hlut að valdaránstilrauninni og sé nú flúinn úr landi. Osorio þessi var mikill vin Spinóla og flokkur hans Framhald á bls. 12. Engin nóta til sem nær tuttugu tonnum hér hjá okkur segir Jónmundur Gislason vigtarmaður á Kletti — Eins og þú sérð hefur enginn bill komið á vigtina hér á Klctti, þar scm bifreið og farmur ná samtals 20 tonnum, þannig að þó vigtin okkar taki ekki meira kemur það ekki að sök við loðnulöndun hér, þeir bilar scm eru með mcira eru sendir niður á Granda á stóru vigtina og það er þvi ekki vigtunaratriði sem vcldur þvi að loðnuskipstjórarnir halda þvi fram að þeir fái minna uppúr skipum sinum hér i Reykjavík en annarsstaðar, sagði Jónmundur Glslason vigtar- maður á Kletti er við ræddum við hann i gær um þá full- yröingu loðnuskipstjóra að það vigti vcrr I Reykjavik en annarsstaðar, og hann sýndi okkur nótubækur þær sem hver larmur scm á vigtina kemur er skráður i. — Og ég vil gjarnan að það komi fram vcgna þess að skip- stjórinn á Sigurði RE hefur kvartað að þann 15 feb. sl. landaði hann hér siðast og þá 909 tonnum, sem er það næst mesta sem hann hefur fengiö 1 túr á þessari vertið, mest hefur hann landað 994 tonnum á Siglu- firði en ekki á Eskifirði eins og hann sagði i viðtalinu við þig i gær. — fcg kann að sjálfsögðu enga skýringu á þvi hvers vegna skipstjórarnir halda þessu fram, en ég vil þó benda á að þegar þeir landa á Austfjarða- höfnum eöa i Vestmannaeyjum cftir að hafa vcitt loðnuna fyrir austan er hún ekki nema nokkurra klst. gömul, en þegar þeir hafa siglt hingað með farminn er hann orðinn sólar- ; Jónmundur Gislason að vigta. hringsgamall eða meira og jafn viðkvæmur fiskur og loðnan er þá farinn að rýrna all vcrulega. Eins er það ef hún er veidd á 5. cða 6. veiðisvæði útaf Garð- skaga er hún I flestum tilfellum búin að hrygna og cr þá að drepast og er þá orðin mjög slöpp. Og eftir að hafa siglt með hana til Reykjavikur hefur hún rýrnaö. — Þetta er sú eina skýring sem ég get fundið á þessari fyllyrðingu þeirra, en hitt full- yröi ég að hér á vigtinni er ekki snuðað á sjómönnunum. Ég var sjálfur sjómaður I 40 ár og ætti ekki annað eftir i ellinni en að fara að snuða á fyrrum starfs- félögum minum, sagði Jón- mundur að lokum. —S.dór

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.