Þjóðviljinn - 26.03.1975, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 26.03.1975, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 27. marz 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Skóladagheimili reist að Kleppi: Sjúklingarnir framleiddu efnið í húsið Við Kleppspíta lann i Reykjavíker nú í byggingu skoladagheimili fyrir börn starf sfólksins, og það skemmtilega er, að sjúkl- ingar á Kleppi hafa sjálfir búið til steinana sem húsið er hlaðið úr. Hér er ekki um að ræða venjulega vik- ursteina, heldur er uppi- staðan í steinunum marmari ásamt sérstöku bindiefni. Baldur Skarphéðinsson um- sjónarmaður að Kleppi sagði okk- ur að nokkur hús hefðu verið byggð úr steinum sem sjúkling- arnir á Kleppi hefðu búið til og hefðu þau likað vel. Einnig fram- leiða sjúklingarnir kantsteina fyrir gangstéttir og hefur Reykja- vikurborg keypt megnið af þeim Annað bindi þjóðhá- tíðar- sögn komið <Jt er komið annað bindi Sögu tslands, þjóðhátiðarútgáfunnar sem Sigurður Lindal ritstýrir og Hið islenska bókmenntafélag gef- ur út. Bindið rekur sögu lands og lýðs frá þvi um 1100 og til loka þjóðveldisaldar, 1262, og er þá einkum miðað við atburði stjórn- málasögunnar. Gunnar Karlsson ritar fyrsta kaflann i bókinni, Frá þjóðveldi til konungsrikis, sem fjallar um atvinnuhætti og stjórnmál. Magnús Stefánsson skrifar kafl- ann Kirkjuvaldið eflist. Jónas Kristjánsson skrifar lengsta kafl- ann i þessu bindi en hann fjallar um bókmenntasögu timabilsins. Björn Th. Björnsson skrifar um myndlistarsögu, Hallgrimur Helgason um tónmenntasögu og Arni Björnsson um almenna þjóð- hætti. Bindiðer 336 bls. og prýtt fjölda mynda eins og fyrsta bindi sög- unnar. 60% en ekki 80% Sverrir Júliusson, fram- kvæmdastjóri Fiskveiðasjóðs, bað undirritaðan að leiðrétta það, sem sagt var um hlut Fiskveiða- sjóðs i endurbótum á Fiskiðjuveri Bæjarútgerðar Reykjavikur. bar hafði ranglega verið sagt að Fiskveiðasjóður mundi lána 80% af kostnaðinum við endur- bæturnar, en átti að vera 60%. Heildarkostnaðaráætlun mun hljóða á 23.350.000.00 krónur að sögn Sverris, og mun Fiskveiða- sjóður þvi lána á að giska 74 miljónir eins og áður sagði. Væntanlega er þetta leiðrétt hér með. — úþ og notað þá við gangstéttalagnir i borginni. Baldur sagði að öll aðstaða til þessarar steinagerðar væri held- ur frumstæð hjá þeim að Kleppi en sjúklingarnir áhugasamir og mjög duglegir við þessa fram- leiðslu. — S.dór Þetta er skóladagheimiliðsem verið er að reisa að Kleppi, en það er hlaðið úr steinum sem sjúklingarn- ir hafa sjálfir mótað. Sameiginlegt takmark Sú var tíöin aö þjóöin átti tilveru sína beinlínis undir samgöngum viö umheiminn. Svo er aö vissu leyti enn í dag. En jafnvel þótt þjóöin gæti lifaö hér sjálfri sér nóg, þá hefur hún aldrei ætlaö sér þaö hlut- skipti aö búa viö einangrun, um þaö vitnar sagan. Takmark þjóöarinnar hefur ætíö verið að sækja allt þaö besta sem umheimurinn hefur boöió upp á, og einnig aö miðla öörum því besta sem hún hefur getaö boöiö. Þess vegna markaði tilkoma flugsins þáttaskil í samgöngumálum íslendinga, þar opnaöist ný samgönguleið, sem þjóöin fagnaöi, og þegar reglubundiö áætlunarflug til útlanda hófst, varö bylting í samgöngumálunum. Þaó varö hlutverk félaganna beggja að hafa á hendi forystu í þróun flugmálanna. Hvernig til hefur tekist skal látiö ósagt, en eitt er víst aö aldrei hefur skort á stuðning landsmanna sjálfra. Nú hafa félögin veriö sameinuð. Þaö er gert til þess aö styrkja þennan þátt samgöngumála. Meö sameiningunni aukast möguleikar á þjónustu viö landsmenn og hagræöing í rekstri verður meiri. Þannig þjónar sameiningin því takmarki sem þjóöin hefur sett sér aö hafa á hverjum tíma öruggar og greiöar samgöngur til þess aö geta átt samskipti viö umheiminn. Þaö er sameiginlegt takmark félaganna og allrar þjóöarinnar. flucfélac LOFTLEIDIR /SLA/VDS Félög sem byggðu upp flugsamgöngur þjóöarinnar

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.