Þjóðviljinn - 26.03.1975, Blaðsíða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 27. marz 1975.
Vegna glímuskrifa
Hr. Sigurdór Sigurdórsson,
Þjóöviljanum.
Tilefni þessa bréfs eru skrif
þln um landsflokkaglimuna I
Þjóðviljanum I dag, 25. mars,
sem að mlnum dómi verður að
telja mjög óvönduð og frá
undarlegu sjónarhorni gerð.
Enda þótt þau séu þess vegna
tæpast svaraverð ætla ég að
fara um þau nokkrum orðum.
Það eru einkum fullyrðing-
arnar sem meö fylgja sem
gera greinarnar vafasamar,
en hve lítið er til þeirra vand-
aö má best ráða af þvi, að rétt
er farið með úrslit I tveim
flokkum af sex. Sem sagt: ca.
33.3% af skjalfestum stað-
reyndum um úrslit mótsins er
komið rétt til skila. Ráðlegg
ég þér nú að leita hins sanna
hjá FLÍ svo að þeir sem fá
vilja að vita hið rétta um úrslit
gllmunnar megi fá þeim ósk-
um slnum fullnægt. Vona ég
að þú sért sammála mér um
að skylda blaöamanns sé að
færa rangfærslur I skrifum
slnum til betri vegar hafi hon-
um oröiö það á að festa slíkt á
blað.
Vík ég nú ögn að mati þínu á
gllmunni.
Þér hlýtur að sjálfsögðu að
vera frjálst að hafa þínar
skoðanir, og jafnvel að birta
þær sem hinn endanlega sann-
leik, en gættu þess, að sem
fréttamaður dagblaðs getur
þú mótað skoðanir fjölda fólks
eftir þvl hvernig þú hagar
skrifum þinum.
Þaö er þitt mat að Jón nokk-
ur Unndórsson hafi verið
órétti beittur, og að dómgæsl-
an I glimunni hafi veriö fyrir
neðan allar hellur. Um þetta
skal ég ekki deila við þig, enda
þótt ég sé á öðru máli um þetta
hvort tveggja. Það sem ég
ásaka þig fyrir er að skrifa
mjög harðorða grein I garð
dómara og glimulaganna sem
sett voru á slðasta þingi GLÍ.
Greinin túlkar aðeins málstað
þess manns er gekk úr gllm-
unni vegna þess að hann taldi
sig órétti beittan, en ekki eru
dómararnir beðnir skýringar,
né heldur leitaö álits þess sem
glímdi viö Jón Unndórsson
hina umtöluðu gllmu, Inga
Yngvasonar. Jón segist ekki
hafa nltt Inga niður. Það er
hans mat. Hvað nú ef Ingi
hefði sagt að Jón hefði nltt sig
niður? Þá væri dómaranna
að dæma. Sllkt gerðu þeir og
dæmdu þarna nlð. Ég sagði
áðan, aö þú heföir ekki gefið
dómurunum færi til andsvara.
Annað veröur a.m.k. ekki
ráðið af greininni. Þó kemur
málstaður dómara fram, en
vel að merkja úr munni Jóns
Unndórssonar, fylgt af hálfri
linu af spurningarmerkjum.
(Upphrópunarmerki munu
ekki vera til I setningarvélum
Blaðaprents). Er þarna um að
ræða örugga heimild? jafnvel
þótt Jón Unndórsson sé sann-
orður maður? Á ekki frétta-
maður ætíð að leita sjónar-
miða fleiri aðila en eins ef lík-
ur eru til aö málin séu
umdeild?
Þá er komið að öllum þeim
fullyrðingum sem greinarnar
tvær skreyta. Ég ætla ekki að
elta ólar við hverja og eina,
heldur að vekja athygli á
nokkrum þeirra og spyrja þig
nokkurra spurninga af því til-
efni.
1. Þú minnist á ný ákvæði
glímulaga, um áminningar til
glímumanna, vinning og tap
af þeim sökum og segir:
„Þetta nær auðvitað engri
átt”. Hvers vegna auðvitað?
Hverjir aðrir en þú hafa látið
það álit sitt I ljósi? Hvers-
vegna hefur þú aldrei áður
deilt á svo heimskuleg fyrir-
brigöi að þinum dómi?
Hefurðu e.t.v. ekki lesið
gllmulögin fyrr en nú, og telu^-
þig samt þess umkorhinrf að
leggja dóm á þau?
2. Þú telur líkur á að gllman
leggist niður sem keppnis-
Iþrótt aö óbreytturn reglum.
Hvers vegna? Hefur þú að eig-
in dómi fylgst nægilega með
gllmu og setningu gllmulaga
til að geta lagt dóm á slikt?
Hvers vegna deildirðu ekki á
setningu þessara lagagreina
þegar I upphafi? (Þú skildir þó
aldrei hafa gleymt þingi GLl I
haust?)
3. Þú telur framkomu
dómara I garð Jóns furðulega.
Það er að sjálfsögöu þitt mat,
en fyrir hvaö fékk Jón þessa
fyrstu áminningu? Lesendur
eiga heimtingu á þvl að vita
það, úr þvl að svo mikið mál er
út af henni gert. Fyrir hvað
voru svo aðrar áminningar
veittar, t.d. áminningin sem
Pétur Yngvason fékk á móti
Guðna Sigfússyni? Ekki gengu
aðrir, sem áminntir voru fyrir
slæma stöðu, hættuleg brögð,
nlð, o.fl. úr gllmunni, heldur
tóku þvl sem íþróttamönnum
sæmir.
4. Um mat þitt á dómum er
litillega rætt hér að framan og
mun ég nú ekki orðlengja þaö
frekar.
5. Varst þú viðstaddur alla
gllmuna? Enda þótt þú segir
svo I lok rammagreinarinnar
Erlingur Sigurðarson, sá er
ritar þetta greinarkorn hér að
ofan, tók þátt i þvi I haust aö
semja og samþykkja hin nýju
gllmulög sem aö minum dómi
eru á leið með að eyðileggja
isi. giimu sem keppnisiþrótt,
svo það er kannski ekki að
furða þótt honum renni i skap
þegar hann sér afsprengi sinu
hallmælt. Ég sé ástæðu til aö
svara nokkrum atriöum úr
grein hans, en persónuiegu
skltkasti I minn garð læt ég þó
Aö verja
feitletruðu, tek ég þig ekki trú-
anlegan við fyrstu fullyröingu
þina þar um, enda eru margar
aðrar hæpnar á iþróttaslðunni
i dag. Þetta get ég að visu ekki
vitað með vissu, en spyr að-
eins: Hvers vegna sást þú
aldrei taka myndir af glimu-
mönnum „að verki”, heldur
þá fyrst er verðlaunaaf-
hending fór fram? Það hefði
t.d. verið gaman að fá mynd af
lokum bragðs þess er þú lýsir I
gllmu Jóns og Inga. Fáum
blandast hugur um að bragðið
hafi verið löglega tekið I upp-
hafi, en hvernig endaði það?
Jú, þá sást Jón Unndórsson
liggjandi fremur en sitjandi
karlveg á Inga Yngvasyni og
var ásetan ekki falleg að mlnu
mati. Enda úrskurðuðu
dómararnir níð I þessu tilviki.
Að lokum vil ég taka það
fram, að kveikjan að þessu
bréfi og ásökunum mínum I
þinn garð, er eingöngu skrif
þln I blaðinu I dag, 25. mars.
Þjóðviljinn hefur öðrum blöð-
um fremur vakið athygli á
gllmunni og sinnt henni sem
Iþrótt. Þvl vekur það gremju
þegar skrifin eru á sllku
blaðamennskustigi sem téöar
greinar. Um önnur blijð er það
að segja aö ekkert þeirra
utan Tlminn segir ennþá neitt
um glímuna. Þótt fregnin þar
sé stutt er þar rétt farið með
flest (ekki allt þvl miöur),lltur
hún út sem sæmilega vönduð,
og fáum orðum farið um
leiðindaatburð þann, er átti
sér stað, er Jón gekk úr
keppni. Um frammistöðu
útvarpsins er best að hafa fá
orð, en ekki var sagt frá úrslit-
um landsflokkaglímunnar
samdægurs, hvað sem slðar
hefur orðið.
Af framangreindu má ljóst
vera, að hefði skrifum þlnum
verið sæmilega i hóf stillt
hefðir þú átt þakkir skilið og
það miklar. Hins vegar urðu
fullyrðingarnar og stuðning-
urinn við Jón Unndórsson ofan
á öllu öðru og þvl færð þú
skammir I stað þakka frá mér.
Það er rétt að taka málstað
lltilmagna, en hinu verður
ekki trúað að Jón UnndórSson
sé ekki nógu stór og sterkur til
að svara fyrir sig sjálfur, og
þvi hefði mátt leita álits
dómaranna á atburðinum og
glímulögunum i heild. Um
dóm þinn á „eyðilagningu”
fyrstu glimu Jóns fyrir honum
skal ég annars ekki fara fleiri
orðum, en þar er ein
fullyrðingin til, byggð á eigin
tilfinningum.
Ég vona að þú gætir betur
hlutlægni I skrifum þlnum frá
næsta glímumóti, og missir
ekki stjórn á tilfinningum þín-
um aftur. Það er mannlegt að
finnast Jón hafa átt að vinna
þótt Pétur hafi unnið, en þaö
er ekki réttmætt að telja öllum
lesendum Þjóðviljans trú um
að sllkt sé hið eina rétta.
Virðingarfyllst.
Erlingur Sigurðarson,
Ljósheimum 20, Rvlk
eigin afsprengi
ósvarað; sllk skrif svara sér
sjálf og vitna um lélegan mál-
stað.
Þegar ég skrifa greinar um
iþróttir legg ég mitt persónu-
iega mat á hlutina og skrifa
útfrá þvl. Auðvitað geta menn
verið á öðru máli, sitt hvað
væri nú, en þegar ég segi að
hin nýju glimulög nái engri
átt, meina ég það, og þess
vegna skrifaöi ég það en hljóp
ekki til Erlings og spuröi hvort
ég mætti segja þetta.
Ég tei að giiman ieggist
niður sem keppnisiþrótt vegna
þess að þegar búið er að setja
iög sem gera Iþróttina að
sýningaratriði, þá er vissu-
lega hætta á ferðum. Og
áhorfendur gengu ekki út af
Landsflokkagllmunni að
ástæðulausu. Erlingur spyr
hvers vegna ég hafi ekki gagn-
rýnt lagagreinarnar strax
eftir aö þær voru settar á þingi
GSt I haust. Ástæðan er ein-
Framhald á 22. siðu.
Fimleika-
meistara-
mótið
fer fram
5. og 6.
apríl
Meistaramót Fimleikasam-
bands tslands i áhaldafimleikum
veröur haldið laugardag og
sunnudag 5. og 6 apríl n.k.
Keppnin veröur háð I tþrótta-
húsi Kennaraháskóla tsiands.
Keppt verður I fimleikastigan-
um, eins og á s.l. ári en fimleika-
fólkið hefur smátt og smátt veriö
að fikra sig upp stigann.
Keppendur verða nú um 80 tals-
ins eða fleiri en nokkru sinni áður
og þarf þvi að skipa þeim á tvo
daga.
Fyrri daginn laugardaginn 5.
aprii keppa stúlkurnar en piltarn-
ir á sunnudaginn 6. apríl.
Báða dagana hefst keppnin kl.
15.00 og verður stefnt að þvl að
ljúka henni á 1 1/2 klukkutima
báða dagana.
Keppt verður I 4 aldursflokk-
um : 10 til 12 ára, 13 til 14 ára, 15 til
16 ára, 17 ára og eldri.
Verölaun verða veilt þeim
bestu I hverjum fiokki og einnig
þeim, sem flest stig hljóta, stúlku
og pilti.
Hér reynir óskar Sigurpálsson að jafnhatta 200 kg. sem er mesta þyngd
sem isiendingur hefur reynt við,og eins og sjá má munaöi ekki miklu
að lyftan tækist hjá óskari. Hann kom lóðunum upp, en hélt ekki jafn-
vægi. (Mynd: Einar)
„íslandsbaninn”
kemur með
Helsingör-liðinu
Meðal
þeirra leik-
manna sem
koma með
danska liðinu
Helsingör er
Jörgen Peter-
sen, sem fékk
viðurnefnið
„tslandsbani”
þegar hann
fyrir nokkrum
árum tók sig
til og gerði
uppá eindæmi
útum landsleik
tslands og
Danmerkur.
Þegar þáttur
Petersen hófst
hafði islenska
Iiðið náð yfir-
burðastöðu en
það réö ekkert
við hann og
danir sigruðu.
Slöan hefur
gengið á ýmsu
hjá Petersen.
Hann hefur
hætt og byrjaö
aftur, og oft
verið forráöa-
mönnum
handknatt-
leiks I Dan-
mörku erfiöur,
þegar sá gáll-
inn hcfur verið
á honum. En
nú leikur hann
með Helsing-
ör-liðinu og
sagður betri
en nokkru
sinni fyrr. Og
nú gefst Is-
lenskum hand-
knattleiks-
áhorfendum
tækifæri á að
sjá þennan
snilling leika
hér á landi um
páskana.