Þjóðviljinn - 26.03.1975, Síða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 27. marz 1975.
Uppljóstranir
fyrrverandi
CIA-foringja
1 upphafi viðtals þeirra Todds
og Marchettis ræða þeir um fortið
hins siðarnefnda, skoðanir hans,
ástæður þess að menn ganga á
mála hjá CIA og um það hvernig
hann gerðist handgenginn leyni-
þjónustunni. A árunum kringum
1960 fékkst Marchetti aðallega við
„kúbanska vandamálið”.
Hér verður gripið niður i
seinni hluta samtals þeirra Oli-
vers Todds og Victors Marchett-
is:
hugmynd um hvað var að gerast
á Kúbu. Það er mikið talað um
njósnir, og miklu logið um njósn-
ara, en ég hef ekki mikið álit á
þeim. Þeir eru bókstaflega vita
gagnslausir. Ef við hefðum, t.d. i
Kúbumálinu, þurft að reiða okkur
á þá við lausn erfiðustu upp-
lýsingavandamálanna, hefðum
við aldrei komist að raun um
hvað var á seyði. Njósnir einstak-
linga þjóna ekki miklum tiigangi i
dag.
O.T.: Þú varst einn þeirra, sem
uppgötvuðu eidflaugarnar á
Kúbu?
V.M.:... og það get ég sagt þér
að höfundur bókarinnar „Topas”
er hreinn skithæll.
O.T.: Leon Uris. Hversvegna?
V.M.: Vegna þess að hann
reynir að láta lita svo út, að
skáldsaga sin byggi á raun
verulegum atburðum, og það hafi
verið franskur foringi, sem al
einn hafi séð eldflaugunum ekið
gegnum bæinn, kvöld nokkurt.
Sagan um þessa hetju er hreinn
þvættingur.
O.T.: Siðan hvenær eru njósn-
arar orðnir óþarfir?
V.M.: Frá þvi um 1960. Ef við
hefðum farið eftir þvi sem njósn-
arar tjáðu okkur um gang mála
hefðum við alltaf haft á röngu að
standa. Tveimur árum áður en
sovétmenn komu fyrir eldflaug-
um á Kúbu fullyrtu njósnararnir,
að þær væru þar. t tvö ár töluðu
njósnararnir um sprengjuflug-
vélar, sem ekki voru til, og án
tæknibúnaðar okkar, hefðum við
vaðið i villu og svima.
O.T.: Þú varst i hópi þeirra
fyrstu, sem fengu nákvæmar
upplýsingar um sovésku eld-
flaugarnar. Með hvaða hætti
fengust þær?
V.M.: Með aðstoð flókins upp-
lýsingakerfis, sem byggir á elekt-
roniskum mælingum og mynda-
tökum. Þannig fengum við vit-
neskju um að eldflaugum hefði
verið komið fyrir á Kúbu. Þegar
þær lágu fyrir gerði greininga-
deildin krufningu á öllum upplýs-
ingum, sem CIA hafði yfir að ráða
um málið. Njósnarar okkar höfðu
ekki orðið varir við neitt. Fransk-
ir njósnarar, bandarískir og
njósnarar allra landa höföu ekki
O.T.: „VIД, á það einnig við
um Kennedy forseta?
V.M.: Já. Með þeirri tækni,
sem við réðum yfir, gátum við
vitað það sem gerðist, hvenær
það gerðist og vorum þess megn-
ugir að gefa forsetanum ráð til
þess að grundvalla ákvarðanir
sinar á.
Og ég get sagt það hér hvers-
vegna könnunarflug t.d. með U-2
vélum var mjög gagnlegt. Með
þessu flugi tókst okkur að sanna
að Sovétrikin höfðu á árunum
kringum 1960 ekki yfir að ráða
langdrægum eldflaugum, sem
hægt var að skjóta milli heims-
álfa. A þessum árum voru þeir að
þróa millilengdareldflaugar, sem
beina átti gegn bandarískum her-
stöðvum i Evrópu, en skotmörk i
öðrum álfum réðu þeir ekki við
Victor Marchetti og Oliver Todd á tali: — „Þegar öilu er á botninn
hvolft er CIA einungis verkfæri Hvita hússins”.
enn. Við höfðum talsvert forskot,
þótt sovétmenn héldu fram hinu
gagnstæða. Þegar þeir sem mót
uðu bandariska stjórnarstefnu á
þessum timum fengu fullvissu
fyrir þvi að svona væri i pottinn
búið höfðu þeir miklu meira svig-
rúm við stefnumótunina og gátu
komið fram af meiri einurð.
O.T.: Er þvi raunverulega
þannig varið i dag, að stórveldin
viti allt um athafnir hvers
annars?
V.M.: Já. Og það er ákjósan-
legast fyrir þau hvert um sig. Það
er betra en blöffið. Sá sem blöff-
ar, er hræddur, og veit ekki hvað
getur hlotist af þvi. Þú veist, að
okkur kom i hug að eyðileggja
sovétmenn rueð skyndiárás.
O.T.: Þú átt við að komið hafi
til áiita i Bandarikjunum að úti-
ioka vaxandi hernaðarmátt
Sovétrikjanna með skyndiárás og
koma þannig i veg fyrir hugsan-
legt gjöreyðingarstrið stórveld
anna?
V.M. Ég á við að nokkrir á-
hrifamenn i Bandarikjunum hafi
lagt þetta til i lok fimmta og i
byrjun sjötta áratugsins.
O.T.: Þú getur ekki látið okkur i
té nöfn þeirra?
V.M.: Nei.
O.T.: Eru einhverjir þeirra enn
við völd i Bandarikjunum?
V.M.: Nei, það held ég ekki. En
það sem ég er að reyna að skýra
út er einfaldlega það, að ringul-
reiðin hefði verið algjör ef við
hefðum þurft að reiða okkur á
njósnarana, og árangurinn orðið
slæm stjórnarstefna. Tæknilegar
aðferðir við upplýsingaöflun eru
hreinarguðsgjafir. Þær gera okk-
ur kleift að útrýma þjóðsögunni
um njósnarana.
O.T.: Og þótt þú hafir verið
starfsmaður CIA litur þú ekki á
þig sem njósnara?
Bandariska leyniþjónustan
CIA — (Central Intelligence
Agency) er öflugasta upplýs-
ingaþjónusta heims. A hennar
vegum starfa um 5 þúsund
manns, en i raun eru um 90 af
hundraði allra þeirra banda-
rikjamanna viðsvegar um
heim, sem starfa að fjarskipt-
um og úrvinnslu tölfræði-
gagna óbeint i þjónustu CIA.
Marchetti fellir harða dóma
um CIA og þá sérstaklega
„njósnaradeild” hennar, sem
hann segir að sé úrelt og gjör-
spillt. A vegum Banda-
rikjastjórnar fáist dcildin við
ýmiss konar afskipti i þriðja
heiminum og þróunarlöndun-
um, en sé gjörsamlega óhæf til
þess að afla vitneskju um at-
hafnir stórveldanna, Kina og
Sovétrikjanna. Astæðuna til
þess að liandariskjr ráða-
menn, þ.á.m.. Ford forseti,
leitast við að koma i veg fyrir
að starfsemi CIA verði rann-
sökuð ofan i kjölinn segir Mar-
chetti vera þá, að þeir óttist
að þá fáist staðfest að Banda-
rikjaforsetar hafa gefið skip-
anir um að pólitiskir leiðtogar
víða um heim skyldu myrtir.
Victor Marchetti er nú 46
ára að aldri. Hann komst fyrst
i snertingu við upplýsinga-
þjónustu á árum seinni heims-
styrjaldarinnar er hann starf-
aði fyrir upplýsingaþjónustu
Bandarikjahers i Þýskalandi.
Að loknu háskólanámi i
„sovietologi” og sögu i Pen-
sylvaniu réðst hann til CIA og
starfaði þar i 14 ár. A þeim ár-
um klifraði hann mjög i met-
orðastiganum og varð einn
helsti aðstoðarmaður yfir-
manna CIA. Marchetti starf-
aði eingöngu i könnunar- og
greiningardeild og fékkst
mest við upplýsingaúrvinnslu
um sovésk hernaðarmálefni.
Að þessum könnunum vann
hann i niu ár og varð að eigin
sögn allra sérfræðinga fróð-
astur um hernaðaraðstoð
Sovétrikjanna við kommún-
istarikin.
Frá þvi að Marchetti hætti
hjá CIA 1969 hefur hann unnið
að skriftum og lifað á fyrir-
lestrahaldi, eins og fleiri um-
deildir menn i Bandarikjun-
um. Marchetti segist jafnan
hafa kosið demókrata og Hta á
sig sem róttækan lýðræðis-
sinna.
V.M.: Nei, ég var upplýsinga-
tæknir, ég vann úr og skilgreindi
upplýsingastreymi.
O.T. 1 Vietnam var það haft að
orði að starfsmenn CIA væru
jafnan betur upplýstir en starfs-
bræður þeirra hjá öryggisþjón-
ustu hersins. t Saigon var sagt að
CIA hefði löngu áður en breytt
var um stefnu I Washington verið
búin að segja bandariskum ráða-
mönnum að hcrnaðarsigur væri
óhugsandi. Er það satt?
V.M.: Þetta er hreinasta fjar-
stæða. 1 fyrsta lagi var ein af á-
stæðunum fyrír þvi, að yfirmenn
Njósnakerfi CIA
er úrelt og spillt.
Njósnarar eru
til einskis nýtir.
Forsetar Band<
CIA að myrða s