Þjóðviljinn - 06.05.1975, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 06.05.1975, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 6. mal 1975. ÞJÓÐVIL — SÍÐA 9 Sá ytri glans, sem búinn er bandarisku þjóðfélagi er gerður af blóði, svita og tárum miljón- anna, sem byggja fátæktarlönd þriðja heimsins. Þess vegna hefur það á siðari árum og áratugum verið megin- verkefni bandariskrar utanrikis- stefnu, að halda niðri öllum hrær- ingum i þriðja heiminum, sem liklegar væru til að brjóta skarð i múrinn, og ryðja þjóðunum einni eða fleirum i senn leið undan oki heimsvaldastefnunnar. Þess vegna hefur það verið bandarisku leyniþjónustunni CIA sérstakt keppikefli að slökkva hvern neista áður en hann yrði að báli, þess vegna hafa bandariskir hermenn verið kvaddir til, þegar önnur ráð hafa ekki dugað. Þess vegna mátti ekki loga á kyndli Vietnam. Það var óttinn við bjarmann, sem bæri yfir löndin, er réði gerðum stjórnar- herranna i Washington, er þeir hugðust sprengja þetta land aftur á steinöld. Tákn nýrrar vonar Og nú logar glatt i Vietnam, — en það er ekki lengur eyðingar- eldur, sem þar brennur, heldur kyndill þjóðfrelsis og alþýðusig- urs. Og bjarmann ber yfir löndin, með nýrri von — inn i fátæktar- hreysin i Chile, þar sem ungir menn og konur búast á ný til sóknar undir merkjum Allende hins myrta leiðtoga og skálds sins Pablo Neruda, inn i frumskógar- hreysin i Boliviu þar sem Che Guevara féll, inn i myrkviði hinnar svörtu Afriku þar sem nafn Lumumba var eitt sinn tákn nýrrar vonar. Þeir, sem byggt hafa trú sina á almætti auðs og vopna, og reisa sitt ógnarvald i þvi skjóli, finna nú jörðina brenna undir fótum sér. Ótti heimsvaldasinna við for- dæmi Vietnam, hvorki var né er ástæðulaus, — þvi þeir munu lýð- ir löndum ráða, er útskaga áður byggðu. Okkar hlutur Sú var tið að við islendingar vissum gjörla hvar samúð okkar lá i átökum rikra þjóða og snauðra, vissum að barinn þræll er meiri maður en feitur þjónn enda sjálfir nýlenduþjóð um ald- ir. Margur er umskiptingur I okk- ar landi i dag og orðinn af aurum api. Við minnumst vitnisburða i islensku dagblaði fyrir um einu ári siðan, þar sem islenskt fólk lýsti þvi yfir að ef til þess kæmi að bandariski herinn yfirgæfi land okkar myndi það kjósa að fylgja honum vestur. Og kom engum á óvart, svo sem til hefur verið sáð, af þeim sem ráða yfir voldugustu áróðurstækjum i landinu. En sagt er að siðasta verk bandariskra hermanna i Vietnam hafi verið að varpa táragasi á þarlenda vini sina VL-mennina i Saigon og berja á fingur þeirra með byssustingjum, svo þeir ekki næðu að fylgja húsbændum sinum yfir hafið. Máske gætu þeir atburðir orðið til að kveikja nokkra umhugsun hjá einhverjum hérlenda lags- bræðra þeirra, sem fyrir táragas- inu og byssustingjunum urðu i Saigon. Islensk verkalýðshreyfing á mörg verk fyrir höndum. Eitt er það að hreinsa land okkar af soramarki bandariskrar heims- valdastefnu, herstöðinni á Mið- nesheiði og hasla okkur völl utan hernaðarbandalaga risaveld- anna. Sjálfra okkar vegna og vegna allra þeirra, sem berjast fyrir þjóðfrelsi og alþýðuvöldum vitt um heim er það skylda okkar að ljúka þvi verki sem fyrst. Þannig réttum við heila bróðurhönd til Vietnam. agsins wv'.'á&tí Sagt frá ráöstefnu um framtíöarverkefni fjölmiölunarrannsókna Rannsóknir á íslenskri fjölmiölun eru á frum- stigi. Þessi staðreynd kom mjög vel í Ijós á ráð- stefnu sem Félagsvís- indafélag íslands og Námsbraut í þjóðfélags- fræðum boðaði til á sunnudaginn í Árnagarði. Ráðstefnan var fjölsótt og nærvera margra blaða- og fréttamanna sýndi að starfandi fólk í stéttinni lætur sig nokkru skipta, hvað Háskólinn hyggst fyrir í fjölmiðla- rannsóknum og hvar þær eru á vegi staddar í dag. Á ráðstefnunni voru kynntar niðurstöður úr fjórum könnun- um nemenda, sem þau lögðu til grundvallar i BA-prófs ritgerð. Fyrsta ritgerðin fjallaði um sjónvarpsnotkun barna, önnur um lestur dagblaða i Reykjavik, hin þriðja um heimsmynd fréttaskeyta og islenska hlið- verði og hin siðasta var flokkun á útsendu efni i kvöldfréttatíma útvarps tvær vikur i fyrravor. Til stóð að kynna niðurstöður úr fimmtu könnuninni á auglýsing- um i sjónvarpi, en af þvi gat ekki orðið. Það var samdóma álit þeirra blaðamanna, sem tjáðu sig um þessar kannanir, að þær væru afar samviskusamlega unnar, mikil vinna lægi að baki þeirra, og þær sýndu talsverðan félags- fræðilegan þroska. Hinsvegar voru menn jafn sammála um að þær væru litt marktækar. Nem- endum eru ætlaðar sex vikur i ritgerðasmið fyrir BA-próf, þótt venjulega fari i það miklu lengri timi. Þegar rannsóknarverkefni er valið reyna nemendur i sam- ráði við kennara að takmarka það eftir föngum svo það verði viðráðanlegt. I þriðja lagi er mest áhersla lögð á að stúdent- ar temji sér félagsfræðileg vinnubrögð við úrlausn verkefn- anna, setji ritgerðina visinda- lega upp, velji sér kenningar- kerfi og tilgátur til að vinna eft- ir, setji upp töflur með niður- stöðum o.s.frv. öll þessi viða- mikla og visindalega umgerð þarf svo ekki endilega að vera i samræmi við inntak könnunar- innar né niðurstöður. Það þarf til dæmis ekki að bú- ast við algildum niðurstöðum úr könnun sem byggist á þvi að skoða úrvinnslu Morgunblaðs- ins, Visis, Þjóðviljans og út- varpsins úr tveggja daga skammti af fréttaskeytum frá NTB og AB. Hún getur hinsvegar verið MJOR ER MIKILS VÍSIR nógu timafrek i vinnslu og fé- lagsfræðilega rétt unnin. Könn- unin á lestri fólks á dagblöðum i Reykjavik getur gefið ýmsar góðar visbendingar. Þar kemur fram að menn lesa að meðaltali 1.7 blað á dag, 1.34 blöð eru keypt á heimili á dag, að meðal- tali eyða menn 46,9 min á dag i blaðalestur o.s.frv. Þá kemur fram að um 76% Reykvikinga lesa Morgunblaðið daglega 35% Visi, 27% Timann og 20% Þjóð- viljann. Hið sama má segja um frétta- timakönnunina i hljóðvarpi. Að visu þyrfti liklega að gera slika könnun ársfjórðungslega i eitt ár til þess að hún gæfi rétta mynd, en samt leiðir hún ýmis- legt athyglisvert i ljós. A þess- um hálfa mánuði rétt fyrir sið- ustu alþingiskosningar kemur meðal annars fram að regin- munur er á eðli innlendra og er- lendra frétta i kvöldfréttatim- um útvarps. Ef fréttum er skipt i átakafréttir (stjórnmál, efna- hagsmál, styrjaldir og ofbeldis- verk) og samstöðufréttir (menningarmál, iþróttir, fé- lagsmál, slys og annað) kemur i ljós að 96,1 prósent erlendu fréttanna eru átakafréttir, en einungis 24,7 prósent frétta af innlendum vettvangi. Einn ráð- stefnugesta komst þannig að orði, að þetta bæri ljósan vott um þá firru sem Islendingar væru haldnir að allt væri harla gott og átakalitið hér innan- lands. Þetta á lika sina skýringu i þvi að efni fréttaskeyta er- lendis frá er að miklu leyti spá- dómar, vangaveltur og getgátur um stjórnmál, efnahagsmál og styrjaldir, en samkvæmt frétta- reglum og þeirri hefð, sem skapast hefur á rikisfjölmiðlun- um, er nánast bannað að „spekulera” um islenska póli- tik. Þetta kom skemmtilega fram i könnuninni, sem hér um ræðir, þvi á þessum hálfa mán- uði fyrir kosningar var ekki minnst á þær i fréttum svo heit- ið gæti. Það fer ekki hjá þvi, þegar blaðamönnum er boðið að hug- leiða franitiðarverkefni fjöl- miðlunarrannsókna á Islandi, að þeir velti fyrir sér hvaða hagnýt not stéttin og fjölmiðl- arnir gætu haft af þeim. Það sem fyrst kemur I hugann er hinn algjöri skortur á undir- stöðurannsóknum sem svo sannarlega er fyrir hendi. Sagn- fræðin hefur ekki enn séð okkur fyrir blaða- og fjölmiðlasögu. Það er litið vitað um myndun og mótun þeirra fjölmiðla, sem við þekkjum i dag og vafalaust mætti draga margt fram i dags- ljósið um efnahagsgrundvöll þeirra og áhrif pólitiskra afla i starfsemi þeirra. Þessi vöntun hlýtur að skapa erfiðleika ef svo skyldi fara að hafin yrði kennsla i fjölmiðlun við Háskólann inn- an tiðar. Það væri afar þakklátt verk- efni fyrir námsbraut i félags- fræðum ef hún gæti á næstu ár- um kortlagt ýmis grundvallar- atriði i sambandi við hið innra starf á islenskum fjölmiðlum. Sem dæmi um spurningar, sem gaman væri að fá óhlutdræg svör við mætti nefna: Hverjir taka ákvarðanir á islenskum fjölmiðlum? Hverjar eru helstu heimildir fjölmiðlanna? Hvaða innlendar fréttir eiga greiðasta leið um fjölmiðlanna til neyt- enda? Hvernig koma flokkspóli- tisk áhrif fram i islenskum fjöl- miðlum? o.s.frv. Einnig væri hægt að hugsa sér að blaða- og fréttamenn gætu haft gagn af þvi, að nemendur i þjóðfélagsfræðum tækju að sér Skortir grundvallar- rannsóknir á íslenskum fjölmiðlum Niðurstaða könnunar: Útvarpsfréttir sýna engin innanlandsátök að bera saman meðferð fjöl- miðla á einhverjum tilteknum atburðum, innlendum eða er- lendum. A slikum samanburði, sem gerður væri á óhlutdrægan hátt og samkvæmt aðferöum, sem reyndar hafa verið t.d. á Norðurlöndum, mætti efalaust leiða margt fróðlegt i ljós, sem blaðamenn gera sér oft ekki grein fyrir i dagsins önn. Vafalaust eru rannsóknar- verkefni á sviði fjölmiðlunar ó- þrjótandi og islenska viðkvæðið um skort á tima, mannskap og fjármagni gildir um viðgang þessarar greinar sem annarra. Þeir sem hug hafa á þessum rannsóknum i Háskólanum geta þó látið margt gott af sér leiða, þótt rannsóknirnar verði ef til vill ekki stórbrotnar næstu árin. A ráðstefnunni i Arnagarði kom fram að blaðamenn voru ekki sáttir við sum þau hugtök, sem notuð voru i könnunum, og ábyggilega eru álitamálin mörg i sambandi við skilgreiningu og flokkun á efni og hugtökum fjöl- miðlunarfræða. Blaðamenn kvörtuðu sjálfir undan menntunarskorti stéttar- innar og vist er að ef samvinna á að takast milli Háskólans og blaðamannastéttarinnar um fjölmiðlunarrannsóknir er nauðsynlegt að talað sé sama málið. Eins og best mátti greina á máli Stefáns A. Halldórssonar BA, sem hefur blaðamanna- reynslu, er nauðsynlegt að þeir sem við rannsóknir fást þekki sérkenni islenskra fjölmiðla. A sama hátt liggur sú skylda, liggur mér við að segja, á herð- um háskólamanna, að kynna fyrir blaðamannastéttinni og öllum almenningi það nýjasta sem skrifaö er og rannsakað er- lendis’á sviði fjölmiðlunar- fræöa. Háskólinn ætti að leggja sitt að mörkum til þess að „skynvæða” fjölmiðlunarum- ræðu á íslandi. Það var t.d. mjög athyglisvert að heyra það á ráðstefnunni að sú kenning, sem átt hefur miklu fylgi að fagna meðal fræðimanna um nokkurt skeið, að áhrif fjölmiðla séu ekki eins og „innspýting i æð” heldur miklu flóknari og ó- beinni og stuðli fyrst og fremst að þvi að viðhalda þeim skoðun- um sem fyrir eru hjá móttak anda, eigi fyrst og fremst við skammtimaáhrif. Þýskir fræði- menn hafa nýlega birt niður- stöður könnunar á hópi manna, sem fengu heimsent „nýtt blað” um eins árs skeið, og benda þær til að skoðanir hópsins hafi al- mennt hneigst að viðhorfum nýja blaðsins. Langtimaáhrif fjölmiðlunar hafa til þessa, af eðlilegum ástæðum, litið verið könnuð, en niðurstöður sem þessar hljóta að leiða til endur- mats kenninga. Fjölmiðlar á tslandi gætu á sinn hátt stutt við bakið á fjöl miðlunarrannsóknum i Háskól anum, t.d. með þvi að leita sam komulags við háskólamenn um hagnýt rannsóknarverkefni og styrkja þau fjárhagslega. Jafn- framt hlýtur það að verða fjöl miðlunarrannsóknum til styrkt ar ef að forráðamenn blaðanna hefðu manndóm i sér til að birta á ári hverju tölulegar upplýs ingar um fjárreiður, upplag og dreifingu, sem hægt væri að reiða sig á og staðfestar væru af opinberum aðilum, t.d. eins og hagstofunni. EinarKarl.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.