Þjóðviljinn - 06.05.1975, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 6. mai 1975.
og Lovísa Sigurðardóttir varð íslandsmeistari
Haraldur aftur
þrefaldur
Islandsmeistari
— Ég sagði þér alveg satt um daginn, ég átti alls ekki von á að verja alla titlana
þrjá, sagði Haraldur Kornellíuisson er hann gekk af velli eftir að hafa unnið þriðja
Islandsmeistaratitiiinn i badminton í tvenndarleik á sunnudaginn var. Haraldur
hafði sagt fyrr i vikunni að hann teldi sig enga von eiga um að verja alla titlana
þrjá, en það fór nú samt svo; hann sigraði í einliðaleik, í tvíliðaleik ásamt Steinari
Petersenog i tvenndarleik ásamt Hönnu Láru Pálsdóttur. Þau háðu skemmtilega
keppni Haraldur og Lovisa Sigurðardóttir um það hvort þeirra hreppti 3 islands-
meistaratitla en það gat ekki orðið nema annað hvort þeirra, þar sem þau voru
andstæðingar í tvenndarieiknum. Og það var Haraldur sem hafði það. Lovísa varð
að láta sér linda tvö gull og eitt silfur. En hún sýndi það i þessu móti að hún er í sér-
f lokki hjá kvenfólkinu í badminton, alveg eins og Haraldur í karlaf lokki.
Þetta íslandsmeistaramót fór i
alla staöi vel fram en þaö sem aö
er f badmintoninu hjá okkur er
hve breiddin er lltil. Þar sem
Haraldur keppir er hann öruggur
um sigurog þar sem Lovisa kepp-
ir í kvennaflokki er hún örugg um
sigur. Yfirburöir þeirra i einliöa-
leik voru algerir og eins þegar
þau kepptu meö félögum sinum i
tviliðaleik. Þaö er næsta furðu-
legt hve breiddin er litil i bad-
mintoninu miðað við hve margir
iðka það og hve margir taka þátt i
mótum.
I þrepinu fyrir neðan Harald og
Lovisu er svo stór hópur sem er
svo jafn að getu að engin leið er
að spá neinu um úrslit en einmitt
þannig þyrfti það að vera á toppn-
um. Að visu vantaði þann eina
sem getur veitt Haraldi keppni,
Sigurð Haraldsson, hann gat ekki
tekið þátt i mótinu vegna próf-
anna, en samt er ótrúlegt aö
Sigurði hefði tekist að stöðva
Harald, honum hefur ekki tekist
það undanfarin ár.
En snúum okkur þá að keppn-
inni sjálfri.
í einliðaleik karla lék Friðleifur
Stefánsson gegn Haraldi. Frið-
leifuráttialdrei neina möguleika,
Haraldur sigraði 15:5og 15:8. Og i
einliðaleik kvenna lék Svanbjörg
Pálsdóttir gegn Lovisu og átti
heldur enga möguleika, Lovisa
sigraði 11:6 og 11:1.
1 tviliðaleik sigruðu þeir
Haraldur og Steinar þá Otto
Guðjónsson og Sigurð Ægi 15:5 og
15:6, sem sagt algerir yfirburðir.
Það sama varð uppá teningnum
hjá þeim Lovisu og Hönnu Láru
þegar þær mættu Erlu Friðriks-
dóttur og Ernu Franklin, þær
fyrrnefndu sigruðu 15:2 og 15:3.
Eini leikurinn sem einhver
keppni var i, var i tvenndarleikn-
um. Þar léku þau Haraldur og
Hanna Lára gegn Lovisu og
Steinari Petersen. Fyrstu lotuna
unnu Haraldur og Hanna 15:8, en
aðra lotuna unnu Steinar og Lo-
visa 15:8, þannig að til oddalotu
varð að koma og hana unnu þau
Haraldur og Hanna 15:10.
1 A-flokki varð Jóhann G. Möll-
er tvöfaldur Islandsmeistari.
Haraldur Kornellusson hlaðinn verölaunagripum.
Hann sigraði Hannes Rikharös-
son i einliðaleik 15:8 og 15:11 og
þeir Jóhann og Axel Ammendrup
sigruðu Finnbjörn Finnbjörnsson
og Sigurð Jensson i tviliðaleik
15:4 og 15:12. I tvenndarleik
sigruðu þau Hannes Rikharðsson
og Kristin B. Kristjánsdóttir.
1 einliöaleik kvenna sigraði
Kristin B. Kristjánsdóttir og i tvi-
liðaleik kvenna sigruðu þær
Maria Jóhannesdóttir og Oddfrið-
ur Jónsdóttir, en þær eru báðar
frá Siglufirði.
Mótinu var slitið seinnipart
dags á Sunnudag og gerði það
Karl .Maack form- Badminton-
sambands Islands; afhenti hann
verðlaun og sleit siðan mótinu.
Lovlsa Sigurðardóttir sigurvegari I einliða- og tviliöaleik kvenna.
Badminton:
Kínverjarsigruöu
vestur-þjóöverja
Um siöustu helgi fór fram
landskeppni I badminton milli
kfnverja og v-þjóöverja I V-
Berlin. Svo fóru leikar aö kln-
verjarnir sigruðu 6:2 og vakti
það sérstaka athygli aö kin-
verjarnir unnu alla einliöa-
leikina.
Jóhann G. Möller sigurvegari I
einliöa- og tviliöaleik i A-flokki.