Þjóðviljinn - 06.05.1975, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 06.05.1975, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 6. mai 1975. Frá Tækniskóla íslands ÁÆTLUÐ STARFSEMI 75/76 Almenn menntun: Undirbúningsdeild i Reykjavik, á Akureyri og IsafirBi. Raungreinadeild i Reykjavfk, á Akureyri og Isafiröi. Raungreinadeild fyrir tækna I Reykjavik. Tæknadeildir í Reykiavik Þetta nám tekur 3 kennsluannir eftir undirbúningsdeild — sérákvæöi gilda þó I meinatæknadeild. Rafmagn: Framhaldsmenntun fyrir iðnaöarmenn I raf- virkjun og rafeindavirkjun. Vélar: Framhaldsmenntun fyrir málmiðnaðarmenn. Byggingar: Framhaldsmenntun fyrir byggingariðnaöar- menn. ■ Útgerð: Framhaldsmenntun fyrir stýrimenn og aðra með drjúga starfsreynslu. Tæknifræðideildir i Reykjavik Þetta nám tekur 3 ár (og riflega þó I byggingadeild) eftir raungreinadeild. 1. hluti I byggingum, vélum, rafmagni, rekstri og skipum (Námi 12. og 3. hluta I öðru en byggingum verður að ljúka erlendis.) 2. og 3. hluti I byggingum og auk þess lokaverkefni I 2 1/2 mán. Inntökuskilyrði Bókleg Krafist er þessarar eða hliðstæörar undirbúningsmennt- ur.ar: t undirbúningsdeild: Burtfararpróf úr iðnskóla, gagn- fræðapróf eða landspróf miðskóla. Auk þess búfræðingar, hverju sinni eftir tilmælum Bændaskólans á Hvanneyri. I raungreinadeild: Undirbúningsdeild tækniskóla, 4. stig. vélstjóranáms, stúdentspróf (önnur en eðlissviðs). t tæknadeildir (aðrar en meinatæknadeild): Undirbún- ingsdeild tækniskóla. t 1. hluta tæknifræði: Raungreinadeildarpróf tækniskóla, stúdentspróf eðlissviðs. Verkleg 1. Vegna náms I rafmagni, vélum og byggingum: Sveinspróf eða verkleg þjálfun, sem felur I sér jafngilda þekkingu á vinnubrögöum og veitt er I skyldu iðnnámi, þótt umsækjandi þurfi ekki að hafa náð þeirri starfsleikni og bóklegri fagþekkingu, sem krafist er til sveinsprófs. I vafatilfellum er haldið inntökupróf. 2. Vegna náms I útgerð: Starfsreynsla á fiskiskipum og við fiskvinnslu a.m.k. 12 mán. við upphaf náms og a.m.k. 18 mán. viö lok náms. 3. Vegna náms I skipatæknifræði: Eftir raungreinadeildarpróf geta nemendur farið I 4ra ára nám I skipatæknifræöi I Helsingör I Danmörku. Hér er ekki gerð forkrafa um verkkunnáttu. Sérstakra takmark- ana getur oröið þörf á fjölda nemenda á þannig náms- braut. Umsóknarblöð fást á skrifstofu skólans aö Skipholti 37, mánudaga til föstudaga kl. 8,00-16,00. Umsóknir þurfa að hafa borist skólanum fyrir 10. júnl og skrifleg svör verða send fyrir 14. júní. Skrifstofan veröur lokuð 14. júnl til 20. júll. Starfræksla allra deilda er bundin fyrirvara um þátttöku og húsrými. Skólaárið 75/76 hefst 1. sept. Kennsla I undirbúningsdeild og byggingadeild IV (lokaverkefni) hefst þó ekki fyrr en 1. okt. þegar öll starfsemi skólans I Reykjavlk verður flutt aö Höfðabakka 9. Nemendum, sem hyggjast stunda nám I undirbúnings- deild og raungreinadeild á Akureyri eða Isafiröi, ber aö snúa sér til skólastjóra iðnskóla á þessum stöðum. Ath: Um starfsemi meinatæknadeildar verður auglýst sérstaklega um næstu mánaðamót. Rektor. Uppistööuvatn I Sir-Parja 1 Kazakhstan og Mið-Asiu er ekki nægilegt vatn. Gerð hefur verið áætlun um að veita vatni úr fljótum Siberiu til suðurs. Sam- kvæmt beiðni APN segir Igor Gerardi, yfirverkfræðingur áætl- unarinnar frá framkvæmdunum. Tvær helstu árnar I Mið-Asiu og Kazakhstan, sem eru lifsæðar stórra landflæma, munu I náinni framtið ekki lengur geta fullnægt vatnsþörf vaxandi landbúnaðar og iðnaðar þessa landshluta. Áætlað er að stækka áveitulönd lýðveldanna I Mið-Asiu um 4 milljón hektara aðeins fyrir baðmullarræktina og mun þá baðmullarræktin og fleiri greinar krefjast 200 milljarða rúmmetra vatns umfram þær vatnsbirgðir, sem til eru i Mið-Asiu. Ræktarlönd og haglendi i Kazakhstan þarfnast mikils vatns, en þaðan kemur allt að fjórði hluti kornuppskerunnar i Sovetrikjunum og er beitt þar yfir 50 miljón fjár. Ef 4 miljón hektarar væru vökvaðir i viðbót, mætti næstum tvöfalda sauðf jár- eign i Kazakhstan. Það er ekki hægt að leysa vatnsvandamálið án þess að nota vatnsbirgðir fljótanna i Siberiu, Irtish, Ob og Jenesej. Hugmyndin um að veita vatni frá Siberiu er næstum 100 ára gömul. Landbúnaðarsérfræð- ingurinn og loftlagssérfræð- ingurinn Demsjenko gerði fyrstu áætlunina af þeirri gerð i lok siðustu aldar. Dirfska hans er undraverð i dag. Hann gerði ráð fyrir þvi að veita Ob og Jenesei til suðurs i Aralo-Kaspisksvæðið. Með þvi hefði mátt hækka yfir- borð Kaspiahafs um 70 metra. Ar sem renna upp í móti Þá voru þetta djarfar hug- myndir, en þó aðeins hugarórar. Það er ekki fyrr en núna, að visindalegir og efnahagslegir möguleikar gera kleyft að veita ám Siberiu til Mið-Asiu og Kazak- hstan. Vænlegust þykir sú áætlun, þar sem gert er ráð fyrir, að skurðurinn hefjist við mót Irtysh og Tobol. Þaðan liggur hann beint til suðurs, liggur yfir Syrdarju i nágrenni borgarinnar Dzjusala og endar við Amúr- darju, þar sem hún rennur gegnum Sultan-Ozdag-fjall- garðinn. Við mót Irtysh og Tobol munu dælur dæla vatninu i 10-16 metra hæð. Þaðan rennur það til borg- arinnar Zavovoúkocsk i Vestur- Siberiu. Þar verða tvær dælu- stöðvar, sem dæla vatninu upp á Túrgaisk-hásléttuna. Fyrsta stig áætlunarinnar gerir ráð fyrir að nýta 25 miljarða rúm- metra af vatni úr ám Siberiu á ári. Annar áfangi gerir ráð fyrir, að þeir verði 50 miljarðar og sá þriðji 75 miljárðar. Vatni úr Jenesej verður veitt til Ob, henni til hjálpar. Getur þetta ekki haft skaðleg áhrif á landslag i Siberiu? Við höfum hugsað okkur að gera þetta allt saman smátt og smátt. I fyrsta áfanga tökum við aðeins 2.5% af heildarvatnsmagni fljót- anna i Siberiu. Útreikningar hafa leitt i ljós, að það mun ekki hafa neikvæð áhrif á lofstlag og umhverfisaðstæður i Vestur- Siberiu. 1 næsta áfanga verða tekin 5% og látum við það nægja, meðan grundvallarrannsóknum Sovézku Visindaakademiunnar er ekki lokið að fullu. 1 minum augum verður skurð- urinn tilbúin á, sem er 3 þúsund kilómetrar á lengd, 350-400 metra breiður og 12-15 metra djúpur. Slikt mannvirki á ekki sinn lika i heimi vatnstækninnar. Þetta verður i raun og veru önnur Amúrdarja fyrir Mið-Asiu. Framkvæmdirnar eru svo umfangsmiklar, að ein kynslóð getur varla lokið þeim. Við hefjum starfið, en afkomendur okkar munu ljúka þvi. Heyrn mjólkurfrœðinga 1 Þjóðviljanum 16. þ.m. birtist frétt um kjaradeilu starfsfólks i mjólkurbúum og vinnuveitenda, og er meginuppistaða fréttarinn- ar viðtal við Þórarin Sigmunds- son, mjólkurfræðing. Þar sem i frétt þessari koma fram villandi og beinlinis rangar upplýsingar varðandi heyrnarvernd og heyrnarmælingar á vegum heyrn ardeildar Heilsuverndarstöðvar Reykjavikur-vill undirritaður taka fram eftirfarandi: Sagt er, að ’niðurstöður af heyrnarmælingum hafi verið bornar saman við niðurstöður af heildarrannsókn, sem gerð var á bankamönnum og járniðnaðar- mönnum. Hafi starfsmenn Mjólk- urbús P’lóamanna komið ,,mun verr út en járnsmiðir”. t skýrslu undirritaðs um niður- stöður heyrnarmælinga á starfs- fólki Mjólkurbús Flóamanna er þess getið, að heyrn starfsfólksins séyfirleitt ,,verulega ábótavant,,. Siðan er skýrt frá þvi að helming- ur þeirra 22ja mjólkurfræðinga, sem mældir voru hafi haft lakari heyrn á tiðnisviðinu 4.000 Hz en járniðnaðarmenn að meðaitali. Hafi þetta einkum verið sláandi i aldursflokknum 21—30 ára. t skýrslunni er skýrt tekið fram, að úrtakið sé hins vegar svo litið. aö varasamt sé að draga af þvi nokkra ályktun.T.d. mætti nefna, að einmitt i flokknum 21—30 ára voru 5 mjólkurfræðingar, sem allirhöfðu notað eða notuðu skot- vopn ,,stundum” eða ,,oft”. Heymartap á tiðnissviðinu i kring, um 4.000 Hz er mjög einkennandi fyrir þá sem nota skotvopn, hvort heldur sem þeir vinna i mjólkur- búum eða annars staðar. í skýrslum undirritaðs um of- angreindar niðurstöður á heyrn- armælingum eru likur að þvi leiddar að meginorsök þeirrar heyrnarskerðingar, sem fram kemur sé vafalitið of mikill há- vaði, enda sýna hávaðamælingar i mjólkurbúum viða heyrnarskerð andi hávaða. Hins vegar liggja ekki fyrir niðurstöður af sam- bærilegum eldri heyrnarmæling- um, þannig að ekki er hægt að rekja feril heyrnartapsins. Að lokum getur Þórarinn um kröfur þær, sem starfsmenn i mjólkurbúum gera varðandi há- vaðavarnir á vinnustað. Lýkur svo fréttinni með þessari furðu- iegu staðhæfingu: ,,Þessar heyrnarhllfar, sem viða eru not- aðar, eru engin lausn hér. Maður þolir þær illa og svo koma þær ekki að neinu endanlegu gagni”. Hér kemur fram i hnotskurn sá hugsunarháttur, sem staðið hefur heyrnarvernd á vinnustöðum, hvað mest fyrir þriíum. 1 bæk- lingi atvinnusjúkdómadeildar Heilsuverndarstöðvar Reykja- vikur ,,Hávaði á vinnustað” eru gefnar upp þrjár megin-leiðir til að forðast skaðlegan hávaða: a) Með þvi að fjarlægja hávaða- valdinn, eða gera ráðstafanir til að draga úr hávaða. b) Með þvi að breyta um vinnu- aðferðir, þannig að unnið sé sem skemmst i einu, þar sem mikill hávaði rikir. c) Með þvi að nota eynratappa eða heyrnarhlifar. Könnun á hlifanotkun meðal starfsfólks i þremur mjólkurbú- um hér á landi leiddi i ljós, að sárafáir nota heyrnarhlifar eða aðra heyrnarvörn. Þvi má með sanni segja; að sú heyrnarskerð- ing, sem fram kemur hjá starfs- fólkinu sé að vissu leyti sjálfskap- arviti. Að sjálfsögðu ber að krefjast þess að vinnuveitendur geri allar þær ráðstafanir, sem tiltækar eru til að draga úr hávaða á vinnu- stað. Starfsfólkið verður lika að Framhald á 15. siðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.