Þjóðviljinn - 03.06.1975, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 3. júni 1975 — 40. árg. —122. tbl.
Hval ver-
tíð tefst
Hvalbátarnir
komast ekki út
fyrr en samið
hefur verið i
Hvalstöðinni
Hvalvertíðin átti að hefjast i
fyrrinótt en ekkert varð af þvi
að bátarnir héldu út vegna
þess að enn er ósamið við
starfsfólk Hvalstöðvarinnar.
Þorleifur Bjarnason, for-
maður Verkalýösfélags Hval-
fjarðar, sagði i gær, að ekki
yrði hafin vinna i Hvalstöðinni
fyrr en samningar hefðu verið
gerðir. Fyrir utan almennar
kröfur ASÍ fer verkalýðs-
félagið m.a. fram á sérstakt
óþrifaálag, þrjá næturvinnu-
tima fyrir heimferð i stað eins
og hálfs áður, og kr. 10 þúsund
i fatapeninga i stað 'i þúsund
áður.
Þorleifur sagði,að forráða-
menn Hvalstöðvarinnar teldu
sig ekki geta tekið afstöðu til
þessara sérkrafna fyrr en
samið hefði verið um almenn-
ar kauphækkanir i landinu.
Samningaviðræður hafa ekki
átt sér stað i Hvalstöðinni
siðan fyrir helgi.
Hvalvertiðin getur semsagt
ekki hafist fyrr en samið hefur
verið i Hvalstöðinni, en þar
vinna um 60 til 80 manns.
Dagana fram að verkfalli 11.
þ.m. mætti,að sögn Þorleifs
veiða allt upp i 40 hvali, ef vel
viðrar. Yrði svo um langt
verkfall að ræða væri ljóst að
besti timi hvalvertiðarinnar
færi forgörðum.
VERKAL ÝÐSHRE YF-
INGIN VANN SIGUR
í DAG
Þvingunarlögin
1942.
Sjá 6. síðu
Sumar búvörur
Rœtt við forseta hækka.
B.Í.L. Sjá opnu. Sjá baksíðu
STJORNIN GAF
EFTIR
Þvingunarlögin komust aldrei í
framkvœmd og eru marklaust plagg
Eins og við var að búast liggja
þvingunarlög rikisstjórnar Geirs
Hallgrimssonar nú sem mark-
laust plagg i skrifstofu hans i
stjórnarráðinu, þau komust
aidrei i framkvæmd, verkalýðs-
hreyfingin og starfsfólk rikis-
verksmiðjanna braut þessi ólög á
bak aftur með samtakamætti
sinum. Rikisstjórn Geirs Hall-
grimssonar tókst ekki frekar en
öðrum rikisstjórnum að setja
þvingunarlög á islenska verka-
lýðshreyfingu. Hún vann fullan
sigur þegar þess var óskað af
rikisstjórninni að viðræður yrðu
teknar upp að nýju milli
samninganefndar verkalýðsfé-
laganna og rikisverksmiðjanna.
Framhald á 14. siðu.
STEYPUBILAR
FYLLTU MIÐBÆINN
A ellefta timanum i gær óku um fimmtiu steypubílar frá steypustöðv-
unum i Reykjavík nokkra hringi kringum Tollstöðvarhúsið, þar sem
næturfundur I rikisverksmiðjudeilunni stóð yfir. Þeyttu bilstjórarnir
flautur sínar og vakti þetta tiltæki, sem vafalaust hefur átt að vera
krafa um að samningum væri flýtt, talsverða athygli. Samninga-
mönnum i Tollstöðvarhúsinu fannst þetta þó flestum léleg fyndni eins
og samningastaðan var i nótt. Þá höfðu samningamenn einnig orð á þvi
að starfsfólk steypustöðvanna hefði getað sýnt starfsfólki rikisverk-
smiðjanna samhug og stéttvisi á annan hátt en þennan.
MIKILL
SKRIÐUR
á samningum í ríkisverksmiðjum
Mikill skriður var á samningum i rikisverksmiðjudeilunni I gærdag og I
gærkvöldi. Virðist nú ætla aö sannast sú afstaða samningamanna
starfsfólks i verksmiðjunum og verkalýðsforystunnar, að ekki hafi
verið óbrúanlegt bil i samningunum, þegar rikisstjórnin gerði tilraun
sina til þess að setja á þvingunariög i deilunni. Samningamenn voru
bjartsýnir i gærkvöldi og vænta má að málin hafi skýrst mjög á fund-
inum i nótt.
Aðalfundur Dagsbrúnar:
V erkf allsheimildin
samþykkt einróma
Aðalfundur Dagsbrúnar var
haldinn i Iðnó á laugardaginn. 1
upphafi minntist formaður
félagsins látinna félagsmanna. 52
félagar höfðu iátist á árinu. 367
félagar bættust á féiagsskrá.
424 félagsmenn nutu bóta úr
Styrktarsjóði Dagsbrúnar á sl.
ári, og greiddi sjóðurinn rösklega
7 milj. kr. i bætur. A vegum Lif-
eyrissjóðs Dagsbrúnar og Fram-
sóknar annaðist skrifstofa félags-
ins greiðslu til Dagsbrúnar-
manna skv. lögum um greiðslur á
lifeyri til aldraðra i' stéttarfélög-
um. 471 Dagsbrúnarmaður eða
ekkjur fengu greidd þessi eftir-
laun og var heildarfjárhæðin um
25 milj. kr.
Greiddar bætur og lifeyrir til
Dagsbrúnarmanna nam þvi alis
um 33 milj. kr. sl. ár.
Aðalfundurinn samþykkti að
árgjald félagsmanna fyrir 1975
skyldi vera 5.000 kr.
A fundinum var einróma sam-
þykkt heimild til handa trúnaðar-
mannaráði félagsins að boða
vinnustöðvun frá og með 11. júni
næstkomandi hafi samningar
ekki tekist fyrir þann tima.
Lýst var stjórnarkjöri, sem
fram fór i lok janúar og varð til-
laga stjórnar og trúnaðarráðs
sjálfkjörin: Formaður Eðvarð
Sigurðsson, varaformaður Guð-
mundur J. Guðmundsson, ritari
Halldór Björnsson, gjaldkeri Pét-
ur Lárusson, fjármálaritari,
Andrés Guðbrandsson og með-
stjórnendur Baldur Bjarnason og
Gunnar Hákonarson, i varastjórn
eru Ragnar Geirdal Ingólfsson,
Högni Sigurðsson og Þórður Jó-
hannsson.
TT. r .
OSW.:«F 1«^ .. T
Benedikt Gröndal, Magnús Kjatansson og Magnús Torfi Ólafsson á
leið inn i stjórnarráðshúsið i gærmorgun.
Saniráð við
stjórnar-
andstöðu-
flokkana?
Kl. 11 i gærinorgun héidu full-
trúar stjórnarflokkanna og
stjórnarandstöðu til fundar að
kröfu stjórnarandstöðunnar
eins og getið var i blaðinu á
laugardag. Fulltrúi Alþýðu-
bandalagsins i þeim viðræðum
var Magnús Kjartansson
alþingismaöur.
Hann skýrði Þjóðviljanum
svo frá i gær, að hann hefði á
fundi þessum gert grein fyrir
þeirri afstöðu stjórnarandstöðu-
flokkanna,að þeir styddu ein-
læglega verkalýðshreyfinguna
og starfsfólk verksmiðjanna
þriggja. Lagði hann jafnframt
áherslu á, að þing yrði kvatt
saman, ef öngþveitisástand
skapaðist i þjóðfélaginu,vegna
þess að stjórnin fengi ekki við
neitt ráðið. Þá var þess krafist
að stjórnarandstaðan yrði látin
fylgjast með gangi mála áður en
til meiriháttar ákvarðana
kæmi, þannig að stjórnarand-
stöðuflokkarnir hefðu aðstöðu
til þess að koma sjónarmiðum
sinum á framfæri.
Geir Hallgrimsson og ölafur
Jóhannesson hefðu lýst þvi yfir,
að þeir hefðu einnig áhuga á að
hafa samráð við stjórnarand-
stöðuna
Fund þennan sóttu auk
Magnúsar Kjartanssonar:
Benedikt Gröndal og Kjartan
Jóhannsson af hálfu Alþýðu-
flokksins, Magnús Torfi
Ólafsson af hálfu Samtaka
frjálslyndra og vinstrimanna og
ráðherrarnir Ólafur
Jóhannesson og Geir Hall-
grimsson.
Astandið í ríkisverksmiðjunum — Sjá baksiðu