Þjóðviljinn - 04.06.1975, Page 3

Þjóðviljinn - 04.06.1975, Page 3
Miövikudagur 4. ji&nf 1975 ÞJóÐVILJINN — SIDA 3 Ný pökkunaraðferð Geymsluþol mjólkur a.m.k 6 mánuðir í stofuhita Með tilkomu nýrrar pökkunaraðferðar mjólk- urvara, sem Mjólkurbú Flóamanna og Mjólkur- samsalan eru að gera til- raunir með, verður unnt að geyma mjólk i a.m.k. hálft ár og jafnvel mun lengur þótt viðstofuhita sé. Fleira kemur þó til en pökkunar- aðferðin sjálf, því geril- sneyðingin er mun viða- meiri en áður, en veldur að sögn óverulegum bragð- breytingum. Strax i dag er reiknaö meö aö fyrstu mjólkurvörurnar, sem unnar eru á þennan hátt, komi i Vilborg hœttir verslanir. Kókómjólk og kaffi- rjómi svokallaöur koma fyrst á markaöinn og ef vel tekst til er ekki óliklegt, aö venjuleg mjólk sjáist i þessum umbúöum i fram- tiöinni. Tækjabúnaöur Mjólkur- bús Flóamanna, sem vinnur þessa nýju vöru, leyfir þó ekki nema pökkun á 1/4 liters magni, og er ljóst, aö mjólk I stærri um- búöum veröur ekki fáanleg fyrr en eftir a.m.k. 1 1/2 ár. Á blaöamannafundi, þar sem nýja aöferöin varkynnt,sögöufor- ráöamenn framleiösluaöila, aö á- stæöan fyrir þvi, aö ekki væri þegar ráöist i pökkun mjólkur með þessari aöferö, vær i sú að þessi frágangur vörunnar væri töluvert dýrari og þvi ekki ráölegt aö senda hana á markaö, þar sem ávallt er hægt aö fá nýja mjólk. Þó var minnst á landshluta eins og t.d. Vestfiröi og Vestmanna- eyjar, sem oft fá enga mjólk vegna samgönguerfiöleika. Sagöi Oddur Helgason, sölustjóri Mjólkursamsölunnar, að oft skapaöistalgjört ófremdarástand i mjólkurdreifingu á veturna vegna samgönguerfiöleika og mundi nýja pökkunaraöferöin leysa þaö vandamál fullkomlega. Kostnaöur vegna umbúöa mjólkurvara er um þessar mund- irca. 10% af heildarveröi vörunn- ar. Sú prósentutala kemur til með aö hækka eitthvað með tilkomu þessarar breyttu aöferöar en ó- neitanlega hlýtur hún aö henta vel fyrir t.d. togaraflotann og ým- is önnur skip sem lengi eru úti, sumarbústaöaeigendur, ýmsa matsölustaði og siöast en ekki sist fyrir hin afskekktu héruö lands- ins. Nánar veröur sagt frá málefn- um, sem tengjast mjólkuriönað- inum, i blaðinu á morgun. —gsp Sverrir ólafsson kemur til meö aö vera eini mjólkurfræöingurinn, sem þarf aö standa yfir hinum nýju og fullkomnu pökkunarvélum, og meö honum þurfa ekki aö vera nema 1—2 starfsmenn aörir. Hér heldur Sverrir á kassa meö 18 kvartlitersumbúöum af kókómjólk. ! baksýn er hluti pökkunarvélarinnar, en til hægri sést i nýju gerilsneyöingartækin. Kostnaöur viö uppsetningu tækjanna var um 25 miljónir. Atvinnuleysi skólafólks Ekkert rœtist úr Það rætist lítið úr því atvinnuleysi sem hrjáir skólafólk þessa dagana. Enn eru á þriðja hundrað manns skráðir atvinnu- lausir hjá vinnumiðlunum menntaskólanema og stúdenta. Bergþór Pálsson hjá vinnu- miölun menntaskólanema kvaö ástandið litiö hafa breyst. Um 170 menntskælingar hafa látiö skrá sig hjá miöluninni og af þeim er töluvert á annaö hundrað enn atvinnulausir. Sagöi Bergþór aö greinilegt væri aö atvinnurek- endur héldu aö sér höndum vegna aðsteöjandi verkfalls og sömu- leiöis eru menntskælingar smeykir viö aö ráöa sig til starfa útiá landi. Vinnumiðlunin starfar út þessa viku en þá veröur henni hætt. — Þaö þýðir ekkert aö standa i þessu ef verkfall skellur á, sagöi Bergþór. Þorsteinn Magnússon hjá vinnumiölun stúdenta sagöi aö enn væru nær 100 stúdentar atvinnulausir. Tekist hefur aö útvega 25 manns vinnu og 22 hafa orðið sér sjálfir úti um starf. — Útlitið er fremur svart, sagöi Þorsteinn, vinnutilboöum hefur fækkaö, td. hefur ekkert borist i dag. Ég hef hringt út á land en þar er litla vinnu aö hafa og td. i Grindavik eru menn á biölista eftir vinnu i frystihúsunum. Aö visu var vinnu aö fá i Neskaup- staö en , þar var þá ekkert húsnæöi. Svo eru atvinnurek- endur tregir til aö ráöa vegna verkfallsins. —ÞH Samband islenskra bankamanna: Mismunun kynja í bönkum verði könnuð Þing Sambands islenskra bankamanna, sem haldiö var fyrir nokkru geröi meöal annars samþykkt um jafnréttismál. Þar segir m.a. „Þing SÍB hvetur til öflugrar baráttu fyrir nýjum viðhorfum og breytingum, sem tryggja full- komiö jafnrétti karla og kvenna á öllum sviöum þjóöfélagsins. Þingið bendir á, aö sá aöstööu- munur kynjanna, sem nú rikir á sér þjóöfélagslegar og uppeldis- legar rætur og má þar m.a. nefna rótgróna misréttishefö um starfs- skiptingu á vinnustööum og á heimilunum. Þingiö hvetur stjórn SÍB til aö láta fara fram nákvæma könnun á starfssviði og starfskjörum kvenna I bönkunum og mismunun kynjanna þar. Jafnframt hvetur þingiö stjórn SIB og bankastarfsmenn til aö hafa sem nánasta samvinnu viö önnur stéttarfélög i landinu i þeirri jafnréttisbaráttu, sem okkur ber aö heyja af fullri einurö á alþjóölega kvennárinu, svo að þaö veröi annaö og meira en nafnið tómt.” Um .siöustu mánaöamót lét Vilborg Haröardóttir af störfum viö blaöiö. Vilborg hefur sem kunnugt er haft umsjón meö sunnudagsblaöinu I vetur. Hefur hún haft forustu um aö móta blað- iö I þeirri mynd, sem lesendur þekkja, og hefur sunnudagsblaö- inu hvarvetna veriö ákaflega vel tekiö. Þakkar Þjóöviljinn Vil- borgu framlag hennar viö sunnu- dagsblaöiö og fyrri störf viö blaö- iö. Vilborg mun áfram sjá um jafnréttisslðuna I sunnudagsblaö- inu. Arni Bergmann hefur tekiö aö sér umsjón sunnudagsblaösins. Leiðrétting í fréttabréf Gisla á Súganda slæddust villur eins og gerist og gengur. Meinlegast var I afla- skýrslu Suöureyrarbáta, þar sem talað var um des.-afla 1974, en þar átti aö standa, samkvæmt handriti Gisla do, þ.e.a.s. april 1974. Þá var og rangt feðraöur skip- stjórinn á ms. Kristjáni Guömundssyni. Rétt skal standa: Bjarni Kjartansson. Leiðrétting við Fiskimál I þættinum Fiskimál, sem Jó- hann J. E. Kúld ritaði i blaðiö i gær, varö meinleg villa i upphaf- inu. Þar er rætt um að togaraeig- endur hafi bent á aö meö fækkun á stóru togurunum megi LÆKKA kaup skipverja. Auövitaö átti þarna aö standa HÆKKA.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.