Þjóðviljinn - 04.06.1975, Síða 11
Miðvikudagur 4. júni 1975 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
4 miljarða
velta hjá
sjávaraf-
urðadeild
Sambandsins
Aðalfundur Sjávarafurða-
deildar Sambands isl. samvinnu-
félaga var haldinn á fimmtudag
og föstudag i siðustu viku.
í skýrslu, sem fyrir fundinum
lá, kom meðal annars fram að
heildarumsetning Sjávarafurða-
deildar s.l. ár var 3.941,6 milj. kr.
á móti 3.623,9 milj. kr. 1973, sem
er aukning um 8,8%. Samtals
endurgreiddi deildin til frystihúsa
og fiskvinnslustöðva 26,9 milj. kr.
fyrir siðasta ár. Hlutdeild deild-
arinnar af heildarvöruútflutningi
landsmanna var 9,5%, en af
heildarútflutningi sjávaráfurða
12,7%. Freðfiskframleiðsla
frystihúsa á vegum deildarinnar
var 17.933 smálestir á s.l. ári á
móti 17.661 lest 1973. Framleiðsla
allra frystra afurða varð 22.406
lestir á móti 21.921 lest 1973, eða
hafði aðeins aukist um 2,2%.
Á fundinum var gerð ályktun
um landhelgismál, og var rikis-
stjórnin hvött til að timasetja út-
færsluna i 200 milur sem fyrst og
tilkynna þá timasetningu, og
einnig taldi fundurinn mikilvægt,
að sett yrði rammalöggjöf um
nýtingu fiskveiðilandhelginnar
innan 200 milnanna sem fyrst.
______________________
Portúgal:
Þingsetning
og innflutn-
ingsgjald
Lissabon 2/6 reuter — Nýkjörið
þing Portúgals kom i dag saman
til fyrsta fundar sins. Þingið setti
Francisco Costa Gomes forseti
landsins. Stuttu áður hafði stjórn-
in tilkynnt að hún hefði lagt allt að
30% innfiutningsgjald á fjölda
vörutegunda.
A þinginu eiga sæti 250 manns.
Þar af eru sósialistar 116, lýð-
demókratar 81, kommúnistar og
fylgismenn þeirra 35 og afgang-
urinn skiptist á ýmsa smáflokka
til vinstri og hægri.
Viðbúið er að sósialistar og lýð-
demókratar reyni að beita meiri-
hluta sinum á þingi til að bæta sér
upp Iftil áhrif innan stjórnarinnar
en kommúnistar leggja mikla
áherslu á að eina hlutverk þings-
ins sé að semja nýja stjórnarskrá
og undirbúa kosningar til löggjaf-
arþings.
Innflutningsgjaldið sem sett
var á I gær á að draga úr gifurleg-
um halla á greiðslujöfnuði við út-
lönd en hann nam 275 miljónum
sterlingspunda i fyrra. Stjórnin
hefur viðurkennt að gjaldið muni
leggjast þungt á stóran hluta
verkalýðsstéttarinnar, en menn
eru hvattir til að taka á sig aukn-
ar fórnir. Fjármálamenn kenna
miklum launahækkunum sem
urðu i kjölfar byltingarinnar i
fyrra um slæma greiðslustöðu
landsins en þegar herinn tók völd-
in voru gull- og gjaldeyrisbirgðir
þess einhverjar þær mestu i
Evrópu.
VIPPU - BltSKÚRSHURÐIN
Lagerstærðir miðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm
- 210 - x - 270 sm
Aðrar stærðir.smíðaðar eftir beiðni.
GLUGGASMIÐJAN
Síðumúla 12 - Sími 38220
apótek
Reykjavik
Vikuna 30. mai til 5. júni er
kvöld-, nætur- og helgidaga-
varsla apótekanna i Borgar-
apótekiog Reykjavikur-apóteki.
Það apótek sem fyrr er nefnt
annast eitt vörsluna um nætur
og á helgidögum.Einnig nætur-
vörslu frá kl. 22 að kvöldi til kl. 9
að morgni virka daga, en kl. 10 á
sunnudögum, helgidögum og al-
mennum fridögum.
Kópavogur
Kópavogsapótek er opið virka
daga frá 9 til 19 og kl. 9 til 12 á;
hádegi á laugardögum.
Hafnarfjöröur
Aöótek Hafnarfjarðar er opið
virka daga frá 9 til 18.30 laugar-
dag 9 til 12.30 og sunnudaga og
aðra helgidaga frá 11 til 12 f.h.
slökkviliö
Slökkvilið og sjúkrabilar
í Reykjavik — simi 1 11 00
í Kópavogi — simi 1 11 00
i Hafnarfirði — Slökkviliðið
simi 5 11 00 — Sjúkrabill simi 5
11 00.
læknar
Slysadeild Borgar-
spitalans
Simi 81200. Siminn er opinn all-
an sólarhringinn.
Kvöld- nfftúr- og helgidaga-
varsla:
í Heilsuverndarstöðinni viö
Barónsstig. Ef ekki næst I heim-.
ilislækni: Dagvaktfrá kl. 8.00 til
17.00 mánud. til föstudags, simi
1 15 10. Kvöld- nætur- og helgi-
dagavarsla, slmi 2 12 30.
Tannlæknavakt:
Tannlæknavakt er i Heilsu-
verndarstöðinni frá 17—18 alla
laugardaga og sunnudaga.— A
laugardögum og helgidögum
eru læknastofur lokaðar en
tæknir er til viðtals á Göngu-
deild Landspitalans, simi
2 12 30. — Upplýsingar um
lækna og lyfjabú’ðaþjónustu eru
gefnar i simsvara 18888.
Kynfræðsludeild
i júni og júli er kynfræðsludeild
Heilsuverndarstöðvar Reykja-
vikur opin alla mánudaga kl.
17—18.30.
ónæmisaðgerðir fyrir fullorðna
iKÓPAVOGI
Ónæmisaðgerðir gegn mænu-
sótt fara fram að Digranesvegi
12 kl. 4—6 daglega fyrst um
sinn. Hafið samband við hjúkr-
unarkonurnar. Aðgerðirnar eru
ókeypis. — Héraðslæknir.
lögregla
'Lögreglan I Rvik —simi 1 11 66
Lögreglan í Kópavogi — simi 4
12 00
Lögreglan I Hafnarfirði— simi 5
11 66
félagslíf
KVÖLDFERÐ.
Miðvikudaginn 4.6, kl. 20.00.
Gönguferð i Þverárdalinn. Verð
500 krónur. Brottfararstaður
B.S.Í. Ferðafélag tslands.
ÚTIVISTARFEHÐtR
Miðvikudagskvöld 4.6
Gönguferð á Mosfell. Heima-
menn lýsa staðháttum. Brottför
kl. 20 frá B.S.l. Verð 500 kr. óti-
vist, Lækjargötu 6, simi 14606.
skák
Nr. 97
Hvitur mátar i öðrum leik.
Núkemstsvartikóngurinn á tvo
reiti og er útilokað að varna
honum þá i fyrsta leik svo að
lausnarleikurinn hlýtur að vera
i þvi fólginn að útbúa gildru ef
hann fer á annan þessara reita.
Lausn þrautar Nr. 96, var 1.
Dg4. Nú getur hviti riddarinn á
h3 skákað óhindrað á g5 og f5
reiturinn helst valdaður af
drottningunni, og ef svarti ridd-
arinn drepur drottninguna þá er
f5 reiturinn valdaður af hrók.
1. ...Rf5 2. Dxf4.
1. ...Rf3 2. Df5.
1. ...Rd5 2. Hc4.
bridge
A K 10 3
¥ A D 7 6 5 4
♦ Á 5
+ 10 4
+ 9742 +65
¥32 V G 10 9 8
♦ K D 10 8 7 +G642
+ D 5 * A 3 2
+ A D G 8
¥ K
♦ 9 3
+ K G 9 8 7 6
Suður er sagnhafi i fjórum
spöðum, og út kemur tigulkóng-
ur. Hvernig ætlarðu að spila
spilið?
Liklegasta skipting litanna er
4-2 i hjarta og spaða og 3-2 i
laufi. Með það i huga er réttast
að taka á tigulásinn og 'spila
strax laufatiu. Vestur fær á
drottninguna og tekur sinn tig-
ulslag. Þá kemur hjarta, sem
Suður tekur á kónginn. Nú er
laufakóngur látinn út, og Austur
á slaginn. Nú er sama hvað
kemur út, sagnhafi drepur,
hirðir trompin sem úti eru og á
afganginn á lauf.
Þaö er freistandi að taka á
tigulásinn og reyna svo að losna
við tigulinn með þvi að taka á
hjartakóng og spila sig inn i
borðá spaða og taka á háhjarta.
Gallinn er bara sá, að þá ræður
sagnhafi einfaldlega ekki við
spilið. Reyndu bara.
krossgáta
Lárétt: 1 þróun 5 blása 7 hæð 9
óhreinindi 11 meindýr 13 nokkuð
14 þekkt 16 skóli 17 fugl 19 mað-
ur.
Lóðrétt: 1 æfa 2 gat 3 næðing 4
hreinsa 6 muldraði 8 gylta 10
tryllt 12 ánægður 15 hljóð 18
tala.
Lausn á siðustu krossgátu
Lárétt: 2 rækja 6 afl 7 assa 9 ek
10 tæp 11 ein 12 ir 13 ögri 14 agn
15 auðna
Lóðrétt 1 platina 2 rasp 3 æfa 4
kl 5 aukning 8 sær 9 eir 11 egna
13 ögn 14 að.
sýningar
Sýningar á Kjarvalsstöðum.
Sýning á verkum Jóhannesar S.
Kjarvals opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 16 til 22. Að-
gangur og sýningarskrá ókeyp-
is.
brúökaup
Sunnudaginn 26. jan. voru
gefin saman i Bústaðakirkju af
séra ólafi Skúlasyni, ungfrú
Guðrún B. Björnsdóttir og Sig-
urður Ágústsson. Heimili þeirra
verður að Rauðalæk 67, Rvk. —
Ljósmyndastofa bóris
Þ. 29. mars voru gefin saman i
hjónaband i Keflavikurkirkju af
séra Birni Jónssyni, Vilborg
Jónsdóttir og Jón Rúnar Arna-
son. Heimili þeirra verður i
Neskaupstað. — Ljósmynda-
stofa Suðurnesja
„Ég þoli ekki að horfa á þig vinna, Emma“.
útvarp
7.00 Morgunútvarp. Veöur-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi k). 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugreinar dagbl.), 9.00
og 10.00. Morgunbæn kl.
7.55. Morgunstund barn-
anna kl. 8.45: Svala
Valdimarsdóttir les þýöingu
sina á sögunni ,,Malenu i
sumarfrii” eftir Maritu
Lindquist (2). Tilkynningar
kl, 9.30. Létt lög milli atriöa.
Kirkjutónlist kl. 10.25: Arni
Arinbjarnarson leikur org-
elverk eftir Sweelinck og
Buxtehude / Ljóöakórinn
syngur sálmalög. Morgun-
tónlcikarkl. 11.00: Vladimir
Horowitz leikur „Ober-
manndalinn”, tónverk fyrir
pianó eftir Liszt / Sinfóniu-
hljómsveitin i Prag og tékk-
neski filharmóniukórinn
flytja „Psyché”, sinfóniskt
ljóö fyrir hljómsveit og kór
eftir César Franck.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Viö vinnuna: Tónleikar.
14.30 M iödegissagau : ,,A
vigaslóö” eftir James Hilt-
on. Axel Thorsteinson les
þýðingu sina (12).
15.00 Miðdegistónieikar. Yara
Bernette leikur á pianó Ell-
efu prelúdiur op. 32 eftir
Rakhmaninoff. John Boyd-
en syngur „Listmálarann
að starfi”, lagaflokk eftir
Poulenc, John Newmark
leikur á pianó. Itzhak Perl-
man og Konunglega
filharmoniusveitin I Lund-
únum leika Carmen-
fantasiu fyrir fiölu og
hljómsveit op. 25 eftir Sara-
sate um stef eftir Bizet,
Lawrence Foster stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphorn.
17.00 Lagiö mitt. Berglind
Bjarnadóttir stjórnar óska-
lagaþætti fyrir börn yngri
en tólf ára.
17.30 Tvær smásögur eftir
Knut liamsun. „A götunni
og „Rétt eins og hver önnur
fluga i meöallagi stór”. Jón
Sigurðsson frá Kaldaðar-
nesi islenskaði. Ragnhildur
Steingrimsdóttir leikkona
les.
18.00 Siödegissöngvar. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 A kvöldmálum. Gisli
Helgason og Hjalti Jón
Sveinsson sjá um þáttinn.
20.00 Einsöngur i útvarpssal:
Magnús Jónsson syngurlög
eftir Skúla Halldórsson,
sem leikur undir á pianó.
20.20 Sumarvaka. a. Einar i
Skaftafelli. Rósa Þorsteins-
dóttir flytur frásöguþátt. b.
Kvæöi cftir Gunnlaug F.
Gunnlaugsson. Sverrir Kr.
Bjarnason les. c. Fyrsti hjá-
setudagurinn og vorhugieiö-
ingar siöar á ævinni. Tveir
þættir úr Blönduhlið eftir
Þorstein Björnsson frá
Miklabæ. Baldur Pálmason
les. d. Kórsöngur. Karlakór
Reykjavikur syngur. Söng-
stjóri: Sigurður Þórðarson.
21.30 Otvarpssagan: „Móöir-
in” eftir Maxim Gorki.
Halldór Stefánsson þýddi.
Siguröur Skúlason leikari
les (7).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Kvöldsag-
an: „Tyrkjaránið" eftir Jón
Helgason. Höfundur les
(22).
22.40 „Orö og tónlist" Elin-
borg Stefánsdóttir og Gér-
ard Chinotti kynna franskan
visnasöng.
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
^ sjónvarp
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.35 Umhverfis jöröina á 80
dögum. Breskur teikni-
myndaflokkur. 14. þáttur.
Þýðandi Ellert Sigurbjörns-
son.
21.05 Drengirnir. Finnsk bió-
mynd, byggð á skáldsögu
eftir Paavo Rintala. Leik-
stjóri Mikko Niskanen.
Aðalhlutverk Pentti Tarki-
anen, Vesa-Matti Loiri og
Uti Saurio. Þýðandi Kristin
Mantyla. Myndin gerist i
finnskum smábæ i heims-
styrjöldinni siðari. Þýsk
herdeild hefur þar aðsetur
og setur svip sinn á bæjar-
ltfið. Fimm drengir i bæn-
um halda jafnan hópinn og
bralla ýmislegt saman, en
aðalskemmtun þeirra er
fólgin i að fylgjast með her-
mönnunum og stofna til ým-
iss konar viðskipta viö þá.