Þjóðviljinn - 08.06.1975, Side 8

Þjóðviljinn - 08.06.1975, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 8. jún! 1975 bækur Ib Cavling heitir danskur rithöfundur, sem mætavel er þekktur hér á landi. Hann hefur síðan 1952 samið 50 skáldsögur og gerastekki aðrir menn iðn- ari. Hann er jafnan talinn mjög dæmigerður af- þreyfingarhöfundur: bæk- urnar f jalla svotil allar um leið aðalpersónanna inn í farsælt hjónaband. Auk þess segir frá þvi, að karl- maðurinn kemst til f rama í starf i. Allt er breytingum háð, og einnig lýsingar Cavlings. Nýlega hefur Tove Burup skoðað þróun kynferðismála i bókum þessa meistara hins disæta tilfinngalifs og verður sú skoðun rakin að nokkru hér á eftir. Jómfrúr og meydómur í skáldsögum Cavlings frá þvi um 1950 eru kvenhetjurnar feimnar jómfrúr sem aldrei hafa verið kysstar, hugsun þeirra um kynferðismál er fyrst og fremst siðferðilegs eðlis, til dæmis hafa þær sterka tilhneigingu til að fordæma kynsystur sinar, sem eru ekki eins öruggar á vegi dyggðanna. Þær ráða yfir bliðum tilfinningum en bersýnilega eru þær alveg lausar við allar hvatir. Þetta breytist svo, þegar kem- ur fram yfir 1960. Nú hafa kven- hetjurnar fengið nokkra lifs- reynslu með kossum og kreisting- um. Þær hafa mjög hugann við kynferðismál, tala og hugsa um þau af miklum móð. Þær hafa ekki aðeins tilfinningar heldur og hvatir. En gott siðgæði hefur enn stjórn á þessum hvötum: kvinn- urnar eru enn hreinar meyjar. Um 1970 hafa kvenpersónurnar enn breyst. Karlar hafa gerst fjölþreifnari við þær, og mey- dómurinn hefur loksins látið und- an. Þær hafa haft samfarir við aöra menn áður en þær giftast — að visu ekki marga. Þetta er réttlætt með umsögnum um að konur verði snemma mannbærar og að það sé „náttúrulegt” að standa i kynferðislifi. Hvað leyfist körlum? Um karlhetjurnar er það að segja, að Cavling hefur bersýni- lega minni áhuga á fyrstu sam- förum þeirra en kvenna sinna. Um 1950 lætur hann flest ósagt um kynlifsreynslu þeirra, á sjö- unda áratugnum hafa karlar hans staðið i skemmri og iengri ásta- samböndum áður en þeir giftast og nú á þeim áttunda eru karl- hetjurnar oft einhvers konar glaumgosar. 1 „Karina” (frá 1973) hefur hetjan haft með mörgum konum og glæsilegum. Þar er og svo komið, að hetjurn- arfullnægja kynhvötum sinum að vissu marki utan hjónabands. Cavling hefur smám saman þró- ast frá fordæmingu á framhjá- haldi til einskonar blessunar á fyrirbærinu. IB HENRIK CAVLING 'wLMMx y ggf jjn 1 Wv wl ímp ^ * C K \ QFg / NS i. ^ ’OK. W Sumir halda að bækur eldhúsreyfarahöfunda eins og hins vinsæla'og mikið þýdda dana Ib Henriks Cavlings séu alltaf eins. En það er ekki rétt :einnig slíkir menn laga sig að breytingum f tfmanum. Meira að segja kápur bókanna gefa þessa breytingu til kynna. 1 „Saklaus” frá 1956 kýs hinn fullkomni maður sér hina fuilkomnu jómfrú. í „Sporödrekar I Monte Carlo” (1967)eru elskendurnir miklu fjölþreifnari hvort við annaö og konan er neysluvara í lúxusklassa. Eitt breytist ekki hjá Cavling: körlum leyfist alltaf miklu meira en konum... Kynferðismál í eldhúsreyfurum Þróunin er sú, að smám sam- an hefur Cavling verið að stækka það svið sem hann telur persón- um sinum leyfilegan vettvang á EFTIR ÁRNA BERGMANN sviði kynlifs. En um leið hefur karlmaðurinn ávallt stærra sviö, honum leyfist fleira. Þessu fylgir tvöfalt siðgæði i vitund karlhetj- unnar: hann iðkar kynlif sem hann fordæmir hjá kvenkynsmót- aðila sinum. Konurnar I skáld- sögunum fallasti stórum dráttum á þetta tvöfalda siðgæði — þær fallast á það, að gengi þeirra falli eftir þvi sem þær hafa tekið fleiri með sér I bólið, og þær leyfa i reynd körlum meira kynferöis- legt frelsi en þær sjálfar hafa. Bara sex 1 nýrri bók Cavlings er meira og fjölskrúðugra kynlif en i hin- um fyrri, en þessu fylgir ekki fjöl- skrúöugra tilfinningalif. Til- finningarnar (ASTIN sjálf) til- heyra þeim eina rétta eða einu réttu — þeim sem maður giftist. Kvenhetjan frá 1973 fellst á fram- hjáhöld manns sins vegna þess að það er „bara sex”. Hún hugsar sem svo: „Ef það væri bara kynferðisleg útrás sem hann vildi. Ef hann þar að auki ekki einu sinni gerir sér það ómak að fara úr buxunum, þá var þetta bara einskonar sex- lækning sem hann borgaði fyrir með peningum. Þetta var of gott til að vera satt”. Cavling leggur blessun sina ýfir það fjölkvæni sem er bara tengt sexinu, en hann hafnar fjölkvæni sem tekur til- finningar með i reikninginn. í fyrri skáldsögum Cavlings er gengið út frá þvi sem sjálfsögðum hlut, að fyrst kemur ást, sem leið- ir til hjónabands, sem svo leiðir til samfara. Þetta sjálfsagöa samhengi hverfur smám saman með seinni bókunum og kynlifið þróast einnig fyrir utan hjóna- bandsstofnunina. Það er engin ástæða til að sakna hins fyrra ramma (ást—hjónaband) vegna þess að hjónabandið hefur oftast þvi hlutverki að gegna hjá höf- undi sem kallast „tveggja sér- gæska”,og ástin er liður i þeirri sjálfshafningu. En það væri samt ekki úr vegi að velta fyrir sér af- leiöingum þess, að kynhvötinni er I vaxandi mæli fullnægt án þess að fram komi bliða og samstaða með mótaðila leiksins. Að éta konuna Eins og fyrr er getið tengir Cavling greinilega saman kyn- ferðismál og siðgæði. Siðgæðið hefur fyrst og fremst mótandi áhrif á heim kvennanna. Maður- inn, sem ræður ferðinni, túlkar Cavling og kynfærin „Aður en þau höfðu áttað sig höfðu þau hlaupið upp um háls- inn hvort á öðru. Grethe hjúfr- aöi sig upp að Jens Winther og hans löngu handleggir vöfðust þétt utan um hana. Hún óskaði þess, að hann sleppti henni aldrei framar. Hann kyssti hana á munninn, kinnar, hár og nef. Hann hafði enga hugmynd um hvað hann var að gera. Hann vildi barasta koma eins mikið og fljótt við hana og mögulegt var. Hamingjan flæddi yfir þetta unga par. Margar minútur liðu áður en þau fengju slitið sig hvort frá öðru. //Sveitalæknirinn" 1953 Ira lyfti höfði og kyssti hann. Hún þrýsti sér upp að honum. Þetta var ástarkoss. Hann tók utan um hana. Hann elskaði hana og hún fékk hann til að gleyma öllu öðru. Hann aðeins kyssti hana með ákefð og ástriðu. Náttkjóllinn rann til hliðar og hann fann heit brjóst hennar við bringu sér. Hún kyssti eyru hans, háls og axlir... Hann sá hana nakta og blóðið sló þungt I vöngum hans. //Prinsessan verður ást- fangin" 1963. Yvonne reis upp og smeygði náttkjólnum yfir höfuðið. Meistaraverk blasti við augum. Konsúllinn friði breyttist I log- andi bál. Hann stökk á fætur og tók hana i arma sina. Hann lét hendur sínar fara um fullkom- inn likama hennar. Yvonne var ekki siður æst. Hún stakk hend- inni niður i náttfatabuxur hans og gældi við hann að aftan. Yvonne kyssti hann og fortlðin hvarf. Augnablikið stóð i skærri stjörnubirtu. Hann lyfti henni upp og bar hana i rúmiö. Karina 1973. konuna hinsvegar sem eiginkonu eöa hóru. t seinni skáldsögunum vikur þetta samhengi fyrir nýju — kynferðismál og liffræði eru tvinnuð saman. Þetta gerist eftir tveim leiðum: 1) Kynferðislegri þörf er lýst sem hliðstæðu við aðrar liffræði- legar þarfir (einkum þörf fyrir fæðu) og henni er fullnægt I formi einskonar vöruneyslu. Persónur Cavlings bókstaflega éta sig gegnum sinar'samfarir. Um hina kynferðislegu athöfn eru notuð orð eins og að éta, narta i, slafra i sig rjóma i pottavis, taka sér af réttunum, verða pakksaddur af sexi, ganga til borðs o.s.frv. Og enn er þaðkonan sem verður fyrir þessu „narti” mannsins, hún er sú vara sem hann neytir. Það er eins með hina kynferðis- legu þörf, og fæðuþörfina að hún segir til sin með vissu millibili, og þegar menn hafa neytt viss magns (af mat eða sexi) þá eru menn ánægðir. Eins og góð steik „á það skilið” að menn gefi sér góðan tima til að éta hana, þá á lagleg kona það „skilið” að menn gefi sér góðan tima i samfarirn- ar. Abyrgð gagnvart mótaðilan- um i ástaleiknum nær aldrei lengra en þetta. 2) Kynferðislegri þörf er lýst sem einhverju dýrslegu fyrirbæri, og þvi dýrslega er fyrir komið hjá konunni. Hún er af körlum túlkuð sem karlétandi kvendýr. Aherslan á hið liffræði- lega leiðir til nýs kynferðislegs hlutverks kvenna i sögunum: hún er neysluvara eða kvendýr. Neysluheimur Við hlið þessara breytinga á sviði kynferðismála gerast aðrar breytingar i skáldsögum Cavlings. 1 fyrstu skáldsögum hans má greina neikvæða afstöðu til neyslu. Þetta breytist siðar. Eftir 1960 sjáum við I bókunum heillegan og útfærðan neysluheim og eftir 1970 hefur kynferðislifið verið innlimað I þennan neyslu- heim. 1 „Prinsessan verður ástfang- in” 1963 öðlast danski heimspeki- prófessorinn Harald Winther „smekk fyrir lífsins gæðum” þeg- ar hann er samvistum við Iru prinsessu. Gæði þessi eru röndótt silkináttföt, rósablöð i vöskum og gömul vin. Þessum smekk fyrir efnislegum gæðum er lýst sem jafngildi þess að „þekkja lifið” hafa „lifsreynslu”. I „Skurðstofa 08” (1971) hefur hið kynferðislega verið fellt undir efnisleg gæði, undir almenna neyslu. Þar er i samvistum karl hetju og kvenhetju boðið upp á samfellda nautnakeðju: matur, vin, koniak, þægileg lýsing, útsýn og kynferðisleg ánægja. Neyslan felur einnig i sér neyslu á fólki. t fyrri skáldsögun- um er lögð áhersla á eiginleika eins og góðvild og mannvit, en I seinni skáldsögunum er lögð sér- stök áhersla á ytri eiginleika svo sem fegurð og sjarma. Það er að sjálfsögðu einkum konan sem er metin og vegin i samræmi við hugsjónir tisku- og auglýsinga- heimsins. Hún notar likama sinn beinlinis sem sitt kapital: áður fyrr beið hún eftir þeim eina rétta, nú biður hún eftir að fá viðurkenningu fyrir fegurð á ástamarkaðinum og aö fá tilboð i samræmingu við hana. Aður fyrr fullvissaði hetjan hana um skil- yrðislausa ástsina, en nú fullviss- ar hann kvenhetjuna um traust markaðsgildi hennar — eöa eins og hann segir i Karinu, þegar hún er hrædd um að hún sé að missa hann: „Láttu mig ekki heyra svona vitleysu framar, Karina. Ég hefi hitt nokkrar af fegurstu konum heimsins, og ég hefi boriö þær saman við þig. Þær eru eins og hvert annað skólp i samanburöi við þig.” Tove Burup lýkur yfirliti sinu með þvi, að segja sem svo, að það væri misskilningur að telja aö ferill Cavlings væri ómerkur I þessum efnum. Hún telur að þessi reyfarahöfundur sé mjög þef- næmur á breytingar á útbreidd- um smekk og viðhorfum. Hún saknar ekki þeirrar afstöðu I bók- menntum, afþreyfingarbókum og samfélagi sem þorði varla að taka á kynferðismálum. En hún telur, að breytingarnar, hin nýju, „neysluform” hafi ekki bætt hlut kvenna svo neinu nemi, hvorki i hugarfóstrúm skirbenta né held- ur i samfélaginu. (áb tók saman).

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.