Þjóðviljinn - 08.06.1975, Qupperneq 15
Sunnudagur 8. júni 1975 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
UMSVIF AUÐHRINGA:
Mútumál draga
dilk á eftir sér
Mikill þáttur í auknum
umsvifum bandarískra (og
annarra auðvitað líka)
auðhringa um víða veröld
er tengdur mútum — bein-
um eða lítið eitt dulbúnum.
Mútur eru í allmörgum
löndum hin viðurkennda
aðferð bæði til að fá
afgreitt smáræði eins og
ökuskírteini og allt til þess
að fá stjórnmálamenn til
að hætta við skattalöggjöf
sem óhagkvæm er auð-
hringum.
Auöhringarnir kvarta einstaka
sinnum yfir þessu, en þeim er
ekki eins leitt og þeir láta — mút-
ur til spiiltra embættismanna og
stjúrnmálamanna gefa oft af sér
margfaldan arð. En uppljóstranir
forseta ollufélagsins Gulf Oil, Bob
Dorseys, um mútugjafir félags
sins hafa ýtt af staö hneyksli sem
er bersýnilega oröiö mjög hvim-
leitt bæöi auöhringunum og ýms-
um rikisstjórnum.
Bolivfuhneykslið
Fyrir skömmu kraföist rikis-
stjórn Boiiviu þess, að hún fengi
upp gefin nöfn á öllum þeim
embættismönnum sem þágu frá
Guif Oil samtais um háifa miljón
dala I „pólitiskt framlag” fyrir
nokkrum árum. Handtekinn
hefur veriö einn starfsmaöur fé-
lagsins f Boliviu og þess hefur
veriö krafist aö Dorsey forstjóri
komi fyrir rétt I Bolivfu og svari
til saka fyrir „glæpi gegn lögum
og reglu I efnahag rlkisins”.
Gulf Oii hefur til þessa aðeins
gefiö upp eitt nafn I sambandi viö
mútur þessar. Þar er um aö ræöa
dauðan mann, Barrientos, sem
var forseti Boliviu 1964—69, en
hann fékk frá oliufyrirtækinu
þyriu sem var 110 þúsund doliara
viröi. t staöinn átti hann aö gera
þaö sem i hans valdi væri til aö
Barrientos; fékk eina litla þyriu.
koma I veg fyrir þjóönýtingu
oliulinda landsins og tryggja fé-
laginu rétt til arövænlegrar oilu-
leitar. En ekki hefur veriö gerö
grein fyrir 220 þúsund dollara og
annarri 110 þúsund dollara
greiöslum til ýmissa af helstu
fylgifiskum Barrientos.
Talsmenn Gulf Oil I Bandarikj-
unum hafa heitiö þvi aö upplýsa
máliö, meðal annars til aö bjarga
starfsmanni sinum, sem mun
hafa veriö fremur lágt settur.
Mútur eru bókhalds-
skyldar
Mútugjafir eru mjög útbreidd-
ar sem fyrr segir. Dorsey bar þaö
fyrir þingnefnd fyrir nokkrum
vikum, aö Gulf Oil heföi „til-
neytt” greitt flokki Paks ein-
ræöisherra I Suröur-Kóreu fjórar
miljónir dollara á árunum
1966—1971. Taliö er að bandarisk
og japönsk fyrirtæki i Suöur-
Kóreu verji 5—10% af rekstrar-
sjóönm sinum til aö múta
pólitikusum I þvi landi (sem nú er
einmitt mjög i fréttum vegna
þess, aö þar er hinn „frjálsi
heimur”, m.ö.o. hinn frjálsi gróöi
talinn mjög i hættu fyrir
kommúnistum aö noröan).
Aðrir oliuhringar, m.a. Mobil,
Exxon og Standard Oil hafa játaö,
aö þeir hafi greitt um 16 miljónir
dollara tii italskra stjórnmála-
manna og embættismanna fyrir
ýmsar skattaivilnanir og ýmsa
aöra aöstoð viö aö græöa meira á
bilakandi itölum. Oliuhringirnir
halda þvi fram aö greiöslur þess-
ar séu fyllilega lögmætar.
Svo merkilega vill til aö undir-
borösgreiðslur til erlendra stjórn-
málamanna eru i sjálfu sér ekki
andstæöar bandariskum lögum.
Hitt er svo ólöglegt aö halda þess-
um greiöslum utan viö bókhaldiö.
(byggt á Time.)
Trójusófi
hinn nýi
Sagan um Trójuhestinn varö
nýlega til þess að koma af stað
hugmyndaflugi Italsks þjófahóps
með þeim hætti er hér segir:
Dag nokkurn kom vörubill að
villu einni i Rimini meðan eig-
andinn var fjarverandi. Billinn
flutti heljarmikinn sófa sem sagt
var að eigandinn hefði keypt.
Þjónar létu þá áhöfn bilsins bera
sófann inn i húsið. Hálftima siðar
kom vörubillinn aftur og áhöfn
hans baðst afsökunar á mistök-
um: i raun hefði billinn átt að fara
annað, og tóku þeir sófann aftur.
Lögregla komst siðar að þvi að
þjófur hefði falið sig inni i sófan-
um, og á þeim hálftima sem hann
hafði til umráða tókst honum að
stela drjúgum af dýrgripum.
Spionasaga
í veitingahúsi einu i Bonn, þar
sem margt er um diplómata og
þeirra fylgdarlið, kallar við-
skiptavinur einn á þjóninn.
— Þér létuð mig fá þrjár kjöt-
bollur. En það er alls ekki hægt að
skera þá þriðju.
— Það er ekki nema eðlilegt,
sagði þjónninn, hún er hljóðnem-
inn.
mm
mm
0 —
□ □
VIÐ
BYGGJUM
BYGGJUM
VID
t-----r
|SE|
Við byggjum, — byggjum við . . . og nú höfum við
opnað nýbyggingu Samvinnubankans í Bankastræti.
Við bætt skilyrði verður okkur nú unnt að veita viðskiptavinum
okkar meiri og betri þjónustu. Öll afgreiðsla bankans fer
fram á fyrstu hæð. Geymsluhólf, sem bankinn hefur ekki
haft aðstöðu til að hafa áður, verða nú til reiðu.
Okkur er það mikil ánægja að geta tekið betur á móti
viðskiptavinum okkar, verið velkomin í Bankastræti 7.
Samvinnubankinn
HBS