Þjóðviljinn - 08.06.1975, Page 22
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINNSunnudagur 8. júni 1975
Höfum opnað fatamarkað að Snorrabraut 56.
Allar stærðir
karlmannafata
r
a
SEFJllmR-
fntamarkaður!
mjog
hagstæöu veröi.
Fataverksmiöjan GEFJUN Snorrabraut 56.
Úr metabók
Guinness
Lesendur hafa ugglaust heyrt
hennar getið áður, bókarinnar
sem við ætlum að blaða i til fróð-
leiks og skemmtunar. Hún heitir
Metabók Guinness og i hana eru
skráð öll heimsmet, sama hversu
fáránleg þau kunna að virðast.
Ekkert met er of geggjað til að
komast i bókina þá.
Hver hefur drukkið mest öl á
skemmstum tima?
Hver hefur reykt mest á
skemmstum tima?
Hvað hefur verið hægt að troða
mörgum manneskjum inn i sima-
klefa?
Hvað er lengsti kossinn langur?
öllu þessu svarar Metabók Gui-
nness og miklu fleiru.
Ef við byrjum á lengsta kossin-
um, þá var hann 2400 metra lang-
ur! Hissa? Skyringin er sú, að
þau Hans Otto Larsen og Lisa
Rasmussen köstuðu sér út úr
flugvél i 3000 metra hæð, féllust i
faðma á leiðinni og kysstust i 42,5
sekúndur, eða þar til 600 metrar
voru eftir til jarðar. Þá hættu þau
keleriinu og opnuðu fallhlifarnar
sem þau voru (guði sé lof) með á
bakinu.
Amerikaninn Scott Case lét sig
hafa að reykja 110 sigarettur i
einu! Og hann hóstaði ekki einu
sinni — ekki mjög mikið að
minnsta kosti.
Corey Fletcher stóð á annarri
löppinni i sjö og hálfan tima og
það var skráð sem heimsmet i
Metabókina. Og annar náungi
setti heimsmet i bananaáti, þegar
hann borðaði 63 banana á tiu min-
útum!
Flest metin sem skráð eru i
Metabók Guinness eru það sem
kalla má geggjuð. En þó ekki öll.
Elvis Presley er t.d. skráður þar
heimsmethafi i plötusölu. Hann
hefur fengið 91 gullplötu. Hver
gullplata þýðir miljón plötueintök
seld, svo salan hefur verið dálag-
leg hjá honum.
Hraðametið er skráð á Gary
nokkurn Gabelich. Það er hvorki
meira né minna en 1003 kilómetr-
ar á klukkustund og var sett á
Bonneville saltsléttunum i Utah,
Bandarikjunum. ökutækið var
kallað „Blái loginn” og virðist
hafa borið nafnið með rentu.
Nákvæmasta klukka heims er
Olsenklukkan i Kaupmannahöfn.
Klukkan sú er samansett úr 14.000
hlutum og það tók meira en 10 ár
að setja hana saman. Hún er sögð
svo nákvæm, að hún seinki sér
eða flýti ekki um meira en hálfa
sekúndu á 300 árum.
Dýrasta reykjarpipan er fram-
leidd af Alfred Dunhill i Lundún-
um. Hún kostr u.þ.b. 102 þúsund
krónur. Við skulum vona að hún
sé verðsins virði.
Geggjuðu metin i Metabókinni
eru ef til vill þau forvitnilegustu,
þar sem þau sýna hvað menn geta
gert (eða gert sér) til þess eins að
kornasl á skrá í þessari bók. Til
þessa að komast i bókina verða
metin nefnilega að vottast af við-
urkenndum aðilum.
Til dæmis fór einu sinni fram
keppni meðal bandariskra stúd-
enta um það, hve mörgum mann-
eskjum væri hægt að troða inn i
simaklefa. Liðið sem sigraði i
keppninni tróð 30 manns inn i
simaklefann. Það met hefur enn
ekki verið slegið, og vafasamt
að það verði gert i bráð.
Amerikananum John Parker
þótti óskaplega vænt um gullfiska.
Ekki sem syndandi fegurðarauka
i fiskabúrum, heldur sem mat.
Hann ákvað einn góðan veðurdag
að setja nú met i gullfiskaáti, —
lifandi gulifiska vel að merkja.
Gildandi heimsmet var 225 fisk-
ar, en John þessi Parker lét sig
ekki muna um að slá það. Hann át
300 lifandi gullfiska.
Annar amerikani hefur einnig
sett matarmet — og það er ef til
vill met af þeirri gerðinni sem
lesendur vildu gjarnan reyna við.
Hann borði hálft annað kíló af
spaghettíi. Þessi náungi var ekki
sérlega mikið fyrir gullfiska svo
hann lét sér nægja tómatsósu
með.
Svo eru lika til menn sem
drekka sig til heimsmeistaratign-
ar. Það kemur auðvitað fyrir að
sumum finnst þeir hljóta að hafa
slegið öll slik met, einkum þegar
timburmennirnir gera vart við
sig, en opinbera heimsmetið er
sett af amerikananum Jerry
Cowan. Hann drakk tvo litra af öli
á 5,2 sekúndum. Og hann bætti
um betur eftir á: Hann stóð á
höfðinu og slafraði i sig krús af
freyðandi bjór, þegar hann hafði
náð sér eftir heimsmetið.
En það eru fleiri sem sett hafa
heimsmet með lappirnar uppiloft.
Annar amerikani — þeir eru ber-
sýnilega miklir metamenn i þvi
landi — Tom Knappen að nafni,
gekk 45 metra á 29,5 sekúndum
— á höndunum. Gamla metið var
42,3 metrar.
Iþróttaheimurinn er vettvang-
úr flestra heimsmeta hins dag-
lega lifs.
Þegar Múhameð Ali keppti við
Joe Frazier i Madison Square
Garden i mars 1971, fengu þeir
hvor um sig tvær og hálfa miljón
dollara fyrir slaginn. Sú upphæð
hefur ekki verið slegin enn, enda
má komast af með minna, ef út i
það er farið.
Fyrsta hjólreiðakeppnin fór
fram i Paris 31. mai 1868. Þetta
var tveggja kilómetra keppni og
sigurvegari varð englendingurinn
James Moore.
En sá sem hraðast hefur komist
á reiðhjóli er hins vegar frans-
maðurinn Jose Meiffret. Hann
komst á 203 km hraða á klukku-
stund, með þvi að hjóla á eftir
kappakstursbil. Sennilega er ekk-
ert til sem heitir hámarkshraði
reiðhjóla.
Við skulum láta þetta nægaja
• sem sýnishorn úr þessar. gagn-
merku bók. Kannski langar þig,
lesandi góður til að setja heims-
met i einhverju. Gerðu það bara!
Metabók Guinness tekur við öll-
um staðfestum heimsmetum.
Heimsmet: 52 logandi vindlar I
munninum.
Heimsins stærsta myndavél.
Heimsmet: 30 manns I einum
simklefa.
Heimsmet í hamborgaraáti: Bri-
an Tendler át 22
Feitustu tviburar heims: Bill og
Ben McCreary. Þeir vega 330 og
320 kíló.
Eins og menn vita eru 100 ár nú liðin frá þvi að islensk nýlenda var fyrst stofnuð i Kanada og er þess
minnst með margvislegu tildragelsi. Timaritið The Icelandic Canadien birtir á forsiðu heftis, sem að
mestu er helgað aldarafmælinu þessa sögulegu mynd. Þetta er Vestfoldarskóli, landnemaskóli sem
stofnaður var 1894 i Shoal Lake héraði i Manitoba. Myndin er tekin árið 1900.
Leiðrétting
„Suðra bát við gómagöng
geymir málaskorðan”
Frá íslendingabyggöum
Sunnudaginn 16. febr. s.l. var
birt vlsa, er ég sendi visnaþætti
Þjóðviljans— eða öllu heldur leið-
rétting á visu, þ.e.a.s. skýring á
uppruna hennar, en það er þessi
alkunna visa I Ijóðum Svein-
bjarnar Egilssonar rektors:
Ef að vantar varmaföng,
vist og heyjaforðann,
þorradægur þykja löng,
þegar hann blæs á norðan.
1 Ljóðmælum Sveinbjarnar
(Rvk. 1856, bls 147) stendur
berum orðum, að Sveinbjörn hafi
ort fyrra hlutann, ,,er hvorki
hann né kona hans mundu upp-
hafið, sem á við siðari hlutann.”
En hin upprunalega visa er, eins
og ég hefi raunar áður tekið fram,
eftir sr. Eirik Hallsson að Höfða i
Eyjafirði, d. 1698, en hann orti
fyrra hlutann af Hrólfs rlmum
kraka, og er þetta fyrsta visa
rimnanna. Þvi miður var
upphafið rammvitlaust prentað,
svo að úr varð alger vitleysa.
Verð ég þvi eilitið langorðari en
þurft hefði, ef leiðrétting hefði
komiðstrax, en nú er þetta tekið
að fyrnast. Raunar sendi ég leið-
réttingu til sama þáttar, en hún
hefir ekki fengist birt. Þar sem ég
vil ekki láta bendla nafn mitt við
slikan auladóm, sem fram kemur
i meðferð visunnar, verð ég að
snúa mér aftur til blaðsins til þess
að fá upphaflegu visuna rétt
birta, en hún er þannig rétt:
Suðra bát við gómagöng
geymir málaskorðan.
Þorradægur þykja löng,
þegar hann blæs á norðan.
Þar sem þeir, sem um fjölluðu,
hafa að likindum ekki skilið fyrri
hlutann, þykir hlýða að skýra
kenninguna. Suðri: dvergur
(dvergsheiti, bátur hans: skáld-
skapur (sbr. S.-Eddu, og liggur
hér alllöng goðsögn (myta) að
baki, sem ekki er rúm til að rifja
hér upp, annars mjög algeng
kenning hjá skáldum fyrri alda,
m.a. hjá Hallgrimi Péturssyni:
gómagöng: munnur: mála-
skorða: tunga. Heildarmerkingin
verður þá: Tungan i munninum
geymir, hefir yfir að ráða (forða
af) skáldskap. Hefir sr. Eirikur
byrjað að kveða rimurnar á
þorra.
Með upphafi Sveinbjarnar hefir
svo visan lengstum gengið
án þess, að upphafið hafi verið
þekkt. Þannig er visan t.d.
prentuð i Lesbók handa börnum
og unglingum (öllum útg.), er
Guðmundur landsbókavörður
Finnbogason, Jóhannes yfir-
kennari Sigfússon og Þórhallur
biskup Bjarnason sáu um útgáfu
á og notuð mun hafa verið i
skólum fram um og yfir 1930.
Hafa þeir ágætu menn liklega
ekki þekkt annað upphaf visunnar
en það, sem Sveinbjörn orti, þvi
að visan er prentuð þar athuga-
semdalaust.
Hin visan er af öllu öðru sauða-
húsi og mun vera allforn hús-
gangur, sem enginn veit höfund
að. Var hún fyrst prentuð i gömlu
Almanaki Þjóðvinafélagsins
(1914?), að mig minnir. Þar er
hún þannig:
„Veltast i honum veðrin stinn,”
veiga mælti skorðan.
„Kominn er þefur i koppinn
minn:
kemst hann senn á norðan.”
Lýtur visan að þvi, að hér
fyrrum var spáð fyrir veðri i
koppa, en þá voru þeir úr tré,
gyrtir gjörðum.
Þvi næst hefir einhver ruglu-
kollur eða ruglukollar, iiklega
nýlega, glundrað þessum óskyldu
visum saman.
Reykjavik, 26. apr. 1975,
Jóhann Sveinsson frá Flögu.
Olesnar
bækur á
góðu veröi
Eigum ætíð talsvert
úrval af ólesnum og
nýlega útgefnum bók-
um á hagstæðu verði.
Lítið inn og gerið góð
kaup.
BÓKIN H.F.
Skólavörðustíg 6
Simi 10680.