Þjóðviljinn - 08.06.1975, Blaðsíða 23

Þjóðviljinn - 08.06.1975, Blaðsíða 23
Sunnudagur 8. júnl 1975 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 23 <*> Fyrsta bréfiö frá Reyðarfirði w -po > '“O yy/f ii Hreinn Ágúst Óskarsson, 11 ára, Mána- götu 27, Reyðarfirði sendir nokkrar myndir sem hann hefur teiknað. Hér birtum við þrjár af þeim: Tigrisdýr og tvær Hvað-er-þetta-myndir. Hreinn sendir lika myndþrautir sem koma seinna i blaðinu. Svör við Hvað er þetta? iuuis munpq i snj\[ z ddn bjjhm qn jnjjosj jojjbas t Umsjón: Vilborg Dagbjartsdóttir Myndir frá Þóru Þóra Gunnarsdóttir, 6 ára, Skólavörðustíg 33, Reykjavík, teiknaði þessa Ijómandi fallegu mynd af Hallgrímskirkju. Klukk- urnar, Hallgrímur og Guðríður, sjást gegnum glugga á turninum. Þóra sendir lika f jörlega götu- mynd og loks kankvisa stelpu sem gæti verið hún sjálf. Það var gaman að fá þessar myndir frá Þóru, af því að i nóvember sendi hún okkur tvær mjög skrautlegar myndir sem við gátum ekki prentað, vegna þess að þær voru teiknaðar með vaxlitum sem týnast í prentun. Þá báðum við Þóru að teikna aðra mynd og nota bara góðan blýant eða svarta litinn. Tíminn leið og ekki kom aftur bréf frá Þóru. Loks kom stórt bréf og í því voru margar myndir frá Þóru og líka eftir Kristján bróður hennar. Þetta eru sex ára börn við nám i Austurbæjarskóla. 1 vetur voru þau i skóla 12 tima á viku. Á hverj- um virkum degi tvo eða þrjá tima nema á laugardögum var fri. Þau byrjuðu að læra að lesa og dálitið að reikna, annars fór timinn mest i léttar foræfingar til undir- búnings eiginlegu skólastarfi. Þau teikna, föndra og fara i leiki. Þeim finnst mest gaman að „FINGRAMÁLI”. Þá fá þau lim sem litadufti er hrært út i og svo fá þau að mála með fingrunum á stór blöð. Oft eftir músikk. Kennararnir á myndinni heita Nina Magnúsdóttir og Guðrún Halldórsdóttir. ÞAÐ ER GAMAN í SKÓLANUM

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.