Þjóðviljinn - 15.06.1975, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 15.06.1975, Blaðsíða 13
Sunnudagur 15. júni 1975 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 Guðni Jónsson bátsmaður Guðni Jónsson frá Bjarnastöð- um á Alftanesi i Bessastaða- hreppi lést eftir bilslys 8. þ.m., þegar hann var á heimleið frá Grindavik með skipsfélögum sin- um. Guðni var fæddur 13. ágúst 1904, og þvi 71 árs þegar hann andaðist. Foreldrar hans voru Jón, sonur Diðriks skipasmiðs og Margrétar Jónsdóttur frá Grashúsum á Álftanesi, en móðir Guðrún Guðnadóttir ættuð úr Borgarfirði. Margrét, amma Guðna, var syst- ir Guðnýjar Jónsdóttur móður Guðmundar Kamban og systkin- anna frá Grashúsum. Guðni var elstur 13 systkina, sem öll lifa að undanteknum dreng, sem lést nokkru eftir fæðingu. Ef höfð eru i huga kjör alþýð- unnar i landinu um siðustu alda- mót og á fyrsta þriðjungi aldar- innar, má frekar þakka það ó- venju góðu atgervi en aðbúð, að svo stór systkinahópur hefur lifað og komist til góðs manndóms, þar til eitt af hinum óhugnanlegu um- ferðarslysum okkar tima hefur nú orðið elsta systkininu að aldur- tila. Með Guðna féll frá einn af hæf- ustu og reyndustu sjómönnum okkar, hvort heldur hann lét til sin taka sem háseti eða bátsmað- ur á togara eða skipaði rúm á minni fiskiskipum. Frá þvi ég man fyrst, hefur Guðni heitinn Jónsson frá Bjarnastöðum skipað sérstakan sess i þvi frækna liði togarasjó- manna, sem um áratuga bil var samskipa föður minum, bræðr- um, frændum og mörgum vinum. Hann var einn þeirra, sem einna lengst .myndaði hinn trausta kjarna áhafnar Snæbjarnar Ólafssonar, skipstjóra á togurun- um Ver frá Hafnarfirði og Tryggva gamla og Hvalfelli frá Reykjavik. Ég átti þvi láni að fagna, þótt ekki væri sú reynsla tekin út með sældinni, að taka þátt i störfum með þessum þraut- reyndu togaramönnum á Tryggva gamla á saltfiskveiðum á Halamiðum 1945. Guðni var þá i blóma lifsins og flestum færari til að leysa verkefnin á dekkinu og verkstýra mannskap. Um þær mundir var að renna upp timabil nýsköpunartogar- anna. Mörg ung sjómannsefni horfðu björtum augum til fram- tiðarinnar á nýju skipunum, sem koma áttu. Þeim var það þá og lengi siðar mikilsverður skóli að njóta leiðsagnar manna á borð við Guðna, þar sem saman fór margslungin reynsla, verksnilld og einstök prúðmennska. Það mun i senn hafa verið Guðna meðfædd hæfni og ættar- hefð, a.m.k. i föðurætt, að geta smiðað, og átti hann það sameiginlegt með bræðrum sin- um, sem ég þekki vel til, Helga, Guðmundi, Diðriki og Ásgeiri, að vera ágætur smiður. En hið sterka sjómannseðli hans má best marka af þvi, að þótt honum væru allir vegir færir við smiðar i landi, t.d. bátasmiðar, sem hann fékkst við tima og tima, kaus hann ætið sjómannsstörfin fram til siðasta dags og lét ekki hin mörgu og slæmu giktarköst siðustu æviára aftra sér. Guðni Jónsson var kvæntur Kristinu dóttir Vigfúsar frá Oddakoti á Álftanesi. Hún var uppeldisdóttir ólafs Bjarnasonar, útvegsbónda i Gesthúsum. Þau bjuggu á upphafsárum sins hjú- skapar á Álftanesi i Gerðakoti og Þórukoti. Frá þvi þau fluttust til Reykjavikur hafa þau lengst búið á fögru heimili sinu að Kirkjuteig 11. Þau eignuðust fjögur börn: Stellu, Braga, Óskar Guðjón Vig- fús, Gislinu Vigdisi og fósturdótt- ir þeirra er Agústa Helga Vigfús- dóttir. Það er likn á sorgarstund að muna, að Kristin og Guðni hafa átt barnaláni að fagna og notið mikillar fjölskylduhamingju með börnum sinum, tengdabörn- um og barnabörnum. Ég sendi f jölskyldu Guðna inni- legar samúðarkveðjur. Ólafur Jenssoi Tilkynning til söluskatts- greiöenda sem selja söluskattsfrjálsar vörur í smásölu Með söluskattsskýrslu fyrir maimánuð á að fylgja útfyllt eyðublað með sundurliðun á keyptum söluskattsfrjálsum vörum i mai eftir álagningarflokkum. Eyðublaðið liggur frammi hjá skattstjórum og inn- heimtumönnum rikissjóðs. Með söluskattsskýrslunni á einnig að fylgja nákvæm birgðaskrá um birgðir 30. april sl. af þeim vörum sem felldar voru undan söluskattsskyldu frá 1. mai sl. Birgðirnar skulu reiknaðar á útsöluverði en að frádregnum söluskatti og koma til frádráttar heildarveltu i mai-mánuði. Ríkisskattstjóri Tilkynning til söluskattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á þvi, að gjalddagi söluskatts fyrir mai- mánuð er 15. júni. Ber þá að skila skattin- um til innheimtumanna rikissjóðs ásamt söluskattsskýrslu i þririti. Fjármálaráðuneytið 10. júni 1975. Snarráö Snarráð brúður, sem rétt var gengin i það heilaga, vann bug á vopnuðum glæpamönnum og leysti sjálfa sig og brúðgumann úr haldi með þvi að stela frá þei kónum skammbyssu og stökkva þeim á flótta. Brúður og brúðgumi voru tekin höndum af róæningjaflokki, sem Fyrrverandi baptistaprestur, sem var orðinn leiður á trúarlifi hefur snúið sér að annarskonar söfnuði: þeirra sem dýrka nektina. Sr. Graham Sahling, sem áhangendur kalla fressköttinn, hefur leigt sér hóp f jögurra ungra nektardansmeyja og lætur þær brúður réðist á brúðarfylgd skömmu eftir vigsiu. b Brúðurin þóttist vera heldur svona vinveitt ræn- ingjunum og notaði þann vinskap til að steia frá þeim skammbyssu og byrja að skjóta i allar áttir. Bófarnir flugu i skelfingu. Konan unga leysti þá mann sinn úr böndum og gat nú brúðkaupið haft sinn gang. (Reuter) skemmta þreyttum bisness- mönnum með þriggja stunda afkiæðingarsýningum I Kempton Park, sem er skammt fyrir utan Jóhannesarborg i Suður-Afriku. Fresskötturinn heldur þvi fram að hann sé mjög trúaður sem fyrr. Hann neitar að efna til sýninga á sunnudögum og öðrum helgidögum. — NTB Ekkert bólar á fiskverði sem koma átti 1. júní s.l. Nýtt fiskverð átti að koma 1. júni sl. en ennþá bólar ekkert á þvi þrátt fyrir stöðuga fundi yfir- nefndar verðlagsráðs sjávarútvegsins, að þvi að okkur var tjáð á skrifstofu verðlags- ráðsins i fyrradag. Ekki fékkst uppgefin ástæðan fyrir þessum drætti á fiskverðs- ákvörðuninni. S.dór Björn Sigurös- son 80 ára Björn Sigurðsson, netagerðar- meistari, fæddist að Hellum i Reynishverfi, Mýrdal, 16.6. 1895. Hann fluttistá unglingsárum með foreldrum sinum að Hrifunesi i Skaftártungu, þar sem hann tók virkan þátt i starfi ungmennafé- lags sveitar sinnar. Hann fluttist til Reykjavikur upp úr 1930, stundaði sjómennsku um árabil, bæði á bátum og tog- urum og vann við netagerð, lengst af hjá Birni Benediktssyni, netagerðarmeistara. Arið 1940 gekk Björn að eiga Ingunni Kristjánsdóttur og skömmu siðar hlaut hann réttindi sem netagerðarmeistari. Þau hjón hafa átt heimili i Reykjavik allan sinn búskap. Aldrei á sunnudögum VIÐ BYGGJUM BYGGJUM VIÐ Vi3 byggjum, — byggjum við . . . og nú höfum við opnað nýbyggingu Samvinnubankans í Bankastræti. Við bætt skilyrði verður okkur nú unnt að veita viðskiptavinum okkar meiri og betri þjónustu. Öll afgreiðsla bankans fer fram á fyrstu hæð. Geymsluhólf, sem bankinn hefur ekki haft aðstöðu til að hafa áður, verða nú til reiðu. Okkur er það mikil ánægja að geta tekið betur á móti viðskiptavinum okkar, verið velkomin i Bankastræti 7. Samvinnubankinn HBS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.