Þjóðviljinn - 15.06.1975, Qupperneq 20

Þjóðviljinn - 15.06.1975, Qupperneq 20
E WÐV/im Sunnudagur 15. júni 1975 Meðal þeirra gesta erlendra, er staddir eru hérlendis í sambandi við sýninguna Listtil lækninga í Norræna húsinu eru Jan Thomæus frá Svíþjóð og Shelly Killen frá Banda- ríkjunum. Jan Thomæus er teiknikennari og ,,tera- peut'' og hef ur starfað i tiu ár sem konst-terapeut við Danderyds-sjúkrahúsið í Stokkhólmi. Jafnframt hef ur hann starfað við ráð- eít txímpel pí pídígcijik. mti ttrsfenhsM ímI»9 T«tmnjíiíraT«< 3»nTho«i*w Jan Thomæeus vift eitt verkanna, sem hann sýnir Shelly Killen — fangelsi engu betur taliin íyrir i Norræna húsinu. manneskjur en dýragarðar fyrir dýr. Rætt við Jan Thomæus og Shelly Killen á sýningunni List til lækninga ,Slík utanaðkomandi hjálp getur leyst úr flækjum' leggingarstöð í Hökar- ángen sem konst-terapeut. Shelly Killen er listsögu- fræðingur við Rhode Island-háskólann í Kingston og vinnur jafn- framt við ,,Art-Therapy'' í fangelsum. Þjóðviljinn hafði tal af þeim Thomæus og Killen og spurði þau nokkurra spurninga varðandi starf þeirra. — Jan Thomæus hefur meðal annars unnið með málarahópum, og er sýnishorn af vinnu eins sliks hóps á sýningunni i Norræna húsinu. Hann heldur þvi fram að skólunum hætti til að fjbtra sköpunargáfu barnsins, einskorða hana og gera niður- stöður hennar ófrjóar. Tilhneiging að steypa alla í sama mót — Er það þanr.ig með skóla yfir,leitt? — Ég þekki ekki vel til um það nema i Sviþjóð, en þar ber þvi miður nokkuð viða á einstefnuað- ferðum i myndlistarkennslu, þannig að börn, sem i upphafi skólagöngunnar teikna i fjör- legum, sjálfstæðum og persónu- legum stfl, verða eftir nokkur ár i skóla ópersónuleg og einhliða i listsköpun sinni. — Hvað er við þessu að gera? — Það er alls ekki nauðsynlegt að þetta sé þannig, þetta er undir teiknikennslunni komið. En þvi miður held ég að þetta sé algengt. Það er illa farið, þvi að það er mjög mikilvægt fyrir þroska barnsins að það fái útrás með persónulegu, lifrænu mynd- máli. — Hvað liggur hér að baki? — Tilhneiging i samfélaginu. Samfélagið hefur tilhneigingu til að steypa alla i sama mót, ala alla upp i þeim anda að vinna eins mikið og hægt er og verða eins rikur og hægt er. Tilhneigingin i samfélaginu beinist i þá átt að allir verði þvi sem næst eins, falli inn i ákveðinn ramma. Þetta er iila fárið, þvi að leiðin til sannrar hamingju er auðvitað að hver ein- staklingur fái að njóta sin og sér- einkenna sinna, tjá sig sjálfstætt innan hópsins. Börn geta tjáð sig betur með myndum Hópurinn, sem Thomæus sýnir eftir i Norræna húsinu, er ,,Þrjár mæður og fjögur börn þeirra”. Um starf hans segir Thomæus m.a.: — Hversvegna tekur maður þátt i málarahópvinnu? Af sömu ástæðu og maöur leitar eftir annarri hjálp, meðferð, þegar eitthvað er að. Slik utanaðkom* andi hjálp getur leyst úr flækjum. Um ,,bild-terapi”, myndlist til lækninga, hefur verið sagt, að myndir gerðar undir slikum kringumstæðum hafi mikið heimildargildi. 1 okkar eigin myndum sé oft að finna sannari sjálfsmyndir. Og gerum við þessar myndir með öðrum, sýnum við oft hvernig við erum, og bregðumst við aðstæðum og kringumstæðum með þessu fólki. Séu börn með hafa þau yfirleitt góð áhrif og stuðla að óþvingaðri vinnubrögðum. Ennfremur hafa efni eins og litir og leir hvetjandi áhrif. Þau geta örvað mann- eskjuna og komið henni af stað. 011 vitneskja sem hafði fengist af fyrri tilraunum reyndist eiga við þennan málarahóp. Það nýstár- legasta fyrir okkur, sem að hópnum stóðu, var að foreldrar tóku þátt i honum... Vert er að veita athygli að þegar við, fullorðnir og börn, störfum saman i málarahóp, notum við fremur myndir en orð. Börn standa ver að vigi i byrjun, þau hafa ekki mikinn orðaforða, og eru ekki vön að tjá sig með orðum, eins og margir fullorðnir. Þau eiga auðveldara með að tjá sig i myndum. Og þar með eru úr sögunni yfir- burðir fullorðna fólksins, sem annars eru svo venjulegir og sjálfsagðir að við hugsum ekki um þá. Við urðum öll jafnvig... Attica uppreisnin olli vakningu Uppreisnin i Attica-fangelsinu, sem kostaði mörg mannslif, olli vissri vakningu i Bandarikjunum, að sumu leyti hliðstætt Vietnam- striðinu, sagði Shelly Killen. — Þessi atburður opnaði augu margra fyrir þvi, hve mannúðar- laust og grimmdarfullt samfélag okkar er orðið. Það vaknaði áhugi hjá mörgum að vita meira um þann lokaða heim, sem fangelsin eru, og það komust á kreik sam- tök, sem að þvi unnu. Framar- lega á þvi sviði hafa staðið sam- tök, sem nefnast Black Emergency Cultural Coalition, en framkvæmdastjóri þeirra er kunnur bandariskur listamaður, Benny Andrews. — Hvað er að segja um bandarisk fangelsi? — Þau eru mjög mismunandi. Þar eru til fangelsi, sem minna nánast á einangrunarfangabúðir, þar sem fangar sæta slæmri meðferð og er refsað, ef þeir mót- mæla vondri meðferð á félögum sinum. Fiknilyf eru sumsstaðar seld I fangelsum og ég get ekki I- myndað mér annað en yfirvöldin viti af þvi, þótt þau geri ekkert I málinu. Fangelsi óhæfa í menn- ingarþjóðfélagi Hefur ástandið eitthvað breyst eftir Atticauppreisnina? — Jú, það hefur eitthvað batnað. Áður lágu fangelsismálin i þagnargildi: það var farið með þau eins og feimnis- eða leyndar- mál. En nú eru þau opinskátt til umræðu. Það hafa til dæmis verið ráðstefnur um list i fangelsum. — Litur þú svo á að list skipti miklu máli i meðferð fanga? — Það gerir hún tvimælalaust. List er ein mikilvægasta aðferðin til að veita fólki útrás. Oft gerir listsköpunin að verkum að þess innri maður vaknar og það kemst til betri skilnings á sjálfu sér. Auk þess er list góð sem starf. Það er erfitt að vera iðjulaus eða að vinna meiningarlausa vinnu. — Þú hefur séð islensk fangelsi? — Já, ég kom á Litla-Hraun, og mér likaði undireins vel að fang- Framhald á 13. siðu. Góðaferð tíl Grænlands Til Kulusuk fljúgum við 5 sínnum í viku meö Fokker Friendship skrúfuþotum okkar. Ferðirnar til Kulusuk, sem er á austur- strönd Grænlands, eru eins dags skoðunarferðir, lagt er af stað frá Fteykja- víkurflugvelli, að morgni og komið aftur að kvöldi. I tengslum við ferðirnar til Kulusuk bjóðum við einnig 4 og 5 daga feröir til Angmagssalik, þar sem dvalið er á hinu nýja hóteli Angmagssalik. Til Narssarssuaq, sem liggur sunnarlega á vesturströnd Grænlands, er flogið 4 sinnum í viku frá Keflavíkurflugvelli meö þotum félaganna eða SAS. Flestir þeir sem fara til Narssarssuaq dvelja þar nokkra daga, en kostur gefst á lengri dvöl ef vill. I Narssarssuaq er gott hótel með tilheyrandi þægindum, og óhætt er að fullyrða að enginn verður svikinn af þeim skoöunarferðum til nærliggjandi staöa, sem i boði eru. I Grænlandi er stórkostleg nátturufegurð, og sérkennilegt mannlíf, þar er aö finna samfélagshætti löngu liðins tíma. Þeir sem fara til Grænlanas i sumar munu örugglega eiga góða ferð. FLUCFÉLAC ISLAMDS lOFTLEiam Félög þeirra sem feróast

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.