Þjóðviljinn - 17.06.1975, Side 5

Þjóðviljinn - 17.06.1975, Side 5
Þriðjudagur 17.júni 1975 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5 Það vakti firna athygli fyrir ekki margt löngu þegar Ferdi- nand E. Marcos, forseti Filipps- eyja, ýjaði að þvi með sterkum orðum að filippseyingum væri þökk á þvi að Bandarikin legðu niður herstöðvar sinar á eyjun- um. Komst forsetinn svo að orði meðal annars að Bandarikin yrðu að skilja, að „varnarlið” þeirra á Filippscyjum þýddi stórfellda hættu fyrir þjóðina, jafnvel útrýmingarhættu. Það hefði einhvern tima þótt saga til næsta bæjar ef þvi hefði verið spáð að önnur eins hljóð ættu eftir að heyrast úr þvi horni. Marcos — var eldfljótur að söðla um eftir fall Saigonstjórn- arinnar. Teng Hsiaó-ping — áhyggjur út af tigrisdýri við bakdyrnár. Ulfur og tígrisdýr Filippseyjar hafa verið þunga- miðja bandariskra itaka I Asíu og á Kyrrahafssvæðinu allt frá þvi um siðustu aldamót, er Bandarikin tóku eyjarnar af spánverjum. Fram að siðari heimsstyrjöld voru eyjarnar undir beinum yfirráðum Banda- rikjanna, voru siðan hernumdar af japönum um fáein ár en urðu siðan að nafni tii sjálfstæðar, þó áfram mjög undir bandariskum áhrifum. Bandarikin höfðu á- fram á eyjunum mikilvægar herstöðvar, sem eru kjarni bandariska herstöðvanetsins i Suðaustur-Asíu og á Kyrrahafi. Og allt fram á þennan dag hefur verið litið á Filippseyjar sem tryggasta fylgiriki Bandarikj- anna i þeim hluta heimsins. Viðbrögð Marcosar sýna enn betur en hræðslukennt fátið á Tailandsstjórn hvilikt skipbrot pólitik Bandarikjanna i Suð- austur-Asiu hefur beðið við hrakfarirnari Indókina. Marcos gerir fastlega ráð fyrir þvi að dagar Bandarikjanna sem rikj- andi veldis i þessum heimshluta séu taldir. Hann vill þvi sýna á- berandi áhuga á að losa við þau tengslin og reynir jafnframt að vingast við það stórveldi, sem liklegast er til að hafa mest að segja i Suðaustur-Asiu til fram- búðar — Kina. Endalok Taipe-stjórn- arinnar nálgast Og ekki verður annað sagt en að Marcos hafi notað timann vel, Leiðtogi þess rikis, sem til þessa hefur verið kallað það andkommúniskasta i Austur- Asiu, hraðaði sér i opinbera heimsókn til Peking og fékk að tala við Maó formann. Þeirri heimsókn lauk með þvi að Filippseyjar tóku upp stjóm- málasamband við Kfna, sem jafngilti þvi að þær sviptu stjórnina á Formósu viðurkenn- ingu. Það var verulegur stjórn- málalegur sigur fyrir stjórnina i Peking, þvi að Filippseyjar höfðu til þessa verið taldar einn öruggasti bandamaður Taipe- stjórnarinnar. Með sambands- slitum Filippseyja og Taipe- stjórnarinnar hefur áreiðanlega færst nær að miklum mun sú stund, er Formósa verður inn- limuð i kinverska alþýðulýð- veldið. Ný viðhorf Talið er liklegt að Tailand, Singapúr og Indónesia muni fljótlega fara að dæmi Filipps- eyja. Þessi sveifla á raunar ekki einungis rætur að rekja til ótt- ans við hið kommúniska Kina, heldur og þess að stjórnir þess- ara landa gera sér vonir um að geta nú um hrið um frjálst höf- uð strokið i alþjóðapólitikinni. Til þessa hafa þau mjög verið háð Bandarikjunum, en nú gæti farið i hönd timabil, sem ein- kenndist af þvi að þetta svæði væri ekki undir áhrifum eins stórveldis fremur en annars. Kina sér sér hag i þvi að ýta undir þessa þróun. Leiðtogar þess fylgjast áhyggjusamlega með dvinandi þrótti Bandarikj- anna og óttast að Sovétrikin kunni aö nota tækifærið og koma I stað þeirra sem aðalveldið á Suðaustur-Asiusvæðinu. Kin- verjar gera sér lika ljóst að sameinað Vietnam verður á- reiöanlega áður en langt um lið- ur áhrifamikið riki á þessu svæði, og engar likur eru á þvi að leiðir þess og Kina liggi sam- an I einu og öllu. Leiðtogar Kina telja þvi miklu máli skipta að tryggja sér vináttu þeirra rikja Suðaustur-Asiu, sem enn eru ekki orðin sósialisk. Eyrnabitið úlfsræksni Ótti Kina við það að Sovétrik- in kunni að reyna að fylla það tómarúm, sem Bandarikin skilja þarna eftir, gerði áreið- anlega sitt til þess hve eldfljótt þaö varð að taka i skyndilega og óvænt framrétta hönd Filipps- eyja, sem i gær höfðu verið á- lika grimmur óvinur þess og Park einræðisherra i Suður- Kóreu. Við heimsóknina til Pek- ing komst Teng Hsiaó-ping varaforsætisráðherra svo að orði við Marcos að hann skyldi mikillega vara sig á að „sleppa ekki tigrisdýrinu inn um bak- dyrnar meðan hann væri upp- tekinn af að sparka úlfinum út um aðaldyrnar”. Þetta kin- verska myndamál úr dýrafræð- inni sýnir vel mat Kinastjórnar á risaveldunum tveimur. Sovét- rikin eru i þeirra augum stór- hættulegt og vigreift tigrisdýr, en Bandarikin aðeins eyrnabitið og hrakið úlfsræksni. Ekki er ó- liklegt að Teng sé með þessu að vara filippseyinga við þvi að leggja allt upp úr að losa sig við kanann á sem skemmstum tima. Kina óttast Bandarikin ekki lengur neitt óskaplega eða að minnsta kosti ekki meira en svo, að leiðtogunum i Peking finnst að gott geti verið að brúka þau sem mótvægi gegn Sovét- rikjunum. Af þeim sökum er lik- legt að framámönnum kinverja sé það ekkert kappsmál að Bandarikjunum sé þegar i stað sparkað algerlega út úr Suð- austur-Asiu. Hvað verður um maó- istana á Luzon? Heimafyrir er stjórn Marcos- ar illa ræmd, svo að ekki sé meira sagt, og um margra ára skeið hafa barist gegn henni tvær uppreisnarhreyfingar, önnur sem múhameðski minni- hlutinn á eyjunum stendur að og hin marxisk og maóisk. Sú sið- arnefnda heldur til á aðaleynni Luzon. Er þar raunar um að ræða afsprengi þjóðfrelsishers Filippseyja, Hukbalahap sem reyndi að ryðja á brott banda- rikjamönnum og fillippinskum leppum þeirra eftir lok siðari heimsstyrjaldar. Marcos hefur einskis látið ófreistað til að eyða þessum maóisku skæruliðum og meðal annars lagt i eyði heil héruð, þar sem grunur lék á að þeirhefðu samúð héraðsmanna, en þó aldrei tekist að kála þeim að fullu.Skæruliðar þessir munu hafa fengið einhverja hvatningu frá Kina, enda telja þeir sig fylgja kenningum Maós for- manns. Nú spyr margur, hvort Marcos muni ekki reyna að beita hinum nýju vináttusam- böndum slnum i Peking til að klekkja á maóistunum heima hjá sér. Ef Kinastjórn hvetti maóistana á Luzon til að leggja niður vopn og svipti þá öllum stuðningi, gæti það að minnsta kosti dregið úr baráttukjarki þeirra. I stjórnmálum er allt til. dþ Lýsing á ástandinu í New York: „Velkomin til borgar óttans” NEW YORK 13/6 — Gættu þess að fara ekki út á götur borgarinnar eftir klukkan sex siðdegis og forð- astu aimenningsfarartæki, svo fremi þig langi til að iifa lengur — Þetta stendur meðai annars I bæklingi.sem hefur yfirskriftina: Velkomin til borgar óttans. Hafa lögreglumenn og brunavarnar- menn i New York I hyggju aö dreifa bæklingnum meðal þeirra, sem leggja leið sina til borgarinn- ar. New York-borg hefur undan- farið verið I slikum fjárhags- vandræðum að legið hefur við gjaldþroti, og nú hafa borgaryfir- völdin I sparnaöarskyni ákveðið að segja upp sex þúsund lögreglu- mönnum og 2300 brunavarnar- liðsmönnum. Fulltrúar lögreglu- manna óg brunavarnarliðsmanna halda þvi hinsvegar fram að glæpaöldin I borginni sé slik að hún megi sist við slikri fækkun. Þá muni taka þar við hrein óöld. Meðal ráðlegginga i bæklingn- um er að fara aldrei I neðanjarð- arjárnbraut og fara aldrei út úr húsi á kvöldin nema i leigubil. Þessi verða laun félags- manna BSRB Þann 13. þessa mánaðar var undirritaður samningur milli BSRB og fjármálaráðuneytisins um launakjör starfsmanna rikis og bæja. Litur launatafla BSRB þá þannig út eftir þær breytingar á henni, sem um samdist: (Kaupgreiðsluvisitala: 106,18.) TtMAKAUP Yfir- Vakta- Dag- Lfl. l.þrep 2. þrep 3.þrep 4. þrep 5. þrep vinna álag vinna 10. 47.687 47.687 48.946 52.046 53.922 520,46 147,00 313,53 11. 47.687 48.946 52.046 53.922 55.799 539,22 147,00 324,83 12. 48.946 52.046 53.922 55.799 57.863 557,99 147,00 336,14 13. 52.046 53.922 55.799 57.863 60.491 578,63 147,00 348,57 14. 53.922 55.799 57.863 60,491 63.119 604,91 147,00 364,40 15. 55.799 57.863 60.491 63.119 65.574 631,19 147,00 380,23 16. 57.863 60.491 63.119 65.574 68.029 655,74 147,00 395,02 17. 60.491 63.119 65.574 68.029 70.486 680,29 147,00 409,81 18. 63.119 65.574 68.029 70.486 72.941 704,86 147,00 424,62 19. 65.574 68.029 70.486 72.941 75.397 729,41 147,00 439,40 20. 68.029 70.486 72.941 75.397 77.853 753,97 154,00 454,20 21. 70.486 72.942 75.397 77.853 80.308 778,53 154,00 468,99 22.! 72.941 75.397 77.853 80.308 82.765 803,08 154,00 483,78 23. 75.397 77.853 80.308 82.765 85.220 827,65 154,00 498,58 24. 77.853 80.308 82.765 85.220 88.552 852,20 154,00 513,37 25. 80.308 82.765 85,220 88.552 91.885 885,52 154,00 533,45 26. 82.765 85.220 88.552 91.885 95.218 918,85 154,00 553,52 27. 85.220 88.552 91.885 95.218 98.551 952,18 154,00 573.60 28. 88.552 91.885 95.218 98.551 101.882 985,51 154,00 593,68 Bl. 105.776 105.776 105.776 105.776 105.776 1057,76 154,00 637,20 B2. 111.038 111.038 111.038 111.038 111.038 1110,38 154,00 668,90 B3. 116.300 116.300 116.300 116.300 116.300 1163,00 154,00 700,60 B4. 121.563 121.563 121.563 121.563 121.563 1215,63 154,00 732,31 B5. 127.701 127.701 127.701 127.701 127.701 1277,01 154,00 769,28 B6. 131.121 131.121 131.121 131.121 131.121 1311,21 154,00 789,89 B7. 134.644 134.644 134.644 134.644 134.644 1346,44 154,00 811,11 B8. 138,272 138.272 138.272 138.272 138.272 1382,72 154,00 832,96 Gildistimi samningsins er frá 1. júli 1975 til jafnlengdar 1976. Fyrir júnimánuð fá félagsmenn BSRB greiddar 2 þúsund krónur hver til við- bótar þeim launum, sem þeir fengu útborguð 1. júni, og 1. júli verða laun síðan greidd. eftir ofangreindri töflu. —úþ Til liðs við Njörð Njörður P.Njarðvík sctur i slð- ustu sunnudagsgrein sinni fram þá hugmynd að þýða beri erlend vöruheiti á tungu forfeöra vorra. Nefnir hann nokkur dæmi en við- urkennir uppgjöf sina fyrir þeim vanda að þýða nafnið á banda- riska kjarnadrykknum Kóka kóla. Hér vill undirritaður koma til iiðs við Njörð. Skólabróðir minn úr mennta- skóla sagði mér eitt sinn frá þvi að hann hafi verið i vegavinnu norður á Ströndum um sumarið. Kom flokkurinn á bæ þar sem reiddar voru fram góðgerðir. Gestgjafinn, roskin kona, spuröi piltana hvort einhverjir vildu skola niður kökunum með Sósa sóla.Konan hafði aðeins séð nafn þessa drykkjar ritað upp á enska visu með tveimur séum sem hún bar fram sem rammislensk ess Þessi islenskun hefur marga kosti.Hún fer vel i munni og báðir hlutar nafnsins eiga sér stoð i is- lenskri tungu.Sameiginlega gætu þeir þýtt: sósa framleidd úr skó- sólum. En eflaust hefðu áhuga- menn um neyslu islendinga á þessari vöru eitthvað við þýðing- una að athuga. —ÞH AFERLENDUM BÓKAMARKAÐI Thank You# Fog. Last Poems by WH.Auden.Faber and Faber 1974. WH. Auden lést 29. september 1973. Þá hafði hann safnað þeim kvæðum sem birtast hér, auk þess hafði hann valið titilinn og á- kveðið tileinkunina.Flestöll kvæð- in eru ort eftir að Auden hvarf frá New York til Englands vorið 1972. Siðasta kvæðið, sem vitað er um að Auden orti var ekki að finna i handritinu að þessari bók, en það hljóðar svo: He still loves life But O O O O how he wishes The good Lord would take him. Honum varð að ósk sinni, lést um nótt á hóteli i Vinarborg, eftir að hafa flutt fyrirlestur i austur- riska bókmenntafélaginu daginn áður.Auden bjó i Austurriki siðari árin, milli þess sem hann ferð- aðist um.Kvæði hans fullkomnuð- ust eftir þvi, sem á leið, en þreyt- an jókst og leiðinn á heiminum markaði siðari kvæði hans. No suinmcr sun will ever dismantlc the global gloom cast by the Daily Papers, vomiting in slip-shod prose the facts of filth and violence that we’re too dumb to prevent. Kvæðið endar á þakklæti til þokunnar, hún hylur þó and- styggðina.Spennan var horfin úr boðskap Audens, sem minnast má úr fyrri bókum hansr, grá- mygluleg þvingandi einhæfni staðlaðs heims, sem hefur pró- sentutölur hagvaxtarins sem sitt goð hlaut að vekja meira en litinn leiða.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.