Þjóðviljinn - 17.06.1975, Side 11

Þjóðviljinn - 17.06.1975, Side 11
' ' Þriöjudagur 17.júní 1975 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 Baráttan gegn ásælni bandarlskrar heimsvaldastefnu hefur staöiö öll ár islenska lýöveldisins, en allan þann tima hefur róttækt fólk fyikt liöi gegn erlendri ásælni. © 1946, siðan Marshallaðstoðin 1947- 48, inngangan i Nato 1949 og loks herstöðvasamningurinn 1951. Við skulum athuga hvernig tónninn breytist hægt og sigandi með hverju skrefi. Þegar alþingi samþykkir sumarið 1946aðlsland gerist aðili að Sameinuðu þjóðunum, þá var samþykkt sérákvæði þess efnis að við leyfðum samtökunum ekki að fá hér hernaðaraðstöðu. Þá kepptust stjórn- málaforingjarnir við að lýsa yfir andstöðu sinni við erlenda her- setu. Hér fara á eftir nokkrar til- vitnanir i ræður þeirra: Ölafur Tliors á Alþingi 22. júll 1946: ,,Islenska rikið hefur aldrei háð styrjöld og aldrei haft her- skyldu né herlið landsmanna. Ber að sjálfsögðu að taka tillit til þess i væntanlegum samningum is- lenska rikisins og öryggisráðs- ins.” Ilermann Jónasson 22. júli 1946: „Það er nú áreiðanlega mjög sterkur vilji fyrir þvi hjá þjóðinni og næstum einróma, að ekki komi til þess, að hér verði herstöðvar og ég verð að láta þá skoðun mina i ljós, hvernig svo sem ég greiði atkvæði um þetta mál, að ég tel að það þyrfti að liggja fyrir frá háttvirtu Alþingi nú þegar, að til þess gæti aldrei komið, að við vildum fórna þvi að leyfa varanlegar herstöðvar hér á landi.” Stefán Jóhann 23. júli 1946: „.Spurningin sem nú er á hvers manns vörum, er þessi: Leiðir innganga tslands i bandalag hinna sameinuðu þjóða það ekki óumflýjanlega af sér, að það verði erlendar herstöðvar á Is- landi? Sliku er ekki til að dreifa... Við i (utanrikismála)nefndinni og rikisstjórnin teljum mikils um vert, að vilji Alþingis islendinga komi skýrt og ótvirætt fram um þetta efni, að það sé bæði vilji þingsins og islensku þjóðarinnar, að erlendar herstöðvar verði ekki á tslandi”. Gunnar Thoroddsen 25. júli 1946: „Ég hef haft tækifæri til þess áður, einkum 1. des. sl. að lýsa afstöðu minni til erlendra herstöðva. Ég býst ekki við, að mér sé minna kappsmál en t.d háttv. 3 ■ landskjörnum þing- manni að hér séu engar herstöðv- ar. Og ég hefði ekki verið fylgj- andi inngöngu okkar i bandalag sameinuðu þjóðanna, ég myndi ekki hafa greitt þvi atkvæði hér á þingi, ef ég teldi, að i þvi fælist skuldbinding um erlendar her- stöðvar hér á landi”. Jóhann Hafstein 25. iúli 1946: „Ég er algerlega andvigur her- stöðvum hér á landi”. Siguröur Bjarnason 25. júl 1946: „Ég hef frá þvi styrjöldinni Stefán Jóhann Stefánsson for- sætisráöherra 1947-49. lauk staðið fast gegn því, að nokkru herveldi yrði til lengri eða skemmri tima leigðar hér á landi- herstöðar. Ennfremur hef ég talið sjálfsagt, að gerðar yrðu kröfur um það, að hið ameriska herlið, sem hér dvaldi styrjaldarárin, íæri héðan i brott”. Um haustið eða i október sam- þykktu flestir fyrrgreindra manna Keflavikursamninginn um dulbúna herstöð i Keflavik er tryggði bandarikjamönnum yfir- ráð og afnot af flugvellinum. Inngangan í Nató En þegar kemur að samningum um inngöngu i Nato, þá kveður við annan tón. Þó er þá enn talað um að ekki skuli vera hér, her á friðartimum. Litum á nokkur ummæli: Stefán Jóhanná fundi i Alþýðu- flokksfélaginu 13. febrúar 1949: „....óskynsalegt að taka afstöðu nú þegar til hugsanlegrar þátt- töku tslands i Norður-Atlants- hafsbandalaginu. Sú afstaða hlyti að fara eftir þvi, hvert öryggi það veitti okkur og hverjar skyldur það legði okkur á herðar. Benti forsætisráðherrann i þvi sam- bandi á, að islenska þjóðin myndi ekki óska þess, frekar en norð- menn, að þurfa að hafa erlendan her i landi sinu á friðartimum, og ekki telja sér unnt að taka sjálf upp herþjónustu eða verða virkur styrjaldaraðili”. Alþ.bl. 15.2 ’49. Leiðari i Alþ.bl. 19/2/49: „For- dæmi norðmanna. Þeir (þ.e. kommúnistar) hafa flikað þeirri Bjarni Benediktsson helsti tals- maður hraöskilnaöarmanna. fráleitu blekkingu, að unnið væri að þvi að kalla inn i landið erlend- an her á friðartimum og ljá Vest- urveldunum herstöðvar hér. Þeirri blekkingargrimu hefur verið af þeim svipt”. Leiðari I Alþ.bl. 2/3/49: „Ein- róma yfirlýsingar lýðræðisflokk- anna. Alþýðuflokkurinn mótaði fyrstur allra flokka hér á landi af- stöðu sina til þess máls (þ.e. At- lantshafsbandal.) á flokksþingi sinu i haust”. Alþ.bl., 20/3/49: „Atlantshafs- sáttmálinn staðfestir allar vonir lýðræðissinna, segir Stefán Jó- hann Stefánsson”. Bjarni Ben., 22/3/49: Munum „aldrei samþykkja, að erlendur her né herstöðvar væru i land: okkar á friðartimum”. „Er þvi allur ótti um það, að fram á slikt verði farið við okkur, ef við göng- um i bandalagið, gersamlega á- stæöulaus”. Stefán Jóhann, ræða, Alþ.bl. 29/3/49: „Stofnendur Atlantshafs bandalagsins hafa til fulls virt, skilið og metið sérstöðu tslands sem varnarlausrar þjóðar, sem alls ekki vill né ætlar sér að her- væðast og hafnar þvi eindregið að hafa erlenda hersetu eða her- stöðvar i landi sinu á friðartim- um. Allt þetta hefur verið mjög skýrt og skeiegglega fram tekið og á fyllsta hátt viðurkennt og fullkomlega til greina tekið, sem ófrávikjanlegt skilyrði islendinga til þess að gerast aðili að þessu friðar- og öryggisbandalagi”. Rétt er að vekja athygli á þvi að við inngönguna i Atlantshafs- bandalagið er lögð rik áhersla á það að hér skuli ekki vera her á friðartimum. Um það var jafn- framt gert sérstakt samkomulag við Bandarikjastjórn og þeim fyrirvara i fjórum liðum skeytt við samþykktina 30. mars. Hernámið 1951 1951 er allt orðið breytt, enda kalda striðið i hámarki. Þá geis- aði Kóreustriðið og i Bandarikj- unum Mc.Carty-isminn en sú of- sókna- og múgsefjunarhrið náði að skjóta föstum rótum hér á landi. Kommúnistar voru ekki lengur taldir viðmælanlegir. Hvernig var tónninn i þessum sömu stjórnmálaleiðtogum þá?: <Jr almennri stjórninálayfirlýs. Kramsóknar, 9. flokksþing nóv. 1950: „Framsóknarflokkurinn leggur sem fyrr rika áherslu á, að staðið sé fast á verði um lýðræðið i landinu og stjórnarfarslegt sjálfstæði þjóðarinnar, en unnið gegn erlendri ásælni og áróðri”. Gylfi Þ. Gislason, Alþingi, 22. okt. 1952: „Ég er sannfærður um, að verði ekki breytt um þá stefnu, sem fylgt hefur verið um fram- kvæmd samningsins, þá mun meirihluti þjóðarinnar snúast gegn þvi, að annarri þjóð séu faldar varnir landsins og vilji að við tökum þær i eigin hendur og takmörkum þær þá að sjálfsögðu við litla fjárhagsgetu þjóðarinn- ar”. Bjarni Ben., áramótagrein i Mhl. 31. dcs. 1952: „tslenska þjóð- in hefur þolað marga raun i meira en þúsund ára dvöl sinni hér á landi. öll sú saga sýnir, að það er einhver hinn argasti rógur, sem um hana hefur nokkru sinni verið sagður, þegar þvi er haldið fram, aö menningu þjóðarinnar og jafn- vel tilveru hennar sé stofnað i hættu með dvöl nokkurs erlends varnarliðs hér um sinn”. En þegar alþingi fjallaði um hernámssamninginn eftir á, haustið 1951 var allt annað uppi á teningnum en 1946 og 1949: Bjarni Benediktsson Alþ. B. 1951 (bls. 88): Hernámssamning- ur — „Hér var vitanlega um svo viðurhlutamikið og örlagarikt mál að ræða fyrir isl. þjóðina, að rikisstjórnin taldi sjáifsagt að hafa samráð við alla þá alþm., sem ætla mátti, að viðmælandi 1 væru um nauðsyn þess að koma ’ upp vörnum fyrir tsland. Sá hátt- ’ ur var þá hafður á, að áður en ’ endanlega væri lokið þessari samningsgerð, var málið borið undir alla þm. lýðræðisflokkanna \ þriggja, og þeir lýstu allir sam- , þykki sinu á samningsgerðinni. , Eftir að samningurinn hafði verið , samþykktur, var hann undirrit- ’ aður hinn 5. mai sl. og staðfestur i ^ rikisráði svo sem lög standa til”. „Fyrir þá, sem þannig lita á málið (þ.e. að samningurinn hefði átt að leggjast fyrir Alþing), er þess að gæta, að nú er málið lagt fyrir Alþing og Alþingi á þess kost að fella það eða samþykkja. Hitt er svo annað mál, að það er fyrir- fram vitað, að frv. verður sam- þykkt þvi að yfirgnæfandi meiri- hluti er samþykktur. Eftir að sú samþykkt hefur átt sér stað verð- ur ekki um það deilt að samþykki Alþingis sé fyrir hendi, og kemur þvi ekki til mála, að samningur- , inn sé ógildur af þeim ástæðum. Deilan um það hlýtur að hverfa, þegar málið hefur fengið þinglega meðferð. Að minu viti þarf að visu ekki sérstakt samþykki Al- þingis til þess að samningurinn verði gildur. Það samþykki er þegar fengið með samþvkkt þingsins á Norður-Atlantshafs- samningnum”. Bjarni Ben. Alþ. (bls. 89) — Hernámssamningurinn: „Það sýnir best, að hér er engri kúgun beitt og á ekki að beita gagnvart isl. þjóðinni, enda sannanleg, að hin mikla bandariska þjóð hefur ætið, frá þvi að samskipti okkar við hana hófust, komið fram á þann veg, að islendingar vita, að af hennar hálfu þurfa þeir ekki að óttast skerðinguá fullveldi sinu”. „...reynslan hefur vissulega sýnt okkur, að bandarikjamenn standa við samninga sina”. Stefán Jóh. Stefánsson B. Alþt. 1951 (bls. 92): Hernámið: „Við þurfum ekki að óttast að Vestur- Evrópurikin og Bandarikin muni ráðast á tsland og leggja það und- ir sig”. Stefán Jóh. Stefánsson Alþt. B. 1951 (bls. 109): Hernámið: „Það var tekið fram, er tsland gekk i bandalagið (Atlantsh.b.) að það hefði engan her, ætiaði engan her að hafa”. „Það var eðlilegt, að Bandarik- in yrðu sú þjóð sem tæki að sér varnir hér á landi fyrir Atlants- hafsbandalagið. Islendingár hafa reynslu af Bandarikjunum, og sú reynsia er ánægjuleg. Þetta riki hefur aldrei þröngvað högum okkar á neinn hátt, heldur sýnt okkur i hvivetna skilning og til- hliðrunarsemi”. Siðan þessi ummæli féllu hefur mikið vatn runnið til sjávar og hernám hugarfarsins orðið æ um- fangsmeira. Allan timann frá stofnun lýðveldisins hafa sósiai- istar og fleiri þjóðfrelsissinnar barist gegn þessari erlendu á- sælni og háð nýja sjálfstæðisbar- áttu gegn veldi sem er voldugra en danski andstæðingurinn i fyrri baráttu. En nú, þegar lýðveldið hefur fyllt þriðja áratuginn er svo á- statt að ekkert fararsnið er á bandariska hernum. Milli 40—50 þúsund islendingar hafa skrifað undiráskorun um áframhaldandi dvöl hans og nokkrir menn haft forgöngu um að biðja um erlenda hersetu. Sjálfstæðisbarátta smáþjóðar er ævarandi barátta sem aldrei tekur enda og áfram er barist fyr- ir brottför hersins, þó á undan- förnum mánuðum hafi gætt nokk- uð mikillar deyfðar hjá her- stöðvaandstæðingum. Á þessu vori bar fátæk bænda- þjóð austur i Asiu sigurorð yfir bandariska herveldinu og sannaði með hetjulegri baráttu sinni að sigur er vis hjá þeim er berjast fyrir sjálfstæði og þjóðfrelsi. Sú þjóð sem trúir á sjálfstæöi sitt og berst fyrir þjóðfelsi sigrar að lok- um. Á þessum lýðveldishátiðar- degi ber þvi öllum þjóðfrelsis- sinnum að herða baráttuna fyrir fullum yfirráðum yfir landinu öllu og standa á verði gegn auk- inni grlendri ásælni i hvaða mynd sem hún birtist. óre.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.