Þjóðviljinn - 17.06.1975, Page 20
20 SIDA — ÞJÓDVILJINN Þriðjudagur 17.júni 1975
Hreinn var sá
eini er sigraði
EM-riðillinn í Portúgakárangur íslensku keppend
anna olli vonbrigðum—flestir langt frá sínu besta
islendingar höfnuðu í
næst-neðsta sæti í EM-
riðlinum í frjálsíþróttum
sem fram fór í Portúgal
um síðustu helgi. Þeir
hlutu 46 stig, en neðstir
urðu írar með 43 stig.
Annars varð röð landanna
þessi: Spánn 114 stig,
Sviss, 110 stig, Belgia 93
stig, Holland 88 stig, Portú-
gal 65 stig, ísland 46 stig og
irland 43 stig.
Það verður að segjast eins og er
að islensku frjálsiþröttamennirn-
ir ollu vonbrigðum.Aðeins Hreinn
Halldórsson var við sitt besta og
hann sigraði i kúluvarpi, en var
samt nokkuð frá íslandsmeti sínu
Þeir óskar Jakobsson og Er-
lendur Valdemarsson voru langt
frá sinu besta. Erlendur kastaði
aðeins 54 m.i kringlu og varð i 2
sæti og Óskar kastaði 71,14 m.i
spjótkasti og náði aðeins 4. sæti
Það voru einmitt þessir þrir
kastarar sem búist var við miklu
af, og einungis Hreinn stóð fyrir
sinu.
I öllum hinum tilfellunum urðu
islensku keppendurnir i neðsta
eða næst-neðsta sæti.Það kemur
kannski ekki svo mjög á óvart, en
maður átti von á mun betri
árangri hjá þeim Erlendi og
Óskari.
En hvað um það, keppnistima-
bilið hjá okkur er rétt að byrja. og
kannski eigum við eftir að sjá
mörg góð afrek unnin þegar á
sumarið liður og kannski höfum
viö vænst of mikils af þessum menn vinna ekki afrek á hveriu
frjálsiþróttamönnum okkar,: móti. —Sdór
Hreinn Halldórsson
Reykjavikurmótiö í sundi:
Met Þórunnar
eini Ijósi
punkturinn á
mótinu
Mikil lægð vi
vera hjá sun
Sundmeistaramót Reykjavíkur
fór fram í sundiaugunum i Laug-
ardal sl. sunnudag og er þetta
fyrsta stórmótið I sundi á þessu
sumri.Og það verður að segjast
eins og er, að ekkert markvert
gerðist á mótinu utan eitt islands-
met sem Þórunn Alfreðsdóttir
setti, i 400 m.fjórsundi, synti á
5:43,9 min.Allir aðrir timar sund-
fólksins voru langt frá islands-
metum.Vissulega er þaö rétt sem
forráðamenn sundsins segja, það
cr ekki alltaf hægt að eiga hóp af
afreksfólki, en hinsvegar mun
það staðreynd að langt sé siðan
önnur eins lægð hefur verið i
sundinu og nú.En það er margt
ungt og efnilegt sundfólk á leið-
inni og kannski aðeins timaspurs-
mál hvenær metin taka að fjúka á
ný. Það segir nokkra sögu, að
Guömundur Gíslason, sem hættur
er að æfa með keppni fyrir augum
tók þátt i 100 m. flugsundi og
sigraði með yfirburðum og er
hann þó orðinn 34 ára gamall.
í dag 17. júni fer fram þjóð-
hátiðarmót i sundi og kannski
Mikil lægð virðist
vera hjá sund-
fólki okkar um
þessar mundir
verður það rismeira en Reykja-
vikurmótið var. Úrslit á Reykja-
vikurmótinu urðu sem hér segir:
400 m.fjórsund kvenna:
min
1. Þórunn Alfreðsd. 5:43,9 (Islm)
2.Bára ólafsdóttir Árm. 6:07,5
400 m.fjórsund karla:
1. Axel Alfreðsson Æ 5:17,6
2. Arni Eyþórsson Árm. 5:18,3
3. Brynjólfur Björnsson
Árm. 5:44,8
100 m.baksund kvenna:
1. Þórunn Alfreðsd.Æ 1:23,4
2. Bára Ólafsd.Arm. 1:24,5
3. Hrefna RúnarsdÆ 1:29,6
100 m.baksund karla:
1. Bjarni Björnss.Æ 1:10,1
2. Hermann AlfreðssÆ 1:13,9
3. Hafliði HalldórssÆ 1:17,7
Þórunn Alfreðsdóttir
200 m.bringusund kvenna:
1. Aðalheiður Oddsd.Arm. 3:24,8
2. Astbjörg HaraldsdÆ 3:29,6
3. Regina ÓlafsdJÍR 3:52,2
Þarna keppti Sonja
Hreiðarsdóttir úr UMFN sem
gestur og sigraði á nýju telpna-
meti 3:05,5 min.
100 m.bringusund karla:
I.Guðmundur RúnarssÆ 1 : 18,8
2.Hreinn Jakobss. Árm. 1 : 19,0
3.Hermann Alfreðsson Æ • 1 :21,0
100 m.skriðsund kvenna:
l.Bára Ólafsd.Á 1: :07,6
2.Þórunn Alfreðsd.Æ 1: :07,9
3.Hrefna RúnarsdÆ 1: : 11,1
200 m.skriðsund karla:
l.Sigurður Ólafsson Æ 2: 11,6
Framhald á 17. siðu.
Vegna skipulagsbreytinga
rýmum við fyrir nýjum vörum.
Kjólar, verð frá kr. 995.00
Pils, verð frá kr. 1995.00
Buxur, verð frá kr. 1995.00
Jakkar og kápur, 20-70%
afsláttur.
Allt á að seljast.
Kjóladeildin
MARKAÐURINN ,
Aðalstræti 9
FERÐA
SQNGBOKIN
Ómissandi í
ferðalagið
® ÚTBOÐ
Tilboð óskast i að mála glugga að utan og þakbrúnir
Borgarspltalans I Fossvogi.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frfkirkjuvegi 3,
gegn 5.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 8. júll 1975
kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Auglýsing
Evrópuráðið býður fram styrki til fram-
haldsnáms starfandi og verðandi iðn-
skólakennara á árinu 1976.
Styrkirnir eru fólgnir I greiðslu fargjalda milli landa og
dvalarkostnaðar (húsnæði og fæði) á styrktimanum, sem
getur orðið einn til sex mánuðir.
Umsækjendur skulu helst vera á aldrinum 26-50 ára og
hafa stundað kennslu við iðnskóla eða leiðbeiningarstörf
hjá iðnfyrirtæki I a.m.k. þrjú ár.
Sérstök umsóknareyðublöð fást I menntamálaráðuneyt-
inu, Hverfisgötu 6, Reykjavik. Umsóknir skulu hafa borist
ráðuneytinu fyrir 15. september 1975.
11. júni 1975.
Menntamálaráðuneytið,
r
Vantar
bókhaldsmann
Kaupfélag austanlands óskar eftir
einhleypum manni, sem annast getur
merkingu bókhaldsgagna undir tölvu-
vinnslu og fleira.
Gjörið svo vel og hafið samband við
starfsmannast jóra.
^ SAMBAND iSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
___________:_____________________'iLá