Þjóðviljinn - 21.06.1975, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 21.06.1975, Qupperneq 1
PJOÐVIUINN Laugardagur 21. júni 1975 — 40. árg. 136. tbl. Uppsagnir við skatt- Hreyfing enn í togaradeilunni Ekki sér í lausn enn Eins og frá var greint i blaðinu i gær er loksins einhver hreyfing að komast á togaradeiluna. Samningafundur stóð frá kl. 4 i fyrradag til kl. 2 i fyrrinótt, og var þá strax boðaður nýr fundur, sem hófst i gær ki. 16 og stóð enn er blaðið frétti siðast til i gær- kvöldi. Fyrir nokkrum dögum lagði Jón Sigurðsson, „þjóðhagur” fram hugmynd að lausn i togara- deilunni. Sjómenn svöruðu þeirri tillögu strax i gær, og gagnhug- mynd var komin frá sáttanefnd i togaradeilunni þegar fundinum lauk i fyrrakvöld. Um þessar hugmyndir hefur vafalaust verið rætt á fundinum i gærkvöld. 1 þessum tillögum mun ekki gert ráð fyrir ákveðinni fækkun, held- ur er alltaf talað um að kauplið- irnir skuli breytast „ef vantar mann” á skipin. Þrátt fyrir þessa hreyfingu samninga siðustu sólarhringa hafa útgerðarmennirnir sjálfir ekkert látið frá sér heyra beint. Fyrir nokkru gerðu þeir sjómönn- um tilboð um hækkun fastakaups- ins, en sjómenn höfnuðu sam- stundis og lögðu fram gagntilboð, sem útgerðarmenn hafa enn ekki svarað. Talsmenn félagsrekinna út- gerða hafa að undanförnu lýst sig fylgjandi þvi að leggja kröfuna um mannafækkun til hliðar, en talsmenn einkareksturs togara- útgerðar halda enn til streitu kröfunni um fækkun i áhöfnum togaranna. Enda þótt hreyfing sé á samn- ingunum er ekki séð fyrir neina lausn á þessu langa togaraverk- falli þegar þetta er skrifað. Fyrsta konan lýkur sveinsprófi íbókbandi rannsóknir Annar skattrannsóknar- stjórinn segir upp störfum Skattrannsóknarstjóri, Ólafur Nilsson, hefur sagt upp starfi sinu frá og með 1. nóvember næstkom- andi. Skýrði ólafur frá þessu i viðtali við Þjóðviljann i gær- morgun. Hann neitaði þvi að upp- sögnin væri á nokkurn hátt bund- in óánægju með starfsskilyrði. 8 ár eru nægur timi fyrir mann i svona starfi. Hann sagði aðspurður að einn annar starfsmaður hefði sagt upp störfum, en sagði að ekki hefðu komið fleiri uppsagnir. Hins veg- ar er blaðinu kunnugt um að fleiri starfsmenn deildarinnar hafa i- hugað uppsögn og getur fjölda- uppsögn ekki stafað af öðru en þvi að menn hafi sameiginlega á- stæðu, til dæmis að glima við ein- hvern drauginn i „kerfinu” hafi mistekist. Ólafur sagði að það tæki langan tima að þjálfa menn til starfa i skattrannsóknardeildinni og það væri mikið tjón fyrir skattakerfið að missa fólk sem væri oröið vant þvi að fást við frumskóg skatta- kerfisins. Fyrsti skattrannsóknarstjórinn Guðmundur Skaftason, mjög hæf- urembættismaðuraðflestra áliti, sagði upp störfum á sinum tima vegna þess að hann var óánægður með starfsaðstöðu alla við em- bættið. Er þvi Ijóst að reynslan er að sanna að stjórnarvöld búa ekki að embætti þessu sem vert væri, enda er tilvera þess mörguin máttarstólpum núverandi stjórn- arflokka mikill þyrnir i augum. Varðskip skautað v-þýskum togara I gærmorgun kom varðskip að fjórum vestur-þýskum tog- urum er voru að veiðum fyrir suð-austan land innan við 50 milna landhelgismörkin. Snerust aðgerðir varðskipsins fljótlega fyrst og fremst að einum togaranna og skaut að honum lausum skotum, en togarinn sinnti þvi engu. Leik- urinn barst á haf út SA-af landinu og skaut varðskipið einnig tveim föstum skotum að togaranum. Togarinn mun nú á leið til hafnar i Vestur- Þýskalandi. t gær gekk sendiherra þýska sambandslýðsveldisins á fund Einars Agústssonar utanrikis- ráðherra og mótmælti aðgerð- um varðskipsins en utanrikis- ráðherra skýrði sjónarmið is- lendinga. 3 til 12% fiskhækkanir Fiskverð hækkar um allt að 12% um þessar mundir. Vcrðá- kvörðunin var tekin af fuiltruum fiskseljenda og oddamanni nefndarinnar gegn atkvæðum fulltrúa fiskkaupenda, sem mót- mæltu þessari hækkun vegna erf- iðleika frystihúsanna. Breytingar á lágmarksverði á helstu fisktegundum verða þess- ar: Framhald á bls. 10. Framsóknarmaður skal það vera! Flokkslitur metinn meir en starfsreynsla við veitingu bankastjóraembœttis í Kópavogi Nýlega lét Bjarni Guðbjörnsson bankastjóri við útibú Ctvegs- banka íslands i Kópavogi af störf- um og var bankastjórastaðan auglýst laus til umsóknar. Um- sækjendur voru eitthvað á annan tug ailt reyndir bankamenn nema einn. Að flestra dómi var talið að Gunnar Guðmundsson deildar- stjóri i hlaupareikningsdeild, sem starfað hefur hjá bankanum siðan 1939, stæði næst þvi að fá stöðuna vegna langrar starfs- reynslu. En skyndilega tók málið aðra stefnu. Framsóknarmenn eru frægir fyrir að eigna sér sum embætti og vilja i engu láta sinn hlut i kerf- inu. Bjarni var fyrrverandi þing- maður framsóknar og framsókn- armaður skyldi taka við af hon- um. Jón Skaftason fór á stúfana og fann loks i hópi umsækjenda einn af réttu sauðahúsi. Að dómi framsóknar var Gunnar aftur á móti óhæfur, þvi hann haföi ekki haft nein afskipti af stjórnmálum, aðeins reyndur og traustur bankamaður. Fór nú framsókn- armaskinan i gang. Jón tilkynnti bankamálaráðherra ólafi Jóhannessyni að i hópi umsækj- enda væri framsóknarmaður Loftur Guðbjartsson, sem unnið hefði hjá bankanum siðan 1959 og er forstöðumaður hagdeildar. Ekki setti framsókn fyrir sig að hann hefði 20 árum skemmri starfsaldur en Gunnar og fór nú framsóknarformaðurinn á fund Sjálfstæðisflokksins og knúði Framhald á bls. 10. Rithöfundar hljóta styrk Stjórn Rithöfundasjóðs Islands hefurákveðið að úthluta eftirtöld- um rithöfundum úr sjóðnum árið 1975, hverjum um sig 200 þúsund krónum. Styrkinn hlutu Jón Helgason, Steinar Sigurjónsson og Vésteinn Lúðvikssson.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.