Þjóðviljinn - 21.06.1975, Side 12

Þjóðviljinn - 21.06.1975, Side 12
DIOÐVIUINN Laugardagur 21. júni 1975. Munið Alþýðubandalagsferðina sunnudaginn 6. júlí Herstöðvaviðrœður USA og Spánar Spánn vill viðurkenningu á stuðningi sinum við Nató Maria Markan. Maria Markan heiðruð Næstkomandi miðvikudag 25. júni verða haldnir heiðurshljóm- leikar i Austurbæjarblói i tilefni af sjötugs afmæli Mariu Markan óperusöngkonu. Á hljómleikunum koma fram flestir fremstu söngvarar þjóðarinnar. Vonast aðstandendur hljómleikanna eftir þvi að sem flestir komi og heiðri með þvi listakonuna á þessum timamótum. Miðar á hljómleikana verða seldir frá og með n.k. sunnudegi i Austurbæjarbiói. Auk þess hefur verið gefin út hljómplata með gömlum hljóðrit- unum af söng Mariu. Flest þeirra söng hún meðan hún var á hátindinum sem söngkona en tvö laganna syngur hún eftir að hin- um eiginlega söngferli lýkur. Vin- ir hennar standa að útgáfu plöt unnar vegna þess að „góður söng- ur” á erfitt uppdráttar hjá hljóm- plötuútgefendum og almenningi. Karpov nœr öruggur Þegar aðeins ein umferð er eft ir á skákmótinu i Portoroz i Júgóslavlu hefur heimsmeistar- inn I skák, Anatoli Karpov einn vinning I forskot og má þvl telja hann nokkurnveginn öruggan um sigur á mótinu, honum dugar jafntefli I slðustu umferð til að vinna mótið. Staðan eftir 14 um- ferðir er þessi: Karpov 10,5 v, Gligoric 9,5 v, Hort og Furman 9 v, Ribli 8,5 v, Ljúbojevic 8 v, Parma 7,5 v. og biðskák Portis 7 v og biðskák Velimirovis og Barle 7 v, Planic 6,5 v, Mariotte 6 v, Garcia 5 v, Musil 4,5 v, Osterman 3,5 v, og Karner 2,5 v. Þess má geta að þeir Karpov og Gligoric gerðu jafntefli I skák sinni I 14. umferðinni. MADRID 20/6 — Spænska stjórn- in hefur tekið af öll tvfmæli um það, að Bandaríkin fái ekki að nota bækistöðvar slnar á Spáni til millilendingar fyrir vopna- flutningaflugvélar sfnar á leiö til tsraels, ef nýtt stríð brýst út I Austurlöndum nær. Tilkynnti spænska fréttastofan EFG þetta eftir að sjöttu umferð viðræðna spánverja og bandarfkjamanna um bandarlsku herstöðvarnar á Spáni var lokið I Washington. Samningaviðræðurnar hefjast aftur 30. júní I Madrid, og I Was- hington gera menn ráð fyrir að þeim verði fram haldið allt til NAIROBI 20/6 — Idi Amin, forseti Uganda, hefur ákveðið að breski lektorinn Denis Hills, sem dæmd- ur var til dauða af þvl að hann gagnrýndi Amin I bók um Úg- anda, verði skotinn klukkan nlu á mánudagsmorgun. Af tilkynning- unni, sem lesin var upp I útvarpið i Úganda, er helst að skilja að Amin hafi visað á bug áskorun frá Elisabetu bretadrottningu um að þyrma llfi Hills. Samkvæmt útvarpinu hefur Amin sagt að hann sé ekki til við- tals um náðum fyrir Hills nema þvl aðeins að Callaghan utan- rikisráðherra breta komi sjálfur CHICAGO 20/6 — Alræmdur Chicago-bófi, Sam Giancana, margorðaður við Mafluna, Cosa Nostra og önnur állka fyrirtæki, fannst snemma I morgun dauður I lúxusibúð sinni i útjarði Chicago. Hann varð 65 ára að aldri. Hann hafði verið skotinn til bana með haglabyssu. Sam Giancana hefur verið tals- vert til umræðu i fjölmiðlunum undanfarið vegna nýjustu upp- ljóstrananna um starfsemi bandarisku leyniþjónustunnar (CIA). Blaðið New York Times skýrði svo frá að CIA hefði gert áætlun um að myrða þá Fidel Castro, forsætisráðherra Kúbu, bróður hans Raul og Che Guevara, sem þá var lands- | bankastjóri á Kúbu, á þess er núgildandi herstöðva- samningur rennur út I september. Málið er I mikilli tvlsýnu, þvl að Spánarstjórn vill fá opinbera viðurkenningu á stuðningi slnum við Nató gegn þvl að endurnýja samninginn. Takist Bandarlkjun- um ekki að fá þessu framgengt við bandamenn sina, er ekki ólik- legt að spænska stjórnin krefjist þess að þau fækki herstöðvum slnum og hermönnum á Spáni. — Opinber talsmaður I Washington sagði að hugsanlegir vopna- flutningar til ísrales hefðu ekki komið til tals, og stangast það á við frétt spænsku fréttastofunnar. til Úganda og ræði við hann. Fyrr I dag kom hershöfðingi að nafni Sir Chandos Blair til Kampaia, höfuðborgar Úganda. Hann var yfirmaður Amins, meðan hann þjónaði I breska nýlenduhernum, nánar tiltekið I fótgönguliðs- deildinni King’s African Rifles. Heiðursvörður tók á móti Sir Chandos á flugvellinum, honum var sýndur dýragarður og slðan farið með hann á hótel, en ekki hefur frést aö hann hafi fengið að tala við Amin. Erindi Sir Chandos Blairs er að afhenda Amin skrif- lega áskorun Elisabetar drottn- ingar um að gefa Hills grið. eitri. Giancana mun hafa komið til greina sem handlangari CIA til þessara verka, en hann hafði mikil Itök á Kúbu I tíð Batista og var þar þvl kunnugur. Giancana hefur áratugum saman verið einn helsti framá- maðurinn I hinum skipulagða glæpaheimi Bandaríkjanna og jafnan átt I erjum við réttvísina, sem ekki hefur riðið feitum hesti frá þeim viðskiptum. Fyrir tveimur árum flýði hann til Mexi- kó til að sleppa við að koma fyrir rétt út af ákærum um að standa að skipulagðri glæpastarfsemi I Chicago. I október I fyrra kom hann aftur til borgarinnar og samþykkti þá að gera yfirvöldun- Framhald á bls. 10. Amin neitar að vœgja breskum sendikennara — Segist láta skjóta hann á mánudaginn Giancana skotinn Ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um jafnréttismál: Karlmaður foseti þingsins Ráðstefna Sameinuðu þjóð- anna um jafnréttismál kynj- anna er nú að hefjast I Mexlkó- borg. Kurt Waldheim aðalritari Sþ. setti ráðstefnuna I gær, en þátttakendur eru mjög margir, koma úr öllum heimshornum, karlar og konur. Vilborg Harðardóttir blaða- maður er einn af fulltrúum ts- lands á þessari ráðstefnu og hafði Þjóðviljlnn samband við hana i gærdag. Vilborg sagði það helst mark- vertaf ráðstefnunni að það hefði ekki gerst fyrr á ráðstefnu um jafnréttismál kynjanna, að kona eða konur væru I hverri einustu sendinefnd. „Karlmennirnir eru I minni- hluta,” sagði Vilborg, „en reyndar er forseti ráðstefnunn- ar karlmaður. Ég man nú ekki hvaö hann heitir, en hann er úr mexikönsku sendinefndinni”. Vilborg sagði að urrdirbúningi undir ráðstefnuna væri nú að mestu lokið, þ.e. búið er að kjósa eða útnefna starfsmenn ráðstefnunnar, kosinn hefur verið 41 varaforseti. „Og það er athyglisvert”, sagði Vilborg, „að það reis upp mikið pex um þessa varafor- seta. Þeim er „úthlutað” eftir heimsálfum, þannig að Vestur- lönd fá einn, Austurlönd annan o.s.frv. Þegar svo Sovétrlkin fóru fram á að fulltrúar bráða- birgðabyltingarstjórnarinnar I S-Vietnam fengju einn varafor- seta, varð handagangur I öskj- unni. Þar með vildu skildist mér allir aðrir fá aukavaraforseta. Og það voru karlmennirnir, þessir menn sem eru atvinnu- pexarar á launum hjá Sþ. sem héldu þessu fáránlega háttalagi uppi. Ég sat I einhverri nefnd með öðrum Vesturlandaþjóðum og fulltrúi Kanada, kona ein, sagði að þetta væri hlægileg della, og spurði hvort ráðstefn- an ætti að stranda á svona pexi”. Sem fyrr segir eru fulltrúar vlða að, jafnt frá velferðarríkj- um vestursins til landa sem berjast gegn hungurvofunni. Vilborg Harðardóttir. Væntanlega mun erfitt að samræma áhugamálin, eða eins og Vilborg benti á: Við vorum I gær að undirbúa svokallaða 10 ára áætlun I jafnréttismálum, það stendur til að Norðurlöndin flytji sameiginlega ályktun. Svlarnir vilja hafa þar inni klausu um að karlmenn fái fæð- ingarfri. Ég veit ekki hvernig það hljómar íeyrum fólks sem aldrei hefur heyrt talað um fæð- ingarfrl fyrir konur!” Tvær ráðstefnur um jafnrétti i Mexikó Ráðstefnan I Mexíkó stendur til 6. júll. Hún er opinber, þ.e. stjórnir aðildarlanda Sþ. senda fulltrúa. Hinsvegar er lika hald- in önnur ráðstefna um jafn- réttismál I Mexikó samtimis þessari. Sú er undir vernd Sþ. en ekki opnber og hana sækja full- trúar ýmissa félaga og sam- taka. Vilborg lofaði að gægjast þar inn I leiðinni, hefðu hún tlma og mun Þjóðviljinn þvl væntan- lega geta skýrt nánar frá gangi mála á tveimur jafnréttisráð- stefnum I Mexlkóborg áður en langt liður. —GG Þetta á ekkert skylt við kvenréttindabaráttu segir Sigurbjörg Ingvarsdóttir fyrsta konan sem lýkur sveinsprófi i bókbandi hér á landi — Nei, þetta á ekkert skylt við kvenréttinda- baráttuna eða kvennaár- ið, það er hrein tilviljun að ég tek próf ið á kvenna- árinu, sagði Sigurbjörg Ingvarsdóttir, fyrsta konan sem tekur sveins- próf í bókbandi hér á landi, en hún var að Ijúka sveinspróf inu í gær. — Ég lauk námi I fyrrahaust, en sökum þess hve mikið er að gera hjá bókbindurum á haustin og prófið hjá okkur tekur tvær vikur, lét ég það biða að taka prófið i fyrra og skellti mér svo i þetta fyrir hálfum mánuði og verð að vera búin að öllu kl. 16 i dag. — Ástæðan fyrir þvi að ég fór i þetta nám var sú að ég byrjaði sem aðstoðarstúlka hjá Haf- steini Guðmundssyni á bók- bandinu. Siðan bauð Hafsteinn mér að læra bókband og ég sló til. Svo keypti prentsmiðjan Hólar fyrirtækíð af Hafsteini og ég hélt áfram námi i Hólum. — Hvernig likar þér starfið? — Mér likar það vel og ætla að halda áfram störfum eftir prófið. Annars má segja að bók- band sé mikil þolinmæðisvinna og vandvirkni er þar sem i öðr- um greinum fyrsta boðorðið. — En prófið sjálft I hverju felst það? — Við verðum að binda inn 7 bækur i mismunandi band og er þar aðeins um að ræða hand- band. Og við fáum tvær vinnu- vikur til að ljúka þessu og fáum minusstig takist það ekki. Ég er nú að leggja siðustu hönd á sið- ustu bókina af þessum sjö en það er íslensk menning eftir Sigurð Nordal, bundin i alskinn. Bækurnar verðum við sjálf að leggja til en fyrirtækið leggur til efnið. — Og þú ert fyrsta konan sem lýkur sveinsprófi I bókbandi? — Já, mér er sagt það. Hins- vegar munu vera hér á landi konur með bókbindararéttindi, þær fengu þau þegar nýja iðn- löggjöfin kom vegna þess hve lengi þær höfðu unnið að bók- bandi. Og sökum þess að klukkan var orðin hálf fjögur og Sigurbjörg að keppast við að ljúka bandinu á siðustu bókinni fyrir klukkan fjögur töfðum við ekki lengur en óskuðum henni til hamingju með þennan áfanga. —S.dór.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.