Þjóðviljinn - 22.07.1975, Qupperneq 12
Þriðjudagur 22. júli 1975.
ítölsk
lög-
regla
finnur
þýfi
MILANO 20/7 — ítölsk
lögregla hefur nú f undið
yfir 3000 forn listaverk,
sem eru talin um 5000
miljóna líra virði, í um-
fangsmikilli leitáeinka-
heimilum f Norður-
ítalíu.
Lögreglurannsóknin
hófst fyrir nokkrum
mánuðum eftir að vitn-
eskja hafði borist um ó-
löglega verslun með
fornminjar, og hafa nú
komið í leitirnar hundr-
uð málaðra leirkera
etrúskra og rómverskra
og sægur af öðrum mun-
um.
í einu einbýlishúsi sagðist
lögreglan hafa fundið 2830
muni, og voru þeir elstu frá
þvi um 600 f. Kr. Þess hefur
ekki enn verið getið hvernig
forngripirnir muni vera
fengnir, en eins og kunnugt er
eru listaverkaþjófnaðir úr
söfnum og kirkjum mikil
plága á Italiu, og talsvert er
um aö grafræningjar geri ó-
löglega uppgreftri til að kom-
ast yfir dýrgripi. Eigendur
húsanna, sem gripirnir fund-
ust i, munu koma fyrir rann-
sóknardómara.
Bráðabirgðalög lögð
fyrir þing á Indlandi
Hert eftirlit með erlendum blaðamönnum
NÝJU DELHI 21/7 — Indverska
þingið kom saman til fundar I dag
til að ræða bráðabirgðalög þau
sem stjórn Indiru Gandhi setti 26.
júnl, þegar lýst var yfir neyðar-
ástandi f landinu.
Það var landbúnaðarráðherr-
ann, Jaghivan Ram, sem lagði
bráðabirgðalögin fyrir þingið.
Hann sagði að stjórnarandstaðan
hefði reynt að gripa völdin i land-
inu með þvi að koma af stað upp-
lausn og stjórnleysi, og því væri
nauðsynlegt að lögin væru áfram
i gildi þangað til tryggt væri að
öryggi landsins væri ekki lengur i
hættu.
Búist var við þvi að lögin yrðu
afgreidd þegar, en stjórnarand-
staðan kom þvi þó til leiðar að
þau yrðu rædd. Helstu leiðtogar
hennar eru þó i fangelsi, þvi að
þeir voru handteknir rétt eftir að
lögin voru sett. Kongressflokkur-
inn hefur mikinn meirihluta i
báðum deildum svo ekki er tvi-
sýnt um úrslit. Kommúnista-
flokkurinn styður stjórn Indiru
Gandhi i þessu máli en andstaðan
kemur frá hinum marxiska
kommúnistaflokki, hægri flokkn-
um Jan Sangh og Dravidabanda-
laginu.
Þremur erlendum blaðamönn-
um var vísað úr landi i dag fyrir
að neita að skrifa yndir yfirlýs-
ingu þar sem þeir lofuðu að fylgja
hinum nýju ritskoðunarlögum i
Indlandi. Tveir þeirra voru
bretar en einn bandaríkjamaður
(f ré t ta ri ta r i Newsweek).
Bandariskum blaðamanni var
vlsað úr landi 26. júni, og fyrir
skömmu var breskum blaða-
manni neituð landvist. Hópur 20
blaðamanna frá ýmsum þjóðum
ræddi i dag i fimm klukkustundir
við upplýsingamálaráðherra Ind-
lands um ritskoðunarlögin, og
fengu þeir þvi ágengt að ind-
verska stjórnin féll frá þeim kröf-
um slnum að fá að ritskoða öll
fréttaskeyti áðuren þau eru send.
Hins vegar verða allir fréttaritar-
ar að afhenda stjórninni afrit af
fréttaskeytum eftir að þeir hafa
sent þau. 1 dag var einnig gefinn
út leiðarvisir fyrir blaðamenn
með fyrirmælum um það hvemig
ætti að skýra frá atburðum i land-
inu, einkum þingfundinum sem
nú stendur yfir og málaferlum frú
Gandhi fyrir hæstarétti.
Bandarisku geimfararnir
halda ferðinni áfram
Þannig á sameining Appóllós og Sojuss að hafa iitið út.
Lending Sojús gekk að óskum
MOSKVU 21/7 — Sovésku geim-
fararnir Alexci Leonov og Valeri
Kubasov lentu Sojusgeimfarinu
á steppum Mið-Asiu rétt fyrir tlu i
morgun að islenskum tíma. Lend-
ingin tókst mjög vel, og kom
geimfarið niður aðeins tiu km. frá
þeim stað sem ákveðinn hafði
verið. 1 fyrsta skipti voru sovésk-
ir sjónvarpsmenn til staðar og
sýndu iendinguna I beinni útsend-
ingu.
Meðan sovéska geimfarið lenti.
sváfu bandarisku geimfararnir
Stafford, Brand og Slayton svefni
hinna réttlátu uppi i háloftunum.
Þeir munu ekki lenda fyrr en á
fimmtudag, og eiga þeir að gera
fjölda athugana og visindarann-
sókna þessa daga sem þeir verða
lengur I ferðinni. Þetta flug er
slðasta mannaða geimferðin, sem
Bandarikjamenn ráðgera að
framkvæma á þessum áratug, og
hyggjast þeir þvi nota hana eins
og þeir frekast geta.
Sovésku geimfararnir lentu i
grennd við smábæinn Arkalyk,
sem er um 500 km frá skotpallin-
um I Báikonur og geimstöðinni i
Leninsk. Rétt áður en geimfarið
He rfo ringj a r
koma fyrir
rétt í Aþenu
Blaðberar
Þjóðviljinn óskar
eftir blaðberum i eft-
irtalin hverfi:
Sólheima
Breiðholt
(Stehki)
T ómasarhaga
Einnig vantar fólk til
afleysinga í
ágústmánuði, í eftirtalin
hverfi:
Háskólahverfi
Hjallaveg
Langholtsveg
Þjóðviljinn
Simi 17500
AÞENU 21/7 — Tuttugu og
einn fyrrverandi herfor-
ingi úr gríska hernum kom
fyrir herrétt í Aþenu í dag.
Þessir menn eru ákærðir
fyrir samsæri gegn stjórn
Karamanlis, og liggur
dauðarefsing við sumum
ákæruatriðum.
Þessir herforingjar voru meðal
þeirra 39 sem handteknir voru i
febrúar eftir að komist hafði upp
um samsæri i herdeildum i Aþenu
og Mið- og Norður-Grikklandi, en
hinir 18 voru látnir lausir meðan á
rannsókn málsins stóð.
Herforingjarnir eru ákærðir
fyrir að hafa gert tilraun til sam-
særis gegn stjórninni frá desem-
ber 1974 til febrúar. Markmið
þeirra var að koma af stað upp-
reisn hersins til að þvinga stjórn-
ina til að ganga að ýmsum kröf-
um þeirra, m.a. að veita leiðtog-
um herforingjaklíkunnar, sem
steypt var af stóli i fyrra, uppgjöf
allra saka, hefja aftur hernaðar-
samvinnu við Nató og beita
kommúnista meiri hörku. A þess-
um tima riktu herlög i Grikklandi
vegna hættu á styrjöld við Tyrk-
land, og geta herforingjarnir þess
vegna áít á hættu dauðarefsingu.
Vistheimilið
Vífilsstöðum
Vistheimiliöá Vifilstöðum er nú
senn fullbúið og er gert ráð fyrir
að hcimilið verði opnað I haust.
Heimilið er ætlað drykkju-
sjúklingum og verður rekið i
tengslum við aðrar deildir sem
rikið rekur fyrir drykkjusjúka,
m.a. Flókadeildina og Gunnars-
holt. Er gert ráð fyrir aö sérstak-
ur yfirlæknir verði yfir þessum
deildum, en að þjónusta fyrir
vistheimilið verði að einhverjvf
Ieyti veitt frá Vifiisstaðaspitaia.
Er nú verið að búa heimilið hús-
gögnum og á það að verða tilbúið i
haust. — Myndin hér að ofan var
tekin af byggingu heimilisins i
gær, af Gunnari Steini. —þs.
Arni Pálsson og ég
55
55
,,Árni Pálsson prófessor og ég
eða glæpurinn sem ekki fannst”
heitir bæklingur eftir Sverri
Kristjánsson. Bæklingur þessi
kom út I gær og eins og heitið
bendir til fjallar hann um við-
skipti Sverris við dætur Árna
Pálssonar prófessors, lögbanns-
mál o.fL.Sverrir ritar inngangs-
orð þar scm segir: „Vegna þess-
arar furðulegu málssóknar sé ég
mér ekki annað fært en að leggja
fram öll málsskjöl I þcssu efni,
ummæli min um Arna Pálsson, og
að lokum minningargrein mina
um hann látinn.”
A 12 siðum bæklingsins er viðtal
það sem Vilmundur Gylfason átti
við Sverri i útvarpi 22. júli 1973.
Þá er birt endurrit úr Dómabók
Bæjarþings Reykjavikur, þ.e.
dómurinn i meiðyrðamálinu,
uppkveðinn 29. mars 1974, en i
dómi þessum er Sverri gert að
greiða kr. 55.000 i biríingarkostn-
að forsendna og málskostnað. Þá
birtir Sverrir dómsorð lögbanns-
málsins vegna víðtalsþáttarins i
sjónvarpi og loks minningargrein
um vin sinn, Arna.
lenti sást til þess úr þyrlu, þar
sem það sveif til jarðar gegnum
skýjaþykkni i rauðri og hvitri
fallhlíf. Þrátt fyrir 29 stiga hita
var vindurinn nógu hvass til að
feykja Sojús tiu km af leið. Strax
eftir lendinguna komu þyrlur á
vettvang, og tæknimenn opnuðu
geimfarið.
Leonov og Kúbasov voru bros-
andi þegar þeir stigu út úr Sojus,
og sögðu þeir að sér liði vel en
þeir væru þreyttir. Þeim var
þegar afhent heillaóskaskeyti frá
Sovétleiðtogunum Bresnéf,
Kosigin óg Podgorni. Eftir mót-
tökuathöfnina var þeim flogið til
Baikonur, þar sem þeir eiga að
gangast undir læknisrannsókn .
Síðar I þessari viku mun Sovét-
stjórnin halda þeim veislu i
Moskvu.
Með þessari lendingu hafa
Sovétmenn brotið flestar þær
öryggisreglur sem þeir fylgja
annars, þeir hafa aldrei áður
skýrt i smáatriðum frá aétlunar-
verki geimfars, né leyft erlendum
sérfræðingum að heimsækja
skotpallinn i Baikonur, og þeir
hafa aldrei sýnt lendingu i sjón-
varpi né gefið eins mikið af upp-
lýsingum um flug og lendingu
eins og nú.
KBFFiÐ
frá Brasiliu