Þjóðviljinn - 30.08.1975, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 30.08.1975, Blaðsíða 1
'í^'.y UámiUINN •' • - * Laugardagur 30. ágúst 1975 —40. árg. 195. tbl. k « ® 1 b • Á fyrstu 12 valdamánuðum hægri stjórnarinnar hefurverðlag samkvæmt framfærsluvísitölu hækkað um tæp .55% Sjá leiðara á síðu 4 ^ Á 33 valdamánuðum vinstristjórnar frá júlí 1971 — 1. apríl 1974 hækkaði verðlagið um 56% Mjólk hækkar 20% ■ Asmundur Stefánsson. Mjólk og smjör hækkar um 20% frá og með næsta mánudegi. Mjólkurvörur hækka allar mjög mikið, eða frá 7% til 20%. Verð til Lögbann a Nýja Vísi Eftir að lögbannsbeiðni Reykjaprents h.f. á nafnið Nýi-Visir hafði verið visað frá bæjarfógetaembættinu á Sel- tjarnarnesi var strax lögð fram beiðni hjá bæjarfógeta i Reykjavik og kvað Þorsteinn Thorarensen upp úrskurð sið- degis i gær. Lögbann var sett á nafnið gegn 5 miljón króna tryggingu, sem þegar var greidd i gær. Reykjaprent h.f. verður að höfða staðfestingar- mál innan viku, ef það vill halda lögbanninu til streytu. Sveinn R. Eyjólfsson, fram- kvæmdastjóri „Nýja-Vísir”, sagði þetta um úrskurðinn i gærkvöldi: „Þeir hefðu getað sparað sér 5 miijónirnar og lögbannið hefðu þeir haft samband við okkur. Við erum hættir við að nota nafnið Nýi-Visir. Blaðið á að heita Dagblaðið og hefur undirtitiiinn — nýr vísir að frjálsu dagblaði i Reykjavfk.” • Aðrar land- búnaðarvörur í samrœmi við það • Forsendur kjarasamning- anna að bresta, segir hag- frœðingur ASÍ bænda hækkar um 13,67% frá júnfverðinu en verð til neytenda hækkar mjög mismunandi eftir tegundum, þar eð niðurgreiðslur á einstökum vörutegundum eru mismunandi. Enn hefur ekki verið gengið frá verðlagningu kjötsins, enda hefur sláturkostnaður og heildsölu- kostnaður ekki verið ákveðinn. Þær hækkanir sem ákveðnar hafa verið eru þá eftirfarandi: Mjólk hækkar um 20%. Smjör hækkar um 20%. Skyr, sem er ekki niðurgreitt hækkar um 7%. Ostar hækka um 9% og hefur rikisstjórnin þegar samþykkt þessar hækkanir að þvi er blaða- fulltrúi Framleiðsluráðs land- búnaðarins tjáði Þjóðviljanum i gær. Verð til bænda á m jólkurafurð- um og kjöti hækkar um 13,67% en það merkir að hver mjólkurlitri hækkar um 6,62 krónur til þeirra og hvert kg af kindakjöti hækkar um 47,70 krónur. Framhald á bls. 10. Simgjöld hækka um 15% Póst- og simamálastjórnin hefur fengið heimild til að hækka gjaldskrá fyrir simaþjónustu frá 1. september n.k. Nemur hækkunin um 15% að þvi er varðar flest aðalgjöld, en gjöld fyrir sérbúnað hækka meira. Helstu breytingar á gjaldskrá fyrir simaþjónustu eru, að afnotagjald si'ma i sjálfvirka simakerfinu hækkar úr kr. 2.040,- á ársfjórðungi i kr. 2.350,-. Gjald fyrir umframsimtöl hækkar úr kr. 5.30 i kr. 6.10 fyrir hvert telj- araskref. Fjöldi teljaraskrefa, sem innifalin eru i afnota- gjaldinu, verður óbreyttur. Gjald fyrir flutning á sima hækkar úr kr. 6.800,- i kr. 7.800,-. Stofngjald fyrir sima, sem tengdur er við sjálfvirka kerfið, hækkar úr kr. 13.600 i kr. 15.800,-. Framhald á bls. 10 Hitaveitustokkurinn sem rætt er um I fréttinni er lengst til hægri á myndinni. Birgir borgar 3-4 miljónir með lóðinni Svo sem kunnugt er af blaða- fréttum siðustu daga, lét borgarstjórnarihaldið sig hafa það nú fyrr I vikunni, að úthluta án umsóknar hlöðukálfum sinum, sem standa að byggingaverktakafyrirtækinu Armannsfell h.f„ dýrmæta lóð undir fjölbýiishús á horni Grensásvegar og Hæðargarðs, — án þess að öðrum aðiium hafi verið gefinn nokkur kostur á að sækja um lóðina. Þetta gerðist þrátt fyrir það, að 28 aðrir byggingaaðilar áttu umsóknir hjá borginni um fjölbýlishúsalóðir og hafa enga úrlausn fengið. Nú er komið I ljós, að til þess að gera lóð þessa byggingar- hæfa verður borgin að kosta til a.m.k. 3-4 miljónum króna umfram það, sem ráðgert var þegar lóðinni var úthlutað til vildarvinanna. Aðkeyrsla að margumræddri lóð er frá Hæöargarði, og láðst hafði að taka tillit til þess, að þar er heljarmikill hitaveitu- stokkur I vegi, sem fjarlægja verður, svo aö Armannsfell h.f. geti fært sér i nyt greiðasemi - borgarstjórans i Reykjavik og félaga hans og hafið byggingar- framkvæmdir. Kunnugir telja, að lágmarks- kostnaður við að fjarlægja hita- veitustokkinn sé a.m.k. 3-4 miljónir og meira, ef verkið á að vinnast að vetri til. Knýja opinberir starfsmenn fram verkfallsrétt? Mikil fundarhöld hjá BSRB um samningsréttarmál „Ein af kröfum okkar er að fá fullan sa mningsrétt, það er að segja verkfallsrétt. Hvað varöar BSRB hefur sagt upp samningum Rikis- og bæjarstarfsmenn hafa I samræmi við kjarasamn- ingalög sagt upp gildandi kjara- samningi við riki og bæjarfélög. Samninganefnd skipuö 53 fulitrú- um mótaði kröfugcrð BSRB á fundum sem stóðu frá mánudegi 18. þ.m. til föstudags 22 þ.m. Kröfur rikisstarfsmanna hafa þegar verið afhentar fjármála- ráðherra. Samskonar kröfugerð i megindráttum mun vcrða lögð fram i viðkomandi bæjarféiögum fyrir hönd 15 félaga bæjarstarfs- inanna, sem aðild eiga að BSRB, fyrir fyrsta september. Samkvæmt kjarasamningalög- unum^r gert ráð fyrir að septem- bermanuði verði varið til samn- ingaviðræðna. Fyrir 1. október þurfa einstök aðildarfélög BSRB að hafa lagt fram sérkröfur sinar um röðun starfsheita og fleira. Sáttasemjarastigið fyrir rikis- starfsmenn er svo i október og hafi ekki verið samið fyrir 1. nóvember fer kjaradeilan sjálf- krafa til kjaradóms i samræmi við lögin. launaupphæöirnar I kröfunum má segja að næðu þær fram aö ganga hefðum við náð meginhlutanum af þvf sem við sömdum um i „oiiusamningunum” irægu aftur. Það er okkar markmið að komast I þau spor, sem við stóðum i eftir oliusamningana. Þá er einnig far- ið fram á að framfærsluvisitala verði notuð sem viðmiöun við kaupgjaldsútreikninga i stað kaupgjaldsvísitölu og að fimm daga vinnuvikan verði staðfest.” Þetta sagði Haraldur Stein- þórsson, varaformaður BSRB, er Þjóðviljinn innti hann eftir kröf- um Bandalagsstarfsmanna ríkis og bæja. „Um samningsréttarkröfuna er það að segja að BSRB hefur óskað eftir að viðræður verði teknar upp um hana samhliða kjarasamn- ingaviðræðunum. Siðan eru i und- irb. hjá okkur viðtæk fundar- höld úti um land þar sem verk- fallsréttarmálið verður höfuðefn- ið. Það verða haldnir fundir i öll- um félögunum á Reykjavíkur- svæðinu svo og vlðsvegar um land. Fjölmenn verkfallsréttar- nefnd undirbýr þessi fundarhöld. A fundunum er ætlunin að kanna vilja félagsmanna I sambandi við kröfuna um fullan samningsrétt. Og það er ekki ósennilegt, án þess að nokkuð sé fullyrt fyrirfram, að Haraldur Steinþórsson. niðurstaðan verði sú að rikis- og bæjarstarfsmenn kjósi að leggja ekki mál sin i kjaradóm heldur knýja fram verkfallsrétt, hafi hann ekki fengist með samning- um við rikisstjórnina.” Frásögn og myndir af Pankhurst —fjölskyldunni og baráttu bresku „súfragettanna” OPNA

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.