Þjóðviljinn - 06.09.1975, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 06.09.1975, Qupperneq 1
DIODVIUINN Laugardagur 6. s^ptember 1975 — 40. árg. 201. tbl. SEST VERÐUR AÐ SAMNINGUM c, VERBAND DER DEUTSCIIEN HOCHSEEFISCIIEREIEN E.V. Bromorhaven, don 1. 6. 1973 H/Ks Az: 9530 G STRENG VERTRAUI.ICII I Notiz flir díe Herron Dr. Peschau |D . Koch Wisch Pickenpack D/Herrn Dr. Genschow Bundesgarantie ln sachen Island Sehr geehrte Herren ! / In der Anlage Uberrelchen wir Ihnen Schrelben des BMF vom 2*>.Mai, Hér á slðunni birtum við tvær myndir af þeim leyndarskjölum, sem Þjóðviljinn hefur undir höndum. Skjalið hér að ofan er merkt: Aigjört trúnaðarmál og er frá Sambandi úthafsútvegsmanna i Bremerhaven, en á myndinni til hliðar er bréf frá sömu samtökum til v-þýska fjár- málaráðuneytisins. Bæði bréfin fjalla um landheigishernaðartrygg- ingu Bonnstjórnarinnar. Njósnaskipin fá úrvals- þjónustu á meðan! Launakröfur háskólamanna 348.732 kr. í mánaðar- laun Bandalag háskólamanna hefur lagt fram kaupkröfur sinar, og segir i umsögn, að með þeim sé reynt að ná aftur þeim kaupmætti, sem háskólamenn höfðu eftir úrskurð Kjaradóms 15.2. 1973, og auk þess sé tekið nokkuð mið af launum á frjálsum markaði. Gerir bandalagið og kröfur um að verðlagsbætur veröi greiddar á laun. Nokkuð hefur verið rætt um kröfur Bandalags starfs- manna rikis og bæja, og þá helst i þeim tón, að full háar þyki. Með þeim er gert ráð fyrir þvi, að laun verði þau hin sömu og eftir samningana 1973, sem Morgunblaðið á sin- um tima kallaði oliusamn- ingana i niðurlægjandi tón, og þvi þóttu lágir og lélegir. Að þessu sinni gerir BSRB kröfu um að laun verði á bilinu frá 84 þúsundum á mánuði og upp I 205 þúsund. Bandalag háskólamann bætir um beturog gerir kröfu um að laun háskólamanna skuli vera frá 95,745 á mánuði og upp i 347.732 krónur. Þjóðviljinn mun væntanlega birta töflu yfir launakröfur beggja þessara samtaka eftir helgina. —úþ. Fyrir nokkru lýsti Einar Ágústsson, utanríkisráö- herra, yfir því í blaðavið- tali að hann væri persónu- lega þeirrar skoðunar að ekki væri hægt að draga í efa upplýsingar land- helgisgæslunnar um að vestur-þýsku eftirlitsskip- in væru í raun njósnaskip í islenskri landhelgi. i sam- ræmi við þetta var fyrir- skipuð rannsókn á vegum dómsmálaráðuneytisins og skilja mátti að á grundvelli hennar ætti að taka ákvarðanir um aðgerðir gegn v-þýsku eftirlitsskip- unum. ______ Hvorki sjávarútvegsráðherra né utanríkisráöherra voru I ráðu neytum sinum i gær. t utanrikis- ráðuneytinu fékk Þjóðviljinn þær upplýsingar að málið væri enn hjá dómsmálaráðuneytinu. Olafur Walther Stefánsson, skrifstofustjóri dómsmálaráðu neytisins, tjáði blaðinu að ekkert hefði verið gert frekar i málinu og ekkert nýtt komið fram siðan gæslan lagði fram upplýsingar sinar. Hann sagði þó að málið væri enn i könnun. Það virðist þvi vera ætlunin að ganga til samninga við v- þjóðverja án þess að gripið verði til nokkurra aðgerða gegn v- þýsku eftirlitsskipunum. Þær upplýsingar sem Þjóðviljinn birti I gær sýna þó svo ekki verður um villst að engin ástæða er til að sýna v-þjóðverjum linkind. 1 gær birti Þjóðviljinn úrdrátt úr v-þýskum leyndarskjölum og var þar um að ræða bréfaskipti Framhald á bls. 10 AÐ BJARGA ÞVÍ Þetta ersonur hans Sigurjóns i Smjördölum og hann hamast hér við að dreifa úr göltunum hjá honum pabba sfnum. Þjóðviljinn ók um Árnessýsluna I góða veörinu á fimmtudaginn og hitti bændur að máli. Árangur þeirrar ferðar er á bls. i blaðinu I dag. (Mynd: Haukur Már) Viðskipta- þvinganir v.-þjóðverja Samkvæmt tölum um út- f lutning okkar á síðasta ári lætur nærri að tollafríöindi þau, sem fengjust með því að semja um veiðirétt ef nahagsbanda lagsrík ja innan 200 milna landhelgis- markanna, nemi 600 milj- ónum króna á ársgrund- velli, eða 1,8% af heildar- verðmæti útflutnings. Það er ómótmælanleg stað- reynd að samdráttur hefur orðið i Töpum aðeins 3 miljónum á mílu Örfáar greinar sjávarafurða verða illa fyrir barðinu á tollmúrunum magni útfluttra vara til efnahags- bandalagsrikjanna. Samkvæmt áliti Úlfs Sigurmundssonar, sem Þjóðviljinn birti i gær, stafar þessi samdráttur fyrst og fremst af minnkandi kaupgetu fólks i viðskiptalöndum okkar. Þó gefur það auga leiö að nokkurri sölu- aukningu mætti ná ef við fengjum niðurfellda tolla þá, sem efna- hagsbandalagslöndin leggja á fiskafurðir okkar. En hverju nema þessir tollar? Siðasta ár voru fluttar út sjávarafurðir fyrir 24,6 miljarða. Þar af voru fluttar sjávarafurðir til EBE rikja fyrir 5,6 miljarða, eða 22,8% útflutningsverðmæti þeirra. Þetta ár varð sjávaraf- urðaútflutningur 75,1% af heild- arútflutningi, þannig að fiskút- flutningur okkar til EBE rikja nam 17,1% heildarútflutnings, og er þá ál og álmelmi meðtalið, en heildarverðmæti útflutnings nam það ár um 33 miljörðum. Tollar innan EBE rikja eru mjög mismunandi eftir þvi hvaða fiskafurðir eða tegundir er að ræða. Mestur hluti útflutnings okkar Framhald á bls. 10 Hingað til hafa íslendingar átt virkjanirnar sjálfir og erlend auðfélög ekki komið þar nœrri BÉ^áSui Á Alusuisse að fá virkjanirnar líka? Auðhringurinn nú aðili að virkjanaundirbúningi á Austurlandi Það hefur nú gerst I fyrsta sinn á islandi að fulltrúar erlcndra auðfyrirtækja eru orðnir beinir aðilar að virkjunarrannsóknum hér á landi. Hingað til hafa rannsóknir á virkjanamöguleikum farið alger- lega fram á vegum innlendra aðila eingöngu, enda virkjana- mannvirki öll islensk eign, þótt orkan væri seld að hluta erlendu fyrirtæki svo sem við Búrfells- virkjun. Fulltrúar svissneska auðhringsins Alu-Suisse, sem er eigandi dfl verksm iöjunnar i Straumsvik voru fyrir stuttu á ferð á Austurlandi ásamt islensk- um embættismönnum við rann- sóknir á virkjunarmöguleikum. Þarna var um að ræða þrjá full- trúa Alu-Suisse ásamt nefnd em- bættismanna á vegum iðnaðar- ráðuneytisins undir forystu Páls Flygenring, yfirverkfræðings hjá Landsvirkjun. Samkvæmt upplýsingum Sveins Árnasonar fréttaritara Þjóðviljans á Egilsstöðum kom hópurinn i þyrlu á Egilsstaðaflug- völl. Var siðan flogið um allt það svæöi sem kemur viö sögu i sam- bandi viö áformin um risavirkjun á Austurlandi og aðstæöur allar vandlega kannaðar. Þá er það altalað á Austurlandi, að hinum islensku embættis- mönnum sé af hálfu iðnaðarráöu- neytisins ætlað að skila sameigin- legri skýrslu með fulltrúum auö- hringsins nú I þessum mánuöi um það hvernig æskilegast sé að haga málum i sambandi viö fyrir- hugaðar stórvirkjanir á Austur- landi. Þaö gegnir mikilli furðu, að ráöuneytiö sem fer með orkumál hefur ekki séð ástæðu til að gefa út neina opinbera tilkynningu um þátttöku fulltrúa auðhringsins i könnun á virkjunarmöguleikum á Framhald á bls. 10

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.