Þjóðviljinn - 06.09.1975, Síða 5

Þjóðviljinn - 06.09.1975, Síða 5
Laugardagur 6. september 1975. ÞJóÐVl.LJINN — SIÐA 5' Dýragarðsvörð- urinn og Ijónin 'Sérfræðingur „Le Monde” i málefnum Austurlanda nær heyrði á skotspónum eftirfar- andi sögu: Henry Kissinger var atvinnulaus og bað um starf sem gæslumaður i dý.ragarðin- um i Tel Aviv. Sagðist hann kunna margt fyrir sér og yrði sér litið fyrir að láta Ijón og lamb búa saman i einu búri. Hann fékk stöðuna, og öllum til undrunar tókst honum að fram- kvæma það sem hann hafði grobbað af. Móðir hans spurði hann hvernig iósköpunum hann færi að þessu. „Það er sáraein- falt,” sagði utanrikisráðherr- ann fyrrverandi, „ég sting alltaf inn nýju lambi í stað þess sem étið er...” Að áliti israelsmannanna, sem segja þessa sögu er það auðvitað „israelska lambið” sem Henry Kissinger er btiinn að fórna með þessu siðasta sjón- hverfingabragði sinu. Þeir hafa heldur ekki sparað hörð mót- mæli i Jerúsalem gegn heim- sókn hans: fyrir utan mót- mælafundi, mótmælagöngur frá grátmúrnum og út i'r Jerúsalemsborg og samkomur á þeim götum sem hann átti leið um, fundu andófsmenn einnig upp á því að aka bilum með öfl- uga hátalara að næturlagi um göturnar i grennd við „King David” hótelið, þar sem Kiss- inger gisti, til að raska svefnró hans^... t rauninni er enginn hissa á þvi þótt hægri sinnuð samtök i tsrael, einsog Likoudeða Goush Emunim („trúarblökkin”) bregðist illa við undanslætti af hálfu israelsmanna i hvaða mynd sem er og hiki þá ekki við að minna „Heinz Alfred Kissinger” á uppruna hans. Hitt vekur þó furðu hvað þau fá nú mikla áheyrn i Israel og hve ráðvilltur almenningur i land- inu virðist vera. Hvernig sem bráðabirðgasamningnum er snúið við er nefnilega ekki unnt aðkomasthjá þeirri staðreynd aðhér er um fremur litla breyt- ingu að ræða: israelsmenn eiga nú að halda 87% Sinai-skaga i stað 96% áður, en hlutur egypta eykst ekki nema úr 2 1/2% i 5 1/2%, hins vegar fá gæslumenn SÞ nú rúmlega 7% i stað 1 1/2% áður. Menn geta svo skemmt sér við að reikna það út hvenær egyptar verði búnir að endur- heimta allan Siani-skaga með þessu áframhaldi! Það litur jafnvel ekki út fyrir að hernað- arleg staða israelsmanna breyt- ist nokkuð við þessa tilfærslu: þótt Tsahal (israelski herinn ) verði að hörfa aftur fyrir Mitla og Giddi skörðin ræður hann hæðunum i kring og getur þvi i rauninni bannað egyptum öll af- not af þeim. Svæðið milli herja egypta og israelsmanna breikk- ar og telja sérfræðingar að auk- ið svigrúm sé hagkvæmlegt fyrir israelska hermenn, þvi þannig geta þeir best notið hæfi- leika sinna. Þar sem bráðabirgðasamn- ingurinn er gerður til þriggja ára má segja að báðir aðilar hafi komið sér saman um að „frysta” ástandið þann tima — gegn loforðum um miklar styrk- veitingar frá bandarikjamönn- um. Ef grannt er að gáð, er ljóst að báðir aðilar hagnast mjög á þessu um sinn, en að þvi verður einnig að hyggja hvort bráða- birgðasamningurinn sé raun- verulegt skref til endanlegrar lausnar á deilumálum i Austur- löndum nær. Hagnaður israelsmanna af þessum bráðabirgðasamningi er tvenns konar. t fyrsta lagi fá þeir loforð egypta fyrir þvi að ekki verði gripið til hernaðarað- gera i þrjú ár. Þannig hafa þeir slegið sterkasta vopn egypta, striðshótun, úr höndum þeim með þvi að fórna fáum ferkiló- metrum af sandi. Ekki verður betur séð en með þessu sé tryggður friður næstu þrjú árin, þvi sáralitlar likur eru til þess að sýrlendingar og jórdanir hafi sig nokkuð i frammi þegar þeir hafa ekki lengur stuðning egypta. Auk þess leyfa egyptar ferð ísraelskra skipa um Súes- skurð og lofa að draga nokkuð úr áróðri siniim gegn Israel. Þessi samningur israelsmanna og egypta verður birtur og má búast við þvi að israelsmenn reyni að gera sem mest úr stjórnmálahlið hans. En i öðru lagi gera israels- menn leynisamning við banda- rikjamenn, og er sú hlið málsins' enn mikilvægari þótt ekki sé fullljóst hvernig þessi samning- ur er i smáatriðum. Einfaldasta atriði hans er það að banda- rikjamenn gefa tryggingu fyrir þvi að egyptar standi við loforð sitt með þvi að koma upp athug- unarstöðvum iSinai-skaga milli beggja herjanna. En um leið lofa þeir hernaðaraðstoð ef isra- elsmenn kynnu að verða fyrir árás „stórveldis” og telja sumir að þetta loforð sé svo viðtækt að það jafngildi skuldbindingu um beina hernaðaraðstoð ef til nýrrar styrjaldar komi. Fyrir utan þetta lofa bandarikjamenn israelsmönnum mjög hárri efnahagsaðstoð, og var fyrst talað um 2,4 miljarða dollara, en siðan virðast bandarikja- menn hafa fallist á að bæta isra- elsmönnum upp missinn á oliu- brunnunum i Abu-Rodeiss, sem egyptar fá (það er eina beina tjónið sem israelsmenn verða fyrir i samningnum, en sagt er að olia verði þar þrotin eftir fá ár). Loks munu israelsmenn fá bandarisk vopn i stórum stil: talað hefur verið um 26 orustu- þotur af gerðinni F 15 Eagle- fighter, eldflaugar og skrið- dreka. Hagnaður egypta af þessum bráðabirgðasamningi er fyrst og fremst efnahagslegur. Að visu mun Sadat reyna að gera sem mest úr endurHeimt Mitla og Giddi skarða til að auka vin- sældir sinar i landinu og rétt- læta samningsgerðina, en mestu máli skiptir þó að nú er tryggt þriggja ára vopnahlé. Á þeim tima geta egyptar notað hluta af hernaðarútgjöldum til efnahagslegrar uppbyggingar landsins og auk þess sett her- menn i framleiðslustörf. Er- lendir aðilar (ekki sist arabiskir oliuframleiðendur) verða nú fúsari en áður til fjárfestinga i landinu og jafnvel hefur verið talað um bandariska efnahags- aðstoð. Svo má ekki gleyma þvi að egyptar fá nú hagnaðinn af olíubrunnunum i' Abu-Rodeiss, svo lengi sem þeir endast, og einnig tekjur af Súes-skurði. Þetta er mjög mikilvægt fyrir egypta, þvi efnahagsástand landsins var að sögn orðið svo slæmt að neyðarástand vofði yfir þvi. Eftir málamiðlun bandarikj- anna er þvi tryggt að ekki kem- ur til fimmtu styrjaldar israels- manna og araba i bráð, og hún hefur jafnframt þær afleiðingar að nú hafa bandarikjamenn hönd i bagga með þróun mála i þessu heimshorni og ekki er hætta á sölubanni á oliu af hálfu araba. Hvernig stendur þá á ótta manna i Israel? Eru ekki horfur á þvi að þetta þriggja ára „vopnahlé” leiði til endanlegs friðar, sérstaklega ef svipaðir samningar takast milli israels- manna og sýrlendinga og jórd ana ? Það vill þvi miður oft gleym- ast — og sú hefur orðið raunin enn einu sinni — að deilurnar fyrir botni Miðjarðarhafs eru tvenns konar: annars vegar á tsraelsriki i styrjöld við Egyptaland, Sýrland og Jórdaniu, og stendur styrinn mjög um hin svonefndu „her- numdu svæði”, sem israels- menn hafa nú á valdi sinu, en hins vegar er palestinuþjóðin að berjast fyrir þvi sem hún telur að sé sinn réttur. 1 þessari samningagerð er palestinu- mönnum algerlega fórnað, ísra- elsmenn skuldbinda sig ekki til eins eða neins gagnvart þeim og sagt er að þeir séu nú staðráðn- ari f þvi en nokkru sinni fyrr að viðurkenna ekki leiðtoga þeirra sem gilda viðmælendur. Nú vill svo til að samningsgerð Yitsaks Rabin, forsætisráðherra tsra- els, brýtur ibág við ýmis atriði sem áður voru opinber sannindi og ekki mátti hvika frá: t.d. þá kennisetningu að ekki mætti skila neinum hluta hernumdu svæðanna nema móti kæmi viðurkenning á ísrael og yfir- lýsing um að styrjaldarástandi væri lokið. Astæðan fyrir þvi hve atriði af þessu tagi voru mikilvæg var ekki deilurnar við nágrannarikin heldur deilurnar við palestinuaraba. Stjórn eins rikis getur afhent stjórn annars rikis landskika án þess að það sé spurning um lif eða dauða, en öðru máli gegnir þegar tvær þjóðir berjast um sama land, — þá fær hver smábútur lands ó- hemju mikið tilfinningagildi. Nú hafa israelsmenn aldrei viljað gefa upp það sem þeir teldu endanleg landamæri tsraelsrik- ir, og hafa þeir þess i stað tekið upp landnám á ýmsum stöðum i „hernumdu svæðunum”. Aug- ljóst var þá að þeir ætluðu sér ekki að skila þeim i heild, en nota hluta þeirra sem e.k. „skiptimynt” til að knýja fram sérstaka og endanlega samn- inga við nágrannarikin, sem hefðu í för með sér að egyptar, sýrlendingar og jórdanir hættu stuðningi við palestinuaraba. Með þvi að fórna nú „nokkrum ferkilómetrum af sandi” bæta israelsmenn stöðu sina gagn- vart egyptum að nokkru leyti, en ekki á neinn hátt gagnvart palestinumönnum. Hvort sem israelsmenn vilja viðurkenna það eða ekki er lausn þess vandamáls jafn fjarlæg og áður, og þvi eru margir þeirra ótta- slegnir um það að hin minnsta tilslökun sé fyrsta skrefið á þeirri braut sem leið til endur- reisnar palestinumanna — á kostnað tsraels. Ljóst er að þessi bráðabirgða- samningur vikur burtu striðs- hættum, en hann leiðir ekki til lausnar á vandmálum pal- estinuaraba og flækir banda- rikjamönnum hættulega mikið inn i deilurnar fyrir botni Mið- jarðarhafs. e.m.j. Þakkarávarp Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför Sigurjóns Pálssonar frá Hjörtsbæ, Ferjubakka 10. Sérstakar þakkir til Verkamannafélagsins Dagsbrúnar. Helga Finnsdóttir Finnur Sigurjónsson Henný Sigurjónsdóttir Einar Þorsteinsson Ólöf Sigurjónsdóttir Helgi Eiriksson Pálina Sigurjónsdóttir Sigmundur R. Heigason Jóhanna S. Ellerup Fróði Eilerup og barnabörn Námsflokkar Reykjavíkur Kvöldskólinn Innritun i gagnfræðadeildir, miðskóla- deild (3. bekk) og aðfaranám (undirbúning undir 3. bekk) fer fram mánudaginn 8. september kl. 20 til 22 i Laugalækjarskóla. KENNSLUGJALD GREIÐIST VIÐ INNRITUN. Áætlað gjald til jóla: 13.000 kr. igagnfr. og miðskólad. en 6.500 krónur i aðfaranámi. Ath. aðfaranám er aðeins ætlað þeim, sem orðnir eru 15 ára og eldri. KENNSLUGJALD NÁMSFLOKKA REYKJAVÍKUR KEMUR OT UM MIÐJAN SEPT. Stuðningsmenn séra Arnar Friðrikssonar hafa opnað skrifstofu að Sólvallagötu 25, inngangur frá Hofsvallagötu, vegna prestskosninga i Nessókn 21. sept. n.k. Skrifstofan er opin kl. 2-6 og 8-10 e.h. Sr. örn verður þar til viðtals og er fús til að heimsækja fólk ef þess er óskað, en ætlar ekki að fara i önnur hús, en þar sem um það er beðið. Fólk er vinsamlega beðið að hafa sam- band við skrifstofuna. Simar 20570 og 19836. Kjörskrá liggur frammi á skrifstofunni (íbúar Seltjarnarnesskaupstaðar eru enn á kjörskrá). Stuðningsmenn. Blikkiðjan Garðahreppi Önnumst þakrennusmíði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboð. SÍMI 53468 Atvinna ■ Atvinna Fullorðin manneskja eða unglingur óskast til að lita til með þremur drengjum part úr degi i Breiðholti III. Upplýsingar i síma 71891 alla helgina og eftir klukkan 6 virka daga.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.