Þjóðviljinn - 10.09.1975, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 10.09.1975, Qupperneq 9
Miðvikudagur 10. september 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Iðnaður tækni viðskipti Ýtarlega var sagt frá fyrirtæk- inu Húseiningar h.f. á Siglufirði hér í blaðinu áður fyrr, enda spennandi að fylgjast með þvi hvort fyrirtækið myndi lifa af byrjunarerfiðleikana. Við spurðum þvi Sigurð Hlöðversson, talsmann fyrirtæk- isins á Vörusýningunni, hvort enn bæri ekki á ótrú fólks á gæðum húsanna. Sigurður Hlöðversson I bás Húseininga h.f. Fá Húseiningar h.f. að setja á fulla ferð? — Siður en svo, undirtektir fólks hafa verið mjög jákvæðar, en segja má að hingað til hafi skort mjög á alla kynningarstarf- semi hjá fyrirtækinu. Nú geta menn séð húsin með eigin augum með þvi að bregða sér i Garða- hreppinn og skoða tvö hús, sem þar eru risin. Þá er búið að selja 15hússamkvæmt leiguibúðakerf- inu og munu risa 4 á Siglufirði, 4 á Raufarhöfn og 7 á Vopnafirði. Áætlað verð þessara húsa er um 7 miljónir króna með innréttingum, vélum, dúkum og teppum og full- frágenginni lóð. Frá verksmiðju kosta húsin, þ.e. tréverkið, 3.9—4 miljónir króna og við undirskrift ber að greiða 50% af einingar- verði. Siðan geta húsnæðismála- lánin gengið upp i lokagreiðslu, sem þarf að eiga sér stað við af- hendingu húsanna. Sigurður kvaðst viss um að verð húsanna gæti lækkað að mun, ef hægt yrði ,að fullnýta afkastagetu verk- smiðjunnar, en i dag má fram- leiða 80—lOOhús á ári og auka má afkastagetuna i um eða yfir 250 hús á ári. Ljóst er að byggja þarf 400—800 fleiri ibúðir á ári en nú er gert og frá leikmannssjónarmiði virðist lausnin liggja í stóreflingu fram- leiðslu á borð við framleiðslu Húseininga, en i fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir: „Kostir einingaframleiðslu á húsum eru hvað mestir fyrir þá staði sem erfitt er að ná í bygg- ingarefni, skortur á iðnaðar- mönnum og byggingartimi stutt- ur svo sem sveitarfélög viða úti á landsbyggðinni og fyrir bændur sem að öðrum kosti þurfa að halda uppi stórum hópi iðnaðar- manna i lengri eða skemmri tim a. Einingaframleiðsla Húseininga h.f. nær til að fullgera um 55—60% af tilbúnu einbýlishúsi”. Erlendar fréttir Viðskipti milli Kina og Banda- rikjanna námu nálega 1 biljón dollara á sl. ári, en talið er að viðskiptin muni dragast mikið saman á næstunni þar sem vöruskiptajöfnuður kinverja gagnvart bandarikjamönnum var óhagstæður um 700 miljón dóllara um sl, áramót. Kinverj- ar hafa nú dregið mjög úr kaup- um á bandariskum landbúnað- arvörum, en þrátt fyrir allt eru bandariskir kaupsýslumenn vongóðir um aukna verslun við klnverja. ■ Aukning iðnaðarframleiðslu kfnverja jókst frá 9—11 prósent fyrstu 6 mánuði ársins segir i frétt frá kinversku fréttastof- unni Hsinhua. Arleg aukning hefur verið um 10% sl ár, en minnkaði i fyrra niður i 7% mið- að við árið 1973. Talið er að aukningin sé hvað minnst i járn- og stáliðnaðinum en betur hafi gengið I landbúnaði, olfufram- leiðslu, rafmagnsframleiðslu og vélaframleiðslu. Auglýsing frá s j ávarútvegsráðuney tinu Rækjuveiðar á Axarfirði hefjast 1. október nk. Umsóknir um veiði- leyfi verða að berast ráðuneytinu fyrir 23. september og verða umsóknir, sem berast eftir þann tima ekki teknar til greina. Reikna má með, að heildarafli á bát verði ákveðinn 6 lestir á viku og ennfremur, að ekki verði nema 7 bátar við veiðar á þessu svæði á hverjum tima. Rækjuveiðar á Húnaflóa, Isafjarðardjúpi og Arnarfirði hefjast i október nk. Umsóknir um veiðileyfi verða að ber- ast ráðuneytinu fyrir 23. september og verða umsóknir, sem berast eftir þann tima ekki teknar til greina. Það at- hugist, að rækjuveiðileyfum á þessum svæðum verður ekki fjölgað frá þvi sem verið hefur og skal þvi reiknað með, að rækjuveiðileyfum verði einungis úthlutað til þeirra aðila, sem stunduðu rækjuveiðar á þessum svæðum á siöustu rækjuvertið. Sjávarútvegsráðuneytið, 8. september 1975. Tilkynning í framhaldi af tilkynningu nr. 27/1975 um verðmerkingu vöru og þjónustu, eru eftir- farandi fyrirmæli gefin út: Allir, sem veitinga- og/eða hótelrekstur stunda, skulu festa upp verðlista, þar sem fram koma eftirtaldir réttir: Réttur dagins. A.m.k. tveir aðalréttir af matseðli. Könnukaffi, könnute. Bolli af kaffi, te Nokkrar tegundir af smurðu brauði. 01 og gosdrykkir. Hafnarfjarðarfyrirtœki með margskonar plastframleiðslu t Ilafnarfirði eru tvö fyrirtæki Polyester h.f. (Nafnið á fyrir- fyrirtækið hefði einnig framleitt sem lltið hefur borið á, en sýndu tækinu afleitt að minum dómi, 20 feta langan fiskibát og ekkert nú framleiðslu sina á Vörusýn- ennfremur nafnið Marmorex h.f.) væri þvi til fyrirstöðu að fram- ingunni, Sæplast h.f. og Polyester hefur framleitt mikið af raf- leiða báta úr trefjaplasti allt að h.f. magnskapalrennum fyrir frysti- 100 tonn og afhenda þá kaupend- Sæplast steypir ýmsar plast- hús og ýmsar stærðir af kerjum, um á ýmsum innréttingastigum. vörur úr polyethylena, PVC og sundlaugar, vaska, stóla, bil- Og þar sem farið er að framleiða polycarbonat, þar á meðal 500 hluta, vatnstanka fyrir sumarbú- snjósleða hér, þá má geta þess að litra löndunarkassa, ljósakúpla staði o.fl. fyrirtækið framleiðir einmitt fyrir götuljós, skjalakassa og plasthlifar á þau gagnlegu farar- netabelgi. Reynir Jóhannesson sagði að tæki. A Vörusýningunni sýndi Marmorex h.f. á Akranesi at- hyglisverða framleiðslu úr poly- ester og skeljasandi, þ.e. marm- araeftirlikingu sem notuð er i sól- bekki, borðplötur á sófaborð, piötur á baðskápa, stigaþrep, af- greiðsluborð o.fl. Framkvæmdastjórinn, örnólf- ur Sveinsson, sagði að fyrirtækið hefði vaxið mikið sl. tvö ár og nú hefðu fimm manns stöðuga at- vinnu hjá þvi og nú væri verið að byggja stærra húsnæði til að auka framleiðsluna. Aðalsalan er i sól- bekkjum og ýmisskonar borðplöt- um. Kaupendur geta valið um 15 mismunandi liti, ýmist einlitt eða yrjótt. Söluumboð og afgreiðsla i Reykjavik er hjá Byggingavörum h.f. Armúla 18. sj. Plast og skelja- sandur eins og marmara- eftirlíking Örnólfur Sveinsson og sýnishorn framleiðslu Marmorcx h.f. I baksýn. 1 verðinu skal innifalinn söluskattur og þjónustugjald. Verðlisti þessi skal vera á áberandi, stað fyrir framan inngöngudyr matstaðar og skulu önnur gjöld, svo sem aðgangseyrir og fatagjald, tilgreint á listanum. Tilkynning þessi tekur gildi 15. september 1975. Reykjavik, 20. ágúst 1975. Verðlagss t jórinn. Tilkynning Samkvæmtheimildi9. gr. laga nr. 54/1960 um verðmerkingu, eru svohljóðandi fyrir- mæli gefin út: Allir þeir, sem selja vörur og þjónustu beint til neytenda, skulu, að svo miklu leyti sem þvi verður við komið, merkja vörur sinar og þjónustu með útsöluverði, eða auglýsa útsöluverðið á svo áberandi hátt á sölustaðnum, að auðvelt sé fyrir viðskiptamenn að lesa það. Þetta á undantekningalaust við vörur, sem eru til sýnis i búðargluggum, sýning- arkössum eða á annan hátt. Verðið má setja á vöruna sjálfa, á viðfestan miða eða á umbúðir vörunnar. Tilkynning þessi tekur gildi 15. september 1975. Reykjavik, 15. ágúst 1975. Verðlagsstjórinn.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.