Þjóðviljinn - 28.09.1975, Qupperneq 20
UOÐVIUINN
Sunnudagur 28. september 1975
Hvers
vegna
sameinast
konur?
Ástæðurnar eru
margar, en hér birtast
nokkrar:
Hvers vegna sameín-
ast konur úr öllum
starfsstéttum og öllum
stjórnmálaflokkum um
„kvennafrí" þann 24.
■ Vegna þess að vanti starfs-
mann til illa launaðra og litils-
metinna starfa, er auglýst eftir
konu.
■ Vegna þess að meðallaun
kvenna við verslunar- og skrif-
stofustörf eru aðeins 73% af
meðallaunum karla við sömu
störf.
■ Vegna þess að engin kona á
sæti i aðalsamninganefnd
Alþýðusambands tslands.
■ Vegna þess að mismunur á
meðaltekjum verkakvenna og
verkakarla er kr. 30.000 á
mánuði.
" Vegna þess að bændakonur
eru ekki fullgildir aðilar að
samtökum stéttar sinnar.
■ Vegna þess að algengt svar
er, þegar spurt er um starf
konu, sem gegnir húsmóður-
starfi, ,,hún gerir ekki neitt, hún
er bara heima”.
* Vegna þess að til eru menn
með ákvörðunarvald um stofn-
un dagvistarheimila fyrir börn,
sem telja þau aðeins til að auka
á leti kvenna.
■ Vegna þess að vinnuframlag
bændakvenna i búrekstri er
metið til kr. 176.000 á ári.
■ Vegna þess að kynferði
umsækjandaræðuroft meiru um
stöðuveitingu en menntun og
hæfni. .
* Vegna þess að fordómar og I
sumum tilvikum sjálft mennta-
kerfið lokar ýmsum mennta-
leiðum fyrir stúlkum.
“ Vegna þess að starfsreynsla
húsmóður er einskis metin á
vinnumarkaðinum.
Sameiginleg niðurstaða er sú,
að framlag kvenna til sam-
félagsins sé litils virt.
Sýnum okkur sjálfum og öðr-
um, hve mikilvægt framlag
okkar er, með þvi að ieggja nið-
ur vinnu 24. október.
Sameinumst um að gera dag-
inn að eftirminniiegum baráttu-
og sameiningardegi undir kjör-
orði kvennaárs Sameinuðu
þjóðanna:
■ JAFNRÉTTI —
■ FRAMÞRÓUN —
■ FRIÐUR.
Konur,
íhugið
stöðu
ykkar!
Fréttatilkynning um kvenna-
fri. Fulltrúar u.þ.b. 50 félaga og
samtaka i Reykjavik og ná-
grenni stofnuðu þ. 11. sept. s.l.
samstarfsnefnd um fram-
kvæmd kvennafris þ. 24. okt. nk.
á degi Sameinuðu þjóðanna. Að-
ild að nefndinni eiga stéttarfé-
lög, stjórnmálafélög, kvenfélög
og aðrir áhuga- og hagsmuna-
hópar kvenna. Þ. 15. sept var
siðan stofnuð 10 manna fram-
kvæmdanefnd og 5 starfshópar,
spm vinna að undirbúningi.
Hóparnir eru opnir öllum, sem
vilja taka þátt i starfinu, og má
tilkynna þátttöku i húsakynnum
Kvenréttindafélags tslands að
Hallveigarstöðum við Túngötu
(efstu hæð), kl. 2—4 og 9—10 sið-
degis, til 3. okt. Simi 18156.
Kannanir hafa verið gerðar á
ýmsum fjölmennum vinnustöð-
um, og hefur niðurstaða þeirra
verið, að 80—100 prósent kvenn-
anna styðja nú þegar þessa að-
gerð.
Verkalýðshreyfingin hefur
veitt málinu sterkan stuðning,
t.d. samþykkti stjórn Sóknar
einróma, að styðja fram-
kvæmdina fjárhagslega og von
er á framlögum frá fleiri félög-
um.
Framkvæmdanefndin mun
leita eftir samvinnu við samtök
kvenna viðsvegar um land og
hafa einstaklingar og félög úti á
landi þegar sýnt áhuga á að
samstaða náist um allt land.'
Áætlað er, að útifundur verði
hámark dagskrárinnar i
Reykjavik og að opið hús verði á
fleiri en einum stað i borginni.
Dreifibréf verður sent út til
kvenna næstu daga.
Framkvæmdanefnd um
kvennafri:
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir,
Asdis Guðmundsdóttir, Ásthild-
ur ólafsdóttir, Björk Thomsen,
Elisabet Gunnarsdóttir, Erna
Ragnarsdóttir, Gerður Stein-
þórsdóttir, Margrét Einarsdótt-
ir, Stella Stefánsddltir, Valborg
RpntsHíSftir
Hvérs vegna „kvennafrí”?
Hvers vegna sameinast nú
yöldi kvenna úr ýmsum ólikum
samtökum um að efna til
kvennaverkfalls eða „vinnu-
fris” kvenn^á degi Sameinuðu
þjóðanna, þann 24. október n.k.?
Framkvæmdanefndin sem
undirbýr „vinnufri” kvenna I
haust, hefur sent frá sér frétta-
tilkynningu og ‘dreifibréf þar
kem ástæður og markmið eru
rakin. Þesgi orðsending birtist
hérá baksiðu Þjóðviljans í dag,
og einnig viðtal við Þuriði
Magndsdóttur sem starfað
hefur að undirbúningi „kvénna-
frisins”. Þuríður.er ekki i fram-
' kvæindanefnd „kvennafrisins”
og hún er ekki formælandi allra
þeirra kvenna sem að væntan-
legri aðgerð standa. Hún talar
hér aðeins fyrir sjáifa sig.
Að sanna
samtakamáttinn
Þurlður: Ég lit svo á, að til-
gangur verkfallsins eða
„kvennafrisins” sé tviþættur. 1
fyrsta lagi að konur sameinist
um einhverja þá aðgerð, sem
hefur þann tilgang að sýna kon-
um sjálfum og einnig öðcum
samtakamátt kvenna. Svo fjöl-
mennur hópur sem konur á ls-
landi eru, hlýtur að hafa mikinn
samtakamátt, þ.e.a.s. ef þær
sjálfar átta sig á honum.
Þá vil ég aö það sjaist, hvað
gerist i þjóð'félaginu, þegar kon-*
'ur leggja niður störí.
. Hvað álitur þú að gerist?
Já — þessa hefur oft' verið
spurt. Mér finnst stórkostlegt að
fá tækifæri til að sjá þetta — sjá
hvað gerist.
Telurðu að margar stofnanir
lamist?
Ef þátttaka verður almenn,
sem allt bendir til að verði, K
verða ýmsar stofnanir aö loka
þelman dag, t.d. bankar, flugfé-
lögin, stórir vinnustaðir þar
sem konur eru grundvöllur
vinnunnar, t.d. saumastofur,
frystihús og fleira.
Nú hafa sumar húsmæður
sagt, að þær geti ekki farið I fri
— þær geti ekki hlaupið frá
börnunum?
Já, og það er ekki hægt að
svara fyrir einn eða neinn. Ein-
Þuriður Magnúsdóttir.
stæðar mæður og eiginkonur
sjómanna eiga auövitaö ekki i
mörg hús að venda. Ég vona þó
aö þær komi á fundinn meö
börnin meö sér. En i flestum til-
fellum eiga börn heimavinnandi
kvenna feður. Mér finnst sjálf-
sagt að þessir feöur annist um
börnin þeniían eina d§g, taki s‘ér
frl úr .vinnu. Ég veit a.m.k. um
einn föður, sem ætlar að taka fri
úr vinnu og gæta barnanna og
heimilisins þennan fridag kón- ’
unnar. Hann hringdi I mig sá
góöi maður og sagði að sér fynd-
ist sjálfsagt að feður gerðu.þetta
— bað raunar um að viö rækjum
áróður fyrir þvi að feður stæðu
þannig með mæðrum barna
þeirra.
Hafið þið nokkuð heyrt frá
vinnuveitendum — nokkrar
hótanir um uþpsagnir?
Nei, ejíkert slikt. En þegar*um •
þetta var talað I byrjun, þá
sagði kona ein, úflend: Þið eigið
allar á hættu að vera reknar.
Þetta fannst okkur fyndin
tilhugsun — að helmingur
þjóðarinnar ætlaði sé að reka
hinn helminginn.
islenskar konur for-
dæmi i öðrum löndum
Ertu viss um að þátttaka I
„kvennafriinu” verði almenn —
að aðferðin takist vel?
Ég hef þá trú að þátttaka
verði almenn. Og ég hef verið
bjartsýn frá upphafi. Það hafa
verið gerðar nokkrar kannanir
á stórum vinnustöðum og þær
sýna yfir 90% þátttöku.
Hefur aðgerð sem þessi verið
gerð I öðru landi? .*
•Nei. En norðurlandakonur
sem éghef rætt við telja, að tak-
ist þetta vel hér, þá sé komið
mjog sterkt fordæmi.
Ég tel að stona aðgerð hljóti |
að háfa vekjandi áhrif á konur,
þvi að þegar svona skref hefur
einu sinni verið stigið — aðgerð
sem stafar af þvi að við erum
ekki sáttar við stöðu ‘okkar i
þjóðfélaginu — þá hljóti fleiri
konur að vakna til umhugsunar.
Hvernig munu konur svo
verja frideginum?
Það er nú ekki endanlega
afráðið. Okkur langar til að geta
haft „opin hús” viða I bænum
þannigaðkonurgetifrá morgni
til kvölds komið þar saman og
rætt málin.'Svo verður haldinn
fundur og sá fundur verður að
likindum langur — sennilega
útifundur á Lækjartorgi.
— GG.
o