Þjóðviljinn - 10.10.1975, Qupperneq 3
Föstudagur 10. október 1975. ÞJÖDVILJINN — SIÐA 3
„Þetta er fyrst og
fremst spurning um
yiðurkenningu”
segja kennarar við
fjölbrautarskólann
í Hafnarfirði og
segjast eklti sjá
fram á
lausn deilunnar
Okkur berast æ fleiri
stuðningsyf irlýsingar —
sögðu kennarar við Flens-
borgarskóla í samtali við
Þjóðviljann í gær. —
Verkfall okkar er ekki
fyrst og fremst til þess að
knýja fram betri laun
heldur einkum til þess að
fá viðurkenningu á skól-
anum og mikilvægi hans.
Við höfum ekki hug á að
gefa okkur og ef f jármála-
ráðuneytið lætur ekki
undan er hætt við að verk-
fallið breiðist jafnvel út,
sögðu kennararnir.
Þeir Hjálmar Árnason, formaður Kennarafélags Flensborgarskóla
(t.v.) og Einar Bollason kennari töldu ekki likur á þvi að kennarar
myndu gefa eftir, þeir stæðu saman aiiir sem einn og stuöningsyfir-
lýsingar bærust viða að. Mynd: gsf.
Gagnfræðadeildakennarar við
Flensborgarskólann hafa nú
samþykkt að leggja niður kennslu
til stuðnings við samkennara sina
frá og með nk. föstudegi, þ.e. á
morgun, hafi lausn ekki fengist.
Sem kunnugt er standa
kennarar við fjölbrautarskólann i
stappi vegna launagreiðslna.
Félag menntaskólakennara,
Menntamálaráðuneytið og fleiri
aðilar eru sammála um að þeim
beri að fá laun menntaskóla-
kennara en fjármálaráðuneytið
hunsar hins vegar með öllu sam-
þykkt menntamálaráðuneytis og
þrjóskast við að samþykkja svo
há laun. Munar þó ekki nema um
fimm þúsund krónum á mánaðar-
launum kennaranna nú og þeirra
sem þeir biðja um.
Hefur ráðuneytið lýst yfir þvi,
að ekki verði hvikað frá þessari
ákvörðun.
— Við munum ekki heldur gefa
neitt eftir, sögðu þeir kennarar
sem komu að máli við okkur.
Okkur var boðin sú málamiðlun
að kennarar við menntadeild fjöl-
brautarskólans fengju hærri
greiðslur en við viljum fá viður-
kenningu á réttindum okkar
allra.
— Við erum orðnir langþreyttir
á seinaganginum i okkar
réttindamálum og það má segja
að nú hafi soðið upp úr óánægja,
sem hlaðist hefur upp i langan
tima. Við stöndum algjörlega
einhuga saman og erum ákveðin i
að láta ekki undan á nokkurn
hátt. Standi fjármálaráðuneytið
fast á sinu þykir okkur sýnt, að
illa fari og ekki er óliklegt að
verkfall okkar i Hafnarfirði
breiðist viðar út um landið. Það
eru brögð að þvi að kennarar hafi
átt inni laun hjá rikinu i meira en
eitt ár og margs konar annar
seinagangur er eftir þvi. Nú hefur
loks verið tekið á málunum af
festu og vð höfum litla ástæðu ti
þess að gefa eftir eins og sakir
standa. Við höfum fengið stuðn-
ingsýfirlýsingar viða að og þær
stappa i okkur stálinu enn frekar.
—gsp
Ekki
ókeypis
— en
næstum
Ranghermt var i Þjóðviljanum
i gær að þátttaka i fræðsluhópum
Menningar- og fræðslusambands
íslands væru ókeypis. Hið rétta er
að þeir eru öllum opnir og kostar
þátttaka fimm hundruð krónur.
Sem sagt: Ekki ókeypis- en
næstumþvi. gsp
Héraðs-
dómara-
embætti
Forseti tslands hefur skipað
Sigurð Hall Stefánsson, aðalfull-
trúa við bæjarfógetaembættið i
Hafnarfirði, til að vera héraðs-
dómara við embætti sýslu-
mannsins i Gullbringusýslu og
bæjarfógetans i Keflavik og
Grindavik frá 1. þ.m. að telja.
Aðrir umsækjendur um
embættið voru: Sveinn Sigur-
karlsson, fulltrúi við bæjar-
fógetaembættið i Keflavik og
Valtýr Sigurðsson, aðalfulltrúi
við sama embætti.
Fjármál LÍN
enn óútkljáð
Hyggur menntamálaráðherra
á „helmingslausn”?
Símstöðvarstjórar á 2. og 3.
flokks stöðvum:
Kjaradeilan
stendur enn
Fresturinn sem stjórn
Lánasjóðs islenskra náms-
manna gaf menntamála-
ráðherra til að útvega það
fjármagn sem sjóðurinn
þarfnast rann út kl. 17 í
gær án þess nokkuð
heyrðist frá ráðherra.
Östaðfestar fregnir hermdu að
ráðherra hefði útvegað fjármagn
upp i það sem á vantaði að láns-
heimild sjóðsins yrði fullnýtt, þe.
73 miljónir til viðbótar þeim 27
sem bankastjórar kváðust vera
reiðubúnir til að lána. Afgangur-
inn, rúmlega 120 miljónir, á svo
að koma 2. janúar nk., þe. hann
verður settur á næstu fjárlög.
Reynist þetta rétt getur sjóður-
inn hafið og lokið til fulls úthlutun
fyrri hluta haustlána sem átti að
koma til greiðslu siðari hluta
september. Hins vegar vantar þá
enn rúmlega 120 miljónir til að
sjóðurinn geti úthlutað siðari
hluta lánsins sem á að koma til
greiðslu seinni hluta nóvember-
mánaðar.
Námsmenn munu ekki una þvi
að úthlutun seinni hluta haustlána
verði frestað fram yfir áramót og
ættu þeir sem hlýddu á viðtöl við
islenska námsmenn i Osló i
útvarpinu i fyrrakvöld að skilja
þá afstöðu námsmanna mætavel.
Stúdentaráð hefur boðað til
almenns stúdentafundar um
lánamálin i dag. Verður hann
haldinn i Félagsheimili stúdenta
við Hringbraut og hefst klukkan
1 sumar hófu simstöðvarstjórar
á 2. og 3. flokks símstöðvum
kjarabaráttu sem ekki er lokið
enn. Kjör þeirra eru hin bágustu
og langt fyrir neðan það sem tíð-
kast á almennum launamarkaði,
þótt þeir séu mjög bundnir yfir
starfi sinu og beri mikla ábyrgð.
Stjórn Landssambands
simstöðvarstjóra hélt i fyrradag,
ásamt fulltrúum Félags isl. sima-
manna viðræðufund um kjör sin
með fulltrúum fjármála- og
samgönguráðuneytisins.
Snemma i sumar skilaði póst-
og simamálastjórn tillögum til
lausnar á máli þessu, er unnar
höfðu verið af Starfsmannaráði
Landssimans, sem skipað er full-
trúum póst- og simamálastjórnar
og F.t.S.
t framhaldi af þvi sendi sam-
gönguráðuneytið sambandinu
umræðugrundvöll i meginatrið-
um samhljóða tillögum póst- og
simamálastjórnar.
A fundinum i fyrradag var
málið enn rætt, án þess að niður-
staða fengist, en fulltrúar ráðu-
neytanna lýstu þvi yfir, að þeir
myndu leggja fram ákveðið tilboð
byggt þessum grundvelli fyrir 7.
nóv. nk.
Stjórn landssambands sim-
stöðvarstjóranna harmar þann
mikla drátt, sem orðinn er á úr-
bótum i kjaramálum félags-
manna sinna og telur, að i algert
óefni stefni, verði ekki staðið við
gefin fyrirheit i þessu efni.
..Tölur benda til þess, að ekki
náist jafnvægi i viðskiptum rikis-
sjóðs við Seölabankann fyrir ára-
mót,” sagöi Jóhannes Nordal
seðlabankastjóri á blaðamanna-
fundi nýverið •
t ágústlok var nettóskuld rikis-
sjóðs og rikisstofnana við Seðla-
bankann 8.675 miljónir króna.
Gjaldeyrisstaða bankanna mið-
að við gengi 31.8. ’75 var neikvæö
um 2.126 miljónir á sama tima i
fyrra. __pþ
13. -ÞH
Landsfundur símamanna
ÍTREKAÐI KRÖFUR UM
VERKFALLSRÉTTINN
Félag islenskra stmamanna
hélt 10. landsfund sinn dagana
2.—5. október sl. Voru þar sam-
þykktar ýmsar ályktanir um
kjaramál simamanna og starfs-
aðstöðu stofnunarinnar. Verður
cfni þcirra rakið hér á eftir i stór-
um dráttum.
Um kjaramál hafði fundurinn
m.a. þetta að segja: ,,10. lands-
fundur simamanna lýsir fullum
stuðningi við kröfugerðir BSRB
og FIS um nýja kjarasamninga.
Telur fundurinn að laun opin-
berra starfsmanna hafi dregist
verulega aftur úr launum á
frjálsum vinnumarkaði og verði
þvi óhjákvæmilegt að leiðrétta
þann mun i komandi samning-
um.... Beinir landsfundur sima-
manna þvi til allra opinberra
starfsmanna, að fylkja liði um
Verð á spærlingi
Yfirnefnd verðlagsráðs sjávar-
útvegsins hefur ákveðið
lágmarksverð á spærlingi til
bræðslu. Gildir verðið frá 1.
október og er 2,10 kr. fyrir hvert
kiló, en það verð, sem gilt hefur
til þessa var 1 kr. pr. kg.
Verð þetta var ákveðið með
atkvæðum oddamanns nefndar-
innar, ölafs Daviðssonar og full-
trúum kaupenda, þeim Guðmundi
Kr. Jónssyni og Jóni Reyni
Magnússyni. Fulltrúar seljenda
greiddu atkvæði gegn þessari
verðákvörðun, en þeir voru
Ingólfur Ingólfsson og Kristján
Ragnarsson,
Þeir Ingólfur og Kristján létu
bóka, að þeir teldu þessa verð-
ákvörðun stefna starfsemi verð-
lagsráðs i hættu þvi verðlags-
ákvörðun hljóði upp á mun lægra
verð, en greitt hefur verið fyrir
spærling á almennum markaði i
sumar og haust. -úþ
kröfur bandalagsins. Jafnframt
beinir fundurinn þvi .til allra
simamanna að standa einhuga að
baki samninganefndar félagsins,
svo að sem bestur árangur verði
af störfum hennar... Minnir fund-
urinn á, að einhugur félagsmanna
við siðustu samningagerð hafi
auðveldað samninganefndinni
störf hennar.”
Um verkfallsrétt segir fundur-
inn: 10. landsfundur simamanna
leggur áherslu á mikilvægi Póst-
og simaskólans fyrir starfsmenn
og stofnunina. Skorar fundurinn á
póst- og simamálastjórn að 1.
bæta nú þegar húsnæði skólans, 2.
ráða fasta kennara, 3. setja skól-
anum fastari starfsreglur og 4.
gefa nemendum kost á fulitrúa i
skólanefnd.” Einnig fer fundur-
inn fram á að öllum simamönnum
verði gefinn kostur á að stunda
námskeið til að auka menntun
sina og harmar afskiptaleysi
póst- og simamálastjórnar i þeim
efnum.
Simamenn ályktuðu einnig um
réttindabaráttu kvenna:
10. landsfundur simamanna
lýsir yfir fullum stuðningi við
réttindabaráttu kvenna.
Bendir fundurinn sérstaklega á
baráttu þeirra fyrir launajafn-
rétti og minnir á að stór hluti
simamanna eru konur i lægri
launaflokkunum.
Treystir fundurinn samninga-
nefnd F.l.S. til að vinna að lag-
færingum i þeim efnum i komandi
samningum.
Þá minnir fundurinn á 24. októ-
ber. en þann dag taka konur sér
fri frá störfum, til þess að leggja
áherslu á mikilvægi stöðu kon-
unnar i þjóðfélaginu og styður
fundurinn konur til áframhald-
andi baráttu.
Loks gerði landsfundur sima-
manna eftirfarandi ályktun um
Spán:
10. landsfundur Félags is-
lenskra simamanna, haldinn á
Húsavik dagana 2. til 5. okt. sl„
fordæmir harðlega hinar grimmi-
legu aftökur, sem fasistastjórn
Francos á Spáni hefur látið fram-
kvæma að undanförnu.
Fundurinn fordæmir einræði i
hvaða mynd sem er, allsstaðar i
heiminum.