Þjóðviljinn - 10.10.1975, Side 5
Föstudagur 10. október 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
af crléndum vettvangi
Þing sœnskra
sósialdemókrata:
Nýlokið er i Stokkhólmi 26.
fiokksþingi Sænska verkamanna-
flokksins — SAP — og var þaö
haidiö réttu einu ári fyrir næstu
þingkosningar i Sviþjóö. Á þing-
inu var samþykkt ný stefnuskrá
flokksins, sem kemur i staö
stefnuskrárinnar frá 1960. 1 henni
er ráöist bæði á kapitalisma og
kommúnisma og fullyrt að eina
færa leiöin til frambúðar sé hinn
lýðræöislegi sósialismi.
Olof Palme, formaður flokks-
ins, skilgreindi sænska sósial-
demókratiið á eftirfarandi hátt á
fundi með fréttamönnum i Stokk-
hólmi sunnudaginn 28. sept: „Það
er frelsis- og fjöldahreyfing, sem
er reist á lýðræðisgrundvelli.”
Um nýju stefnuskrána sagði hann
að hún væri byrjunin á þriðja stigi
umbreytingarinnar á hinu kapi-
taliska samfélagi. Sænskir sósial-
demókratar hefðu hafið þessa
umsköpun og eftir að þjóðin hefði
öölast þólitiskt lýðræði og félags-
legt lýðræði væri nú ætlunin að
snúa. sér að hinu efnahagslega
lýðræöi.
Eignaraðild.
Fyrsta skrefið I þá átt voru þær
tillögur sem einn helsti hagfræð-
ingur sænsku Verkalýðshreyfing-
arinnar Rudolf Meidner, lagði
Ingemund Bengtsson, atvinnumálaráðherra svia, setur ákvæði nr. 32
i sænsku vinnulöggjöfinni I rusla körfuna á 26. þingi sænskra
sósialdemókrata.
Nú er það efna-
hagslegt lýðræði
fram fyrir nokkru um vaxandi
eignaraðild verkafólks i stórfyr-
irtækjum. Meginhugmyndin er að
hluta af gróða -fyrirtækjanna
verði veitt til þeirra aftur, en þá
sem hlutdeild verkafólks i hluta-
fjáraukningu fyrirtækjanna. Ekki
er þó gert ráð fyrir að einstakl-
ingar eigi þessi hlutabréf. Þessar
tillögur eru til umræðu i verka-
lýðshreyfingunni og verða varla
fullmóiaðar fyrr en eftir þing
verkalýðshreyfingarinnar á
næstaári. Fyrir utan mótmæli at-
vinnurekendasamtaka hafa ýms-
ar mótbárur komið fram meðal
verkafólks. Hætta er talin á að
vinnumarkaðinum verði skipt
upp i A og B lið með þvi að það er
aðeins i fyrirtækjum með yfir 100
starfsmenn að gert er ráð fyrir i
tillögum Meidners að verkalýður-
inn eignist fyrirtækin smám sam-
an. Stjórnin og SAP munu ekki
taka afstöðu til tillagnanna fyrr
en þær hafa verið ræddar innan
verkalýðshreyfingarinnar.
Réttur i stað
áhrifa
Hinsvegar kynnti Ingemund
Bengtsson, atvinnumálaráðherra
svia, drög að nýju lagafrumvarpi
á flokksþinginu, sem gerir ekki
einungis ráð fyrir „áhrifum”
launafólks á stjórn fyrirtækja
heldur „rétti þess til þess að
taka þátt i ákvörðunum”. Frum-
varpsdrögin ná einnig til starfs-
manna rikis og bæja. 1 frum-
varpsdrögunum, sem lögð verða
fyrir þingið næsta vor og eiga að
verða að lögum 1. janúar 1977, er
gert ráð fyrir að stjórnir fyrir-
tækja, opinberra sem og i einka-
eign, verði að leggja allar
ákvarðanir sinar undir viðkom-
andi verkalýðsfélög og þeim
verður lögö á herðar sú skylda að
veita félögunum allar þær upp-
lýsingar sem þau óska.
Með þessu er rétti atvinnurek-
enda til þess að segja upp manni
án sérstakrar ástæðu hnekkt i
raun. Um þetta ákvæði, sem er
nr. 32 i sænsku vinnulöggjöfinni,
hefur staðið strið i mörg ár.
Sænskir kratar hafa farið sér
hægt i þjóðnýtingu og raunar
byggist efnahagskerfi þeirra að
verulegu leyti á þvi að sænsku
stórfyrirtækjunum sé gert kleift
að standast alþjóðlega sam-
keppni með ýmsum efnahagsað-
gerðum stjórnvalda. Þeir sósial-
demókratar á vinstri kantinum
sem vonuðust til þess að áhersla
flokksforystunnar á efnahagslegt
lýðræði myndi hafa i för með sér
ákvarðanir um þjóðnýtingu
banka, trygginga, og þungaiðnað-
ar, urðu fyrir vonbrigðum á
flokksþinginu. Engar fyrirætlanir
virðast vera uppi um þetta og
áætlanir um að þjóðnýta lyfja-
framleiðslu eru enn i lausu lofti
vegna harörar andstöðu, er þær
hafa mætt meðal starfsmanna i
þessari grein og meðal lyfjafram-
leiöenda.
Þátttaka i
atvinnulifinu
Hinsvegar tengist það pró-
gramminu um efnahagslegt lýð-
ræði að stjórnin hefur á prjónun-
um áætlanir um lögfestingu sex
stunda vinnudags fyrir barnafólk
og mikla uppbyggingu dagheimil-
isþjónustu, sem á að gera konum
kleift að taka þátt I atvinnulifinu
án þess að bæta á sig óeðlilegu
vinnuálagi við heimilisstörf eða
dýrri barnagæslu.
Sænskir kratar telja sig nú hafa
styrka stöðu. Siðustu skoðana-
kannanir sýna að meðal kjósenda
er fylgi þeirra um 43.5 prósent,
eða heldur meira en i kosningun-
um fyrir tveimur árum. Olof
Palme er nú ekki lengur umdeild-
ur leiðtogi i flokknum og með
hinni nýju stefnuskrá telja flokks-
menn að tekist hafi að mynda
hugmyndafræðilegan grundvöll,
sem flokknum reynist notadrjúg-
ur.
Á þinginu kom þó fram að
flokksmenn telja sig ekki örugga
um sigur i þingkosningunum að
ári. Fjármálaráðherrann, Gunn-
ar Stráng, var neyddur til þess að
lofa þvi á þinginu að leggja fram
frumvarp að nýjum skattalögum
fyrir kosningar, en hann hafði áð-
ur lýst þvi yfir að það yrði dregið
fram yfir kosningar. Ljóst er þó
að Strang ætlar sér ekki að gera
stórbreytingar á skattalöggjöf-
inni, þótt hún sé óvinsæl og skatt-
pining meðaltekjufólks sé mikil.
Hugsanlegt er þó að hann fáist til
þess að gera áætlun um þyngri
skatt á atvinnurekstur, sem taki
nokkur ár að koma i framkvæmd.
Er það allt i samræmi við hin
fleygu orð hans, ;,að það sem er
gott fyrir stórfyrirtækin sé gott
fyrir Sviþjóð og öfugt.”
Borgarastuðningur
Minnihlutastjórn Palmes héfur
undanfarin tvö ár stuðst i auknum
mæli við borgaraflokkana á þingi,
og þá sérstaklega Folkpartiet.
Fylgið hefurað undanförnu hrun-
ið af þeim flokki, en siðustu skoð-
anakannanir benda til þess að
hann sé úr hættu á þvi að detta
niður fyrir 4% markið i næstu
kosningum, en það er hinn svo-
kallaði þingþröskuldur i Sviþjóð.
Vinstri flokkurinn kommúnist-
arnir hefur um árabil stuðlað að
þvi að minnihlutastjórnir SAP
héldu velli. Flokkurinn á nú við
erfiðleika að striða vegna for-
mannaskipta og þess fylgishruns
sem umræða um vixlspor komm-
únistaflokksins i Portúgal hefur
leitt yfir hánn. Hið sama var upp
á teningnum eftir innrásina i
Tékkóslóvakíu 1968. Nái VPK
ekki yfir 4% markið i næstu kosn-
ingum er hætt við að borgara-
flokkarnir í Sviþjóð fái meiri
áhrif á stjórnina, þó að þeim tak-
ist ekki að binda endi á 44 ára
valdasetu SAP. Þá er hætt við að
tillogur sænskra sósíaldemókrata
um efnahagslegt lýðræði i landinu
verði i endanlegu formi mun út-
þynntari en jafnvel sjálf flokks-
forystan telur ákjósanlegt i dag.
—ekh.
Félag íslenskra
bifreiðaeigenda
Skrifstofan verður lokuð i dag vegna
setningar landsþings.
Tilboö óskast
i fólksbifreiðar, Pick-Up og sendiferðabif-
reiðar er verða sýndar að Grensásvegi 9,
þriðjudaginn 14. október kl. 12-3.
Sala varnarliðseigna.
Smáauglýsingar Þjóðviljans
30.000 LESENDUR
Atvinna * Atvinna
- ___ i
Forstöðukona
Barnavinafélagið Sumargjöf óskar að
ráða forstöðukonu að dagheimilinu Völvu-
borg við Völvufell. Fóstrumenntun er
áskilin. Laun samkvæmt kjarasamningi
starfsmannafélags Reykjavikurborgar.
Umsóknir sendist stjórn Sumargjafar,
Fornhaga 8, fyrir 25. október.
Barnavinafélagið Sumargjöf.
Fulltrúastaða
í utanríkisþjónustunni
Staða fulltrúa i utanrikisþjónustunni er
laus til umsóknar. Laun samkvæmt
launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf sendist utanrikisráðu-
neytinu, Hverfisgötu 115, Reykjavik, fyrir
10. nóvember 1975.
Staðan verður veitt frá og með 1. janúar
1976.
Utanrikisráðuneytið,
Reykjavik, 7. október 1975.
SENDLAR
Sendlar óskast fyrir hádegi eða allan dag-
inn. Þurfa að hafa reiðhjól eða vélhjól.
Skólavörðustlg 19
Sími 77500