Þjóðviljinn - 22.10.1975, Page 4
4 StDA — ÞJÖÐVILJINN Miðvikudagur 22. októbcr 1975.
DIOÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA/
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS
lOtgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson
Svavar Gestsson
Fréttastjóri: EJinar Karl Haraldsson
Umsjón með sunnudagsblaði:
Árni Bergmann
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Skólavörðust. 19. Simi 17500 (5 linur)
Prentun: Blaðaprent h.f.
TILRÆÐI VIÐ FRAMTÍÐINA
Þjóðviljinn birti i gær í heild skýrslu
Hafrannsóknarstofnunarinnar um ástand
fiskistofnanna og nauðsynlegar aðgerðir
til friðunar og til þess að skipuleggja
veiðamar. Þessi skýrsla er einn samfelld-
ur rökstuðningur fyrir þvi að ekki geti
komið til mála að veita útlendingum
neinar veiðiheimildir innan 50 milna
markanna þar sem meirihluti botnfisk-
aflans hefur verið tekinn. 1 inngangi
skýrslunnar kemur fram að ,,mikilvæg-
ustu fiskistofnar okkar eru þegar ofveidd-
ir”. í skýrslunni er lögð rik áhersla á það
að islendingar verði einir um veiðar
botnfisks á landgrunnssvæðinu, eða eins
og það er orðað i skýrslunni alveg
afdráttarlaust: ,,Það er mjög þýðingar-
mikið að útlendingar hætti fiskveiðum á
islenska landgrunninu.”
í skýrslunni er fjallað um einstakar
tegundir fisks. Þar er fyrst bent á að
ekki megi veiða meira en 230 þúsund tonn
af þorski á næsta ári, en það er einmitt
svipað magn og islendingar hafa einir
veitt við landið á undanförnum árum. Ef
hins vegar ekki yrði farið að tillögum
Hafrannsóknarstofnunarinnar yrði
hrygningarstofn þorsksins eftir 3 ár kom-
inn niður i 1/7 þess, sem hann var 1970.
Þetta þýðir með öðrum orðum að sjálfum
tilverugrundvellinum væri að verulegu
leyti kippt undan þjóðarbúinu og við blasti
efnahagslegt hrun fyrir islenska þjóð-
félagið ef ekki yrði gripið til ráðstafana
strax. Þessar alvarlegu aðvaranir verða
menn að gera sér ljósar og það með að
áframhaldandi fiskveiðar útlendinga inn-
an 50 milna landhelginnar eftir 13.
nóvember jafngilda þvi að við séum að
gefa þeim fjármagn úr þeim sjóðum sem
við sjálfir þurfum að nota til lifsviður-
væris eftir nokkur ár.
Hið sama er uppi á teningnum varðandi
aðrar fiskitegundir hér við land; ýsuaflinn
má á næsta ári ekki fara fram yfir 38
þúsund lestir, en það er nálega sama^
magn og islendingar hafa einir veitt við
landið. Ufsinn er nær fullnýttur með veið-
um islendinga einna. Talið er óhætt að
veiða nokkru meira magn af karfanum, en
sú viðbót er svo litil að litlu sem engu
breytir nema þá fyrir þau stóru islensku
fiskiskip sem hljóta að sækja karfann á
næstu misserum.
Ein röksemdin fyrir þvi að neita út-
lendingum um veiðar innan 50 milnanna
er sú sem hér hefur verið rakin, að við
erum hreinlega ekki aflögufærir og þurf-
um helst að gæta vandlega að eigin fiski-
sókn ef ekki á að keyra úr hófi fram. Við
þetta bætist sú staðreynd að með samn-
ingum við útlendinga um veiðar i land-
helginni er útilokað að hafa þá stjórn á
fiskveiðum og friðun sem nauðsynleg er
og Hafrannsóknarstofnunin telur i skýrslu
sinni frumskilyrði þess að ekki fari illa,
svo ekki sé fastar að orði kveðið.
Skýrsla Hafrannsóknarstofnunarinnar
kemur engum þeim á óvart sem eitthvað
hefur fylgst með umræðum um ástand
fiskistofnanna á undanförnum árum. En
skýrslan er engu að siður enn einröksemd-
in gegn samningum við útlendinga um
veiðar innan landhelginnar og m. tilliti til
hennar væri blátt áfram glæpsamlegt að
heimila öðrum en landsmönnum að nýta
fiskimiðin innan 50 milnanna. Enda hefur
meirihluti þjóðarinnar i ■ ótal fundar-
samþykktum lýst yfir eindreginni and-
stöðu við samninga um veiðar útlendinga
innan 50 mílna markanna.
Þjóðviljinn hefur áður beint aðvörunar-
orðum til rikisstjórnarinnar og þjóðarinn-
ar vegna landhelgismálsins. Þau hafa
sumpart verið endurtekin hér, en þvi skal
bætt við að rikisstjórn sem nú semdi um
veiðar innan 50 milnanna bæri ábyrgð á
tilræði við framtið þjóðarinnar. Þetta eru
stór orð. En þau eru sönn. Það skilur
þjóðin. —s.
KLIPPT...
Loftfimleikar kinversku iistámannanna voru stórkostlegir...
Lén Formósu
bað er ekki langt siðan
alþýðulýðveldið Kina varð til i
kortabókum utanrikis-
ráðuneytisins. Það var i liðlega
20 ár opinber stefna islenskra
stjórnarvalda að meginland
Kina væri eins konar lén hins
mikla höfðingja Formósu. Til
þess að sanna þá kenningu birti
Morgunblaðið æfisögur þessa
mikla leiðtoga eylandsins
samfara stórkostlegum lyga-
fréttum um þá menn sem i
óþökk leiðtogans höfðu á
svivirðilegasta hátt sölsað undir
sig yfirráð Kina. Margir
leiðarar voru skrifaðir i
borgaraleg blöð hér á landi til
að sanna að veldi Maós þessa
yfir Kina væri hreinasta bráða-
birgðaráðstöfun; áður en langt
liði myndi sá mikli Sjang Kai
Sjek snúa aftur til fólksins og
steypa þeim aulabárði, Mao Tse
Tung var sagður vera. bess var
vandlega gætt i borgaralegum
blöðum að geta þess hvergi'
að hungrið sjálft, enn erkióvinur
þriðjungs mannkyns hefði yfir-
gefið meginland Kina. Þess var
og vandlega gætt að geta hvergi
um sigra kinversku alþýðunnar
á öðrum sviðum.Samt fór ekki
hjá þvi að þeir islendingar sem
best voru upplvstir fréttu af þvi
og gekk á fund Maos; nú varð sá
siðarnefndi alltieinu maður með
mönnum i forheimskunar-
dálkum Morgunblaðsins.
Vinstristjórnin á Island:'
ákvað að viðurkenna Peking-
stjórnina. Það var átakanlegt
að sjá og heyra — þegar það
mál var á dagskrá alþingis
haustið 1971 — þegar einn þing-
manna Sjálfstæðisflokksins stóð
upp og belgdi sig allan upp á
móti þvi að Pekingstjórnin yrði
viðurkennd. Þögnin geymir best
nafn þessa postula fáfræðinnar;
þó hann sé enn þekktur forustu-
maður ihaldsins skal. honum
hlift við nafnbirtingu að sinni I
þessu samhengi.
Að stalli Maós
Nú er Kinverska alþýðulýð-
veldið til i skrám islensku utan-
rikisþjónustunnar; þó voru
embættismennirnir i utanrikis-
ráðuneytinu seinir að átta sig
eins og fyrri daginn, enda
samanlagt hæggengari en
nokkur einn embættismaður
annars staðar i „kerfinu”
margumrædda. Embættismenn
utanrikisráðuneytisins gleymdu
að þetta meginland niu hundruð
miljóna hafði sinn sérstaka
þióðfana. Þess vegna var fáni
Morgunblaðsins á
Formósu dreginn að húni yfir
höfðum fulltrúa Kinverska
alþýðulýðveldisins á Þing-
völlum i fyrrasumar; fulltrúar
Maós bónda gengu þá á brott og
yfirgáfu Matthias formann
þjóðhátiðarnefndarinnar.
En nú er allt fallið i ljúfa löð,
„happy end” eins og i amerisku
sleikjubrjóstsykursmyndunum i
sjónvarpinu. Nú er fyrrverandi
ritstjóri Morgunblaðsins orðinn
sendiherra i þvi landi sem hann
sagði allan sinn ritstjóraferil að
væri alls ekki til, en núverandi
ritstjóri Morgunblaðsins fellur
að fótum fram við stall Maos.
Þessi ritstjóri Morgunblaðsins
hefur fágætan hæfileika; þegar
Sigurður Bjarnason er nú sendi-
herra tslands i Kina. Hann varði
öllum starfsstundum sinum á
Morgunblaðinu árum saman i
að telja fólki trú um að Kina
væri ekki til.
einn guðinn bregst honum snýr
hann sér óðar við og beygir sig
fyrir hinum næsta.
Loftfimleikar
Matthíasar
Johannesens
Koma kinversku loftfimleika-
mannanna hér til lands er eins
og háðsmerki aftan við tilraunir
Morgunblaðsins i meira en 20 ár'
við að telja landsmönnum trú
um að Kinverska alþýðu-
lýðveldið væri alls ekki til.
Kinversku listamennirnir voru
stórkostlegir, þar sem þeir
blátt áfram ögruðu grund-
vallarlögmálum nátturunnar
hvað eftir annað. En — með
fullri virðingu fyrir kinversku
iistamönnunum og þakklæti
fyrir ánægjulega eftirmiðdags-
stund: Andlegir loftfimleikar
Matthiasar Johannesens eru i
rauninni miklu stórfenglegri
ögrun við rökrétta hugsun. — s.
að mikil undúr höfðu gerst i
Kina. Ber að þakka það Þjóð-
viljanum og fáeinum bókum
Máls og menningar. Þannig
vissu margir orðið um-
bvltineanna eða um gönguna
miklu, sem er svo einstakt
afrek, svo stór brotin dáð, að
allar göngur siðan eru smáar og
litilf jörlegar.
Kina er til
En staðreyndir samtimasög-
unnar þrengdu iskyggilega að
þeim „Morgunblaðslærðu.” Það
var ekki hægt til lengdar að
neita þvi að fjórðungur til þriðj-
ungur mannkyns bjó á megin-
landi Kina. Það var ekki lengur
hægt að neita þvi að Kina undir
leiðsögn Pekingstjórnarinnar er
eitt af stórveldum heimsins. Svo
fór að sjálfur erkipáfinn forseti
Bandarikjanna beygöi höfuð sitt
...en þeir blikna I samanburOi
við andlega loftfimleika Morg-
unbiaðsins og Matthiasar Jo-
hannesens.
OG SKORIÐ
■ a •